Fréttablaðið - 20.01.2009, Blaðsíða 15
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
GRÆNA UMSLAGIÐ mun berast lífeyrisþegum í pósti á næst-
unni en í því er áætlun fyrir árið 2009 sem sýnir lífeyrisgreiðslur
sundurliðaðar eftir greiðslutegundum og mánuðum. Mánaðarlegir
greiðsluseðlar verða því ekki lengur sendir út.
„Hláturinn hefur hjálpað mér
að losa um spennu, virkja
sköpunargáfuna og leikgleðina og
taka hlutunum ekkert alltof alvar-
lega. Afleiðingarnar eru þær að
maður fer smám saman að sjá
hlutina í allt öðru samhengi og
hugsa í lausnum í stað þess að ein-
blína á vandamálin,“ segir Kristj-
án Helgason um reynslu sína af
hláturjóga sem hann hefur stundað
í fjögur ár.
Kristján segist þess fullviss að
hægt sé öðlast aukna lífshamingju
með ástundun jóga af þessu tagi
og nefnir sem dæmi að hlátur geti
losað um vöðvabólgu, liðaverki
eða höfuðverk. Eins tilfinninga-
lega spennu eins og kvíða, áhyggj-
ur, óróleika eða óþolinmæði. Hlát-
ur sé einhver besta aðferðin til að
losa um streitu. Árangurinn skili
sér í raun inn á flest svið daglegs
lífs.
Áhugi Kristjáns á þessari teg-
und jóga varð til þess að hann fór
að kenna öðrum aðferðina. Hann
útskrifaðist síðan á síðasta ári af
námskeiðinu Goodheart hlátur-
markþjálfun, kennt við bandaríska
sálfræðinginn Annette Goodheart,
sem hefur undanfarin 38 ár notað
hláturinn sem sitt aðaltæki til að
aðstoða fólk við að greiða úr sínum
málum. Í markþjálfun er athygl-
inni beint að því sem viðkomandi
er að upplifa á líðandi stundu og
hvert hann vill stefna frá þeim
stað. Kristján er eini Íslending-
urinn sem hefur lokið þjálfun í
aðferðinni og hefur réttindi til að
kenna fyrsta áfanga hennar.
„Hugmyndin að baki aðferð-
inni er mjög sérstök því á meðan
oft er rætt um jákvæðar og nei-
kvæðar tilfinningar hafnar hún
alfarið slíkri aðgreiningu. Til-
finningar fá nefnilega alltof oft á
sig einhvern neikvæðan stimpil,
eins og reiði. En í raun á hún full-
an rétt á sér. Reiðin er bara aðferð
til að segja hingað og ekki lengra.
Með henni erum við að sýna hvar
mörkin liggja. Reiðina má líka
nota sem stjórntæki, eins og sést
hefur í mótmælunum. Hún er í
eðli sínu hreyfiafl sem við getum
nýtt þegar gengið er á okkar rétt.
Við þurfum bara að gæta þess að
ánetjast henni ekki.“
Kristján verður með fyrirlestur
um hláturmarkþjálfun og kenning-
arnar sem liggja til grundvallar
henni í Manni lifandi í Borgar-
túni á morgun frá klukkan 17.30
til 19.30. roald@frettabladid.is
Reiðin á fullan rétt á sér
Kristján Helgason notar hlátur sem hjálpartæki til að greiða úr sínum málum. Að hans mati má meðal
annars nýta hláturinn til að virkja sköpunargáfuna, draga úr sársauka og auka almenna vellíðan í lífinu.
Kristján Helgason telur mikilvægt að fólk fái reglulega útrás fyrir tilfinningar sínar í stað þess að byrgja þær inni.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS
Útsala
25 - 70 % afsl.
af öllum vörum
Baðdeild Álfaborgar
Skútuvogi 4 - sími: 525 0800
Sturtuklefar - Baðinnréttingar
Hreinlætistæki - Blöndunartæki
Baðker ofl.
Næstu fyrirlestrar og námskeið
21. jan. Goodheart hlátur- markþjálfun
Kristján Helgason hláturjógakennari
27. jan. Ég fitna sama hvað ég geri. Hvernig næ
ég jafnvægi?
Esther Helga Guðmundsdóttir ráðgjafi
03. feb. Hvað er heilun?
Kristján Viðar Haraldsson ráðgjafi
07. feb. Hláturfundur Hláturkætiklúbbsins
Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari.
10. feb. Mataræði fyrr og nú - Næring í víðari skilningi
Haraldur Magnússon osteópatiwww.madurlifandi.is
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Patti húsgögn
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
80%afslætti
valdar vörur með allt að