Fréttablaðið - 11.01.2009, Síða 38

Fréttablaðið - 11.01.2009, Síða 38
22 11. janúar 2009 SUNNUDAGUR Fjórir trommarar spila inn á nýj- ustu plötu hljómsveitarinnar Ske sem er væntanleg á næstu vikum. Aðaltrommari Ske og sá sem kemur mest við sögu á plötunni er Eng- lendingurinn Paul Maguire sem hefur spilað með hljómsveitinni The La´s. Hinir þrír eru Orri Páll Dýrason úr Sigur Rós, Sigtryggur Baldursson og Kjartan Gunnars- son. Guðmundur Steingrímsson hefur fáar skýringar á þessum fjölda en tekur fram að upptökurnar hafi tekið nokkur ár. „Paul valdi dálítið hvað hann fílaði að tromma inn á plötuna,“ segir hann. „Lögin hent- uðu sumum betur og öðrum illa.“ Bæði Sigtryggur og Kjartan hafa áður spilað inn á plötur Ske en Orri og Paul eru nýir af nálinni. „Orri er eðalmaður. Hann er vinur hljóm- sveitarinnar,“ segir Guðmundur. „Paul Maguire er reyndur í brans- anum, alveg þrumutrommari. Við kynntumst honum í gegnum vina- bönd.“ Hljómurinn á nýju plötunni er aðeins rokkaðri en áður að sögn Guðmundar, auk þess sem engin söngkona kemur við sögu í þetta sinn. Bæði Ágústa Eva Erlendsdótt- ir og Ragnheiður Gröndal eru því fjarri góðu gamni. „Söngkonur hafa komið í hljómsveitina og alltaf orðið frægar annars staðar. Nú ákváðum við að prófa að hafa enga söngkonu.“ Höskuldur Ólafsson, fyrrum meðlimur Quarashi, sér um allan sönginn, nema í einu lagi sem Guðmundur syngur sjálfur. - fb HVAÐ SEGIR MAMMA? Hvað er að frétta? Dubbeldusch frumsýnt á laugardagskvöld. Stappfullt. Mæli með að fólk sjái sýninguna. Sönn íslensk skemmtun. Ósóttir miðar seldir í dag á sunnudagssýninguna. Augnlitur: Græn. Starf: Listaspíra. Fjölskylduhagir? Sambúð með góðri konu og börnum tveim. Hvaðan ertu? 104 Reykjavík. Ertu hjátrúarfullur? Ekki séns. Uppáhaldssjónvarpsþátturinn? Enginn sérstakur. Uppáhaldsmaturinn? Fékk mér um daginn buff tartar með bróður mínum. Honum fannst það viðbjóður. Mér fannst það mjög gott. Fallegasti staðurinn: Dillon. iPod eða geislaspilari: Skiptir mig ekki höfuðmáli. Hvað er skemmtilegast: Öll lífsins næring. Hvað er leiðinlegast: Flugvellir, járnbrautarlestar- stöðvar og aðrar biðbyggingar. Helsti veikleiki? Dómharka. Helsti kostur? Get verið ansi fínn gaur þegar vel liggur á mér. Helsta afrek? Þessarar viku er uppsetning Dubb- eldusch á methraða. Sýningin hefur aldrei verið betri. Mestu vonbrigðin? Pæli lítið í svoleiðis hlutum. Hver er draumurinn? Í útisturtu á sumarbústaðar- palli með dubbeldusch í hári og lamb á grilli. Hver er fyndnust/fyndnastur? Þjóðarblómið Harpa Arnardóttir. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Er orðinn svo léttur og hress af þessum spurningum að mér dettur varla neitt í hug. Jú, verð að segja Facebook. Eitthvað við það sem pirrar mig. Hvað er mikilvægast? Kærleikurinn. Hann umber allt. Og fellur aldrei úr gildi. HIN HLIÐIN BJÖRN HLYNUR HARALDSSON LEIKARI Finnst Facebook pirrandi „Mamman er náttúrlega mjög ánægð fyrir hans hönd. Hann hefur alltaf haft gaman af því að syngja og fór að syngja Bítlalög þegar hann var ekki mjög hár í loftinu. Þegar hann varð svo ástfanginn í fyrsta sinn hljóp hann um allt og söng I‘m falling in love með Elvis Presley og allir höfðu gaman af. Ég er mjög ánægð með tónlistina hans og sé hann halda áfram að semja í framtíðinni.“ Anna Guðmunds, móðir Þorsteins Kristjáns Haraldssonar, tónlistarmannsins Togga. Fjórir trommarar á plötu Ske FJÓRIR FAGMENN SPILA MEÐ SKE Paul Maguire, Kjartan Gunnarsson, Orri Páll Dýrason og Sigtryggur Baldursson. Sjónvarpsmaðurinn Sverrir Þór Sverrisson leitar nú að heppilegum tökustöðum fyrir kvikmynd sem hann hyggst gera. Hún verður byggð á sjónvarpsþáttunum Algjör Sveppi sem hafa haldið smáfólkinu við skjáinn um helgar undanfarið ár og verður vonandi frumsýnd í bíóhúsum borgarinnar áður en langt um líður. „Þetta er rétt, við erum á leiðinni út á Reykjanes til að skoða tökuaðstæður úti á Velli,“ segir Sverrir. Handritið að myndinni er tilbúið en það segir frá leit Sveppa að vini sínum Villa sem er rænt af misind- ismönnum. Sverrir segir enda að þetta sé meira fjölskyldumynd en barnamynd. Hann reiknar með að tökur byrji sem fyrst og að þeim verði lokið fyrir árslok. „Þetta velt- ur auðvitað mikið á dagskránni hjá þeim sem verða með mér í mynd- inni,“ segir Sverrir en Villi naglbít- ur og Pétur Jóhann Sigfússon verða meðal aðalleikara. „Maður veit ekkert með Pétur, dagbókin hans er alveg þéttbókuð. Maður reynir bara að nýta alla frítíma sem gef- ast. Myndin verður bara tekin upp þegar allir eru í stuði.“ Yfir fjörutíu þættir hafa nú verið framleiddir af Algjörum Sveppa. Og Sverrir er ánægður með þær viðtökur sem hann hefur fengið. „Þetta er svona barnaefni á brúnni, við erum ekkert að reyna að siða börnin til heldur miklu frekar að reyna að virkja ímyndunaraflið.“ - fgg Sveppi gerir bíómynd SVEPPI Í BÍÓ Sverrir Þór hyggst gera fjölskyldumynd. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA „Þetta er bara heiðurstala og á meðan maður er frískur og fyllir hús með rokki og róli þá eru hlut- irnir bara eins og þeir eiga að vera,“ segir rokkgoðsögnin Eirík- ur Hauksson. Hann hyggst blása til mikillar afmælisveislu hinn 4. júlí en þá verður hann fimmtugur, hvorki meira né minna. Og það sama dag og Bandaríkjamenn halda þjóðhátíðardag sinn. Eiríkur segist ætla að nýta sér þessa dag- setningu til fullnustu þegar vegg- spjald tónleikanna verður gert. „Ég verð örugglega í einhverri svipaðri stellingu og Tom Cruise í kvikmyndinni Born on the Fourth July,“ grínast Eiríkur með. Ekki er ljóst hvar veislan verður haldin en Eiríkur ætlar að tjalda öllu til. „Við ræddum þetta, ég og Palli í Promó, í október í fyrra. Svo hrundi efnahagskerfið og manni féllust eiginlega hendur. En við áttuðum okkur á því að það er ekki hægt að sjá fyrir hvernig ástandið verður eftir sex mánuði og við tókum þá ákvörðun að henda okkur út í þetta af fullum krafti.“ Ógjörningur er að fara yfir feril Eiríks í stuttu máli en hann hefur verið í framvarðasveit íslenskrar og síðar meir norskrar rokksenu um áratugaskeið. Þá eru ótaldir allir þeir slagarar sem þjóðin hefur fengið að njóta í gegnum tíð- ina og nægir þar að nefna Gleði- bankann, Gaggó Vest og nú síðast Valentine‘s Lost. Eiríkur upplýsir að Ken Hensley, fyrrum gítarleik- ari Uriah Heep, ætli að heiðra land og þjóð með nærveru sinni á afmælinu. Eiríkur er hvergi banginn við að eldast. Það hafi verið einhver urgur í honum þegar hann varð fertugur en nú, tíu árum seinna, sé hann vel sáttur við árafjöldann. Hann segir þó að töfrarnir í takka- skónum séu að fullu horfnir en í staðinn láti hann sér nægja að horfa mikið á knattspyrnu. Að hætta reykingum er ekki heldur á dagskrá þrátt fyrir tímamótin enda er Eiríkur þess fullviss að þá fyrst myndi allt fara fjandans til. Þeir sem vilja hita sig upp fyrir afmælisrokkið geta yljað sér við textagerð Eiríks en hann samdi textann við Eurovision-lagið Undir regnbogann eftir Hallgrím Ósk- arsson. „Já, ég frétti það reyndar í gær að lagið myndi keppa. Heyrði það frá bresku Eurovision-nördi, Barry, sem fylgist grannt með gangi mála á Íslandi.“ freyrgigja@frettabladid.is EIRÍKUR HAUKSSON: HRÆÐIST EKKI SEXTUGSALDURINN Öllu til tjaldað í fimmtugs- afmæli Eika Hauks í sumar HVERGI BANGINN Eiríkur Hauks- son er ekki smeykur við sextugs- aldurinn heldur býður til mikillar rokkveislu á afmælisdaginn. Ken Hensley, gítarleikari Uriah Heep, mætir í partíið sem væntanlega verður tekið upp á DVD. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /A N TO N 08.12.74 A IK ID O WWW.AIKIDO.IS NÁMSKEIÐ Í AIKIDO Ný önn hefst mánudaginn 12. janúar. Allar upplýsingar á www.aikido.is eða í símum: 840-4923 669-9374 Aikido er bardagalist fyrir fólk á öllum aldri sem hefur áhuga á að læra eitthvað nýtt.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.