Fréttablaðið - 10.01.2009, Síða 46
10. janúar 2009 LAUGARDAGUR
ROD STEWART SÖNGVARI FÆDDIST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1945.
„Elvis var kóngurinn, engin
spurning um það. Fólk eins
og ég, Mick Jagger og allir
hinir höfum einungis fylgt í
fótspor hans.“
Rod Stewart er breskur rokk-
söngvari sem hefur gert það
gott í marga áratugi.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát
og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Teits Magnússonar
skipstjóra, Kirkjulundi 8, Garðabæ.
Guðný Sæmundsdóttir
Margrét Teitsdóttir Jón Ásgeir Eyjólfsson
Magnús G. Teitsson Erla S. Ragnarsdóttir
Oddný S. Teitsdóttir Ari F. Steinþórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Ingólfur Hallsson
Steinkirkju, Fnjóskadal, síðast til heimilis
að Þórunnarstræti 108, Akureyri,
lést á gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri þriðju-
daginn 6. janúar. Útförin fer fram í Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 15. janúar kl. 10.30. Hann verður jarð-
sunginn í Illugastaðakirkju kl. 13.00 sama dag.
Lovísa Emilía Sigurbjörnsdóttir
Ólöf Erla Ingólfsdóttir Matthías Páll Matthíasson
Gunnar Hallur Ingólfsson Auður Snjólaug Karlsdóttir
Elín María Ingólfsdóttir Guðmundur Breiðdal
Ásta Emma Ingólfsdóttir Jóhannes Hilmisson
Eiður Björn Ingólfsson Sigurjóna Björk Andrésdóttir
Sigurður Óli Ingólfsson Hulda Olsen
Jón Guðlaugsson Hanna Stefánsdóttir
afabörn og langafabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Stefán G. Pétursson
Tröllagili 14, Akureyri,
sem andaðist á Dvalarheimilinu Hlíð laugardaginn
3. janúar, verður jarðsunginn frá Glerárkirkju þriðju-
daginn 13. janúar klukkan 13.30. Blóm og kransar eru
vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast
hans, er bent á að láta Parkinsonfélag Akureyrar og
nágrennis njóta þess.
Kristbjörg Magnúsdóttir
Helgi Magnús Stefánsson Helga Kristjánsdóttir
María Sigurbjörg Stefánsdóttir Leiknir Jónsson
Svandís Ebba Stefánsdóttir Jóhannes Páll Héðinsson
Anna Kristín Stefánsdóttir Anfinn Heinesen
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir sýnda vináttu
og samúð við fráfall
Arnar Clausen
hæstaréttarlögmanns.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á deild 3 B á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni.
Guðrún Erlendsdóttir
Ólafur Arnarson Sólveig Sif Hreiðarsdóttir
Guðrún Sesselja Arnardóttir Jóhann Sigurðarson
Jóhanna Vigdís Arnardóttir Þorsteinn Guðbjörnsson
og barnabörn.
Afmæli
Innilegar þakkir fyrir ótal góðar kveðjur, g jafi r og hlýju mér
sýnda á afmæli mínu, 7. desember sl. Sérstakar þakkir til
Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna og stjórnanda, Olivers
Kentish, fyrir fl utning á hljómsveitarverki mínu ,,Eldi“ í
Fella- og Hólakirkju á afmælisdaginn. Einnig vildi ég þakka
Ara Alexander Ergis og tengdasyni mínum, Valgarði Egilssyni,
fyrir gerð heimildamyndar um líf mitt og starf, sem veitti
mér ómælda ánæg ju. Fjölskyldu minni þakka ég ómetanlegan
stuðning. Lifi ð heil!
Jórunn Viðar,
Laufásvegi 35, Reykjavík.
90 ára afmæli
Guðbjörg Salóme
Þorsteinsdóttir
Pólgötu 6, Ísafi rði, varð níræð fi mmtu-
daginn 8. janúar. Í tilefni afmælisins er opið
hús fyrir vini og vandamenn í dag laugard-
ag þann 10. janúar milli kl. 15.00 og 18.00 í
Borgum, safnaðarheimili Kópavogskirkju.
Næg bílastæði við kirkjuna. Verið velkomin.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Jóhannes Pétur Sigmarsson
Borgarvegi 20A, Njarðvík,
áður Hilmisgötu 1, Vestmannaeyjum,
er látinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hins látna.
Helga Jóhannesdóttir
Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir
Sigmar Jóhannesson
og fjölskyldur þeirra.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Guðrúnar Sigurðardóttur
frá Rauðuskriðu, Byggðavegi 137,
Akureyri.
Gestur Hjaltason Hulda Gestsdóttir
Sigurður Gestsson Kristín Kristjánsdóttir
Hjalti Gestsson Aníta Júlíusdóttir
Sverrir Gestsson Hrefna Óladóttir
ömmu- og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu
okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför
okkar ástkæra eiginmanns, föður og
tengdaföður,
Þorfinns Jóhannssonar
Daggarvöllum 4b, 221 Hafnarfirði.
Ingibjörg Gígja Karlsdóttir
Karl Jóhann Valdimarsson Erla Þóra Óskarsdóttir
Jóhann Þorfinnsson Hafdís Erlingsdóttir
Anna Kristín Þorfinnsdóttir Inge Poulsen
Björn Þorfinnsson Þorgerður Hafsteinsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Úlfar Guðmundsson
húsasmíðameistari,
lést á heimili sínu 2. janúar síðastliðinn. Útför hans
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 12. janúar kl.
15.00.
Gyða S. Hansen
Anna Kristín Úlfarsdóttir
Guðmundur Örn Úlfarsson Jóna Dagbjört Dagsdóttir
Alda Gyða Úlfarsdóttir
og barnabörn.
100 ára afmæli
Svanlaug
Einarsdóttir
Birkimörk 8 Hveragerði,
áður Fannborg 1 Kópavogi,
varð 100 ára á jóladag 25. des.
2008. Vegna lasleika gat hún ekki
tekið á móti gestum þá en býður nú
til kaffi veislu á Hótel Örk í Hveragerði
sunnudaginn 11. jan. milli kl. 15 og 17.
Ætting jar og vinir eru hvattir til að koma og gleðjast
með henni vegna þessara tímamóta.
Svanlaug afþakkar allar g jafi r, en það myndi gleðja hana ef
þess í stað væri gefi ð til líknarfélaga í hennar nafni eða í
söfnunarbauk sem verður við gestabókina og rennur til
framtaksins „Vatn handa öllum“.
timamot@frettabladid.is
„Athyglin er svo mikil að mér líður eins og rokkstjörnu,“
segir Ögmundur Þór Jóhannesson gítarleikari hlæjandi
þegar í hann næst. Hann kveðst vera í helgarhoppi á land-
inu og síminn hans hafi byrjað að hringja um leið og hann
sté niður úr flugvélinni.
Ögmundur Þór hlaut í gær 500.000 króna styrk úr tón-
listarsjóði Rótarýs árið 2009. Afhendingin fór fram á árleg-
um stórtónleikum Rótarýumdæmisins á Íslandi sem haldnir
voru í Salnum og verða endurteknir í dag vegna mikillar að-
sóknar. Ögmundur Þór leikur þar dúó með Melkorku Ólafs-
dóttur flautuleikara sem fékk einmitt Rótarýstyrkinn í fyrra
en sjóðurinn hefur jafnan látið sér annt um ungt og eljusamt
tónlistarfólk.
Ögmundur Þór er fæddur 1980 og byrjaði ellefu ára að
læra á gítar í Tónlistarskóla Kópavogs. Eftir útskrift með
láði vorið 2000 lá leiðin til Barcelóna á Spáni í framhaldsnám
og síðar til Salsburg í Austurríki í háskóla sem kenndur er
við Mozart. Þar lauk hann meistaragráðu síðastliðið vor með
hæstu einkunn. Auk þess hefur Ögmundur Þór sótt fjölda
námskeiða hjá frægum gítarleikurum, farið með sigur úr
alþjóðlegum gítarkeppnum og hlotið fleiri viðurkenningar.
Hann kveðst hafa alist upp við tónlist og verið ungur þegar
hann valdi gítarinn.
„Það var gítar á heimilinu. Pabbi spilaði trúbadorlögin,
Bob Dylan og eigin tónsmíðar og ég var hugfanginn af þessu
hljóðfæri strax frá unga aldri,“ segir Ögmundur Þór sem
er nýlega sestur að í Berlín þar sem hann starfar sjálfstætt
sem tónlistarmaður. „Ég kenni við tvo tónlistarskóla og er að
bæta þeim þriðja við mig,“ segir hann og kveðst líka láta sig
dreyma um að vinna í kammerhóp. Fram undan eru auk þess
litlir portretttónleikar í Berlín. „Ég var að velja gítar fyrir
annan tónlistarskólann sem ég vinn í og verslunarmaðurinn
sem heyrði mig spila bað mig að halda tónleika í búðinni,“
segir hann brosandi. „Ég ætla að skipuleggja þá eins vel og
ég get. Bjóða gömlum gítarrefum og tónleikahöldurum.“
Draumur Ögmundar Þórs er að halda stóra tónleika með
íslenskri tónlist fyrir einleiksgítar. „Karólína Eiríksdóttir
tónskáld samdi sónötu í fyrra sem ég hef spilað í París en er
ekki búinn að frumflytja hér á landi,“ bendir hann á. Kveðst
hafa verið boðinn á Myrka músíkdaga en þeir hafi því miður
verið strikaðir út á kreppufundi. „En ég held bara tónleika
hér 2010 í staðinn,“ segir hann vongóður. gun@frettabladid.is
ÖGMUNDUR ÞÓR: FÉKK RÓTARÝSTYRK 2009
Mér líður eins
og rokkstjörnu
MEISTARINN Ég var hugfanginn
af þessu hljóðfæri strax frá unga
aldri,“ segir Ögmundur Þór.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N