Tíminn - 07.11.1982, Blaðsíða 14

Tíminn - 07.11.1982, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982. Sitthvað um lófalestur - Fjórða grein ■ Djúpa höndin (skál í lófanum) er ekki gott teikn og má ætla að viðkomandi sé þannig skapi farinn að hann lendi í margslags umgengniserfiðleikum við aðra. sýnir víðsýni og ■ Barnshöndin á myndinni sýnir að hér vex upp persóna með mjóan lófa sem táknar einsýni í skoðunum og litla samúðartilfinningu. ■ Breiða höndin umburðarlyndi. ■ „Fjöllin“ eru meginatriði við lófalestur og þau ber alltaf að skoða vandlega. Hvað varð úr þeim hæfileik- um sem þú varst fæddur með? „Fjöllin” í hendinni gefa þér vísbendingu um það ■ Þá höfum við lokið við að skoða fingurna og lítum um stund á höndina sem heild. Saman mynda fingurnir og höndin það sem nefna mætti „þrjá heima lófalestrarfræðanna“, en hér er átt við líkama, sál og anda. Eðli hvers manns er upp byggt af þessu þrennu en í mismunandi miklum mæli og ólíkum hlutföllum. Fingurnir og lófinn munu strax geta sagt þér hvað af þessu þrennu er ríkjandi í fari hvers einstaklings. Fingurnir túlka hugann eða andann og séu þeir lengri en hinn hluti handarinnar (sjá áður) eða eru á annan hátt ríkjandi yfir hendinni, mátt þú vita að viðkom- andi hefur andleg viðhorf til lífsins. Sé höíuölinan sterk og þumalfingurinn sterkur, tekur það af allan vafa um að svo er. Vísbendingu um hina „heimana" tvo er að finna í lófanum. Gerðu þér í hugarlund að þú dragir línu yfir lófann, eins og sýnt er með slitróttri línu hér á myndinni. Ofan línunnar eru saman komin flest „fjöllin", (sem við gátum um í lok síðustu greinar og fjallað verður nánar um hér) og að minnsta kosti hálf höfuðlínan, sem ræður hagsýni og verslunarviti. Neðan línunnar er svo að finna þau kennileiti sem ráða löngunum einstaklingsins í hin og þessi veraldleg gæði og ýmsar tilhneigingar hans þessu tengdar. Hér fæst séð að hve miklu leyti líkamlegar þurftir ráða gerðum hans og hve sjáffselskur hann er. Sé því lófinn breiðastur neðan við fingurnar og fer aðeins mjókkandi er neðar dregur, mátt þú bóka að maðurinn er hagsýnn og gerir fá mistök í viðskiptum, en tilfinningalega mætti hann vera þroskandi. Sé neðri hluti lófans breiðari og þunglamalegur í hlutfalli við fingurnar, er trúlegt að sá hinn sami sé gefinn fyrir át, drykkju, kynlíf og önnur þægindi, og hafi litlar mætur á veraldar- vafstri sem kostar fyrirhöfn. Þetta á einkum við þegar þumalfingurinn er rýr, og höndin lin með grófri húð. Munið að gæta að hvort lófinn er breiður eða mjór að tiltölu, miðað við höndina alla. Eins og við má búast merkir breiði lófinn að sá hinn sami er víðsýnn, umburðarlyndur og kippir sér ekki upp við smámuni, en barnshöndin á myndinni, sem birtist hér með, sýnir að þar vex upp persóna sem hefur ákveðnar skoðanir sem erfitt er að breyta, á litla samúð til handa öðrum og er hreinskiptin innan þröngsýnna marka. Sumir lófar sýnast alsettir línum, sem geta minnt á þéttriðið net. Aðrir lófar hafa tiltölulega fáar og glöggt markaðar línur. Lófinn með mörgu línurnar heyrir til tilfinningaríku og næmgeðja fólki sem láta hina smæstu hluti hafa áhrif á tilfinningar sínar og láta þær í Ijósi með talsverðum tilþrifum. Þetta fólk er oftast taugaveiklað og æst og á erfitt með að ákveða sig. Ætla má samt að líf þessa fólks sé tilbreytingaríkara en hjá þeim sem hefur hinar fáu og glöggu línur. En sá með fáu línurnar er rólyndari að eðlisfari og stöðugri í rásinni, tekur hlutunum með ró og það þarf góða ástæðu til að hann láti geðbrigði og tilfinningar í ljós. Best .er að lófinn sé nær alveg flatur, þegar hann er opnaður. Djúpur lófi (sjá mynd) sýnir að skaplyndi viðkomandi geðjast ekki mörgum og hann mun verða að sveitast blóðinu í striti fyrir öllum árangri sem hann nær. Fjöllin sjö Við kváðumst mundu ræða um „fjöllin" þ.e. fituþófana undir fingrunum í þessu blaði og nú víkur sögunni að þeim. Djúpur lófi orsakast einmitt af því að „fjöllin" í lófanum eru hærri en algengt er. „Fjöllin“ eru sjö að tölu og svara til stóru plánetanna sjö í stjörnu- spekinni og það er fráleitt að lesa í lófa án þess að taka þau með í reikninginn. Hátt og vel lagað „fjall“ sýnir að viðkomandi er gæddur þeim eiginleikum í ríkum mæli sem því „fjalli“ eru helgaðir. Sé það flatt og lítt áberandi er einstaklingurinn á sama hátt gæddur fáum þeirra, og í ó.verulegum mæli. Oft er í sama lófa eitt „fjallanna" hátt, annað í meðallagi og það þriðja lítið. Einnig gerist það að öll fjöll virðast stór, sem er merki um mikla tilfinningasemi, eða þá að öll eru lág, sem bendir til kaldgeðja eðlis og vöntunar á hrifnæmi. Séu „fjöllin" ekki alveg á þeim stað sem sýnt er á myndinni, heldur liggja nálægt næsta „fjalli" (milli fingranna) ber að ætla að eiginleikar þessara tveggja fjalla séu á einhvem hátt samfléttaðir. Tökum sem dæmi: „Fjallið" undir baugfingri bendir til listrænna hæfileika. Renni það saman við „fjallið" undir litla fingri, sem ræður viðskiptaviti og bæði mynda eitt „fjall“, þá ættir þú að fara nærri hinu sanna ef þú giskaðir á að viðkomandi væri blaðamaður eða tísku - teiknari, en í þessum störfum á listin og sölumennskan samleið. Oft virðast „fjöllin" í hendinni vera mjög jöfn og hvorki há né lág. Það er gott teikn, því þá er á ferðinni persóna sem hefur mikið jafnaðargeð og hneigist ekki til öfga í einu né öðru. Segi línurnar ekki eitthvað annað, þá getur þú verið viss um að sá hinn sami er jafnlyndur, heilbrigður, skynsamur og umburðarlyndur. Sé eitthvað fjallanna áberandi hæst (en þá horfum við fram hjá því að Venusar fjallið mikla undir þumalfingrin- um er vanalega stórt og hátt) má ætla að þeir eiginleikar sem „fjallinu" fylgja séu afar áberandi í fari viðkomandi og séu megineinkennin í fari hans. Sé til dæmis „Venusar-fjallið", sem við minntumst á, sérlega eftirtektarvert vegna stærðar sinnar er þarna um að ræða góðhjartaða, tilfinningaríka og skemmtanagjarna manneskju, - oftast konu. Hvað svo sem línurnar segja, þá munu þessir eiginleikar örugglega vera til staðar og móta viðkomandi. Þessir eiginleikar eru tengdir hjartalínunni og þú ættir að athuga hana vel, þegar þú sérð slíkt „Venusar„fjall“ í lófa ein- hvers. Annars eru þeir eiginleikar sem hverju fjalli fylgja þessir: Júpíter-fjallið (Undir vísifingri). Métnaður, stolt, foringjahæfileikar, trúarhneigð, meðaumkun. Nánar vísast til höfuðlínunnar. Satúrnusar-fjallið (Undir löngutöng). Stöðugleiki, skynsemi, þunglyndi, iðju- semi, vitsmunir. Nánar vísast til örlaga- línunnar, sem stefnir að þessu fjalli. Sólar-fjallið (Undir baugfingri). Glaðlyndi, vanafesta, heiður, ákaf - lyndi, listrænir hæfileikar. Nánar vísast til velgegnilínunnar, sem stefnir að þessu fjalli. Merkúrfjallið (Undir litla fingri). Hæfileiki til að aðlagast breytingu, taugastyrkur, skjótleiki í viðbrögðum, diplómathæfileikar, slægð, fyndni. Nán- ar vísast til heilsulínunnar, sem stefnir á þetta fjall. Berið eiginleika þessara „fjalla” einnig saman við þá eiginleika sem hver fingur yfir sig býr yfir. Marsfjallið (Milli þumalfingurs og Júpíter-fjallsinn). Hugrekki, kraftur, viðnám, ástríður. Þega þetta fjall er mjög áberandi, gefið þá nánar gætur að líflínunni. Flestir lófalesarar eru þeirrar skoðun- ar að annað „Mars-fjall“ sé í hendinni og sé það við handarjaðarinn milli hjartalínunnar og „Mána-fjallsins.“ Eru þessi tvö fjöll talin hafa nokkuð mismun- andi eiginleika. En þar sem það er sjaldgæft að sjá þófanum neðan við „Merkúr-fjallið“ deilt í tvennt, látum við nægja að nefna hann allan „Mána- fjallið", en telja margir lófalesarar að nógu öruggur árangur fáist með því einfalda móti. Mánafjallið (Milli Merkúr-fjallsins og niður undir úlfnliðinn). Samúð, ímynd- unarafl, mislyndi, áhuga á ferðalögum. Þegar sú sjaldgæfa lína, dulræna línan, er í hendinni, ber að telja hana tengda þessu fjalli. Venusar-fjallið (stóri þófinn við þum- alfingurinn). Góðlyndi, skemmtanafíkn, glaðlyndi, hjartahlýja, kyntöfrar. Skoð- ið sérstaklega hjartalínuna í þessu sambandi. Athugið vel að ef áberandi fjall hefur margar þéttar og litlar línur, sem liggja hver yfir aðra (köllum þær „netjur" - sjá síðar) má búast við að ágallar þeir sem fjallinu tengjast séu meir áberandi en kostirnir. Áður en við segjum skilið við „fjöllin", þá munið að skoða þau í báðum lófum, þvf þau geta verið ólík. „Fjall“ sem er flatt í vinstri hendi getur verið áberandi í þeirri hægri og öfugt. Lófalesturinn verður að vera í samræmi við það. í vinstri hendinni er sú persónugerð og skaplyndi sem einstak- lingurinn FÆDDIST MEÐ, en í þeirri hægri það sem ÚR ÞEIM VARÐ, þegar út í lífið var komið. Stórt Júpíter-fjall í vinstri hendi, en flatt í þeirri hægri, mundi því benda til þess að viðkomandi væri fæddur með metnaðargirnd, valda- löngun og trúarhneigð, sem ekki hefði fengið a njóta sín í lífi hans. Eins lesum við úr öllum „fjöllum“ öðrum. Prófið einnig með því að þrýsta varlega á „fjöllin", hvort eitt þeirra sé harðara viðkomu en annað. Harkan bendir til þess að viðkomandi eigi þann kraft og dugnað sem þarf til að nota sér eiginleika þess sama „fjalls“, en mjúkt fjall ber vitni um að slíkur dugnaður er ónógur og árangurinn líklegur til að verða eftir því. Þá er þessari kennslustund um „fjöllin" lokið. Hér hefur verið getið um ýmsar línur tengdar „fjöllunum" og það eru einmitt línurnar sem við byrjum að skoða í næsta blaði. Þýtt-AM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.