Tíminn - 15.10.1982, Side 3
FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1982
fréttirl
Ólga í íbúum Hjónagarða við Háskólann:
NÚSALEKAN Í HJÖNAGÖRÐUM
HÆKKUB UM RUMLEGA 100%
■ íbúar Hjónagarða við Suðurgötu
hafa mótmælt ákvörðun stjórnar Félags-
stofnunar stúdenta um húsaleigu í vetur.
Stjómin ákvað að hækka leiguna um
rúm 100% frá því í fyrra og skal hún
samkvæmt þeirri ákvörðun verða 2.100
krónur á mánuði, en ef miðað er við árið
í fyrra og hækkun vísitölu síðan hefði
hún átt að vera 1.510 krónur á mánuði,
eða sá er skilningur íbúa Hjónagarða.
Sigurður Skagfjörð Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri Félagsstofnunar sagði að
skýringin á hækkuninni væri sá að verið
væri að leiðrétta húsaleigugrunninn, en
hann hefði áður verið óraunhæfur.
Einn íbúa Hjónagarða sagði í samtali
við blaðamann Tímans í gær að nú væri
f fyrsta sinn verið að reikna fjármagns-
kostnað inn í leiguna, þ.e. auk
rekstrarkostnaðar, afskrifta og vaxta
ættu núverandi íbúar Hjónagarða nú að
greiða niður skuldir sem hvíldu á
húsnæðinu. Skoðun íbúanna væri hins
vegar sú að deila ætti þessum skuldum
niður á éndingartíma húsnæðisins, í stað
þess að þeir sem fá þar inni nú greiði
niður húsnæðið fyrir þá sem á eftir koma.
íbúar Hjónagarða hafa gert Félags-
stofnun gagntilboð, sem hljóðar upp á
að leigan í vetur skuli vera 1.800 krónur
og skuli sú upphæð vera leigugrunnur,
þ.e. næstu ár verði húsaleigan ákveðin
með því að framreikna hana samkvæmt
vísitölu. Þéssu hefur Félagsstofnun
hafnað, en boðið í staðinn að hækkunin
skuli koma til framkvæmda í tveim
áföngum, verða 1.845 krónur í vetur, en
næsta vetur hækki hún í 2.100 krónur að
viðbættum vísitöluhækkunum.
Viðmælandi blaðsins sagði að þótt
2.100 krónur véeri ekki há leiga ef miðað
er við almennan markað þá væri mikil
óánægja ríkjandi meðal íbúanna vegna
þess að þessi hækkun skuli ákveðin án
samráðs við þá. Jafnframt sagði hann að
íbúunum hafi verið hótað uppsögn á
húsnæðinu með sex mánaða fyrirvara ef
þeir gengju ekki að hinni nýju leigu-
upphæð. Hefði þetta hleypt illu blóði í
fólk, en lítið væri hægt að aðhafast vegna
uppsagnarhótananna.
Húsaleiga á Gamla Garði hækkar um
svipað hlutfall og á Hjónagörðum en
íbúar þar hafa ekki haft í frammi nein
mótmæli, en hluti hækkunarinnar þar er
til kominn vegna nýafstaðinnar endur-
nýjunar húsnæðisins.
JAK
Garðveisla Guðmundar:
Alþjóda-
dagur
hvfta
.ADS0KNIN ER
NOKKUDGUB"
■ „Meðan sýningin er enn í áskrift er
nokkuð erfitt að átta sig almennilega á
aðsókninni en þó held ég að mér sé
óhætt að segja að hún hafi verið nokkuð
góð,“ sagði Halldór Ormsson, miða-
sölustjóri Þjóðleikhússins, þegar hann
var spurður um aðsóknina að Garð-
veislu, hinu umdeilda leikriti Guðmund-
ar Steinssonar.
Halldór sagði að uppselt hefði verið á
nokkrar fyrstu sýningarnar, en á tveim
eða þrem síðustu hefðu hokkur sæti
verið laus í húsinu.
f gærkvöldi var síðasta áskriftarsýn-
ingin á Garðveisiu og því mun koma í
ljós á næstu dögum hvort leikritið fær
sæmilega aðsókn.
-Sjó..
■ í dag er alþjóöadagur hvíta stafsins, sem er mikilvægasta hjálpartæki blindra og
sjónskertra í umferðinni, jafnframt því að vera tákn þeirra, sem mikilvægt er að aUir
þekki og taki tillit til.
Afleiðingar erlendra skulda:
Greidslubyrði
verður 23%
af útflutn-
ingstekjum
■ Af hverjum 100 krónum sem við
höfum í útflutningstekjur í ár er nú gert
ráð fyrir að við þurfum að greiða 23
krónur í vexti og afborganir af erlendum
lánum, samkvæmt nýjustu útreikningum
hagspekinga þjóðarinnar. Er þetta nær
tvöfalt hærri greiðslubyrði af erlendum
lánum en t.d. árið 1979, þegar sama
hlutfall var 12.80 kr. af hverjum 100 kr.
Á síðasta ári var fyrrnefnt hlutfall 16.4%
af útflutningstekjum og á árunum 1975
til 1980 á bilinu 14.2 ti 12.8%, sem fyrr
er getið.
Að sögn fjármálaráðherra eru ástæð-
ur þessa fyrst og fremst þær, að
útflutningstekjur hafa hlutfallslega lækk-
að meðan erlend lán hafa hækkað, auk
þess sem vextir á erlendum lána-
mörkuðum hafi verið óvenjulega háir
upp á síðkastið.
Aðspurður kvað hann þetta þó ekki
stafa af því að íslendingar hafi þurft að
sæta óhagstæðari vaxtakjörum en al-
mennt gerist, nema að síður væri.
Vitnaði hann þar m.a. til könnunar er
gerð hafi verið á lánakjörum er alls 80
þjóðir hafi sætt á alþjóða lánamörk-
uðum og þar hafi komið í Ijós að ísland
var í 15. sæti. „Ég tel því að lánstraust
þjóðarinnar út á við sé býsna gott, sem
kemur fram í hagstæðum lánum til okk-
ar“, sagði fjármálaráðherra. -HEI
Horfur á gódri
rjúpnaveiði í ár
— samkvæmt talningu hefur
stofninn stækkað um 50%
■ „Samkvæmt talningu sem fram fór á
ýmsum stöðum á landinu í vor hefur
rjúpunni fjölgað mikið frá í fyrra.
Fjölgunin er, samkvæmt talningunni,
mest í Þingeyjarsýslum en hún er líka
veruleg annars staðar á landinu, að
meðaltali ríflega 50 prósent,“ sagði
Arnþór Helgason, fuglafræðingur, í
samtali við blaðið í gær.
Sem kunnugt er hefst rjúpnaveiðitíma
bilið í dag, 15. október og stendur til 20.
desember. Arnþór sagði að crfitt væri
að spá fyrir um veiðina en þó bjóst hann
við að veiði yrði góð næstu daga ef ekki
færi að snjóa að ráði. Að vísu þyrftu
veiðimenn sennilega að fara hátt á fjöll
til að ná henni, en þar mætti búast við
að hún væri í stórum hópum a.m.k. á
daginn.
-Sjó.
■ Næstu daga má búast ævið að skotglaðir veiðimenn flykkist til fjalla í von um
að ná í rjúpu.
LANDRIS
EYKST
■ „Það voru smá skjálftar á
Kröflusvæðinu á þriðjudag og eitt-
hvað svipað í morgun en það er svo
sem ekkert sérstakt,“ sagði Eysteinn
Tryggvason, jarðfræðingur í samtali
við Tímann í gær.
Að sögn Eysteins hefur verið hægt
landris við Kröflu undanfarið sem
aðeins hafi aukist s.l. tvo til þrjá
daga. Hins vcgar sagði hann það í
sjálfu sér ekkert athyglisvert því
þarna væru í rauninni sífelldar
breytingar á landinu. -Sjó.
FORSETINN
SÆMIR SJð
RIDDARA-
KROSSI
■ Forseti íslands sæmdi .í gær
eftirtalda menn heiðursmerki hinnar
íslensku fálkaorðu:
Adolf Björnsson, bankamann,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir
félagsmálastörf. Árna Sigurjónsson,
f.v. bankafulltrúa, Reykjavík, ridd-
arakrossi fyrir æskulýðsstörf. Gísla
Ólafsson, f.v. yfirlögregluþjón á
Akureyri riddarakrossi fyrir lög-
gæslustörf. Dr. med. Guðmund
Björnsson, prófessor, Reykjavík,
riddarakrossi fyrir augnlækningar og
vísindastörf. Jón Á. Gissurarson,
f.v. skólasstjóra, Reykjavík, ridd-
arakrossi fyrir störf að kennslu og
skólamálum. Pálu Pálsdóttur, kenn-
ara Hofsósi, riddarakrossi fyrir
fræðslu- og félagsmálastörf. Sigríði
Briem Thorsteinsson, frú, Reykja-
vík, riddarakrossi fyrir fræöslu- og
. félagsmálastörf.
UOSASKOÐ-
UN LYKUR
31. OKT.
■ Ljósaskoðun bifreiða fyrir árið
1982 á að vera lokið 31. október n.k.
f skoðuninni, sem er árleg, eru öll
ljós bifreiða yfirfarin, en algengt er
að stilling þeirra fari úr skorðum af
ýmsum orsökum.
„Nú fer í hönd sá árstími sem þörf
góðrar lýsingar í umferðinni er hvað
brýnust. Það er mikilsvert, að allir
leggist á eitt til þess að auka öryggi
skamrndegisumferðarinnar. Gang-
andi hafi á sér endurskinsmerki, og
æir sem aka hafi öll Ijós bifreiðar
sinnar í lagi og jafnframt hrein. Sama
gildir reyndar um bílrúður og
rurrkublöð, allt þarf þetta að vera
viðbúið rysjóttri tíð,“ segir í tilkynn-
ingu frá umfcrðarráði. -Sjó.
FUNDUR UM
FÓSRUR-
EYÐINGAR
■ Kristilegt stúdentafélag gengst
fyrir fundi um fóstureyðingar í
Norræna húsinu í kvöld. Fundurinn
hefst klukkan 19.45 með setningu, en
klukkan 20 verður sýnd 45 mínútna
löng kvikmynd um fóstureyðingar.
Myndin er eftir þá Francis A.
Schaffer, guðfræðing og heimspek-
ing, og bandaríska skurðlækninn
C.Everett Koop. í myndinni er
fjallað um frjálsar fóstureyðingar út
frá trúar- og siðferðilegu sjónarmiði.
Eftirtaldir flytja crindi á fundin-
um: Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
alþingismaður, Auðólfur Gunnars-
son, kvensjúkdómalæknir, Hildur
Jónsdóttir, skrifstofumaður og Sig-
urður Pálsson, námsstjóri. —Sjó.