Fréttablaðið - 10.01.2009, Side 24
10. janúar 2009 LAUGARDAGUR
UPPELDI FYRIR UMHVERFIÐ
M
eginboðskapur
bókarinnar er
kannski að það
er hægt að draga
úr neyslunni.
Það er alveg
hægt að búa vel að börnum án þess
að missa sig í neyslu,“ segir Katrín
Jakobsdóttir alþingismaður,
umverfissinni og síðast og alls ekki
síst móðir tveggja drengja, þriggja
og eins árs.
Katrín bendir á að foreldrar séu
mikill neytendahópur, þeir kaupi
bleiur, föt, dót og ýmsa hluti sem
taldir eru bráðnauðsynlegir fyrir
börn, en eru það kannski ekki þegar
betur er að gáð. „Í bókinni er svolít-
ið verið að velta vöngum yfir því
hvað sé nauðsynlegt, hvað hægt er
að fá lánað og hvað er endurnýtan-
legt.“
Katrín segir bókina hafa fengið
þau Gunnar til þess að velta fyrir
sér hlutum sem þau höfðu ekki spáð
í áður. „Til dæmis tillögum að nátt-
úrulegu hreinsiefni,“ segir Katrín
sem leggur áherslu á að þó að þau
hjónin séu miklir umhverfissinnar
þá séu þau ekki fullkomin í umverf-
isvæna uppeldinu frekar en nokkur
annar. „Við erum ekki fyrirmynd-
arforeldrar, erum ósköp venjulegir
Íslendingar.“
Meðal þess sem Katrín og Gunn-
ar hafa tileinkað sér er kemur að
umhverfisvænu uppeldi er að fá
eins mikið lánað á drengina sína og
kostur er. „Við fáum mjög mikið
lánað af fötum hjá ættingjum, nán-
ast allt nema skó og utanyfirklæðn-
að. Við höfum ekki verið hrædd við
það. Við höfum fengið lánað rúm
líka og vagn. Svo höfum við notað
taubleiur að einhverju leyti, að
minnsta kosti á meðan við vorum í
fæðingarorlofi.“
Katrín bendir foreldrum á, sem
hafa hug á umhverfisvænna upp-
eldi, að leita eftir merkingum um
að vörur séu umhverfisvænar, til
dæmis sé hægt að fá umhverfis-
vænar pappírsbleiur. „Svo er mjög
gott í bókinni að það er bent á ljós-
grænar, grænar og dökkgrænar
leiðir í uppeldinu, það eru sem sagt
ábendingar um umhverfisvænar
leiðir sem ganga mislangt, fólk
getur stigið smáskref eða gengið
alla leið eins og að nota taubleiu
eða sofa á hálmdýnu. Og hún er
hvetjandi en ekki fordæmandi sem
er mikilvægt.“
Mikil ofgnótt af leikföngum ein-
kennir mörg íslensk barnaheimili
og segir Katrín þarft að velta dót-
inu og því magni sem þar fyrir-
finnst aðeins fyrir sér. „Tilhneigin-
gin er sú að kaupa mikið dót handa
börnum, það þykir flestum svo
gaman að kaupa dót og auðvitað
verða börn voða glöð þegar þau fá
dót. Svo má alltaf velta fyrir sér af
hverju börn hafa gaman, mörg
börn hafa jafn gaman af tómri
dollu sem hringlar í og dóti.“
Bókin, sem er bresk, er miðuð
við breska hugmyndafræði en
Katrín segir þau hafa reynt að stað-
færa og laga að íslenskum aðstæð-
um eftir föngum. „Við bendum til
dæmis á sóunina á Íslandi en það
hafa verið gerðar kannanir sem
sýna að Íslendingar henda miklu af
mat og reyndar líka af snyrtivör-
um.“
Katrín bendir á að fólk sem
eignast börn endurskoðar gjarnan
lífið, er ekki eins og áður. „Það
hafa kannski verið alls konar kröf-
ur um neyslu sem eru ekki endi-
lega frá börnunum sjálfum komn-
ar, eins og um sjónvarp í hvert
herbergi. Það er kannski kominn
tími til að endurmeta það og hugsa
hvort það sé endilega það besta.“
sigridur@frettabladid.is
Erum ósköp venju-
legir foreldrar
Hjónin Katrín Jakobsdóttir og Gunnar Örn Sigvaldason reyna að hafa um-
hverfisvænar venjur að leiðarljósi í sínu uppeldi. Þau þýddu í sumar bókina
Uppeldi fyrir umhverfið sem hvatti þau til að endurskoða neysluvenjur sínar.
ÞRÍR FJÓRÐU FJÖLSKYLDUNNAR Illugi eins árs, Gunnar Örn og Katrín. Eldri sonurinn
Jakob var á leikskólanum þegar myndin var tekin. Fréttablaðið/GVA
Í bókinni Uppeldi
fyrir umhverfið er að
finna ýmsar hagnýtar
uppástungur að
grænu uppeldi. Hér
á eftir er bent á
góð ráð að grænu
uppeldi sem er að finna í bókinni og
eru þau af fjölbreytilegum toga sem
sjá má.
GRUNDVALLARATRIÐI
Það er mjög einfalt að verða grænni.
Hver og einn þarf einfaldlega að nota
færri vörur. Draga úr, nota aftur og
endurvinna er mantra grænna for-
eldra. Þeir sem eru dökkgrænir bæta
við afþakka og gera við.
HREINGERNING
Vistvænustu hreingerningarefnin eru
ef til vill til nú þegar í eldhúshillun-
um, sem dæmi má nefna:
Borðedik - þynnið það með vatni til
að þrífa borð, gler og flísar eða notið
óblandað til að losa stíflur í sturtu
og vaski.
Sítrónusafi - Látið drjúpa á borð-
plötu og skurðarbretti til að losna
við fitu.
Matarsódi - Blandið með vatni og
þrífið vaska og baðker.
Krydd - Látið handfylli af kryddi
malla til að fá ilm á heimilið (neg-
ulnagla, kanel, ferska engiferrót svo
dæmi séu tekin.
BLEYJUR
Það kostar fimm
sinnum meiri orku að
framleiða pappírs-
bleyju en taubleyju
kemur fram í bókinni en bent er á
þrjár mis umhverfisvænar leiðir í
bleyjumálunum í bókinni.
Ljósgrænt - Pappírsbleyjur sem
brotna niður í umhverfinu
Grænt - Taubleyjur sem þvo á með
vistvænu þvottaefni í A-merktri
þvottavél. Hengdar
til þerris en ekki
settar í þurrkara.
Dökkgrænt - Nota
bleyjur eins sjaldan
og hægt er, slást þannig í för með
bleyjufrelsishreyfingunni sem gengur
út á að stúdera venjur barnsins og
svipbrigði og hljóð sem gefa til kynna
hvað er á leiðinni.
LEIKFÖNG
Mikið leikfangaflóð einkennir mörg
barnaheimili og næsta víst að
leikföngin eru af mjög misjöfnum
gæðum. Mælt er með tréleikföngum
eða heimatilbúnum, og mjög gjarnan
notuðum. Eiguleg notuð leikföng
eru að mati bókarhöfunda: Legó,
Playmóbíl, Käthe Kruse-brúður sem
eru handgerðar trébrúður, Bríó-lestir,
Ikea-leikföng, dúkkuhús, virki eða
brúðuleikhús úr tré, byggingardót úr
málmi.
AGA Gasol®
15-21
Afgreiðsla ÍSAGA, Breiðhöfða 11,
er opin virka daga frá kl. 8 til 17.
Þú færð allar nánari upplýsingar
um AGA Gasol hylkin,
þrýstiminnkara, slöngur og
sérlausnir hjá umboðsmönnum
okkar og í þjónustuveri
ÍSAGA í síma 577 3000.
Þú
s
ér
ð
in
ni
ha
ld
ið
!
IS
A
-3
4
4
–
ÍD
E
A
g
rafísk h
ö
n
n
u
n
Heimsend
ingarþjónu
sta
NÝR
Alla daga
afgreiðslu
tími
heimsend
ingarþjónu
stu