Tíminn - 12.09.1982, Síða 25
SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982.
dagbók
ýmislegt
Aðalfundur SUNN:
Óánægja með undir-
búning Blönduvirkjunar
■ Aðalfundur Samtaka um náttúru-
vemd á Norðurlandi, SUNN, var
haldinn í Árgarði í Skagafirði laugar-
daginn 21. og sunnudaginn 22. ágúst í
fögru veðri við sæmilega aðsókn. í
tengslum við fundinn var farið í
skoðunarferð fram Austurdal, allt fram
að Ábæ og var farið yfir jökulsána á
kláfnum við Skatastaði. í ferðinni voru
skoðuð ýmis athyglisverð náttúrufyrir-
bæri, svo sem fágætar eða_ þroskamiklar
plöntur, berglög og bergtegundir ásamt
holum í berglögin eftir stóra trjáboli. Á
laugardag var haldin kvöldvaka með
skagfirsku efni, Björn Egilsson, Sveins-
stöðum, sagði frá uppruna Sveins
Pálssonar, læknis og náttúrufræðings,
sem fæddur var á Steinsstöðum, og enn
fremur sagði hann frá Örlygsstaðabar-
daga, en hann var háður þama í
nágrenninu þennan sama mánaðardag
og vikudag fyrir 744 árum. Þá las
Hjörleifur Kristinsson á Gilsbakka Ijóð
eftir Hjörleif Jónsson. Hróðmar Jóns-
son stjórnaði almennum söng og sagði
ferðasögu af nokkrum skagfirskum
hagyrðingum uppá Hofsafrétt. Þá var
einnig lesin frásaga eftir Hallgrím
Jónasson, kennara, og loks söng Jóhann
Már Jóhannsson í Keflavtk nokkur lög
við mikla hrifningu áheyrenda.
í stjórn SUNN eru Árni Steinar
Jóhannsson, Akureyri, Áslaug Krist-
jánsdóttir Hrísey, Bjami Guðleifsson,
Möðruvöllum, Guðmundur Gunnars-
son, Akureyri, og Jón Fornason, Haga.
Á fundinum var mikið fjallað um
Blönduvirkjun og fyrirhugaða virkjun
Héraðsvatna. Kom fram almenn óá-
nægja með það hvernig unnið hefur
verið að undirbúningi Blönduvirkjunar
og einnig kom fram ótti við að svipuð
vinnubrögð yrðu enn viðhöfð við undir-
búning virkjana á vatnasviði Héraðs-
vatna. Flestir eða allir fundarmanna
töldu að virkjun Blöndu eftir tilhögun 1
með stíflu við Reftjamarbungu væri
mikið áfall fyrir náttúruvemd, vegna
þess að Blöndu hefði mátt virkja á annan
veg til verndar gróðurlendi. Hins vegar
var lögð á það áhersla að reynt yrði eftir
megni að draga úr landspjöllum ef
haldið verður áfram við þessa óheppi-
legu virkjunartilhögun.
íslendingar á ferð um
Mið-Asíu-lýðveldi
Sovétríkjanna
■ í ágústmánuði ferðuðust 52 ís-
lendingar í tæpar 3 vikur um Sovétríkin
á vegum MÍR, Menningartengsla ts-
lands og Ráðstjómarríkjanna, og heim-
sóttu þá m.a. nokkur af sovétlýðveld-
unum í Mið-Asíu. Var þetta fyrsti
ferðamannahópurinn af íslandi, sem
kom á þessar slóðir.
MÍR-hópurinn kom til Moskvu 3.
ágúst, en síðast lá leiðin til Leningrad,
Sotsí við Svartahaf, Tasjkent í Úzbek-
istan, Dúshanbe í Tadsjikistan, Alma-
Ata í Kazakhstan og Frúnze í Kirgisíu.
Stutt viðdvöl var í hverri borg nema
Sotsí, þar sem menn nutu sólar og sjávar
á baðströndinni í nokkra daga. Margvís-
legar skoðunarferðir vom farnar á öllum
stöðunum, sem heimsóttir voru, m.a.
skoðað teræktarbú í Dagomýs-dölum í
nágrenni Sotsí, en þar em nyrstu teekrur
í heimi. í Tadsjikistan skoðaði hópurinn
m.a. Núrek, víðfrægt raforkuver og
hæstu vatnsstíflur í heimi; f Alma-Ata
var þekkt útivistarsvæði og skautaleik-
vangur, Medeó, heimsótt o.s.frv.
Ferðaskrifstofumar Intourist í
Moskvu og Alt-rejser í Kaupmannahöfn
sáu um skipulagningu ferðarinnar fyrir
MÍR, en sovéska vináttufélagasamband-
ið og vináttufélögin á þeim stöðum sem
heimsóttir voru veittu einnig margvís-
lega fyrirgreiðslu. Þannig lagði vináttu-
félagasambandið til tvo íslensku mæl-
andi túlka, er voru með hópnum nær alla
ferðina, þá Sergei Halipov og Valdimír
Jakúp. Sergei Halipov er dósent við
háskólann í Leningrad, kennir einkum
sænsku og er mikið málaséní, talar um
25 tungumál. Hann hefur haft fá
tækifæri til að nota íslenskukunnáttu
sína á undanförnum áram og var þessi
samvera með íslendingunum honum því
góð þjálfun í íslenskunni. Hann hefur
aldrei til íslands komið.
Vladimír Jakúp, prófessor við
Moskvuháskóla, er mörgum íslend-
ingum að góðu kunnur, enda hefur hann
dvalist á íslandi nokkram sinnum. Hann
hefur flutt ótal fyrirlestra og sjónvarps-
þætti í Sovétríkjunum um ísland og þýtt
allmargar íslenskar bækur á rússnesku.
Nú síðast komu út í ágústbyrjun í
þýðingu hans tvær bækur eftir Ármann
Kr. Einarsson, „Niður um strompinn"
og „Landganga í Surtsey". Upplag
bókanna um 100 þúsund eintök. Vladi-
mír Jakúp hefur unnið á undanfömum
misseram að samningu kennslubókar í
íslensku fyrir rússneskumælandi nem-
endur. Býst hann við að bókin verði
fullsamin og gefin út eftir 2 til 3 ár.
Hópferð MÍR-félaganna til Sovétríkj-
anna í ágúst, hin fyrsta sem félagið
stendur fyrir, var m.a. farin til að
minnast 60 ára afmælis SSSR, Sambands
sósíaliskra Sovétríkja, á þessu ári. Þótti
ferðin takast vel og er líklegt að
framhald verði á þessum nýja þætti í
félagsstarfi MÍR.
VIDEO SPORT s/f
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 - Sími 33460 Höfum fengið mikið
af myndefni í V.H.S. með og án íslensks texta.
Opið alla
daga
kl. 13.00-23.00