Tíminn - 22.09.1982, Qupperneq 1
Getraunaleikurinn og íþróttir — sjá miðopnu
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Miðvikudagur 22. september.
215. tbl. - 66. árg
Utgerðarmerm gengu að tilboði ríkisstjórnarinnar:
STOÐVUN FLOTANS AFLETT TIL
AÐ FORÐA KLOFNINGI HJA LllJ
— Fengu 4% viðbótar fiskverðshækkun eins og þeim hafði verið boðið
■ Samninganefnd LÍÚ gekk í gær að
tilboði ríkisstjórnarinnar til lausnar
vanda útgerðarinnar og aflétti um leið
stöðvun flskveiðiflotans. Var þessi
ákvörðun tekin til að forða frekari
klofningi innan LÍÚ og eftir að nánari
upplýsingar lágu fyrir um hvemig að
framkvæmd ýmissa liða tillagna ríkis-
stjórnarinnar skyldi staðið. Jafnframt
samþykkti ríkisstjórnin á aukafundi að
flskverð skyldi hækkað um 4% til
viðbótar þeim 16% sem samþykkt vom
í yfirnefnd.
„Við tókum þessa ákvörðun vegna
Sýnarannsóknin úr „Gull-
skipinu”: g
„EITT SYNID
ER JAKVÆIT
■ „Endanlegar niðurstöður úr sýna-
rannsóknunum munu liggja fyrir alveg á
næstunni en við höfum fengið vitneskju
um að eitt sýnið sé mjög jákvætt“ sagði
Kristinn Guðbrandsson framkvæmda-
stjóri Björgunar h.f. í samtali við Tímann
en fyrir nokkrum vikum sendi
Björgun utan sýni úr „Gullskipinu"
svokallaða til aldursgreiningar og föru
sýnin bæði til Hollands og Svíþjóðar.
Kristinn sagði að ákvörðun um
framhaldið í þessu máli mundi verða
tekin er endanlegar niðurstöður úr
rannsóknunum lægju fyrir en það væri
þó Ijóst að uppgröftur mundi ekki fara í
gang aftur fyrr en snemma á næsta ári.
-FRI
Aðsókn minnkar að félagsmið-
stöðvum eftir opnun Villta
tryllta Villa:
ÖLVUÐUM KRÖKK-
UM HLEYPT INN?
■ „Ég vildi gjarna fá að hitta þann
mann sem heldur þvi fram að unglingam-
ir komist upp með að koma ölvaðir á
Villta tryllta Villa. Ég er alls ekki sáttur
við þann áburð og visa honum algerlega
á bug,“ sagði Tómas Tómasson, eigandi
unglingaskemmtistaðarins Villta tryllta
ViUa, þegar Tíminn bar undir hann
fullyrðingu Skúla Jóhanns Bjömssonar,
forstöðumanns Þróttheima um að ung-
Ungar sæktu VUlta tryllta Villa, frekar en
félagsmiðstöðvar borgarinnar vegna þess
að þar væri hægt að vera ölvaður.
Tómas sagði, að mjög strangt áfengis-
bann væri á skemmtistaðnum. Leitað
væri gaumgæfilega á öllum sem staðinn ■
sæktu. „Það segir sína sögu að fjóra
undanfama föstudaga, höfum við aðeins
fundið eina litla áfengisflösku, svona eins
og seldar eru í flugvélum," sagði Tómas.
í samtali við Tímann í gær, sagði Skúli
Jóhann, forstöðumaður Þróttheima, að
sér væri fullkunnugt að krökkum væri
hleypt inn á Villta tryllta Villa undir
áhrifum áfengis.
-Sjó.
Sjá nánar bls 3.
Samúðarstund
vegna atburðanna í Líbanon
■ Stjórnmálaflokkarnir - Alþýðu-
bandalag, Alþýðuflokkur, Framsóknar-
flokkur og Sjálfstæðisflokkur - gangast í
dag fyrir suttri samúðarstund við
Alþingishúsið og hefst hún kl. 17.15
stundvíslega.
Biskupinn yfir Islandi, herra Pétur
Sigurgeirsson, flytur ávarp, og síðan
verður þögn nokkrar mínútur til að láta
í Ijós samúð íslendinea vegna hinna
hörmulegu atburða í Líbanon. Stjóm-
málaflokkarnir hvetja fólk til þátttöku í
þessari samúðarstund.
þeirrar vissu að ríkisstjórnin myndi
skömmu st'ðar lýsa yfir þeim hlutum sem
við gætum sætt okkur við,“ sagði
Vilhelm Þorsteinsson, varaformaður
LÍÚ í samtali við Tímann. Vilhelm sagði
að þetta mál hefði nú verið farsællega til
lykta leitt og LÍÚ myndi jafnframt slá
striki yfir það þó að einstakar útgerðir
hefðu brotið í bága við ákvörðunina um
stöðvun flotans.
„Það verður enginn látinn gjalda bess
þó að hann hafi hlaupið út undan sér,“
sagði Vilhelm Þorsteinsson.
Ákvörðun samninganefndar LÍÚ um
að ganga að tilboði ríkisstjórnarinnar,
var tekin eftir að útvegsmenn sáu að
sjávarútvegsráðherra varð ekki haggað
varðandi þá ákvörðun að engar
viðræður myndu eiga sér stað fyrr en
flotinn léti úr höfn. Eftir að tilraun
útvegsmanna til að „pressa á“ sjávar-
útvegsráðherra með því að leka út
villandi upplýsingum um viðræður
þeirra sl. laugardag, mistókst, varð Ijóst
að klofningur innan LÍÚ var óumflýjan-
óvænna og hófu þá þegar óformlegar
viðræður við sjávarútvegsráðherra, sem
nú hafa orðið til þess að deilan er leyst
í bili a.m.k.
Þess má geta að sú 20% hækkun
fiskverðs sem gilda mun frá 15.
september s.l., er sama hækkun og
útvegsmönnum var boðin í upphafi en
þeir höfnuðu þá á þeirri forsendu að hún
væri allt of lág.
-ESE
■ Steingrímur Hermannsson, sjávarútvegsráðherra kemur af aukafundi ríkisstjórnarínnar eftir að útgerðarmenn hðfðu
aflétt stöðvun fiskiskipaflotans.
Ttmamynd Robert
maammaam