Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.01.2009, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 11.01.2009, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 SUNNUDAGUR 11. janúar 2009 — 10. tölublað — 9. árgangur ÞAÐ ER OPIÐ I SKEIFUNNI I DAG Frí dagbók með öllum pöntunum í janúar C M Y CM MY CY CMY K o1-D agbo k-200 9.pd f 21 .10.2 008 10:1 4:00 F r í Dagbók 2009 PÖNTUNARSÍMI550 4111 Allt fyrir skrifstofuna markaður 3 FYRIR 2 AF ÖLLUM SKIPTIBÓKUM 3 2FY RI R Við borgum þér fyrir þrjár en þú borgar bara fyrir tvær. Tilboðin gilda til og með 11. janúar Á Leifsgötunni rata ég inn rangan stigagangog á móti mér kemur maðsvip o k [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ] menning janúar 2009 Við héldum Árla dags í ljósaskiptunum keyri ég í leigubíl í átt að austanverðu Skólavörðuholti með leigubílstjóra sem vill ræða tannviðgerðir. Áður en ég veit hef ég skipst á viðkvæmum viðskiptaupplýsinkostnað við k AÐ ÞETTA VÆRI KOMIÐ BÖÐVARSVAKA Sjötugsafmæli Böðvars Guð-mundssonar skálds kallar á endurmat á framlagi hans Bls. 4 CAMILLA LÄCKBERG Þriðja saga Camillu á íslensku er ein af tíu mest seldu bókum síðasta árs: hvernig er heimur sakamálasagna hennar? Bls. 5 MENNING Bjart-sýni ríkir í leikhúsum landsins um aðsókn sem lýsir sér í fjölda verka og miklu fram-boði sæta Bls. 6 FYLGIR Í DAG EIRÍKUR HAUKSSON HRÆÐIST EKKI SEXTUGSALDURINN Öllu til tjaldað í fimmtugs- afmæli Eika Hauks í sumar 22 SNJÓR Í dag verða víðast norðaustan 8-15 m/s hvassast norðvestan til. Snjókoma eða él um mest allt land en þó úrkomu- mest á Norður- og Austurlandi. Frostlaust allra syðst, annars frost 1-8 stig. VEÐUR 4 -5 -2 -2 1-1 BEST KLÆDDU KONUR ÁRSINS 2008 Konurnar sem báru af samkvæmt tísku- spekúlöntum heims TÍSKA 10 VEÐRIÐ Í DAG EFNAHAGSMÁL „Rannsóknarnefnd- in mun hiklaust taka svona atriði til skoðunar, að því marki sem þau áttu sér stað fyrir 6. október, það er fyrir setningu neyðarlaganna,“ segir Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndar um banka- hrunið, um meinta stöðutöku íslenskra fjármálafyrirtækja gegn íslensku krónunni. Eiríkur Tómasson, varaformað- ur Landssambands íslenskra útvegsmanna, sakaði banka og eigendur þeirra á föstudag um að hafa markvisst reynt að veikja íslensku krónuna í hagnaðarskyni, á meðan gerðir voru gjaldmiðils- skiptasamningar við sjávar útvegs- fyrirtæki og lífeyrissjóði sem gerðu ráð fyrir að krónan styrkt- ist. Hann nefndi sérstaklega fyrir- tækin Kjalar og Existu, þá stærstu eigendur Kaupþings. Hann kallaði eftir rannsókn á málinu. „Að sjálfsögðu verður hegðun manna og bankanna á markaði skoðuð,“ segir Páll, sem tekur hins vegar fram að nefndin sé að meg- instofni til ekki að rannsaka það sem gerðist eftir setningu neyðar- laganna. Friðrik J. Arngrímsson, formað- ur LÍÚ, kallaði eftir því að hinn sérstaki saksóknari sem rannsaka á hrunið tæki málið til athugunar. Enginn hefur enn verið ráðinn í það starf. „Að því leyti sem um refsiverða háttsemi getur verið að ræða þá mun hinn sérstaki saksóknari örugglega láta málið til sín taka,“ segir Páll, en vill þó ekki taka efn- islega afstöðu til þess hvort svo sé. Exista sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem því var hafnað að fyr- irtækið hefði haft hag af því að krónan veiktist. Allir samningar við bankana gegn krónunni, sem Fréttablaðið hefur heimildir fyrir að hafi numið á annað hundrað milljörðum á síðasta ári, hafi verið eðlilegar gengisvarnir. - sh / sjá síðu 6 Nefndin mun rann- saka stöðutökurnar Rannsóknarnefnd um bankahrunið mun taka stöðutöku gegn íslensku krónunni til skoðunar. Exista þvertekur fyrir að hafa reynt að veikja krónuna. Allir gjaldmiðlaskiptasamningar gegn krónu hafi verið eðlilegar gengisvarnir. Að því leyti sem um refsiverða háttsemi getur verið að ræða þá mun hinn sér- staki saksóknari örugglega láta málið til sín taka. PÁLL HREINSSON FORMAÐUR RANNSÓKNARNEFNDAR UM BANKAHRUNIÐ STJÓRNMÁL Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fór í gærmorgun til Svíþjóðar þar sem hún gengst undir geislameð- ferð á Karól- ínska sjúkrahús- inu í Stokkhólmi. Upphaflega stóð til að hún færi út á fimmtudag en vegna þess að styttri aðdrag- anda þurfti að meðferðinni en talið var gat hún seinkað för sinni. Um er að ræða lokahnykk á meðferð sem hófst í lok septemb- er síðastliðnum þegar Ingibjörg Sólrún gekkst undir aðgerð til að fjarlægja heilaæxli. Gert er ráð fyrir að hún snúi aftur til starfa um miðja þessa viku. Össur Skarphéðinsson verður starfandi utanríkisráð- herra í fjarveru Ingibjargar. - fb Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Geislameðferð hafin í Svíþjóð INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR KÍNA Ráðamenn úr Guangdong- héraði í Kína hafa tapað yfir þremur milljónum dollara af almannafé, eða um 370 milljónum króna, í fjárhættuspili á undan- förnum árum. Rúmlega fimmtíu ráðamenn voru yfirheyrðir vegna málsins og sex handteknir. Töpuðu þeir peningunum í spilavítum í ríkinu Macau, í skemmtiferðaskipum undan ströndum Hong Kong og með því að veðja á fótboltaleiki. Wu Xingkuie, næstæðsti meðlim- ur kommmúnistaflokksins í borginni Yunfu, fékk þyngsta dóminn eða fjögurra ára fangelsi. Hið kaldhæðnislega er að á meðan hann var í embætti barðist hann hart gegn fjárhættuspili, klámi og eiturlyfjum. - fb Kínverskir ráðamenn teknir: Milljónatap í fjárhættuspiliKERTUM FLEYTT Á TJÖRNINNI Félagið Ísland-Palestína stóð í gær fyrir kertafleytingu á Tjörninni í Reykjavík þar sem fórnarlömbum átakanna á Gaza var minnst á táknrænan hátt. Að sögn Sveins Rúnars Haukssonar, formanns félagsins, var kertafleytingin ekki síst til að minnast barnanna sem látist hafa á Gaza en fjöldi þeirra nálgast nú þriðja hundraðið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.