Fréttablaðið - 11.01.2009, Page 6

Fréttablaðið - 11.01.2009, Page 6
6 11. janúar 2009 SUNNUDAGUR NOREGUR Norska ríkisstjórnin ætlar að nota stærri hluta af olíusjóðnum en hún hefur nokkru sinni gert áður, að sögn Jens Stoltenbergs forsætisráðherra. Nú verður í fyrsta skipti gengið á sjóðinn en áður hefur ávöxtunin bara verið notuð, að sögn NRK. Norska ríkisstjórnin kynnir björgunarpakka til að mýkja áhrif kreppunnar á atvinnulífið í Noregi í lok febrúar og kemur þá í ljós nákvæmlega hversu mikið verður gengið á sjóðinn. Stoltenberg vill að ráðstafanir ríkisstjórnarinnar séu áhrifaríkar og virki hratt og því vill hann tryggja störf í byggingageiranum. - ghs Norska ríkisstjórnin: Ætlar að ganga á olíusjóðinn RÚSSLAND, AP Rússland og Evrópu- sambandið hafa undirritað sam- komulag um að eftirlitsmenn sam- bandsins muni fylgjast með gasflutningi í gegnum Úkraínu til annarra Evrópuríkja. Hundruð þúsunda heimila í Evr- ópu hafa ekki haft neina hitun þrátt fyrir mikið frost, eftir að Rússar stöðvuðu gasflutning í gegnum Úkraínu síðastliðinn mið- vikudag. Vladimir Pútín, forseti Rúss- lands, og Mirek Topolanek, for- sætisráðherra Tékklands, skrif- uðu undir samninginn. Hann tekur þó ekki gildi fyrr en Úkraínumenn hafa samþykkt hann. Topolanek, sem kom til Rússlands eftir að hafa verið í Úkraínu, fór aftur til Úkraínu í gær til að ganga frá mál- inu. „Ég held að það muni ekkert aftra því að samningurinn verði undirritaður í Úkraínu,“ sagði hann. Rússar flytja um fjórðung af því gasi sem þjóðir Evrópusam- bandsins nota, aðallega í gegnum Úkraínu. Telja þeir að eftirlits- menn ESB þurfi að koma í veg fyrir að Úkraínumenn steli gasi sem ætlað sé öðrum Evrópuþjóð- um. „Um leið og eftirlitið hefst þá hefst gasflutningurinn,“ sagði Pútín. „En ef þeir byrja að stela því aftur þá verður dregið úr gas- flutningnum eftir því sem upp á vantar.“ - fb Rússar og Evrópusambandið hafa undirritað samning vegna gasdeilu: Eftirlitsmenn fylgist með VLADIMIR PÚTÍN Forseti Rússlands hefur undirritað samning við Evrópusam- bandið um að eftirlitsmenn fylgist með gasflutningi. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Telur þú að kosið verði til Alþingis á þessu ári? JÁ 67,9% NEI 32,1% SPURNING DAGSINS Í DAG: Stundar þú líkamsrækt reglu- lega? Segðu þína skoðun á Vísir.is STJÓRNSÝSLA Björgvin G. Sigurðs- son viðskiptaráðherra segir það mikinn misskilning að með frum- varpi hans, sem felur í sér afnám skylduaðildar að Félagi fasteigna- sala, sé um einhvers konar geð- þóttaákvörðun hans að ræða. Frumvarpinu er ætlað að tryggja neytendavernd og skýra réttarstöðu við sölu fasteigna, fyr- ir tækja og skipa. Í Fréttablaðinu í gær var haft eftir Grétari Jónas- syni, framkvæmdastjóra félags- ins, að hann héldi ráðherrann á svo miklum yfirsnúningi á mörgu öðru að ráðherrann áttaði sig varla á hvað hann væri að gera. Björgvin segir tvær veigamikl- ar ástæður liggja fyrir því að lagt er til að afnema skylduaðild að Félagi fasteignasala. Í fyrsta lagi sé það lykilatriði að umboðsmaður Alþings telji mikinn vafa leika á því að skylduaðildin standist ákvæði stjórnarskrár um félaga- frelsi. Í öðru lagi séu til hliðsjónar tilmæli Alþingis frá árinu 2004, en í nefndaráliti sagði að nefndin teldi mikilvægt að sú skylduaðild að Félagi fasteignasala, sem frum- varpið gerði ráð fyrir, yrði tekin til endurskoðunar. Af þeim sökum leggi hann málið með þessum hætti fyrir Alþingi. Björgvin segir fulltrúa við- skiptaráðuneytisins hafa fundað með fulltrúum Félags fasteigna- sala, Húseigendafélagsins og Neytendasamtakanna sem lagt hafi fram sameiginlegar athuga- semdir á lokastigum vinnslu frum- varpsins. Ein þeirra athugasemda sé um fyrirhugað afnám skyldu- aðildar. Hann hafi ekki tekið efnis- lega afstöðu til athugasemdanna en telur rétt að beina því til við- skiptanefndar þingsins að taka málið til ítarlegrar meðferðar þegar það hefur verið lagt þar fram. Þórður Grétarsson, löggiltur fasteignasali, segist fylgjandi þeim breytingum sem ráðherra boðar. „Fasteignasalar starfa eftir mjög ströngum lögum og reglu- gerðum og auðvitað er það stjórn- valda að setja þessari starfsstétt vinnureglur en ekki einhvers félags úti í bæ,“ segir Þórður. Hann segir málið snúast að miklu leyti um peninga þar sem félagsgjöld í Félagi fasteignasala séu rúmar hundrað þúsund krónur á ári. „Það þýðir vel á þriðja tug milljóna í félagsgjöld sem félagið myndi missa nái breytingarnar í gegn,“ segir Þórður. Að auki segir hann núgildandi kerfi letja fasteignasölur við að ráða fagfólk á stofurnar. „Ef maður er með fasteignasölu er miklu ódýrara að vera með starfs- fólk sem er ófaglært en frumvarp- ið tekur á þessu,“ segir Þórður. olav@frettabladid.is Afnám skylduaðildar ekki háð geðþótta Viðskiptaráðherra segir fráleitt að halda því fram að afnám skylduaðildar að Félagi fasteignasala sé byggt á geðþóttaákvörðun. Umboðsmaður Alþingis telji vafa á að skylduaðild standist stjórnarskrá. Fasteignasali fagnar breytingunum. VIÐSKIPTI Forsvarsmenn Existu hafna því að félagið hafi veikt íslensku krónuna með því að taka stöðu gegn henni, eins og fulltrúar Landssambands íslenskra útvegsmanna hafa haldið fram. Félagið sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem segir að áhætta félagsins hafi verið með krónunni, allir gjaldmiðilsskiptasamningar við bankana gegn krónunni hafi einungis verið eðlilegar gengisvarn- ir, sem sé „eðlilegur og nauðsynlegur þáttur í ábyrgum rekstri fjármálafyrirtækis.“ „Exista hefur varið sitt eigið fé alveg frá byrjun árs 2007 og á síðasta ári voru engar breytingar gerðar á þeim samningum, það var frekar dregið úr vörnunum heldur en hitt,“ segir Sigurður Nordal, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Existu. „Það stenst ekki samkvæmt því að þessir varnir hafi haft áhrif á gengi krónunnar,“ segir hann. Sigurður segir auðvelt að sýna fram á þetta með reikningum félagsins. Úr þeim megi lesa hver áhrif gengis eru á eigið fé þess. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins gerði Exista á síðasta ári samninga gegn krónunni sem námu á annað hundrað milljarða króna. Sigurður segist ekki geta staðfest þá tölu. Ekki sé hægt að sundurgreina kröfur fyrirtækisins inn í bankana. - sh Exista hafnar því að hafa veikt krónuna með hundraða milljarða stöðutöku: Aðeins eðlilegar gengisvarnir BJÖRGVIN G. SIG- URÐSSON Ekki tókst að afgreiða frumvarp viðskiptaráðherra til nýrra heildarlaga um sölu fast- eigna, fyrirtækja og skipa á síðasta vorþingi en til stendur að leggja frum- varpið aftur fyrir þingið í nær óbreyttri mynd. STJÓRNENDUR EXISTU Exista átti stóran hlut í Kaupþingi. KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.