Fréttablaðið - 10.01.2009, Síða 51
LAUGARDAGUR 10. janúar 2009
www.leikhusid.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Þjóðleikhúsið
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Hart í bak
Jökull Jakobsson
Hrífandi verk sem snertir okkur öll
EB, FBL
örfá sæti laus í janúar
Klókur ertu, Einar Áskell
Bernd Ogrodnik
Krúttleg brúðusýning fyrir yngstu börnin
sun. 11/1 tvær sýningar
sun. 18/1 síðustu sýningar
Sumarljós
Jón Kalman Stefánsson
leikgerð og leikstjórn Hilmar Jónsson
Hrífandi, einlæg og æsandi sýning
lau. 10/1 örfá sæti laus
sun. 11/1 uppselt
Heiður
Joanna Murray-Smith
Frumsýning í
Kassanum 24. janúar
Nokkur hundruð verka Jóhannes-
ar S. Kjarvals í eigu Listasafns
Reykjavíkur verða dregin fram í
dagsljósið á sýningunni Mynd af
heild sem verður opnuð í austursal
Kjarvalsstaða í dag. Það sem ein-
kennir sýninguna er að hún er sett
fram í anda salon-sýninga, þar sem
verkin þekja alla veggi sýningar-
rýmisins, frá gólfi og upp í loft, án
nokkurrar reglu, rétt í þeim anda
sem fyrstu sýningar hans voru.
Byggir hún á hefð sem salon-sýn-
inga í París á nítjándu öld.
Sýningin byggir ekki á ákveðnu
þema, tímaskeiðum, viðfangsefn-
um eða tímaröð. Áhersla er lögð á
óvænt samhengi verkanna. Áhorf-
andinn nálgast verk Kjarvals
fyrirmælalaust og nýtur þess á
eigin forsendum að skyggnast inn
í hugarheim hans. Sýningin stend-
ur til 13. apríl. Sýningarstjóri er
Helga Lára Þorsteinsdóttir.
Listasafn Reykjavíkur hefur
leitast við að setja Kjarvalssafn
sitt fram á ólíkan máta, með þema-
tengdum sýningum, yfirlitssýn-
ingum og samsýningum en í fyrsta
sinn er safneignin sýnd í heild
sinni, ef frá eru taldar teikningar
og skissur sem eru í eðli sínu ekki
sýningargripir eða tilbúnar til
sýningar. Er spennandi að sjá alla
safneignina í heild sinni sem sjald-
an gefst tækifæri til.
Kjarvalssafneign safnsins sam-
anstendur af 3.348 verkum eftir
listamanninn; 3.189 teikningum og
159 málverkum. Kjarval ánafnaði
Reykjavíkurborg Með tíð og tíma
hefur safnið vaxið jafnt og þétt;
bæði hafa verið keypt verk í safn-
ið en einnig hefur því borist fjöldi
ómetanlegra gjafa frá einstakling-
um sem hafa styrkt safnið veru-
lega.
Sýningarsalurinn verður opn-
aður kl. 14 en þá mun Hafþór
Yngvason, safnstjóri Listasafns
Reykjavíkur, fylgja gestum um
sýninguna og ræða um hvernig
safneign verður til, hvernig hún
þróast, gildi hennar og hvaða þætt-
ir geta haft mótandi áhrif á upp-
byggingu hennar. Hann fjallar auk
þess um ólíkar leiðir við framsetn-
ingu sýninga og upphengingu
verka; hvaða þýðingu slíkt hefur
fyrir áhorfandann og miðlun verk-
anna, en Listasafn Reykjavíkur
fer nú ótroðna slóð í framsetningu
sinni á verkum Kjarvals.
- pbb
Öll verk Kjarvals á salon
MYNDLIST Undirbúning lokið og verkin komin upp í gær á Kjarvalsstöðum.
MYND FRÉTTABLAÐIÐ/
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 10. janúar
➜ Opnanir
14.00 Tilbrigði við jökulinn Hrefna
Víglundsdóttir opnar sýningu í Reykjavík
Art Gallery, Skúlagötu 30.
14.00 Lúmen Ásdís Kalman opnar
sýningu í Listasal Mosfellsbæjar, Kjarna,
Þverholti 2, Mosfellsbæ.
15.00 Tvær sýningar
verða opnaðar í Hafn-
arborg, Strandgötu 34
í Hafnarfirði. Íslenskir
listamenn Ljósmyndir
eftir Jónatan Grétars-
son. Þættir Verk eftir
Björgu Þorsteins-
dóttur.
16.00 Kristján Steingrímur opnar sýn-
ingu í Listasafni ASÍ, Freyjugötu 41.
16.00 TRANSIT Hlynur Helgason opnar
sýningu í Suðsuðvestri, Hafnargötu 22 í
Reykjanesbæ.
16.00 360 Hafsteinn Guðjónsson
opnar sýna fyrstu einkasýningu í Hinu
Húsinu við Pósthússtræti 3-5.
➜ Tónleikar
22.00 Trompetleikarinn Ari Bragi
Kárason verður með tónleika á Prikinu
við Bankastræti.
23.00 Indie hljómsveitin Kuroi verður
með útgáfutónleika á Grand Rokk við
Smiðjustíg. Þar mun einnig koma fram
Retro Stefson.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is