Tíminn - 07.11.1982, Blaðsíða 19

Tíminn - 07.11.1982, Blaðsíða 19
SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982. 19 Skák Kasparovs og Alburts á Ólympíumótinu: LOFT LÆVI BLANDID Að loknum fyrstu fjórum umferðun- um á Ólympíuskákmótinu, var íslenska karlasveitin í 9. sæti með 11 vinninga. Á Ólympíuskákmótinu á Möltu 1980, hafði sveitin 9 'h vinning eftir 4. umferðina, en í þeirri umferð fékk sveitin slæma útreið gegn Búlgörum, 'h : 3lh. Fram til þessa hefur frammistaðan verið góð, og nokkrum erfiðum bið- skákum hefur verið bjargað. Slíkt sýnir gott keppnisskap og hörku, nokkuð sem verður að vera fyrir hendi, eigi toppár- angur að nást. íslenska kvennasveitin hefur einnig staðið vel fyrir sínu, þó ekki sé enn hægt að standa harðsnúnum sveitum austurblokkarinnar snúning. Af öðrum viðburðum, ber hæst viðureign tveggja stigahæstu þjóðanna, Sovétríkj- anna og Bandaríkjanna. Oft hefur hitnað í kolunum þegar þessi stórveldi hafa mæst við skákborðin. Á Kúbu 1966, þurfti Fischer t.d. að fá frest, vegna trúariðkana sinna, þegar Banda- ríkjamenn skyldu mæta sveit Sovétríkj- anna, en sá frestur var ekki gefinn. Bandaríkjamönnum var bent á að koma bara með varamann, gæti Fischer ekki teflt. Pessu vildu Bandaríkjamenn ekki una og mættu ekki til leiks. Þeir fengu sín fjögur núll færð inn á töfluna, en eftir langt samningaþóf var loks ákveðið að tefla með fullskipuðum liðum, og allt fékk góðan endi. Þegar þessar þjóðir mættust nú á Ólympíuskákmótinu, var það einkum skák Alburts og Kasparovs á 2. borði sem dró að sér athygli áhorfenda. Alburt, landflótta Sovét- maður, hóf forystuna með gamalkunnu og heldur óíþróttamannslegu bragði, er hann lét sem hann sæi ekki framrétta hönd andstæðingsins. Sjálf bar skákin merki hins lævi blandaða andrúmslofts, því hún varð bæði hörð og grimm. Kasparov fórnaði drottningunni fyrir' hrók og biskup, og fékk fyrir þægilegt tafl. Hægt og bítandi var saumað að Alburt, og eftir 57 leiki var klukkan stöðvuð, án orðaskipta. Hvítur: Lev Alburt. Svartur: Garry Kasparov Kóngsindversk vörn. 1. c4 g6 2. d4 Bg7 3. Rc3 Rf6 4. e4 d6 5. Be2 0-0 6. Bg5 Rb-d7 (Upp er komið Averbach-afbrigðið svonefnda. Gegn því hefur Kasparov unnið margan góðan sigurinn á svart, en Alburt er með nýjung í pokahorninu.) 7. Dcl?! (Venj- an er að leika 7. Dd2.) 7.. c5 8. d5 b5!? (Byrjunin fer nú yfir í nokkurs konar Benkö-bragð, þar sem svartur fórnar peði fyrir sókn. Kasparov sýnir hugrekki með þessum leikmáta því Alburt er talinn mesti sérfræðingurinn í þessum stöðum á svart, og Ieikur helst ekki annað, fái hann færi.) 9. cxb5 a6 10. a4 Da5 (Hótar 11.. Rxe4 og hvítur verður að eyða leik í að mæta þessu.) 11. Bd2 axb5 12. Rxb5 Db6 13. Dc2 Ba6 14. Rf3 Bxb5 8 H H ” W 7 & it i 6 1*4 1% 5 ± 4 % 3 arö l'ö n £LA f iii: 1 $1Í f=? - -v ' *—*'/. ■“ 'FFr//, abcdefqh 15.. Dxb5! (Éftir þessa drottningarfórn kemur upp mjög krefjandi staða, og vörn hvíts verður erfið.) 16. axb5 Hxal+ 17. Bcl Rxe4 18. 0-0 Re-f6 19. b4 (D-peðið varð ekki varið og hvítur reynir að fá eitthvað mótspil.) 19.. Rxd5 20. Bd2 Hf-a8 21. bxc5 Hxfl+ 22. Kxfl Hal+ 23. Ke2 Rxc5 24. Dc4 e6 25. b6 (Hvítur verður að lofta út fyrir drottninguna. Ef. 25. Be3 Ha4 26. Dcl Rc3+ 27. Kfl Rd3 og vinnur.) 25. . Rxb6 26. Db5 Rb-d7 27. Be3 Bf8 28. Rd4 Ha2+ 29. Kfl Hal+ 30. Ke2 e5! (Svartur vill ekkert jafntefli, því hvítur hefur ekkert upp á að tefla, en mið- ■ Kasparov borðspeð svarts geta hæglega orðið illviðráðanleg.) 31. Rc6 Ha2+ 32. Kfl Hal+ 33. Ke2 Ha2+ (Kasparov var í miklu tímahraki og vinnur því tíma.) 34. Kfl Ha6 (Hótar 35. . Hb6 sem vinnur riddarann.) 35. Bxc5 Rxc5 36. g3 Hal+ 37. Kg2 Re6 38. Db8 Hdl 39. Db2 (Drottningin ræður ekki við þrjá menn svarts eftir 39. Rxe5 dxe5 40. Dxe5.) 39. . Hd5 40. Db8 Hc5 41. Re7+ Kg7 42. Rc8 (Hvítum líst ekki á leppun riddarans ■ Alburt á e7, eftir 42. Dxd6.) 42. . Hd5 (En nú er d-peðið dyggilega valdað, og býðst ekki aftur.) 43. Da8 Hd2 44. Rb6 Rc5 45. Rc4 Hd4 46. Re3 Be 7 47. h4 h5 48. Rd5 Bd8! 49. Kf3 Re6 50. Dc6 Hd2 51. Ke3 (Ef 51. Dxd6 Bc7 52. Dd7 Bb6.) 51. . He2+! 52. Kd3 (Ef52. Kxe2Rd4+ og sama gildir um 52. Kf3.) 52. . e4+ 53. Kc4 (Eða 53. Kc3 Hc2+ 54. Kxc2 Rd4+.) 53. Hc2+ 54. Rc3 Bf6 55. Dxe4 Hxc3+ 56. Kd5 Hc5+ 57. Kxd6 Be5+ Hvítur gafst upp. Hann er mát eftir 58. Kd7 Hc7+ 59. Ke8 Bd6 60. Dd5 He7. Jóhann Orn Sigurjónsson Jóhann Örn Sigurjóns~ son skrifar Ég undirrit----óska að gerast áskrifandi að tímaritinu SKINFAXA simi nafn heimili póstnr. Sendist til: Ungmennafé/ag ís/ands, Mjölnisholti 14, 105 Reykjavík. Sími 14317 \ UNGMENNAFÉLAGAR gerist áskrifendur að SK/NFAXA w SKINFAXI er tímarit Ungmennafélags Islands SKINFAXI hefur verið gefinn út óslitið í 73 ár SK/NFAXI flytur fréttir af starfi ungmennafélaganna í landinu SK/NFAX/ kostar kr. 100,- í ár - 6 hefti á ári Ef þú gerist áskrifandi nú færð þú árganginn í ár ókeypis R0TASPREADER Fyrirliggjandi MYKJU- DREIFARINN ÁRA REYNSLA ■ Þessir vinsælu mykjudreifarar hafa verið seldir á Islandi í 20 ár. Á sama tíma hefur fjöldi eftirlíkinga verið boðinn til sölu hér en engin náð útbreiðslu sem neinu nemur. Þetta segir sína sögu um gæði og fjölhæfni Howard myrkjudreifaranna. Þessi fjölhæfi dreifari dreifir öllum tegundum búfjáráburðar, jafnt lapþunnri mykju, sem harðri skán. Belgvíðir hjólbarðar. Varahlutir ávallt fyrirliggjandi. Aðeins örfáum dreifurum óráðstafað úr síðustu / sendingu þessa árs Haustkjör AFKÖST — GÆDI — ENPING Greiðsluskilmálar - Hagstætt verð Globusp LÁGMÚLI 5, SIMI 81555

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.