Fréttablaðið - 11.01.2009, Page 40

Fréttablaðið - 11.01.2009, Page 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Í dag er sunnudagurinn 11. janúar, 11. dagur ársins. 11.03 13.36 16.09 11.11 13.20 15.30 Lyfja Lágmúla Lyfja Smáratorgi OPIÐ 8-24 ALLA DAGA - Lifið heil með ánægju F í t o n / S Í A Nánar á www.expressferdir.is og í síma 5900 100 Davos Club Hotel 14. – 21. febrúar Verð á mann í tvíbýli 179.900 kr. 21. – 28. febrúar Verð á mann í tvíbýli 169.900 kr. Skíðaferðir til Sviss Það er opið í Ölpunum! Iceland Express býður flug til Friedrichshafen sem er afar vel staðsett fyrir þá sem vilja dvelja á bestu skíðasvæðum Alpanna í Þýskalandi, Austurríki, Sviss, Frakklandi og Ítalíu. Færið er frábært, bókaðu skíðaferð fyrir þig og alla fjölskylduna á www.icelandexpress.is Laus sæti í febrúar á góðu verði Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, gisting á Club Hotel Davos með hálfu fæði, morgunverði og kvöldverði. Sá stjórnmálamaður sem hefur reynst mér hvað best er Jóhanna Sigurðardóttir. Hún er reyndar enginn sérstakur vel- gjörðarmaður minn en henni rat- aðist á munn eitt mesta sannleiks- korn sem hrokkið hefur upp úr nokkrum sjórnmálamanni. Ég á vissulega við þá fleygu setningu: Minn tími mun koma. Eflaust væri mörgum hollt um þessar mundir að minnast þess að það reynist iðulega rétt. ÞAÐ hefur alla vega komið sér afar vel fyrir mig, sérstaklega á augnablikum þar sem niðurlæg- ingin gerir manni lífið leitt, að minnast þess að aldrei eru öll sund lokuð. Tími manns kemur alltaf eins og hjá Jóhönnu sem blómstraði mörgum sinnum eftir að hafa hótað því svo eftirminni- lega. ÉG reyndi gildi þessarar speki fyrst þegar ég var í hlandspreng í þéttbýlu hverfi í Aþenu þar sem ég bjó. Ég var reyndar í miklum flýti en engin kaffihús voru nálægt eða almenningsklósett sem finna mætti skjótt. Ég smeygði mér því bak við runna einn á litlu torgi til að tappa af enda alinn upp við fjöruborðið vestur á fjörðum þar sem maður átti stundum fótum fjör að launa þegar grásleppurkarlarnir hleyptu af meðan þeir sögðu frá aflaföngum. Ég var hins vegar svo óheppinn í þetta skiptið að þótt ég sæist ekki af götunni var útsýnið gott frá svölunum í nálægri blokk. Því miður var óheppilega fjölmennt á svölunum þennan dag og var ýmsum skemmt á minn kostnað. Ein húsmóðir var þó alls ekki kát með uppistandið og æpti: „Heldur þú að þetta sé almenningsklósett eða hvað, hálf- vitinn þinn!“ Ég sagði henni að ég ætti í erfiðleikum með að ræða málin við þessar aðstæður. ÞESSI sveitamennska þótti af síðustu sort og var ég ekki upp- litsdjarfur næstu daga. En frekar en að bæla niður sveitamanninn í mér minntist ég orða Jóhönnu og fyrr en varði reyndist það hin mesta gæfa fyrir nágranna mína að hafa sveitamann í hverfinu sem hugsaði ekki eins og borgar- barn. Og minn tími kom en ég fer ekki meira í þá sálma enda kenndu grásleppukarlarnir mér það að betra væri að gorta sig sem minnst. Hins vegar er hollt að minnast þess að aldrei skuli maður afskrifa neinn, ekki heldur sjálfan sig þótt maður sé gripinn að verknaði úti á torgi með afleggjarann í höndunum. Upprisa eftir aftöku á torginu

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.