Fréttablaðið - 11.01.2009, Qupperneq 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Í dag er sunnudagurinn
11. janúar, 11. dagur ársins.
11.03 13.36 16.09
11.11 13.20 15.30
Lyfja Lágmúla
Lyfja Smáratorgi
OPIÐ 8-24 ALLA DAGA
- Lifið heil
með ánægju
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Nánar á www.expressferdir.is
og í síma 5900 100
Davos Club Hotel
14. – 21. febrúar
Verð á mann í tvíbýli
179.900 kr.
21. – 28. febrúar
Verð á mann í tvíbýli
169.900 kr.
Skíðaferðir
til Sviss
Það er opið
í Ölpunum!
Iceland Express býður flug til Friedrichshafen sem er afar vel
staðsett fyrir þá sem vilja dvelja á bestu skíðasvæðum Alpanna í
Þýskalandi, Austurríki, Sviss, Frakklandi og Ítalíu.
Færið er frábært, bókaðu skíðaferð fyrir þig og alla fjölskylduna
á www.icelandexpress.is
Laus sæti
í febrúar á
góðu verði
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum,
gisting á Club Hotel Davos með hálfu fæði,
morgunverði og kvöldverði.
Sá stjórnmálamaður sem hefur reynst mér hvað best er
Jóhanna Sigurðardóttir. Hún er
reyndar enginn sérstakur vel-
gjörðarmaður minn en henni rat-
aðist á munn eitt mesta sannleiks-
korn sem hrokkið hefur upp úr
nokkrum sjórnmálamanni. Ég á
vissulega við þá fleygu setningu:
Minn tími mun koma. Eflaust
væri mörgum hollt um þessar
mundir að minnast þess að það
reynist iðulega rétt.
ÞAÐ hefur alla vega komið sér
afar vel fyrir mig, sérstaklega á
augnablikum þar sem niðurlæg-
ingin gerir manni lífið leitt, að
minnast þess að aldrei eru öll
sund lokuð. Tími manns kemur
alltaf eins og hjá Jóhönnu sem
blómstraði mörgum sinnum eftir
að hafa hótað því svo eftirminni-
lega.
ÉG reyndi gildi þessarar speki
fyrst þegar ég var í hlandspreng í
þéttbýlu hverfi í Aþenu þar sem
ég bjó. Ég var reyndar í miklum
flýti en engin kaffihús voru
nálægt eða almenningsklósett
sem finna mætti skjótt. Ég
smeygði mér því bak við runna
einn á litlu torgi til að tappa af
enda alinn upp við fjöruborðið
vestur á fjörðum þar sem maður
átti stundum fótum fjör að launa
þegar grásleppurkarlarnir
hleyptu af meðan þeir sögðu frá
aflaföngum. Ég var hins vegar
svo óheppinn í þetta skiptið að
þótt ég sæist ekki af götunni var
útsýnið gott frá svölunum í
nálægri blokk. Því miður var
óheppilega fjölmennt á svölunum
þennan dag og var ýmsum skemmt
á minn kostnað. Ein húsmóðir var
þó alls ekki kát með uppistandið
og æpti: „Heldur þú að þetta sé
almenningsklósett eða hvað, hálf-
vitinn þinn!“ Ég sagði henni að ég
ætti í erfiðleikum með að ræða
málin við þessar aðstæður.
ÞESSI sveitamennska þótti af
síðustu sort og var ég ekki upp-
litsdjarfur næstu daga. En frekar
en að bæla niður sveitamanninn í
mér minntist ég orða Jóhönnu og
fyrr en varði reyndist það hin
mesta gæfa fyrir nágranna mína
að hafa sveitamann í hverfinu
sem hugsaði ekki eins og borgar-
barn. Og minn tími kom en ég fer
ekki meira í þá sálma enda kenndu
grásleppukarlarnir mér það að
betra væri að gorta sig sem
minnst. Hins vegar er hollt að
minnast þess að aldrei skuli
maður afskrifa neinn, ekki heldur
sjálfan sig þótt maður sé gripinn
að verknaði úti á torgi með
afleggjarann í höndunum.
Upprisa eftir
aftöku á torginu