Fréttablaðið - 20.01.2009, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Páls Baldvins
Baldvinssonar
Í dag er þriðjudagurinn 20. jan-
úar, 20. dagur ársins.
10.42 13.39 16.36
10.45 13.23 16.03
Í gömlum harðstjórnarríkjum liðinnar aldar voru þeir and-
ófsmenn sem settu sig gegn ríkj-
andi reglum settir á námskeið og
þar var barið í þá nýtt lífsviðhorf í
þágu þjóðar og flokks. Oftast voru
menn sendir á einhvern útnárann
og látnir vinna harðneskjulega
vinnu meðan reynt var að heila-
þvo þá með ríkjandi gildum harð-
stjóranna. Fyrir helgina fréttist
af endurmenntunarnámskeiðum
starfsfólks Glitnis þar sem hert
var á nýjum starfsreglum bank-
ans. Áhugamenn um nýtt gildis-
mat hljóta að spyrja hvort ekki er
þörf á endurmenntun víðar og þá
er eðlilega spurt um námsefni: ein-
hver stakk upp á Hávamálum til að
byrja með.
LENDIR það ekki á hagfræði-
deildum háskólanna að kalla inn
viðskiptafræðinga og MBA-ara
síðustu tíu ára og taka þá í læri á
ný? Viðskiptaráðið, forystusveit
atvinnurekenda, verður að mæta
á þannig námskeið, einkum í ljósi
þess að flest fyrirtæki landsins
eru komin á hnén og falla brátt á
hausinn, lenda á eignaskrá bank-
anna.
HIN stórkostlega og víðtæka
hlutafélagavæðing er enda komin
fyrir björg. Almenningur mun
ekki leggja krónu í hlutafé nokkurs
fyrirtækis næsta áratuginn. Lík-
lega hefur hlutafélagahugsjóninni
verið veitt náðarhögg sem dugar
minnst tvær kynslóðir. Enda fátt
orðið eftir af sparisjóðum venju-
legs fólks sem verður að berj-
ast við að halda þaki yfir höfuðið
næstu árin. Og ekki hafa síðustu
árgangar úr fornum skólum sam-
vinnuhreyfingarinnar lært neitt
um þær merku hugsjónir, nema
helst víðtæka samvinnu um að
rotta sig saman í eiginhagsmuna-
skyni og fullnuma sig í klækjum.
ÞVÍ er beðið með eftirvæntingu
auglýsinga um námskeið í nýjum
hugsjónum atvinnurekstrar á
vegum háskólanna með endur-
skoðuðu pensúmi. Því er treyst að
Svafa Grönfeldt hafi forystu um
málið. Lagt er til að stofnað verði
útibú við ystu strönd og áhuga-
sömum verði fundið húsnæði í
verbúð. Þar duga engin vettlinga-
tök. Ef menn verða í vandræðum
með kennara má leita í klassíkina
og kennsluefnið: hin fornu rit ein-
gyðistrúarinnar, Biblíu og Kóran,
forn spekirit búddískra fræða og
hindúismans. Okkur vantar ekki
nýjar grundvallarreglur, heldur
eldgamlar.
Endurmenntun-
arnámskeið
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
N
A
T
4
47
91
0
1/
09
Miklu meiri hollusta
Fitness er heilsumorgunkorn sem stendur
undir nafni. Það hefur heilhveiti að undir-
stöðu og inniheldur 24% minni sykur en
sambærileg heilsumorgunkorn, meira
magn trefja og minni fitu.
Láttu skynsemina ráða.
Hreyfðu þig reglulega og njóttu þess
að borða heilsusamlega.
Lyfja Lágmúla
Lyfja Smáratorgi
OPIÐ 8-24 ALLA DAGA
- Lifið heil