Tíminn - 09.10.1982, Qupperneq 16

Tíminn - 09.10.1982, Qupperneq 16
Opið virka daga 9-19. Laugardaga 10-16 HEÐД Skemmuvegi 20 • Kopavogi Simar (91)7 75-51 & 7-80 30 Varahlutir Mikiö úrval Sendum um landjillt Ábyrgö á.öllu Kaupum nýiega bíla til niðurrifs Gagnkvæmt tryggingaféJag labnel HÖGGDEYFAR GJvarahlutir sZ Armiila 24 36510 „EG ER EINS OG GYÐ- INGURINN GANGANDI’ — segir María Jósefsdóttir, sem opnar listasýningu í Gallerí Lækjartorg í dag ■ - Það má segja að ég sé eins og Gyðingurinn gangandi. Eg bý alls staðar og hvergi og er sjaldan lengi á sama stað, sagði Ustakonan María Jósefsdóttir (Myrím Bat-JoseO sem í dag opnar listsýningu í Gallerí Lækjartorg í Reykjavík. María Jósefsdóttir er íslenskur ríkisborgari, en hún er fædd í Berlín og ólst að mestu leyti upp í ísrael. Hún lagði stund á listkennaranám og að því námi loknu fékk hún styrk til listnáms í París, en þar er hún cinmitt búsett um þessar mundir. -Ég get sjaldan verið lengi á sama stað og mér er það nauðsyn að ferðast, sagði listakonan í samtali við Tímann. María Jósefsdóttir, eða Myriam eins og hún hét þá kom fyrst til íslands árið 1957 og vann þá meðal annars um tíma í súkkulaðigerðinni Freyju. María var gift listamanninum ERRO, en með honum á hún eina dóttur sem fædd er 1960. -Það er algjör tilviljun að við ERRÓ höldum bæði sýningu hér á sama árinu og með svo skömmu millibili. Reyndar er það líka tilviljun að það skuli vera haldin sýning á verkum Dieter Roth hér um þessar mundir, en við vorum nánast óaðskiljanleg á tímabili, ég,' ERRO, Dieter og Sigríður Björnsdóttir. Björtu litirnir sem ég nota koma frá íslandi Þó að María hafi ekki búið á íslandi í fjölda ára, segist hún unna landinu og segir að ekkert annað land jafnist á við það. -ísland er tákn friðarins í mínum augum og það verður mér aldrei ljósara en þegar ég er nýkomin frá ísrael, þar sem alltaf er stríðsástand. Á íslandi eru einnig þeir fallegustu litir sem ég hef á ævi minni séð og allir þeir björtu litir sem ég nota koma til fyrir áhrif frá Islandi. Litir gegna mjög veigamiklu hlutverki í list Maríu Jósefsdóttir og ekki síst í „gjörningum" (performances)hennar. Á sýningnnni í Gailerí Lækjartorg verður María að vísu ekki með neinn gjörning, en þess í stað sýnir hún ■ Björtu litimir sem ég nota koma alir frá íslandi Tímamynd Ella gjöming á myndbandi.. Nefnist hann „Lady time“ eða konutími og hefur hún þar endaskipti á hinum hefðbundnu hlutverkaskiptum karls og konu. Fer gjörningurinn þannig fram að listakonan málar hálfnakinn karlmann í öllum regnbogans litum og gilda þar engar reglur aðrar en að önnur hliðin er máluð í ljósum lit, en hin í dökkum. Síðan málar listakonan sig á svipaðan hátt. Baráttan milli karls og konu... -Þetta er það sem kallað er á Tao, yin og yang. Yin táknar kvenkynið, vatn og jörð og allt frá mitti mannslíkamans og niður, en yang táknar karlkynið, skýin og loftið og allt fyrir ofan mitti, segir María og tekur fram að með þessum gjörning sé hún að túlka þessar andstæður. Um málun sjálfrar sín segir listakonan á myndbandinu, að með þessu móti nái hún mikiu betri tengslum við list sína. -Ég vil verða verk mín og tekst það með þessu móti. Ég tel að konur nái miklu betri tengslum við verk sín en karlmennimir og etv. er þetta bara eins og sambandið á milli móður og bams. Um eitt hundrað verk em á sýningunni í Gallerí Lækjartorg og eru þar af mörg svonefndir notahlutir. Koddaver í öllum regnbogans litum og slæður sem einnig má hengja uppp í stássstofur. Á sýningunni gefur einnig að líta málverk og málaðar litógrafíur, en fyrirmyndin á þeim er einmitt sótt í gjörninginn á myndbandinu góða. - ESE Engir samningar ■ Ekkert hafði þokast í samkomulagsátt í deilu mjólkurfræðinga og við- semjenda þeirra er Tíminn hafði samband við ríkis- sáttasemjara í gær. Mjólkurfræðingar mættu til fundar ásamt. vinnuveitendum á fund hjá sáttasemjara á fimmtu- dag og svo aftur í gær og sagði Guðlaugur Þorvalds- son, ríkissáttasemjari að hann sæi enga lausn á þessu máli á næsta leyti. - ESE Skaut ölvaður á bifreið ■ Maður sá sem Reykja- víkurlögreglan handtók í fyrradag, grunaðan' um að hafa skotið á bíl á Kirkjusandi játaði við yfirheyrslur að vera valdur að verknaðinum. „Þetta mál er að fullu' upplýst, manninum var haldið fyrst vegna þess að hann var ölvaður og var hann látinn sofa úr sér vímuna í fyrrinótt en við yfirheyrslur játaði hann að hafa verið að skjóta þarna inni í porti“ sagði Guð- mundur Hermannsson hjá Rannsóknardeild Reykjavíkurlögreglunnar í samtali við Tímann en lögreglunni barst tilkynn- ing um atburðinn kl.14 í fyrradag. Þá var henni tilkynnt að hjólbarðar á bíl nokkrum á Kirkjusandi hefðu verið skotnir sundur með riffilskotum. Eigand- inn mun fyrst hafa talið að hjólbarðamir hefðu verið skornir f sundur en er hann fór með þá á dekkjaverkstæði kom hið sanna í Ijós. Guðmundur sagði að maðurinn hefði að sögn ekki gert sér grein fyrir því að hann hefði skemmt bílinn en þrætti ekki fyrir það. Engar mannaferðir voru þama í nágrenninu er atburðurinn átti sér stað og varð enginn var við að hann væri að skjóta þarna í portinu. - FRI dropar Neðri deild lögð niður ■ Nú bendir flest til að stjórnarskrárnefnd leggi til að Alþingi starfi í einni deild, en ekki í tveimur eins og nú er. Efri deildar þingmönnum mun þykja nokkuð að sér vegið með þessari skipulagsbreyt- ingu og túlka hana sem nú eigi að leggja þeirra deild niður. Til að hafa þá rólega eru uppi hugmyndir um að skýrt verði tekið fram í frumvarpinu til breytinga á stjórnlögunum að það verði neðri deild sem lögð verði niður. Áttu eld ? ■ Og hér er einn af léttara taginu. Maður nokkur kom til sálsýkislxknis. Eftir að læknir- inn hafði látið hann setjast byrjaði gesturinn á því að taka upp sígarettu, rifa hana ) sundur og troða tóbakinu upp í nasimar. Lxknirinn virti þessar aðfarir fyrir sér og sagði svo: „Já, það leynir sér ekki, að þú þarft á aðstoð að halda.“ „Já, alveg rétt“, sagði sjúklingurinn. „Áttu eld.“? Borgarlög- maður „hinn minni“ ■ Borgarstjórn afgreiddi frá sér á fimmtudagskvöld tillögu borgarstjóra um tilfxrslur í embættismannakerfinu, sem greint hefur verið frá í blaðinu. Það vakti athygli að Albert Guðmundsson sat einn hjá af þeim sjálfstæðismönnum þeg- ar greidd vora atkvæði. Getur hafa verið leiddar að því að hjásetuna megi rekja til andúðar Alberts á væntanleg- . !- um borgarlögmanni, Magnúsi Óskarssyni, en hann var cinn af kosningstjórum Davíðs Oddsson í prófkjöri sjálfstæð- ismanna fyrir síðustu borgar- stjórnarkosningar. Þá elduðu Davíð og Albert grátt silfur saman, en Davið varð ofaná í baráttunni. Annars verður lítið eftir af upphaflegum verkefnum borg- arlögmanns þegar Magnús sest í þann stól, nema sjálf málflutningsstörfin, þar sem önnur verkefni hafa verið fxrð frá honum. Talaði einn borgarfulltrúa um borgarlög- mannsembxttið „hið minna“, og taldi litlar líkur á að það væri fullt starf eftir breyting- una, nema leggja ætti sérstaka áherslu á valdboð af ýmsu tagi við stjóra borgarinnar sem útheimti fullt starf málfæslu- manns við að verja, fyrir dómstólunum. Krummi ... ... leggur tU nýy rðið símaskúrur sem beygist eins og símasnúr- ur.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.