Fréttablaðið - 11.01.2009, Síða 2
2 11. janúar 2009 SUNNUDAGUR
Fleiri dagsetningar og nánari upplýsingar
á expressferdir.is eða í síma 5 900 100
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum,
frítt í flug fyrir golfsettið, hótelgisting á 4* Hotel
Villaitana ásamt morgunverði í 7 nætur,
ótakmarkað golf í 6 daga og íslensk fararstjórn.
Golf á Spáni
um páskana
Real de Faula
8. apríl –15. apríl 2009
Verð á mann í tvíbýli:
129.900 kr.
Íslensk fararstjórn
GAZASVÆÐIÐ, AP Ísraelsmenn hafa
varað íbúa Gazasvæðisins við því
að átökin þar eigi eftir að aukast.
„Öryggissveitir Ísraela munu
auka aðgerðir sínar á Gazasvæð-
inu,“ sagði í bréfi sem var dreift úr
flugvélum. „Öryggissveitirnar eru
ekki að vinna gegn almenningi á
Gaza heldur aðeins Hamas og
hryðjuverkamönnunum. Tryggið
öryggi ykkar með því að fara að
óskum okkar.“
Yfirmenn varnarmála Ísraels
bíða nú eftir samþykki stjórnvalda
um að ráðast inn á Gazasvæðið með
fótgöngulið og yrði þá um að ræða
svokallaða þriðja stigs hernaðarað-
gerð. Hingað til hefur sprengjum
verið látið rigna yfir svæðið þar
sem fjöldi barna og annarra sak-
lausra borgara hefur verið drep-
inn.
Talið er að rúmlega átta hundruð
Palestínumenn hafi látist og um
fjögur þúsund særst í aðgerðum
síðustu tveggja vikna. Að sögn Ísra-
elshers voru yfir fimmtán skæru-
liðar drepnir aðfaranótt laugardags
eftir að varpað var sprengjum á
yfir fjörutíu skotmörk. Blóðugasti
atburðurinn varð þegar ísraelskur
skriðdreki skaut níu manns til bana
í garði fyrir utan heimili í bænum
Jebaliya. Að sögn palestínskra
lækna voru tvö börn og tvær konur
á meðal þeirra sem létust.
Khaled Mashaal, leiðtogi hjá
Hamas-samtökunum, sagði í gær
að engar líkur væru á því að samn-
ingar næðust við Ísraela. .- fb
Ísraelsmenn segja að mannfallinu á Gazasvæðinu sé ekki að linna:
Vara við auknum átökum
LOFTÁRÁS Palestínumenn hlaupa undan loftárásum Ísraelshers á Gazasvæðinu.
NORDICPHOTOS/AFP
UTANRÍKISMÁL Emil Breki Hregg-
viðsson, varafastafulltrúi Íslands
hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði í
ræðu sinni á opnum fundi öryggis-
ráðs SÞ að íslensk stjórnvöld for-
dæmdu mannfall óbreyttra borg-
ara í átökunum á Gazasvæðinu.
Þrátt fyrir það hefur Geir H.
Haarde forsætisráðherra lýst því
yfir að íslensk stjórnvöld séu ekki
vön að álykta um fordæmingu á
slíkum atburðum.
Sigurður Líndal lagaprófessor
segist vera undrandi á þessu mis-
ræmi. „Þetta er svolítið þokukennt
allt saman. Hann hlýtur að tala í
umboði einhvers, þetta getur ekki
verið hans persónulega skoðun,“
segir hann um Emil Breka. „Þar af
leiðandi hlýtur hann að tala fyrir
munn utanríkisráðuneytisins eða
utanríkisráðherra.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra hefur áður for-
dæmt atburðina en ekki fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar. Sagði hún að
venjulega fordæmdi íslenska rík-
isstjórnin í heild sinni ekki slíka
atburði. Samt sem áður virðist
Emil Breki þegar hafa gert það í
ræðu sinni sem hann hélt síðast-
liðinn miðvikudag.
Sigurður segist ekki skilja af
hverju íslensk stjórnvöld vilji ekki
orða hlutina hreint og beint og
taka þannig skýra afstöðu gegn
Ísraelum sem séu studdir af
Bandaríkjamönnum. „Höfum við
eitthvað við Bandaríkjamenn að
tala? Eru þeir ekki búnir að sleppa
okkur lausum? Er ekki best að
þeir sigli bara sinn sjó og við
okkar?“
Bætir hann við að ráðherrar
þurfi í starfi sínu og yfirlýsingum
að halda sig innan þeirra marka
sem flokkur þeirra og ríkisstjórn
krefjist af þeim. Því hljóti utan-
ríkisráðherra í raun og veru að
vera að tala fyrir hönd ríkisstjórn-
arinnar þegar hann tjáir sig um
atburðina á Gazasvæðinu. „Hann
getur ekki farið að reka einhverja
algjörlega sjálfstæða utanríkis-
stefnu. Ef hann færi að gera það
yrði hann væntanlega settur af, ég
held að það hljóti að vera,“ segir
hann.
Kristrún Heimisdóttir, aðstoð-
armaður Ingibjargar Sólrúnar,
segir að fordæming ríkis-
stjórnarinnar liggi fyrir í málinu.
„Að mínu mati er þetta heljarinn-
ar misskilningur. Hún (Ingibjörg)
hefur strax frá upphafi gengið
einna lengst utanríkisráðherra í
Evrópu í að segja að hernaðarað-
gerðir Ísraela væru óverjandi,“
segir Kristrún. Bætir hún við að
allur umheimurinn hafi tekið yfir-
lýsingum Ingibjargar sem yfirlýs-
ingum frá ríkisstjórninni eins og
nýleg grein Jerusalem Post,
stærsta enskumælandi blaðs Ísra-
els, beri vitni um. Þar segir í fyrir-
sögn að Íslendingar fordæmi árás-
ir Ísraelshers á Gazasvæðið.
freyr@frettabladid.is
Undrast misræmi í
Gaza-fordæmingu
Varafastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum segir að íslensk stjórnvöld
fordæmi árásirnar á Gaza. Samt segjast stjórnvöld ekki álykta um slíkar for-
dæmingar. Sigurður Líndal lagaprófessor er undrandi á þessu misræmi.
SIGURÐUR LÍNDAL Sigurður undrast misræmi í yfirlýsingum um fordæmingu á árás-
um Ísraelsmanna á Gazasvæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður
Alþingis hefur enn til skoðunar
svör borgarstjórnar við spurning-
um um REI-málið. Umboðsmaður
sendi spurninga-
listann á
borgarstjórn 22.
febrúar í fyrra
og var spurning-
unum svarað í
lok mars, fyrir
níu og hálfum
mánuði.
Spurningalist-
inn var sá síðari
af tveimur og
var sendur eftir að svör höfðu
borist við þeim fyrri.
Umboðsmaður spurði meðal
annars hvort Vilhjálmi Þ.
Vilhjálmssyni var ljóst, eða hefði
mátt vera ljóst, að meirihluti
borgarstjórnar var andvígur
samruna REI og Geysis Green
Energy. Þá spurði hann einnig um
kaupréttarsamninga í félögum
tengdum REI. - sh
Umboðsmaður Alþingis:
REI-málið er
enn í athugun
VILHJÁLMUR Þ.
VILHJÁLMSSON
FÓLK Um sex hundruð manns tóku þátt í áheyrnar-
prufum fyrir raunveruleikaþáttinn Idol - stjörnuleit
sem fóru fram á Hótel Hilton Nordica Reykjavík í
gær. Prufurnar hófust klukkan átta um morguninn og
lauk þeim ekki fyrr en eftir miðnætti.
„Þetta hefur gengið vel. Þetta er búinn að vera
flottur dagur,“ segir framleiðandinn Þór Freysson,
sem var mjög ánægður með þátttökuna, og sagði hana
eðlilega miðað við tvö þúsund manna skráningu.
Í fyrstu þurftu keppendur að syngja fyrir framan
forvalsdómnefndir en síðan var aðaldómnefndin látin
skera úr um hverjir kæmust áfram og hverjir ekki. Í
henni sitja Björn Jörundur Friðbjörnsson, Selma
Björnsdóttir og Jón Ólafsson, sem öll eru þrautreynd
úr tónlistarbransanum.
Engar fleiri áheyrnarprufur verða haldnar og er
það nýbreytni frá því sem hefur verið. Þeir keppend-
ur sem komust áfram í gær syngja aftur fyrir framan
dómnefndina í Íslensku óperunni um næstu helgi þar
sem niðurskurðurinn heldur áfram. Idol - stjörnuleit
hefur göngu sína 13. febrúar á Stöð 2. - fb
Áheyrnarprufur fyrir raunveruleikaþáttinn Idol - stjörnuleit fóru fram í gær:
Sex hundruð manns tóku þátt
IDOL - STJÖRNULEIT Um sex hundruð manns tóku þátt í
áheyrnarprufum fyrir Idol - stjörnuleit á Hótel Hilton Nordica
Reykjavík í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Konráð Valur, ertu að koma
sterkur inn?
„ Ja, allavega svona fyrir neðan
háls.“
Konráð Valur Gíslason „lánaði“ Pétri
Jóhanni Sigfússyni gamanleikara líkama
sinn í myndatökur fyrir auglýsingar á
Sannleikanum, nýjum gamanleik Péturs.
MÓTMÆLI Fjöldi fólks mótmælti á
Austurvelli í gær á fjórtánda
mótmælafundi Radda fólksins.
Yfirskrift fundarins var sem
fyrr Breiðfylking gegn ástandinu
en fólkið krefst þess að ríkis-
stjórnin og stjórnir Seðlabankans
og Fjármálaeftirlitsins víki og að
boðað verði til kosninga svo fljótt
sem auðið er. Þorvaldur Þorvalds-
son trésmiður, Lilja Mósesdóttir
hagfræðingur og Lárus Páll
Birgisson sjúkraliði fluttu ávörp.
Lögreglunni og skipuleggjend-
um mótmælananna kemur ekki
saman um fjölda mótmælenda á
Austurvelli. . Lögreglan telur að
um tvö þúsund manns hafi þar
verið samankomin en skipuleggj-
endur fimm þúsund. Mótmælin
voru friðsamleg. - ovd
Mótmæli á Austurvelli:
Vilja kosningar
FRÁ AUSTURVELLI Sumir mótmælendur
huldu andlit sitt á meðan aðrir báru
fána til að sýna samstöðu með þjóðinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu fann um 70
kannabisplöntur við húsleit í
Grafarholti á föstudaginn.
Samkvæmt tilkynningu frá
lögreglunni voru margar plönt-
urnar á lokastigi ræktunar. Að
auki var hald lagt á ýmsan búnað
sem tengdist starfseminni. Kona
á fertugsaldri var handtekin í
tengslum við málið en hún hefur
áður komið við sögu hjá lögreglu
vegna fíkniefnamála.
Aðgerðin er liður í að hamla
gegn sölu og dreifingu fíkniefna
og í því sambandi minnir
lögreglan á fíkniefnasímann 800
5005. - ovd
Húsleit lögreglu bar árangur:
Kannabisrækt-
un í Grafarholti
LÖGREGLUFRÉTTIR Tvö umferðar-
óhöpp urðu á Reykjanesbraut um
hádegisbil í gær þegar hálka
myndaðist skyndilega á götunni
við Kúagerði.
Í fyrra slysinu missti ökumað-
urinn stjórn á bílnum með þeim
afleiðingum að hann valt og
hafnaði á milli akreinanna. Hjón
voru í bílnum með ungt barn og
voru þau öll flutt á slysadeild til
aðhlynningar. Bíllinn var
fjarlægður af kranabíl.
Í síðara slysinu missti ökumað-
ur stjórn á bíl sínum, sem hafnaði
utan vegar. Engan sakaði í
óhappinu og bíllinn skemmdist
lítillega. - sh
Tvö slys á Reykjanesbraut:
Hjón og ungt
barn á spítala
Mótmæli á Silfurtorgi
Hátt á annað hundrað manns kom
saman á Silfurtorginu á Ísafirði í gær
og mótmælti efnahagsástandinu á
Íslandi. Samkoman fór vel fram en
sams konar samkoma var haldin á
sama stað um síðustu helgi.
ÍSAFJÖRÐUR
SPURNING DAGSINS