Tíminn - 07.11.1982, Blaðsíða 7

Tíminn - 07.11.1982, Blaðsíða 7
SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982. 7 ■ Heilsuvemd ungbama og smábama, þ.e. eftirlit með vexti þeirra og þroska og aðgerðir til að hindra að þau verði fyrir alvarlegum sjúkdómum, er sennilega hvergi í heiminum sinnt betur en hér á landi, og þykir árangur í samræmi við það. í Reykjavík er heilsuvemd þessi fullkomnust enda annast hana sér- menntaðir barnalæknar og hjúkrunar- fræðingar. Óvíða úti á landi verður slíkri þjónustu komið við og fellur þá eftirlitið í hendur almennra lækna á heilsu- gæslustöðvum. Barnalæknar reyna þó að heimsækja nokkur byggðalög úti á landi reglulega, svo sem Akranes, Keflavík og Selfoss. Nú ber svo við að heilbrigðisyfirvöld virðast ekki lengur telja ástæðu til að eftirlit með ungbörnum og smábörnum verði í höndum hinna færustu sérfræð- inga. í reglugerð um heilsugæslustöðvar sem Svavar Gestsson heilbrigðismála- ráðherra staðfesti í vor segir aðeins að ungbörn og smábörn skuli skoðuð af lækni, en ekki er tiltekið hvers konar læknir það á að vera. Heilsugæslulæknar sem eru ört vaxandi þrýstihópur vilja túlka þetta ákvæði svo að það bindi enda á þá heilsuvernd sem bamalæknar hafa annast um áratuga skeið, og eigi hún að falla í þeirra eigin hendur. Fyrirmyndin er heilsugæslustöðin í Fossvogshverfi í Reykjavík þar sem enginn barnalæknir starfar, en mikill fjöldi foreldra í hverfinu virðist ósammála þessu viðhorfi og hefur kosið að leita til barnadeildar Heilsu- verndarstöðvarinnar við Barónsstíg. Á öðrum heilsugæslustöðvum í borginni eru barnalæknar enn að störfum, en framtíð starfs þeirra er í óvissu. Meðal ■ Halldór Hansen yfirlæknir að starfi á bamadeildinni við Barónsstíg. Verða barnalæknar látnir hætta að annast heilsuvernd ungbarna og smábarna? ENGIN RÖK HÆLA MEÐ BREYTIN GUNNI Ráðagerð heilbrigðisyfirvalda vekur undrun og veldur foreldrum áhyggjum þeirra foreldra ungbarna og smábarna í Reykjavík sem áttað hafa sig á þeim gífurlegu breytingum sem í vændum virðast vera gætir mikils kvfða, eins og m.a. hefur komið fram í lesendabréfum til dagblaðanna. Að ábendingu nokkurra foreldra fór Helgar-Tíminn á stúfana, kynti sér ungbarna- og smábama eftirlitið á bamadeild Heilsu- verndarstöðvarinnar við Barónsstíg, og ræddi við Halldo’r Hansen yfirlækni deildarinnar. Ungbarnaeftirlit í meira en hálfa öld Að sögn Halldórs Hansen var það Hjúkmnarfélagið Líkn sem fyrst efndi til skipulegs eftirlits með ungbörnum í Reykjavík. Sú starfsemi hófst árið 1927 og var í umsjón bamalæknis og hjúkr- unarkonu. Alla tíð síðan, þ.e. í meira en hálfa öld, hafa sérmenntaðir barna- læknar og hjúkrunarfræðingar haft eftir- litið með höndum; frá 1954 hefur það verið rekið af heilbrigðisyfirvöldum í Reykjavík. Starfsemin er í því fólgin að hjúkrun- arfræðingar frá bamadeild Heilsuvemd- arstöðvarinnar heimsækja hvert nýfætt bam á Reykjavíkursvæðinu nokkrum sinnum þar til það verður 3ja mánaða að aldri. Þá kemur barnið í fyrstu heimsókn sína á barnadeildina og er skoðað af barnalækni. Þessar heim- sóknir em samtals átta fram að því að barnið verður fjögurra ára gamalt; önnur heimsóknin er þegar það er 4ra mán., sú þriðja þegar það er 6 mán., síðan aftur þegar það er 7 mán., 10 mán., 14 mán., tveggja ára og fjögurra ára. Læknirinn metur framför barnsins, vöxt og allan þroska, gefur ráð um næringu þess og svarar ýmsum spurning- um sem eðlilega leita á foreldra. Þá em ónæmisaðgerðir í höndum læknisins, en börn eru sprautuð reglulega til að hindra bamaveiki, stífkrampa, kíghósta, mænusótt og mislinga. Börn sem þrosk- ast afbrigðilega á einhvern hátt, andlega eða líkamlega, eru undir sérstöku eftir- liti og eins em gerðar ráðstafanir til að þau fái sérstaka þjónustu utan bama- deildarinnar. A fjórða þúsund börn Við spurðum Halldór Hansen um fjölda þeirra bama sem koma á barna- •deildina við Barónsstíg og útibú hennar. Hann kvað þau hafa verið á fjórða þúsund undanfarin ár; árið 1980 vom þau 3636. Skoðanir em fleiri, að undanförnu á níunda þúsund; árið 1980 vom þær 8308. Á sama ári voru vitjanir hjúkmnarfræðinga til ungbarna í heima- ihúsum 4680, en að meðaltali hafa nýfædd börn á borgarsvæðinu verið um 1500-2000 á ári. Að ungbarna- og smábamaeftirlitinu starfa nú 17 hjúkrunarfræðingar og 7 barnalæknar, þar af tveir í fullu starfi. * Arangur heilsuverndar „Það er ýmsum erfiðleikum bundið að meta árangur af starfsemi okkar“ sagði Halldór Hansen. Vandamál er stafa af vannæringu barna virðast að mestu horfin og ónæmisaðgerðirnar sýnast hafa náð tilskildum árangri. „Andlega velferð barna er alltaf erfitt að meta en við reynum að fylgjast með henni eftir því sem kostur er.“ Halldór kvað lækna barnadeildar vera þeirrar skoðunar að efla þyrfti það starf sem þar færi fram, búa betur að húsnæði deildarinnar og fjölga starfsliði svo unnt sé að gefa hverju og einu barni meiri tíma. Hvers vegna barnalæknar? Við spurðum Halldór hver væm helstu rökin fyrir því að ungbarna- og smábamaeftirlit væri í höndum sér- menntaðra bamalækna en ekki al- mennra heilsugæslulækna. „Tvær greinar hafa nokkra sérstöðu innan læknisfræðinnar“ sagði Halldór. „Það em annars vegar barnalækningar og hins vegar öldmnarlækningar. Þar er ■ Einn þáttur í starfsemi bamadeildar er að fylgjast með hseð og þyngd barna. Hér er Þuríður Aðalsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur að störfum. Tímamynd: GE. fengist við sérstaka aldurshópa sem hafa aðrar þarfir en fólk á miðjum aldri, og reynslan hefur sýnt að betur fer að sérfræðingar í barna- og öldrunarsjúk- dómum sinni þessum hópum en almenn- ir læknar.“ Halldór benti á að reynsla heimilis- lækna væri yfirleitt fólgin í því að fást við veik börn, og þeir vissu oft lítið um heilbrigð böm. Þá þekkingu hefðu barnalæknar og heilsuverndarhjúkrun- arfræðingar aftur á móti til að bera. Barnalæknar hefðu mikla reynslu af bæði sjúkum börnum og heilbrigðum, og starfsreynsla þeirra gerði þá hæfasta til að átta sig á afbrigðilegum þroska barna. Engin læknisfræðileg rök mæltu með því að heilsugæslulæknar tækju ungbarna- og smábarnaeftirlitið yfir, en mörg rök mæltu sterklega gegn því. Óviss framtíð Sem fyrr segir er allt í óvissu um það hvernig heilbrigðisyfirvöld hyggjast í reynd túlka ákvæði reglugerðar um heilsugæslustöðvar. Sennilegast er að um eitthvert skeið verði tvennskonar form á heilsuvemdinni, þ.e. sums staðar annist almennir læknar hana og annars staðar barnalæknar. Ljóst er af reynsl- unni í Fossvogshverfi að foreldrar kjósa fremur að leita til barnalækna, og því hlýtur þetta skipulagsleysi að geta af sér margs konar vandræði. Ástæða er til að velta fyrir sér hvers vegna sú hugmynd kviknaði í upphafi að færa heilsuvernd ungbarna og smábarna úr höndum barnalækna. Ljóst er að hún er ekki sprottin af óskum foreldra, fyrir henni hafa ekki verið færð fjárhagsleg rök eða hagkvæmnisrök önnur, og eins og yfirlæknir bamadeildar heilsuvemd- arstöðvarinnar benti á, að henni hníga engin læknisfræðileg rök. Allir sem þetta mál hugleiða hljóta að átta sig á að ef af þessari breytingu verður mun eftirlitið versna og það stefnir heilsu- ■ vernd bama í voða. Getur verið að núverandi heilbrigðisyfirvöld vilji reisa sér slíkan minnisvarða? - GM.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.