Tíminn - 07.11.1982, Qupperneq 4

Tíminn - 07.11.1982, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982. A 85 ára afmæli Blaðamannafélags Islands „SÉ EKKl EFTIR AD HAFA VALIÐ MÉR BLAÐAMANNSSTARFIB' segir handhafi blaðamannaskírteinis no. 1, Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri ■ Nú um helgina er þess minnst að Blaðamannafélag Islands er 85 ára og er það þar með elsta starfandi stéttarfélag landsins. Saga íslenskrar blaðamennsku hefur verið rifjuð upp í bók Vilhjálms Þ. Gíslasonar, „Blöð og blaðamenn,“ sem hefst á þeim tíma þegar fyrsta íslenska blaðið „Islandske Maanedsti- dende“ kemur úr 1773. Ekki reynum við hér að rekja þær breytingar og aldahvörf sem orðið hafa síðan þá, heldur látum Vilhjálmi það eftir. Þess í stað báðum við um að mega heyra hvað elsti félagi Blaða- mannafélags íslands, sá sem ber félagsskírteini þess no.l, Þórar- inn Þórarinsson, ritstjóri, hefur að segja um þær breytingar sem hann sjálfur hefur orðið vitni að frá því er hann hóf sinn blaða- mennskuferil árið 1934. Þær brey tingar eru margar og róttæk- ar. „Þú spyrð um aðdraganda þess að ég gerist blaðamaður. Það er eiginlega ekki gott að segja nákvæmlega hvenær upptök- in verða, en um tíu ára aldur, 1924 eða þar um kring, fór ég að fylgjast all vel með blöðunum og las þá Tímann og Lögréttu og önnur blöð sem ég komst yfir, en aðeins eitt blað var keypt heima hjá mér, svo hin varð ég að fá lánuð. Ég hneigðist fljótt að Tímanum hvað skoðanir snerti, en las einnig Lögréttu mér til mikillar ánægju, því þar voru erlendar yfirlitsgreinar. Það má því kannske segja að þeir Þorsteinn Gísla- son og Vilhjálmur Þ. Gíslason hafi orðið mínir lærifeður á því sviði. Segja má líka að hugurinn hafi snemma hneigst að blaðaútgáfu og blöðum, því tólf ára gamall fer ég að gefa út blað sem var verulega pólitískt Framsóknarblað. Fé- lagi minn, Sigurður Ólafsson, sem nú er forstjóri Reykjavíkurapóteks, gaf svo út annað blað til andsvars gegn mínu blaði, en það var fremur inni á Sjálfstæðislínunni, þótt ekki væri hann slíkur áhugamaður um pólitík og ég.“ Kynni af Jónasi Jónssyni „Tólf ára gamall kem ég hingað suður til Reykjavíkur og var tilgangurinn sá að fá mér gleraugu, en ég var nærsýnn og hef alltaf verið. Ég bjó hjá þingritara, Jóhanni Hjörleifssyni, og fékk að fara með honum í þingið til þess að hlusta á umræður þar. Jónas Jónsson tók eftir þessum setum mínum þarna og eitt sinn síðar, þegar Sigurður Einarsson, skóla- stjóri í Ólafsvík var á ferðinni, þá notaði hann tækifærið og sendi mér tvo árganga af Alþingistíðindum. Það segir talsvert um Jónas sem ekki hafði neitt kynnst mér að hann skyldi gera þetta, en svona var hann opinn fyrir öllu ungviði, og auðvitað varð þetta til að gera mig enn þá pólitískari. Þegar ákveðið var að ég skyldi afla mér einhverrar menntunar, vildi ég ekki í neinn skóla fara nema Samvinnuskólann. í hann settist ég 1931 og lauk prófi frá skólanum 1933. Á þessum tíma tók ég mikinn þátt í pólitísku starfi í Félagi ungra Framsókn- armanna. Á þessum tíma var klofningur- inn á milli Jónasar og Tryggva í aðsigi og ég tók mér strax stöðu Jónasar megin. Ég tók þátt í útvarpsumræðum sem fulltrúar stjómmálafélaga yngri manna stóðu að í mars 1933. Kostaði þetta það að ég varð að fara úr skóla og gerði það í samráði við skólastjóra, en Jónas beitti sér þá mjög fyrir því að skólanemendur tækju ekki þátt í pólitík, enda hafði það þá nýlega orðið brottrekstrarsök í Menntaskólanum á Akureyri, þegar Ásgeir Blöndal Magnússyni var vísað úr skóla. Ég las svo utanskóla og lauk prófinu 1933.“ Blaðamennska „Sama ár fór ég að vinna við Tímann, en ekki nema að hálfu leyti við blaða- mennsku, því að nokkru leyti vann ég við afgreiðslu og dreifingu. Nokkrum mánuðum seinna, eða haustið 1933, var „Nýja dagblaðið" stofnað, vegna þess að Framsóknar- flokkurinn hugðist nú ryðja sér meir til rúms í kaupstöðunum. Gerðist égblaða- maður við það blað að fullu í janúar 1934 og vil ég miða blaðamannsferil minn við það ár. Þannig ætti ég því hálfrar aldar afmæli sem blaðamaður eftir rúmt eitt ár. Vinnan við dagblöðin á þessum tíma var auðvitað ósambærileg við það sem nú er. „Nýja Dagblaðið" var ekki nema fjórar síður og mig minnir að þá hafi Morgunblaðið ekki verið nema fjórar síður heldur. En þá gerist það að Alþýðublaðið er stækkað. Blaðið var að vísu áfram aðeins fjórar síður, en brotið var mikið stækkað.Finnbogi Valdemarsson var rit- stjóri þess og tók hann nú upp þann hátt að hafa erlendan fréttaritara í Kaup- mannahöfn, sem sendi þaðan erlendar fréttir. Á þessum tíma var geysilega mikið að gerast í pólitíkinni erlendis, nasistar voru að ryðja sér til rúms og fleira markvert var á ferðum. Alþýðu- • HÁTIÐARsamkoma Allt framsóknarfólk hjartanlega velkomíð á hátíðina. Aðgöngumiðar eru seldir á skrifstofu Framsóknarflokksins að Rauðarárstíg 18, og þá má einnig panta í síma 24480. Framsóknarfélögin í Reykjavík. ——l—f

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.