Fréttablaðið - 10.01.2009, Síða 58
42 10. janúar 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Æfingarmót í Danmörku
Ísland-Rúmenía 34-28 (15-11)
Mörk Ísland: Þórir Ólafsson 8, Sturla Ásgeirsson
7, Logi Geirsson 6, Rúnar Kárason 4, Ragnar
Óskarsson 2, Róbert Gunnars. 2, Vignir
Svavars. 2, Ásgeir Örn Hallgríms. 1, Sigurbergur
Sveinsson 1, Ingimundur Ingimundarson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 14, Magnús
Gunnar Erlendsson 1.
Æfingarmót í Frakklandi
Ísland 2012-Irvy 28-27 (15-13)
Mörk Íslands 2012: Ólafur Guðmunds. 5, Elvar
Friðriks. 4, Freyr Brynjarsson 4, Kári K. Kristjáns.
3, Hannes J. Jónsson 3, Arnór Gunnars. 3, Bjarni
Fritzson 2, Sigurgeir Á. Ægisson 1, Fannar
Friðgeirs. 1, Oddur Grétars. 1, Ingvar Árnason 1.
Varin skot: Pálmar Péturs. 14, Ólafur Gíslason 2.
Iceland Express deild karla
ÍR-KR 80-98 (38-52)
Stig ÍR: Hreggviður Magnússon 23, Ómar
Sævars. 20, Ólafur Þóris. 9, Steinar Arason
8, Davíð Fritzson 6, Eiríkur Önundarson 6,
Sveinbjörn Claessen 3, Daði Grétarsson 2, Bjarni
Valgeirsson 2, Ólafur Ingvason 1.
Stig KR: Jón Arnór Stefánsson 20, Jakob Örn
Sigurðarson 19, Darri Hilmarsson 18, Jason
Dourisseau 16, Fannar Ólafsson 9, Skarphéðinn
Ingason 8, Pálmi Sigurgeirsson 6, Hjalti
Kristinsson 1, Ólafur Ægisson 1.
Njarðvík-FSu 82-84 (45-35)
Stig Njarðvíkur: Logi Gunnarsson 31, Friðrik
Stefánsson 20 (13 fráköst, 5 stoðs.), Hjörtur
Einarsson 16, Hilmar Hafsteinsson 8, Ágúst
Dearborn 5, Valur Orri Valsson 2.
Stig FSu: Sævar Sigmundsson 28 (8 fráköst),
Vésteinn Sveinsson 19, Árni Ragnarsson 18 (8
fráköst), Cristopher Caird 8, Tyler Dunaway 5,
Nicholas Mabbutt 3, Björgvin Valentínus. 2.
Tindastóll-Snæfell 88-95 (45-49)
Stig Tindastóls: Helgi Viggós. 18, Ísak Einars. 17,
Svavar Birgis. 14, Friðrik Hreins. 13, Alex Kárason
11, Óli Reynisson 6, Halldór Halldórsson 5, Einar
Einarsson 2, Hreinn Birgisson 2.
Stig Snæfells: Sigurður Þorvaldsson 29 (7 frák,
5 stoðs.), Jón Jónsson 22, Hlynur Bæringsson 14
(11 fráköst, 5 stoðs.), Slobodan Subasic 10, Atli
Hreinsson 7, Gunnlaugur Smárason 5, Daníel
Kazmi 3, Egill Egilsson 3, Guðni Sumarliðason 2.
N1 deild kvenna
Haukar-Valur 29-26 (14-15)
Mörk Hauka: Ramune Pekarskyte 11, Hanna
Stefánsdóttir 9/6, Nína Arnfinnsdóttir 3, Nína
Kristín Björnsdóttir 3, Ester Óskarsdóttir 1, Erna
Þráinsdóttir 1, Hekla Hannesdóttir 1.
Varin skot: Heiða Ingólfsd. 8, Bryndís Jónsd. 2
Mörk Vals: Hrafnhildur Skúladóttir 7/5, Drífa
Skúladóttir 5/1, Dagný Skúladóttir 4, Kristín
Guðmundsdóttir 3, Hildigunnur Einarsdóttir 3, Íris
Ásta Pétursdóttir 2, Haftrún Kristjánsdóttir 2.
Varin skot: Berglind Íris Hansdóttir 16
ÚRSLIT
> Ísland mætir Færeyjum
Karlalandslið Íslands í fótbolta mætir Færeyjum í
vináttulandsleik í Kórnum sunnudaginn 22. mars en
þetta var staðfest á heimasíðu KSÍ í gær. Þjóðirnar
mættust einnig í vináttulandsleik í Kórnum fyrir um ári
síðan og þá vann Ísland 3-0. Ekki er um alþjóðlegan
leikdag að ræða þannig að landsliðsþjálfarinn
Ólafur Jóhannesson getur ekki valið
sitt sterkasta lið fyrir leikinn. Rúmri
viku síðar mætir Ísland svo Skotlandi
á Hampden Park-leikvanginum í
Glasgow í undankeppni HM 2010.
Næsta verkefni karlalandsliðsins
er hins vegar vináttulandsleikur
gegn Liechtenstein á La Manga
á Spáni 11. febrúar.
Karlalandslið Íslands í handbolta vann Rúmeníu 34-28 í
fyrsta leik sínum á fjögurra þjóða æfingarmóti sem hófst
í Skjern í Danmörku í gær en staðan í hálfleik var 15-11
Íslandi í vil. Hornamennirnir Þórir Ólafsson og Sturla
Ásgeirsson voru atkvæðamestir hjá Íslandi en Þórir
skoraði átta mörk og Sturla skoraði sjö mörk. Þá skoraði
Logi Geirsson sex mörk og markvörðurinn Björgvin Páll
Gústavsson varði fjórtán skot en Rúmenía er á meðal þjóða
sem keppa á HM í Króatíu síðar í mánuðinum.
„Þetta var svolítið brösugt í byrjun þar sem við vorum að klúðra
miklu af dauðafærum en mér fannst við samt alltaf vera með þetta í
hendi okkar. Við vorum komnir með einhver tíu mörk í forskot eftir
um fjörtíu mínútur og vorum að ná að refsa þeim með hröðum
sóknum en þá gerðum við breytingar á liðinu sem gengu ekki
upp og misstum þetta niður í tvö mörk. Við komum svo upp
aftur í lokin og kláruðum þetta en þetta er samt lið sem við
eigum ekki að tapa fyrir,“ segir Róbert Gunnarsson sem
borið hefur fyrirliðaband íslenska liðsins í undanförnum
leikjum.
Íslenska liðið er búið að spila þétt síðustu daga og álagið talsvert á
hópunum, sér í lagi eftir að fjórir leikmenn höfðu meiðst. Því var
brugðið á það ráð að kalla á Valdimar Fannar Þórsson og mark-
vörðinn Magnús Gunnar Erlendsson inn í leikmanna-
hóp íslenska liðsins, en þeir komu inn í hópinn til þess
að leysa hina meiddu Aron Pálmarsson og markvörð-
inn Hreiðar Guðmundsson af hólmi.
„Nýju mennirnir komu báðir vel inn í þetta og Maggi
var að spila sinn fyrsta landsleik og fær örugglega að
kenna á vígsluathöfninni eftir lokaleikinn í mótinu,“ segir
Róbert á léttum nótum.
Íslendingar leika annan leik sinn í mótinu í dag þegar
þeir mæta Dönum.
„Það er alltaf gaman að mæta Dönum og þeir eru að
vanda með mjög gott lið. Þjálfari þeirra segist hins vegar
harma að við erum ekki með okkar sterkasta lið gegn
þeim þar sem hann hafi verið að vonast eftir alvöru leik.
Við þurfum náttúrulega bara að refsa honum fyrir þennan
hroka inni á vellinum,“ segir Róbert ákveðinn.
RÓBERT GUNNARSSON: VAR ÁGÆTLEGA SÁTTUR VIÐ SPILAMENNSKUNA Í 34-28 SIGRI ÍSLANDS GEGN RÚMENÍU Í GÆR
Rúmenía er lið sem við eigum ekki að tapa fyrir
HANDBOLTI Haukar sigruðu Val í
hröðum og spennandi leik, 29-26,
á Ásvöllum í gær í N1 deild
kvenna. Haukastelpur eru þar
með komnar með sex stiga for-
skot á Stjörnuna á toppi deildar-
innar en Stjarnan á þrjá leiki til
góða. Valur er í þriðja sæti átta
stigum á eftir Haukum og er úr
leik í baráttunni um deildarmeist-
aratitilinn.
Haukar byrjuðu betur með
Ramune Pekarskyte í banastuði.
Þegar Ramune hafði skoraði
fimm mörk snemma leiks brugðu
Valsstelpur á það ráð að taka
stórskyttuna úr umferð og
við það riðlaðist sóknarleikur
Hauka. Valur komst yfir og
var einu marki yfir í leik-
hlé, 15-14.
„Ég bjóst við að þær
myndu taka hana úr
umferð allan leikinn
eins og önnur lið hafa
gert þannig að það
átti ekki að koma
okkur á óvart,“ sagði
Díana Guðjónsdóttir þjálf-
ari Hauka í leikslok.
Haukar leystu úr vandræð-
um sínum í síðari hálfleik og
komust yfir strax í upphafi
síðari hálfleiks og létu for-
ystuna aldrei af hendi þó
ekki hafi munað meira
en tveimur mörkum á
liðunum þar til á síð-
ustu mínútu þegar
Haukar gerðu út um
leikinn.
„Þetta eru tvö mjög góð lið á
toppnum. Maður vissi að þetta
yrði erfitt en það er gott að ná að
skilja Val aðeins eftir og það var
það sem við ætluðum okkur,“
sagði Díana.
Bæði lið gerðu sig sek um
marga sóknarfeila sem rekja má
til mikils hraða í leiknum sem var
bráðskemmtilegur á að horfa. Það
sem skildi á milli í lokin var frá-
bær leikur Ramune sem gat skor-
að í hvert skipti sem hún komst í
námunda við punktalínuna.
-gmi
Haukastúlkur styrktu stöðu sína á toppi N1-deildarinnar með 29-26 sigri gegn Valsstúlkum í gærkvöld:
Haukar náðu sex stiga forskoti á toppnum
HANNA Var öflug að vanda
fyrir Hauka og skoraði níu
mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÖRFUBOLTI KR-ingar urðu fyrsta
liðið í sögu úrvalsdeildar til að
vinna fyrsta leikinn á nýju ári
eftir að hafa unnið alla leikina
fyrir áramót þegar þeir unnu 98-
80 sigur á ÍR í Seljaskólanum í
gær.
ÍR-ingar byrjuðu mjög vel og
komust í 13-4 og 16-11 en Jón
Arnór Stefánsson skoraði þá 6 stig
í röð og í framhaldinu tóku KR-
ingar góð tök á leiknum og voru
komnir 52-38 yfir í hálfleik. ÍR
náði smá spretti í lok þriðja leik-
hluta en gott leikhlé Benedikts
Guðmundssonar, þjálfara KR
skerpti á hans mönnum sem lönd-
uðu öruggum sigri.
Bakverðir KR-liðsins, Jakob
Sigurðarson og Jón Arnór Stefáns-
son, léku mjög vel að vanda og
voru saman með 39 stig og 11 stoð-
sendingar. Þá kom Darri Hilmars-
son öflugur inn af bekknum og
Fannar Ólafsson var grimmur á
báðum endum vallarins.
„Þeir fengu lítið gefins í þessum
leik og ég hafði aldrei áhyggjur
þótt að við höfum lent einhverjum
10 stigum undir. Við erum líka
ekki heldur búnir að gleyma að við
duttum út fyrir þeim í fyrra,”
sagði Benedikt Guðmundsson,
þjálfari KR, sem var sáttur við
einbeitingu sinna manna í gær.
„Ég var með leikinn á sunnu-
daginn í kollinum og reyndi að
halda lykilmönnunum eins mikið
útaf og ég gat. Það er erfitt að fá
leik á föstudegi og sunnudegi og
fá engan tíma til að undirbúa
seinni leikinn. Þetta er eins og að
fá tvö próf sama dag því þú ert að
undirbúa þig fyrir bæði,“ sagði
Benedikt en KR mætir Keflavík í
bikarnum á morgun.
Ómar Sævarsson var bestur ÍR-
inga en KR-ingum gekk lengstum
vel að stoppa Hreggvið Magnússon
sem skoraði 10 af 23 stigum sínum
þegar sigur KR-liðsins var í höfn.
Það munaði miklu að Sveinbjörn
Claessen meiddist í upphitun.
„Ég er ekki nægilega sáttur við
sjálfan mig. Við vorum líka að
gera of mikið af mistökum í vörn-
inni og þeir eru bara með það gott
lið að þeir refsa þér um leið,” sagði
ÍR-ingurinn Hreggviður Magnús-
son. ÍR-hefur tapaða fyrir Grinda-
vík og KR í síðustu leikjum en
Hreggviður segir þau vera góð lið
en ekki ósigrandi.
„Þetta eru bæði lið sem er hægt
að vinna og við eigum eftir að gera
góða hluti þegar líða tekur á tíma-
bilið. Við höfum verið að spila á
móti toppliðum og höfum verið að
spila vel á köflum. Það er klárlega
stígandi hjá okkur og ég hlakka til
komandi leikja. Það er ekkert
nema bjartsýni hjá okkur. Við
förum nú til Grindavíkur í átta
liða úrslitum bikarsins á mánu-
daginn sem verður gríðarlega
skemmtilegur leikur og ég hlakka
til að hefna mín þar,“ sagði Hregg-
viður. ooj@frettabladid.is
Sögulegur KR-sigur í Seljaskóla
Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR, viðurkenndi að bikarleikurinn á móti Keflavík hefði sett sitt mark á
undirbúning liðsins en var ánægður með einbeitingu sinna manna sem unnu 18 stiga sigur á ÍR í gær.
ÁKVEÐNIR Jón Arnór Stefánsson fór fyrir KR-liðinu og skoraði öll 20 stigin sín í fyrstu
þremur leikhlutunum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL