Tíminn - 01.10.1982, Side 6
6
FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1982
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Gfsli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrfmur Gfslason.
Skrffstofustjórl: Jóhanna B. Jóhannsdóttlr. Afgreióslustjórl: Slgurður Ðrynjólfsson
Rltstjórar: Þórarinn Þórarlnsson, Eifas Snæland Jónsson. Rltstjórnarfulltrúl: Oddur
V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristlnn Hallgrfmsson. Umsjónarmaður Helgar-Tfmans: Atll
Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttlr, Bjarghlldur Stefánsdóttlr, Eirlkur St.
Eirfksson, Friðrlk Indrlðason, Helður Helgadóttir, Sigurður Helgason (fþróttlr), Jónas
Guðmundsson, Krlstfn Lelfsdóttlr, Skafti Jónsson. Útlltsteiknun: Gunnar Trausti
Guðbjörnsson. Ljósmyndlr: Guðjón Elnarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Elfn
Ellertsdóttlr. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarklr: Flosl Krlstjánsson, Krlstln
Þorbjarnardóttlr, Marfa Anna Þorstelnsdóttir. Rltstjórn, skrifstofur og auglýsingar:
Sfðumúla 15, Reykjavfk. Sfmi: 86300. Auglýslngasfmi: 18300. Kvöldsfmar: 86387 og
86392.
Verð f lausasölu 9.00, en 12.00 um helgar. Áskrlft á mánuði: kr. 130.00.
Setnlng: Tæknldelld Tfmans. Prentun: Blaðaprent hf.
Sjálfsákvörð-
unarréttur og
mannréttindi
■ Ólafur Jóhannesson utanríkisráöherra flutti ræðu á
allsherjarþingi SÞ s.l. þriöjudag. Þar fjallaöi hann um þær
miklu viðsjár sem nú eru í heiminum og þann yfirgang og
skeytingarleysi sem þjóðum og einstaklingum eru sýnd og
hve máttvana samtök SÞ eru. Hann sagði m.a.:
„Er við komum til þessa allsherjarþings er ástand
alþjóðamála að ýmsu leyti dekkra en það hefur nokkru
sinni verið frá lokum síðari heimsstyraldar og stofnun
þessara samtaka. Vígbúnaðurinn er tröllslegri, vopnin
djöfullegri, hungrið sárara, allsleysið útbreiddara og böl
atvinuleysis víðtækara en þekkst hefur á starfstíma
þessara samtaka. Vissulega hefur ýmislegt áunnist og við
skulum ekki gleyma því. En hitt gtingur í augu, þar sem
illa hefur til tekist eða alls enginn árangur náðst.
Þegar ég ávarpaði allsherjarþingið 10. sept. á s.l. ári
dvaldi ég nokkuð við ýmis ákvæði og stofnskrár
mannréttindayfirlýsingar SÞ og bar saman orð og efndir.
Á því ári sem síðan er liðið hefur víða haldið áfram að
síga á ógæfuhlið í þesum efnum. Einna alvarlegustu
atburðirnir hafa átt sér stað í Austurlöndum nær og
Póllandi, þótt sitt með hvorum hætti sé, en því miður
mætti bæta við ýmsum fleiri dæmum.“
Utanríkisráðherra lagði áherslu á þann vilja utanríkis-
ráðherra Norðurlandanna að styðja SÞ og aðgerðir sem
miða að því að leysa milliríkjadeilur á friðsamlegan hátt
samkvæmt grundvallarreglum stofnskrárinnar um virð-
ingu fyrir fullveldi og stjórnmálalegu sjálfstæði allra ríkja.
Hann rakti mörg dæmi um misbresti í þessum efnum og
sagði að lokum:
„Ég hef hér að framan einkum fjallað um ríki, samskipti
þeirra við önnur ríki og það virðingarleysi, sem alltof oft
lýsir sér í þeim samskiptum. Að sönnu eru það venjulegast
einstaklingurinn, maðurinn, sem verður fórnarlambið í
slíkum tilvikum, en yfirskynið er trygging hagsmuna eins
ríkis gagnvart öðru. Hins vegar er það svo á ábyrgð hvers
ríkis, og raunar skuldbinding sem öll ríki þessara samtaka
hafa tekið á sig, að tryggja virðinguna fyrir manninum og
réttindum hans. Þessi skuldbinding er því miður ekki virt
af fjölmörgum þeirra ríkisstjórna, sem hér koma fram
fyrir hönd þess fólks sem lönd þeirra byggir, og raunar
miklu fleiri ríkisstjórnum en þeim sem þó fylgja að öðru
leyti skuldbindingum sínum um samskipti milli ríkja.
Er ég ræði um grundvallarmannréttindi hlýt ég að
flokka þau undir rétt hvers mannsbarns til réttlátrar
hlutdeildar í auðlegð heimsins. Önnur mannréttindi eru
lítils virði þeim sem ekki horfir fram á annað en
hungurdauðann. Það verður því að vera eitt af
meginmarkmiðum samtaka okkar að stuðla að því að
hvert það barn sem fæðist í þennan heim fái nægan mat,
heilbrigðisþjónustu og menntun við sitt hæfi. Þverrandi
sultur, minnkandi hernaðarútgjöld og vaxandi virðing
fyrir alþjóðlegum skuldbindingum mættu gjarna verða
einkunnarorð þessa allsherjarþings.“
Utanríkisráðherra leggur í ræðu sinni mikla áherslu á
það virðingarleysi sem sjálfsákvörðunarrétti þjóða og
einstaklinga er sýnt, og að ríkisstjórnir standa ekki við
þær skuldbindingar sem þær hafa undirritað og heitið að
virða með þátttöku sinni í samtökum Sameinuðu
þjóðanna. Þetta á bæði við samskipti við önnur ríki og
einstaklinga sem þegnrétt eiga í viðkomndi ríkjum. Það
er ekki nóg að fara fögrum orðum um mannréttindi, það
verður einnig að sýna virðingu fyrir þeim í verki. Og
mannréttindi eru ekki einvörðungu stjórnmálalegs eðlis.
Hver einstaklingur sem þessa jörð byggir hefur rétt til
að lifa, því pólitísk réttindi eru þeim lítils virði sem
hugnurvofan vofir yfir.
OÓ
á vettvangi dagsins
Erum komin hættu-
lega nærri hengi-
flugi stjórnleysis
í alþjódasamskiptum
Ræða Ólafs Jóhannessonar utanríkisrádherra
á allsherjarþingi SÞ 28. sept.
Herra forseti,
Leyfið mér að taka undir orð
starfsbræðra minna og óska yður til
hamingju með kjör yðar í forsæti á 37.
allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Ég er þess fullviss að reynsla yðar og
þekking kemur yður að góðu haldi við
leit að lausn á þeim mörgu viðfangs-
efnum sem liggja fyrir þessu þingi.
Hinn nýi framkvæmdastjóri sam-
takanna og starfslið hans hafa haldið
áfram fórnfúsu og markvissu starfi að
þeim verkefnum, sem Sameinuðu þjóð-
irnar hafa falið þeim. Leyfið mér, herra.
forseti, að færa þeim þakklæti fyrir störf
þeirra og votta framkvæmdastjóranum
fullan stuðning minn við tilraunir hans
til að leysa mörg og flókin vandamál,
sem nú krefjast skynsamlegrar og
friðsamlegrar lausnar.
Samtök okkar hafa á starfsævi sinni
staðið andspænis alvarlegum deilum,
sem ógnað hafa friði á stórum svæðum
eða jafnvel heimsbyggð allri. Oft hefur
tekist að finna friðsamlega lausn, sem
þakka má góðum vilja deiluaðila og
samtakamætti hinna Sameinuðu þjóða.
Önnur deilumál hafa, enn sem komið
er, reynst samtökum okkar ofviða.
Er við komum til þessa allsherjarþings
er ástand alþjóðamála að ýmsu leyti
dekkra en það hefur nokkru sinni verið
frá lokum síðari heimsstyrjaldar og
stofnun þessara samtaka. Vígbúnaður-
inn er tröllslegri, vopnin djöfullegri,
hungrið sárara, allsleysið útbreiddara og
böl atvinnuleysis víðtækara en þekkst
hefur á starfstíma þessara samtaka.
Vissulega hefur ýmislegt áunnist og við
skulum ekki gleyma því. En hitt stingur
í augu, þar sem illa hefur til tekist eða
alls enginn árangur hefur náðst. Það eru
einkum nokkur þeirra atriða, sem ég hef
hugsað mér að gera hér að umræðuefni.
Þegar ég ávarpaði allsherjarþingið í
september á s.l. ári dvaldi ég nokkuð
við ýmis ákvæði stofnskrár og mann-
réttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóð-
anna og bar saman orð og efndir. Á því
ári sem síðan er liðið hefur víða haldið
áfram að síga á ógæfuhlið í þessum
efnum. Einna alvarlegustu atburðirnir
hafa átt sér stað í austurlöndum nær og
Póllandi, þótt sitt með hvorum hætti sé,
en því miður mætti bæta við ýmsum fleiri
dæmum.
í ársskýrslu sinni til samtakanna vekur
framkvæmdasjtórinn máls á miklu á-
hyggjuefni, sem er vaxandi virðingar-
leysi fyrir ályktunum öryggisráðsins. Ég
tek heils hugar undir vamarorð hans um
að við séum komin hættulega nærri
hengiflugi stjórnleysis í alþjóða-
samskiptum. Skipulag samtaka okkar og
þá sér í lagi neitunarvaldið hefur í senn
verið styrkur þeirra og veikleiki.
Breytingar á þessari grundvallar til-
högun gætu valdið hruni samtakanna og
því tel ég slíkt ekki vera til umræðu. Á
hinn bóginn er öllum ljóst að máttur
Sameinuðu þjóðanna til að stuðla að
friðsamlegri lausn deilumála er lítill sem
enginn þegar eitthvert þeirra ríkja, sem
neitunarvald hafa, telur beinum eða
óbeinum hagsmunum sínum stefnt í
hættu með aðgerðum af hálfu sam-
takanna og slík staða kemur æ oftar upp.
Þessu til viðbótar færist það og í aukana
að önnur ríki telja sig hafa nægan styrk
til þess að ganga gegn einróma
samþykktum öryggisráðsins í skjóli þess
að samstaða samtakanna sé ekki nógu
sterk til þess að orðum fylgi athafnir.
Þessa öfugþróun verður að istöðva.
Slíkt verður ekki gert með einhverjum
breytingum á sáttmála Sameinuðu þjóð-
anna heldur þarf þar til að koma aukinn
skilningur þjóðanna á þeirri hættu, sem
heimsfriðnum er stefnt í, verði áfram
haldið á sömu braut.
Á nýafstöðnum fundi utanríksiráð-
herra Norðurlanda var ítrekaður ein-
dreginn stuðningur þessara rtkja við
Sameinuðu þjóðirnar og aðgerðir sem
miða að því að leysa milliríkjadeilur á
friðsamlegan hátt samkvæmt grund-
vallarreglum stofnskrárinnar um virð-
ingu fyrir fullveldi og stjórnmálalegu
sjálfstæði allra ríkja. í því sambandi var
skorað á öll ríki að virða viðurkenndar
alþjóðareglur um samskipti ríkja og því
lýst yfir að Norðurlönd myndu áfram
vinna að því að styrkja Sameinuðu
þjóðirnar sem alheimssamtök til trygg-
ingar friði. Jafnframt voru ráðherramir
sammála um nauðsyn þess að kanna og
ræða við önnur ríki, hvernig auka mætti
möguleika samtakanna til að gegna
hlutverki sínu þegar átök eða dielur
blossa upp. Ég vek athygli á þessari
samþykkt utanríkisráðherra Norður-
landa og ítreka hér þá áskorun sem þar
kemur fram.
Hefndir og
gagn- *
hefndir
Ástandið í austurlöndum nær hefur
verið á dagskrá hjá þessum samtökum
allt frá stofnun þeirra og enn er langt frá
því að sjá megi fram á friðsamlega lausn
á þeim deilum sem stöðugt eitra
andrúmsloftið og valda íbúum þessa
heimshluta þjáningum og dauða. Þessi
harmleikur hefur nú náð hámarki með
fjöldamorðunum í flóttamannabúðun-
um í Beirút fyrr í þessum mánuði. Það
er krafa allra þeirra sem virða vilja
stofnskrá þessara samtaka að hlutlaus
rannsókn verði látin fara fram á þessu
ódæðisverki hið allra fyrsta.
Innrás ísraela í Líbanon er enn einn
þáttur í langri sögu hefnda og gagn-
hefnda í austurlöndum nær, en jafn-
framt er hún sorglegt dæmi um þá
lítilsvirðingu fyrir samþykktum öryggis-
ráðsins sem ég hef gert hér að
umtalsefni. Ég hlýt að lýsa yfir fullum
stuðningi mínum við þær ályktanir
samtaka okkar sem fordæma innrás og
hernám ísraelsmanna á Líbanon og
neitun þeirra á að fara eftir samþykktum
öryggisráðsins. Þessi framkoma eykur
enn á vandann við að ná fram réttlátri
og varanlegri lausn á deilumálum í
þessum heimshluta. Slík lausn hlýtur að
byggja á ályktunum öryggisráðsins nr.
242 og 338 og tryggja öryggi allra ríkja
á þessu svæði, þ.á.m. ísraeis, og réttlæti
fyrir allarþjóðir, þ.á.m. Palestínumenn.
í því sambandi vil ég einig sérstaklega
undirstrika nauðsyn þess að lögmæt
þjóðarréttindi Palestínumanna verði að
veruleika með því að þeir fái rétt til
ákvörðunar um eigin mál og þar á meðal
rétt til að taka þátt í samningum um
eigin framtíð.
Ég vil fagna því að nú hafa komið fram
tillögur um lausn á stxrstu vandamálum
austurlanda nær, bæði frá forseta
Bandaríkjanna og ráðstefnu Arabaleið-
toga. Of snemmt er að spá um, hvort
þessar tillögur geti orðið grundvöllur að
samningaviðræðum allra aðila, en ég
leyfi mér að lýsa þeirri von minni að svo
verði, enda felast í báðum tillögunum
ýms atriði sem verð eru nánari
athugunar:
Virðingar-
leysi fyrir
fullveldi og
sjálfstæði
Ég vil aðeins nefna örfá önnur mál,
sem eru hvað hróplegust dæmi um
virðingarleysi fyrir því jafnrétti, full-
veldi og stjórnmálalegu sjálfstæði allra
þjóða, sem ber að virða skv. stofnskrá
hinna Sameinuðu þjóða, en lítils er virt
í raun, ef stærri ríki telja það betur henta
eigin hagsmunum.
Ástandið í Afghanistan hefur ekki
batnað frá því að við komum hér saman
fyrir ári. Hernámið hefur nú staðið
nærfellt þrjú ár. Áfram er haldið með
takmörkuðum árangri að reyna að kúga
þjóðina til hlýðni og uppgjafar og
ítrekaðar ályktanir Sameinuðu þjóð-
anna að engu hafðar. Sömu sögu má
reyndar segja af því stríðshrjáða landi
Kampútseu.
Fyrir röskum tveim árum bárust nýir
frelsisstraumar um pólskt þjóðlíf. Fólk-
ið vildi fá meira að segja um eigin
málefni og samningar tókust við stjórn-
völd um að örlítið skyldi létt á okinu og
stofnun frjálsra verkalýðssamtaka Ieyfð.
sú frjálsræðisþróun, sem þama hófst,
átti þó skamma lífdaga fyrir höndum.
Henni lauk með setningu herlaga 12.
desember 1981.
Upptalningu af þessu tagi mætti hafa
langa. Þau eru mörg ríkin sem búa við
einræðisstjórnir og kúgun og gmnd-
vallarreglur stofnskrár samtaka okkar
eru í engu virtar.
Meðan svona atburðir endurtaka sig
með stuttu millibili er æði erfitt að draga
úr þeirri spennu sem nú ríkir í
alþjóðasamskiptum og taka til við
raunhæfar aðgerðir til að efla og
varðveita frið og öryggi í samræmi við
grundvallarmarkmið samtaka okkar. En
slíkra aðgerða er svo Sannarlega þröf.
Krafa um
afvopnun
Vígbúnaðurinn er tröllslegri og vopn-
in ógnvænlegri en heimurinn hefur áður
þekkt - og áfram er haldið hinu tryllta
vígbúnaðarkapphlaupi. Sjálfsagt má til
eilífðar deila um hver aðili sé sterkari
öðram og úr því fæst líklega aldrei
skorið, nema það gerist, sem enginn vill,
áð stórveldin láti á það reyna. En hætt
er við að fáir verði til frásagnar og að
sigurvegarar verði litlu öfundsverðari af
sínu hlutskipti en hinir sigmðu af sínu.
Gereyðingarvopnin geta hvenær sem er
leitt ragnarök yfir mannkyn. Ábyrgð
kjarnavopnaveldanna er þung. Þau hafa
örlög heimsbyggðar í hendi sér.
Mannkynið á í reynd ekki á milli
neinna leiða að velja. Sú eina, sem ekki
liggur fyrr eða síðar til torífmingar
hlýtur að felast í raunsæjum og
heiðarlegum samningum um samdrátt í
vígbúnaði sem fyrsta skref á þeirri löngu
leið að algerri afvopnun sem á og verður
að vera óskadraumur þeirra er trúa á