Fréttablaðið - 11.01.2009, Page 12
12 11. janúar 2009 SUNNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab-
ladid.is eða hringja í síma 512 5000.
Eiríkur P. Jörundsson sagnfræðing-
ur tók við starfi forstöðumanns Sjó-
minjasafns Reykjavíkur nú eftir ára-
mótin. Safnið var sett á fót fyrir fjór-
um árum og hefur Eiríkur starfað við
safnið sem sviðsstjóri frá upphafi.
Nýja starfið leggst vel í hann og segist
hann hafa haft í nógu að snúast.
„Þetta á nú að vera rólegasti tími
safnanna en við höfum haft mikið að
gera hér eftir áramótin,“ segir Eirík-
ur. „Strax 3. janúar komu hingað 300
manns með veislu og við erum einnig
að ljúka framkvæmdum við húsnæði
safnsins. Svo er sýning í undirbúningi
af tilefni 90 ára afmælis Eimskips og
mikið um að vera.“
Eiríkur starfaði í Höfn í Horna-
firði eftir BA-nám sitt í sagnfræði í
nokkur ár sem forstöðumaður safn-
anna á staðnum. Eftir það vann hann
sem blaðamaður á Morgunblaðinu
áður en hann hóf mastersnám í sagn-
fræði. „Það vildi svo vel til að þegar
Sjóminjasafnið var að fara í gang árið
2005 var ég einmitt að ljúka masters-
náminu en þar fjallaði ég um fiskveið-
ar og strandmenningu á þessu svæði á
19. öld. Mér finnst ég hafa sameinað
þessi tvö áhugamál mín, blaðamennsk-
una og sagnfræðina, því hér er ég í
fræðimennskunni og að miðla henni.“
Sjóminjasafnið hefur vaxið ört á
fáum árum. Það er niðri við höfn í
gömlu frystihúsi og eins og Eirík-
ur bendir á er frágangi húsnæðisins
að ljúka. Á síðasta ári tók safnið við
varðskipinu Óðni og dráttarbátnum
Magna sem liggja við bryggju í bak-
garði safnsins. „Við erum innst í höfn-
inni og fáum því þennan fallega bak-
garð. Mikil uppbygging hefur farið
fram við höfnina undanfarin ár og nú
bíður okkar skipulagning útisvæðis-
ins í kringum safnið. Síðustu ár hefur
húsið sjálft verið þakið vinnupöllum
en nú hverfa þeir og við getum tekið á
móti fólki í huggulegri húsakynnum.
Margir hafa enga hugmynd um tilvist
safnsins og reka upp stór augu þegar
þeir koma hingað inn.“
Eiríkur segist ekki líta á sjóminja-
safnið eingöngu sem safn sem haldi
utan um söguna. Starfssviðið sé víð-
ara, safnið sé í raun menningarmið-
stöð sem taki á móti hópum og hýsi ráð-
stefnur og ýmiss konar fundi. „Það er
vinsælt hjá hópum að halda móttökur
og fundi hér inni á safninu. Fólk hefur
meira að segja haldið fund í varðskip-
inu þar sem er gott næði.“
heida@frettabladid.is
EIRÍKUR P. JÖRUNDSSON: TEKINN VIÐ FORSTÖÐU SJÓMINJASAFNS REYKJAVÍKUR
Sjóminjasafnið springur út
VEX FISKUR UM HRYGG Sjóminjasafnið hefur verið í stöðugri uppbyggingu frá því það var sett
á fót fyrir fjórum árum og segir Eiríkur Jörundsson, nýsettur forstöðumaður, spennandi tíma
framundan. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MARY J. BLIGE ER 38 ÁRA Í DAG
„Mín fyrsta plata er á
gamansömum nótum.“
Söngkonan Mary J. Blige seg-
ist aðdáandi gospeltónlist-
ar og er hún þekkt fyrir miklar
og dramatískar slaufur í söng
sínum. Hún hefur gefið út níu
plötur og hlotið Grammy-verð-
launin átta sinnum.
MERKISATBUÐRIR:
1864 Charing Cross-lestarstöð-
in opnuð í London.
1892 Paul Gauguin giftist 13 ára
stúlku frá Tahítí.
1897 Leikfélag Reykjavíkur
stofnað.
1944 Togarinn Max Pemberton
frá Reykjavík ferst undan
Snæfellsnesi með allri
áhöfn, 29 manns.
1949 Snjókoma er skráð í fyrsta
sinn í Los Angeles.
1972 Austur-Pakistan öðlast
sjálfstæði.
1991 Ben Johnson keppir aftur
eftir að hafa misst ólymp-
íugullið 1988 vegna stera-
notkunar.
1993 910-920 millibara lægð
fer norður með Austur-
landi. Það er dýpsta lægð
sem vitað er um á Norð-
ur-Atlantshafi.
Miklar frosthörkur urðu um allt land í upphafi
ársins 1918 og festi hafís við land frá Vestfjörð-
um austur að Gerpi. Innfirði lagði og tepptust
siglingar vegna íss. Ísbirnir gengu á land í Núpa-
sveit austan Öxafjarðar 11. janúar og fylgdu fleiri
bjarndýr upp á land næstu daga. Birna með tvo
húna var felld á Melrakkasléttu og einnig voru
drepnir ísbirnir á Skagaströnd, í Fljótum, á Langa-
nesi og austur í Mjóafirði. Ekki fer sögum af því
að birnirnir hafi ráðist á fólk.
Faxaflóa og Breiðafjörð lagði einnig að mestu
leyti og var pósti ekið út í Flatey á Breiðafirði í
vagni og menn komust fótgangandi frá Reykjavík
út í eyjarnar á sundunum. Þessi miklu frost voru
landsmönnum erfið en kolaskortur var í landinu
svo ekki var gott að hita hús nægilega upp. Frost-
hörkurnar stóðu í tæpan mánuð en í kringum
20. janúar dró úr frostinu. Það hlýnaði hratt en
dæmi voru um að hitastigið risi úr 22 gráðu frosti
í eins stigs hita á einni nóttu. Um miðjan febrúar
opnuðust siglingaleiðir fyrir Norðurland og hafís-
inn rak frá ströndum.
Heimild: Ísland í aldanna rás.
ÞETTA GERÐIST: 11. JANÚAR ÁRIÐ 1918
Birnir á land í miklum frostum
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Guðbjörg Jónsdóttir
Álfheimum 48, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi fimmtudaginn
8. janúar.
Þórarinn Magnússon Sigrún Reynisdóttir
Kristinn Magnússon Hanna Bjartmars Arnardóttir
Lilja Nótt Þórarinsdóttir
Magnús Þórarinsson
Svala Ögn Kristinsdóttir
Gríma Bjartmars Kristinsdóttir.
Ástkær móðir okkar,
Jakobína Kristmundsdóttir
hárgreiðslumeistari, frá Skógum,
Vestmannaeyjum,
andaðist 18. desember á hjúkrunarheimilinu Sóltúni.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sóltúns
fyrir frábæra umönnun og hlýhug.
Guðlaug Bjarnadóttir
Bjarni Bjarnason
Kristmundur Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Systir mín og frænka,
Bergljót Edda
Alexandersdóttir
hjúkrunarfræðingur,
Lautarsmára 10, áður Grettisgötu 26,
lést á Landspítalanum í Fossvogi að kvöldi
miðvikudagsins 7. janúar. Jarðsett verður frá
Seljakirkju föstudaginn 16. janúar kl. 13.00.
Ólafur Alexandersson
Guðmundur Kristjánsson Helga Zoega
Amma mín og móðir okkar,
Sigrún Sigtryggsdóttir
áður til heimilis að Byggðavegi 84,
Akureyri,
lést aðfaranótt 8. janúar á Heilbrigðisstofnuninni
Hvammstanga.
Sigrún Einarsdóttir
Þórunn Bergþórsdóttir
Stefán Bergþórsson
Anna Sigríður Tebbetts
Hildur Bergþórsdóttir
og aðrir vandamenn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur hlýhug og samúð við
andlát og útför okkar ástkæra
Björns Björnssonar
flugvirkja,
Hörðukór 1, Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 11G á
Landspítala v/Hringbraut og Líknardeild LSH í
Kópavogi.
Sigþrúður Zóphóníasdóttir
Sigrún Edda Björnsdóttir Axel Hallkell Jóhannesson
Leifur Björn Björnsson Steinunn Anna
Gunnlaugsdóttir
Oddný Anna Björnsdóttir Pálmi Einarsson
Hlynur Ómar Björnsson Elísa Davíðsdóttir
Lára Björg Björnsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Steingrímur Westlund
er látinn. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
6. janúar. Útför fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík,
fimmtudaginn 15. janúar kl. 15.00.
Katherine, Kristín María, Elín Margrét, Edward Jóhannes,
Súsanna Rós og Katrín Guðlaug Westlund og fjölskyldur.
Innilegar þakkir færum við öllum sem
sýndu okkur hlýhug og samúð vegna and-
láts og útfarar ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Ágústu Pétursdóttur
Snæland.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Grund fyrir einstaka alúð við
umönnun hennar síðustu æviárin.
Pétur H. Snæland Valgerður Kristjánsson
Sveinn Snæland Jónína M. Guðnadóttir
Halldór Þ. Snæland Ásta B. Benjamínsson
Gunnar Snæland Kristín E. Kristleifsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.