Fréttablaðið - 11.01.2009, Side 8

Fréttablaðið - 11.01.2009, Side 8
8 11. janúar 2009 SUNNUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson bih@markadurinn.is og Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is Lygnu börnin við Austurvöll Samfylkingarmaðurinn Björgvin Valur Guðmundsson, ofurbloggari á Stöðvar- firði, er eins og margir óánægður með siðferði íslenskra stjórnmálamanna - eða öllu heldur skort þar á. Kosninga- loforð séu jafnan að litlu höfð. „Þeir fara með stefnuskrár flokkanna eins og krakkar sem eru sendir út í búð með innkaupa- lista en koma heim með vasana fulla af sælgæti og ljúga því að ekkert af því sem var á listanum hafi verið til í búðinni,“ skrifar Björg- vin. Vel undirbúinn Björn Fyrir liggur að Björn Bjarnason er á leið úr embætti dómsmálaráðherra. Annar Samfylkingarmaður, Andrés Jónsson, segir hvíslað um það að Birni verði hugsanlega í kjölfarið falið að leiða samningaviðræður Íslands við Evrópusambandið. Sá orðrómur fékk byr undir báða vængi á föstudag þegar Björn upp- lýsti um það að komin væri úr prentun bók eftir hann sjálfan um tengsl Íslands og ESB. Enginn sérstakur saksóknari Enn hefur ekki verið ráðinn sérstakur saksóknari til að fara í saumana á öllu því misjafna sem kann að hafa gerst í aðdraganda bankahrunsins og draga menn til ábyrgðar. Síðari umsóknarfrestur um starfið rennur út á morgun. Einn sem orðaður hafði verið við starfið var Jóhann R. Benedikts- son, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, sem sagði upp störfum eftir opinberar skærur við dómsmálaráðherra. Jóhann mun hins vegar ekki sækjast eftir starfinu, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Ætli Björn andi ekki léttar. stigur@frettabladid.is Jákvæða hliðin á kreppunni er að það er einsog hún hafi leyst fjötra af sköpunargleði Íslendinga. Nýjar hugmyndir vella fram úr háskólum, fyrir- tækjum og bílskúrum einsog úr sjóðandi hver. Þetta eru sprotar að nýrri framtíð. Þeir þurfa ekki megawött til að skapa auð. Orkan sem knýr þá er forvitni, menntun og hugarafl – auk endalausrar bjartsýni. Í þessa ágætu blöndu vantar oft start- kapítal. Skapandi sprotar og smáyrkjar þurfa þessvegna vind í seglin frá stjórnvöldum til að geta um síðir aflað Íslandi mikils fengs. Markmið okkar á að vera að sigla út úr kreppunni með sterkara og betra atvinnulíf. Aukin framlög til nýsköpunar Í iðnaðarráðuneytinu erum við því önnum kafin við að byggja upp öflugt stuðningskerfi fyrir sprota og hátækniiðnað. Þar fléttast saman skapandi leiðsögn Nýsköpunarmiðstöðvar, beinn fjárhagslegur stuðningur Tækniþróunarsjóðs og þolinmótt fjármagn, bæði í sterkum Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins og innan tíðar í öflugu Frumtaki, sem mun láta að sér kveða strax í næstu viku. Sá sjóður er óskabarn og mun verða mikil- vægt vaxtarmegn fyrir íslenska nýsköpun. Flaggskip iðnaðarráðuneytis- ins í því skapandi umhverfi sem við erum að byggja upp fyrir sprotafyrirtækin er Tækniþró- unarsjóður. Árlega berast sjóðnum um 100 umsóknir, og þriðjungur hlýtur brautargengi. Langflest verkefnanna, eða 2/3, eru á forræði nýsköpunarfyrir- tækja, stórra og smárra, fjórðungi er stýrt af rannsóknar- stofnunum, og tíunda hluta af háskólum. Það er til marks um einbeittan vilja til að efla nýsköpun í atvinnulífinu að Alþingi samþykkti tillögu ríkisstjórnarinnar um að efla framlög til sjóðsins verulega á ári kreppunnar. Hann hefur nú til umráða hærri fjárhæð en nokkru sinni, eða 690 milljónir, og veitir allt að 30 milljóna króna styrki til þriggja ára. Nýir frumherja- og markaðsstyrk- ir Það voru forréttindi að geta í gær kynnt tvo nýja styrkja- flokka á vegum Tækniþróunar- sjóðs. Sérstakir Frumherjastyrk- ir verða nú veittir í fyrsta sinn til frumkvöðla og sprotafyrir- tækja með verkefni á byrjunar- stigi. Tilgangurinn er að gera frumherjum kleift að þróa góðar hugmyndir af frumstigi, og fleyta nægilega langt til að þær uppfylli skilyrði sjóðsins fyrir lengra komin verkefni. Styrkur- inn getur numið 10 milljónum króna. Kröfur verða gerðar um verulegt nýnæmi, en til að auðvelda framgang verkefnanna eru kröfur um mótframlag lækkaðar um helming. Þegar sprotafyrirtæki hefur gengið í gegnum þróunarskeið og er komið með fullbúna vöru er fjármagn gjarnan á þrotum. Sprotann brestur burði til að koma afurðinni á markað. Það lokar um leið fyrir möguleika hans til að sækja sér þolinmótt fjármagn í formi hlutafjárkaupa Nýsköpunarsjóðs, en forsenda þess er trúverðug markaðsáætl- un. Þetta er oft erfiðasti tálminn á vegferð sprotanna, og stundum kallaður „nýsköpunargjáin“. Til að brúa hana hefur iðnaðarráðu- neytið ákveðið að stofna flokk nýrra styrkja, svokallaða Brúarstyrki. Þeir eiga að greiða fyrir markaðssetningu og markaðsrannsóknir og geta fyrsta kastið numið allt að 5 milljónum króna. Hér er um algert nýmæli að ræða. Það mun stórauka mögu- leika smáyrkja og sprotafyrir- tækja til að brjótast inn á gjöfula markaði. Öflugur þolinmæðissjóður Róttæk breyting verður svo í umhverfi sprotafyrirtækja í næstu viku þegar sjóðurinn Frumtak, sem ætlað er að útvega öflugum nýsköpunarsprotum þolinmótt fjármagn, tekur fyrstu ákvörðun sína um fjárfestingu í sprotafyrirtæki. Frumtak er samlagssjóður íslenska ríkisins, bankanna og sex stærstu lífeyrissjóðanna. Hann hefur svigrúm til að fjárfesta rúmlega fjóra milljarða króna á sjö ára líftíma, og vonir standa til að það aukist síðar á árinu um einn milljarð með þátttöku European Investment Fund. Sjóðurinn er ekki feigur, því á síðustu tólf árum hefur iðnaðarráðuneytið þurft þvisvar að blása í hann lífi – nú síðast þegar bankarnir hrundu. Ráðgert er að Frumtak fjárfesti 50 til 100 milljónir króna í 8 til 12 fyrirtækjum á hverju ári, samtals í kringum einn milljarð. Sjóðurinn mun taka ákvörðun um sína fyrstu sprotafjárfestingu í næstu viku, og starfsemi hans mun galopna nýjar dyr fyrir sprotafyrirtæki á Íslandi. Þrenns konar Öndvegisstyrkir Þessu til viðbótar er ákveðið að verja samtals 270 milljónum króna á næstu þremur árum í sérstaka Öndvegisstyrki á þremur völdum sviðum: Orkulíf- tækni í þágu innlendrar vist- vænnar eldsneytisframleiðslu; vistvænna bygginga og skipu- lags auk hagnýtra rannsókna um sjálfbæra ferðaþjónustu. Á hverju sviði verða veittir 1-2 styrkir í ár, og verkefnin halda þeim í þrjú ár. Þetta er gert í krafti ákvæða um sérstakar markáætlanir í lögum um Tækni- þróunarsjóð. Sérstök áhersla verður lögð á náin tengsl við atvinnulífið, og beina þátttöku fyrirtækja. Í efnahagslægðinni, þar sem margir öflugir og velþjálfaðir starfsmenn hafa misst atvinnu sína, hefur iðnaðarráðuneytið einnig beitt sér fyrir samkomu- lagi við atvinnuleysistrygginga- sjóð um að sjóðurinn leggi fullar atvinnuleysisbætur með starfsmönnum sem sprota- og nýsköpunarfyrirtæki ráða til sín af atvinnuleysisskrá. Fyrirtækin greiða síðan sjálf það sem á vantar. Þetta mun í senn styrkja fyrirtækin og skapa hundruðum Íslendinga sem misst hafa vinnu möguleika á að hasla sér völl á nýjum vettvangi. Auðlegð Íslands Kreppan má ekki drepa niður trúna á tækifærin sem felast í sterku menntakerfi, öflugum auðlindum og traustu velferðar- kerfi. Í iðnaðarráðuneytinu höfum við mótað skýra stefnu um atvinnulíf morgundagsins. Hún byggist á þekkingarfram- leiðslu, nýsköpun og hátækni, skapandi afþreyingu, ferðaþjón- ustu á grundvelli náttúru og menningar, og skynsamlegri nýtingu á auðlindum til lands og sjávar – og undir hafsbotninum líka. Öflugur stuðningur við nýsköpun er besta leiðin til að breyta efnilegum sprotafyrir- tækjum í sterka framtíðar- stofna. Sá stuðningur verður endurgoldinn af fjölbreyttara og öflugra atvinnulífi sem mun skapa Íslendingum mikilvægar gjaldeyristekjur og fjölda vellaunaðra starfa fyrr en varir. Höfundur er iðnaðarráðherra. Sköpunarkraftur gegn kreppu ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Í DAG | Atvinnumál Öflugur stuðningur við nýsköp- un er besta leiðin til að breyta efnilegum sprotafyrirtækjum í sterka framtíðarstofna. Næsta námskeið hefst mánudaginn 19. janúar n.k. Kennsludagar: Mánudagar og fimmtudagar frá 20:00 til 21:30 auk eftirfylgdartíma, alls 14 klst. Kennarar: Oddi Erlingsson og Sóley D. Davíðsdóttir, sérfræðingar í klínískri sálfræði. Kynningarverð: 42 000. Niðurgreiðsla möguleg hjá sjúkrasjóðum stéttarfélaga. Skráning og fyrirspurnir í símum 5340110 og 5624444, oddier@simnet.is og kms@kms.is N á n a r i u p p l ý s i n g a r : w w w . k m s . i s . Vellíðan án lyfja með verkfærum sálfræðinnar Fjögurra vikna námskeið Kvíðameðferðar- stöðvarinnar til að takast á við vanlíðan, álag og spennu. Kenndar leiðir hugrænnar atferlismeðferðar til að skoða og breyta hugsunum og viðbrögðum sem viðhalda kvíða og depurð. Öflugar slökunar- og hugleiðsluaðferðir jafnframt kenndar. Á óvissutíma eins og nú ríkir þykja Gróusögur áhuga- verðari í dægurumræðunni en staðreyndir. Ofbeldi vekur aukheldur meiri athygli en málefnalegt framlag. Umfjöllun um atlögu að umræðufrelsi leiðtoga stjórn- málaflokkanna á gamlársdag er jafnvel snúið upp í þref um það sem kallað er borgaraleg óhlýðni. Erfiðum ákvörðunum sveitarfélaga við gerð fjárhagsáætlana fyrir þetta ár hefur verið minni gaumur gefinn. Nýjar aðstæður hafa kallað á pólitískt uppgjör milli fjármálalegrar ábyrgðar og gamalla fyrirheita. Í flestum tilvikum eru sveitarstjórnarmenn að leysa þennan vanda með hagsmuni framtíðarinnar í huga. Margir eiga þar meira lof skilið en fram hefur komið. Enn eru nokkrir lausir endar varðandi fjárhagsáætlun Reykja- víkurborgar. Hún ber eigi að síður vott um mikla ábyrgð. Í fyrsta lagi fyrir þá sök að svo virðist sem komist verði hjá skuldasöfnun við þessar mjög svo erfiðu aðstæður. Það er ærin pólitísk þraut að leysa. Svo virðist sem það hafi tekist. Í annan stað sýnast stjórnendur borgarinnar hafa leitað eftir eins víðtækri pólitískri samstöðu um gerð fjárhagsáætlunarinnar eins og kostur var. Ágreiningi hefur ekki verið eytt og aðhald á þrengingartímum verður ekki að veruleika án einhverrar óánægju. Kjarni málsins snýst hins vegar um ábyrgð gagnvart framtíðinni. Hana hafa stjórnendurnir virt. Vinnulag borgarstjórnar er í því ljósi til eftirbreytni fyrir alla þá sem forystu hafa um pólitískar ákvarðanir eftir hrun gjald- miðilsins og bankanna. Í þessu tilviki hafa bæði meirihlutinn og minnihlutinn snúið þeirri pólitísku hlið að borgurunum sem kallað hefur verið eftir. Það á að virða að verðleikum. Svipaða sögu má segja um þær þungbæru skipulagsbreytingar sem heilbrigðisráðherrann stendur nú fyrir. Hans ábyrgð er fyrst og fremst sú að nýta hverja krónu sem best. Engum dylst að deila má um skynsemi einstakra ráðstafana í þessu samhengi. En hitt væri óábyrgt að reyna ekki með skipulagsbreytingum að ná fram hagræðingu til þess að viðhalda sem hæstu þjónustustigi. Fjár- munirnir eru takmarkaðir. Af nokkuð öðrum toga eru hugleiðingar forseta Alþingis við frestun þingfunda fyrir jól. Þær hafa ekki fengið þá athygli sem efni standa til. Þar voru á ferðinni hugmyndir um enn frekari skipulagsbreytingar á störfum þingsins með fækkun fastanefnda úr tólf í sjö. Forseti Alþingis hefur á stuttum tíma þegar komið til fram- kvæmda ýmsum umbótum sem styrkt hafa löggjafarvaldið. Skil- virkari reglur um almennar umræður um þingmál og opnun þing- nefnda fela í sér umtalsverðar breytingar í þá veru. Þeir sem til þekkja vita að breyting á skipan nefnda þingsins gæti verið eitt skref þar til viðbótar. Að einhverju leyti gæti fækkun nefndanna leitt til sparnaðar. Án vafa myndi hún leiða til skilvirkari og vandaðri vinnubragða. Færri og sterkari þingnefndir geta, ef rétt er á málum haldið, eflt stöðu Alþingis gagnvart framkvæmdavaldinu. Gagnrýni á veika stöðu löggjafarvaldsins hefur um margt verið réttmæt. Markviss viðleitni forseta Alþingis til að snúa þeirri þróun við er eitt af dæmunum um ábyrga umbótaviðleitni sem of hljótt hefur farið. Verk af þessu tagi hafa meira gildi fyrir framtíð þessa lands en samanlagðar Gróusögur dægurumræðunnar. Gróusögur og umbótaviðleitni Það sem virða ber ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.