Tíminn - 07.11.1982, Blaðsíða 11

Tíminn - 07.11.1982, Blaðsíða 11
>»; -í l < í *» / • T SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982. 11 skákl Stúlkumar irnnu - karlamir töpuðu Frá IUuga Jökulssyni í Luzern íslenska sveitin tapaði illa fyrir Eng- landi í gær. Margeir tapaði fyrir Nunn og Ingi R. Jóhannsson tapaði fyrir Mestel á fjórða borði. Jóhann Hjartar- son gerði jafntefli við Stean eftir skemmtilega taflmennsku þar sem Jó- hann hafði lengst af yfirhöndina. Stean sagði eftir skákina að hann hefði á tímabili álitið stöðu sína gjörtapaða. Helgi Ólafsson tefldi á fyrsta borði við Miles og fór sú skák í bið og hefur Helgi peð yfir, en staðan er álitin dautt jafntefli. Helgi var á tímabili skiptamun undir en vann hann aftur og peð að auki, en það nægir varla til sigurs. Helgi hefur sýnt mikla kepnishörku það sem af er mótinu og ekki tapað skák. í gærkvöldi var talið óhætt að fullyrða að niðurstað- an yrði 3:1 fyrir England og hefur ísland því hrapað verulega niður á mótinu. Kvennasveitin tefldi við Brasilíu og fór skák Guðlaugar og Ribeiro í bið og hefur Guðlaug örlítið betri stöðu, en vafasamt að það nægi til vinnings. Ólöf Þráinsdóttir vann Chaves og Sigurlaug Friðþjófsdóttir gerði jafntefli við Car- dóso. Það er því ljóst að kvennasveitin hefur unnið í þessari umferð. Af öðrum úrslitum er fyrst að nefna að tveim sterkum sveitum hefur gengið með eindæmum illa. Ungverjar, sem fyrirfram var álitið að myndu berjast um sigur á mótinu, urðu að gera sér að góðu að tefla við b-sveit Sviss og hefði það einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar. Ekki var árangurinn burðugur því að Ribli, sem er einn af kandidötunum í áskorendaeinvígunum tapaði á efsta borði fyrir sínum andstæðingi og var talið í gær að þegar biðskákum væri lokið yrði jafntefli niðurstaðan úr keppni landanna. Hin sveitin sem nær svo slæmum árangri að furðu gegnir er finnska sveitin; á tveim efstu borðum hennar tefla stórmeistarar. í fjórðu umferðinni tefldu Finnar við Chilebúa og töpuðu 0:4. í fimmtu umferðinni voru horfur á að Finnar töpuðu fyrir Albönum. En lítum á úrslit í viðureignum efstu þjóðanna. Sovétmenn tefldu við Hol- lendinga. Karpov og Timman,Kasparov og Sosonko, skák Rhee og Beljavskís fór í bið en var talin jafnteflisleg. Á fjórða borði vann Yusupov Van der Viel, en sá síðarnefndi mætti til keppni í bol sem á var letrað Gulko í bak og fyrir. Líkur eru því á sovéskum sigri. Tékkar tefldu við V-Þjóðverja, skák Horts og Húbners varð jafntefli, biðskák varð hjá Smejkal og Unzicker. Jansa og Lebrow gerðu jafntefli, en Pfleger vann Ftacnik. Bandaríkin tefldu við Argentínu og á efsta borði gerðu Brown og Quinteros jafntefli, en aðrar skákir fóru í bið. Allt stefndi í bandarískan sigur. Svisslend- ingar tefldu við Kúbumenn, en úrslit voru óljós þegar blaðið fór í prentun. Júgóslavar tefldu við Kínverja, Hulag vann á fjórða borði fyrir Júgóslavíu, tvær skákir fóru í bið, en ein varð jafntefli. JGK/IJ, Luzem. Þvottavél og þurrkari besta heimilishiálpin > V: TeKur 5 Kg Greiðslukjor: Útborgun kr. 3.000,00 Restin á 6 mánuðum Frábær vara frá Frakktan^ Þeytivinda 900 sn/mín. Fullkomið þvottakerfi og fullkominn þurrkari Vélin er viðurkennd af Rafmagnseftirliti ríkisins, raffangaprófun Viö viljum vekja athygli á því, aö Thomson hef- ur snúiö sér algerlega aö topphlöönum þvottavélum, en þær hafa ýmsa kosti fram yfir framhlaönar. 1. Meiri ending þar sem tromlan er á Tegum báö- um megin. 2. Betri vinnuaðstaða, að ekki þarf að bogra fyrir fruman vélina. 3. Mun hljóðlátari. 4. Minni titríngur. Vélin tekur kalt vatn, en það er hreinna en hitaveituvatn og fer betur með þvottinn, sem end- ist því lengur og er því ódýrara þegar á heildina er litið. Auk þess endist véiin lengur. THOMSON er stærsti þvottavélaframleiðandi í Evrópu Kynningarverð KR Greiðskukjör 13.890. Komið, skoðið eða biðjið um upplýsingar í pósti Heimilistækjadeíld Skipholti 19 sími 29800 A/mMM SfM MBBMfM FIAT UMBOÐIÐ FIAT POLONEZ Enn er tækifæri að eignast nýjan Polonez kr. 135.000 gengi 1-11 '82 Komdu á þeim gamla og þú ekur heim á nýjum Enn er tækifæri á h/s. 22 SMIÐJUVEGI 4 KÓPAVOGI SÍMI 77200 - SÖLUMENN í SÍMA 77720

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.