Tíminn - 07.11.1982, Qupperneq 26

Tíminn - 07.11.1982, Qupperneq 26
SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982. 26 nútíminn Umsjón: Friðrik Indriðason og Eirfkur S. Eiríksson ÓHÁÐI VINSÆLDA- LISTINN — byggdur á sölu í STUÐ-búðinni ■ Litlar breytingar hafa orðið á listanum frá fyrri viku, sú helsta er að Spliff fella Jonee Jonee út af honum og draumar Kate Bush eru á uppleið. Að öðru lcyti er listinn óbreyttur og sömu sögu er að segja um litla listann, Fornaldarhugmyndir Lólu tróna þar cfst sem fyrr. 1. Dire íjtraits/ Love Ovcr Gold 2. Peter Gabriel/ 4 3. Tappi tíkarrass/ Bitið fast í vitið 4. Cure/Phornograpy 5. Dead Kennedys/ In God Wc Trust Inc. 6. Kate Bush/The Dreaming 7. Crass/Christ the Album S. Spliff/85555 9. Defunkt/ Thermo Nuclear Sweat 101 Art Bears/ The World As It Is Today Hyómsveitín ÞEYR heim á klakann: ENGLANDSTURINN FÓR í VASKINN — Greenworld í Kaliforníu hefur áhuga á að fá 15.000 eintök af nýjustu plötu þeirra The Fourth Reich ■ Hljomsveitin ÞEYR var væntanleg heim á klak- ann nú um helgina eftir hljómleikaferðaiag um Norðurlöndin en þeir léku í Finnlandi, Svíþjóð og Danmörku. Eins og kunn- ugt var af fréttum fyrir þessa för var einnig ætlun- in hjá Þeysurunum að leika í Englandi en sá túr mun hafa farið í vaskinn vegna vanefnda SHOUT út- gáfunnar sem átti að skipuleggja túrinn en sú skipulagning brást. Enska útgáfan af plötu Þeysaranna As Above hefur verið ófáanleg í búðum hér um langt skeið en það er einmitt Shout sem gaf hana út í Englandi. Hingað til lands kom þessi plata í litlu upplagi á sínum tíma og seldist strax upp en við höfum fregnað að á næstunni sé von á öðru upplagi með þessari plötu. 15.000 eintök til Bandaríkjanna? Ný plata ÞEYS The Fourth Reich er væntanleg á næstu vikum en Hilmar Örn, andlegur sáluhjálpari þeirra sagði í samtali við Nútímann að Greenworld dreiflngarfyrirtækið í Kaliforníu hefði sýnt áhuga á plötunni og vildi það fá 15.000 eintök af henni til dreiflngar. Eigandi Greenworld er Villiam nokk- ur Hein en hann kom hingað í heimsókn um síðustu áramót og kynnti sér það sem var að gerast hér á nýbylgjusviðinu. Hann fór utan með plötur með öllum okkar helstu tónlistarmönnum á þessu sviði og hefur hann verið duglegur við að kynna íslenska tónlist á þessu sviði vestra en Greenworid dreiflr plötum allra hclstu pönkgrúppanna í Los Angeles og hefur sveitir á borð við Yello og Residents á sínum snærum. íslensk nýbylgjutónlist hefur hlotið nokkra umfjöllun vestra og sagði As- mundur í Gramminu okkur að stór grein hefði birst um hana í tímaritinu Trouser Press en það hefur svipaöa stöðu í Bandaríkjunum og Zig Zag hefur í Bretlandi. FRI ■ Hljómsveitin Þeyr. LLola 2. Comsat Anglcs 3. G.B.H. AIRÍ GAMLA BÍÓ ■ Eins og greint var frá í síðasta Nútíma mun Jazztríóið AIR halda hér eina tónleika þann 16. nóvember n.k. og nú mun vera komið á hreint hvar tónleikarnir verða, þ.c. í Gamla bíó. Miðaverði á tónleikana erstillt í hófxðá 150 spesiur stykkið. Forsala miða hefst eftir helgi í Fálkanum Laugavegi og Gramminu á Hverfisgötu. JONEE HÆTTIR ■ Hljómsveitin Jonee Jonee, sem ný- lega gaf út plötuna Svonatorrek, er hætt. Fyrir skömmu hélt Þorvar Hafsteinsson söngvari sveitarinnar tilNew York og var upphaflega ætlunin að hann yrði í mánuð en kæmi svo heim og sveitin fylgdi plötunni eftir með tónleikum. Nú er hinsvegar ljóst að Þorvar mun verða lengur ytra, hyggur jaínvel á nám þar og því varð úr að Jonee lagðist niður. Bergsteinn Björgúlfsson bassaleikari og Heimir Barðason trommuleikari eru hinsvegar að pæla í nýrri hljómsveit og eru þeir nú að leita að þriðja manni í hana. Ætla þeir sem sagt ekki að láta deigan síga en sveitin kemur til með að heita eitthvað allt annað en Jonee Jonee. FRI ■ Jonee Jonee í kunnuglegu umhverfl, þ.e. á tónleikum á Borginni. Plötur fáguðu máli. Því er þó ekki að neita að McDonald er ekki alvondur, en ég fyrir mína parta verð að segja: „We are not amused“ eins og Viktoría forðum. McDonald og Doobie Brothers eru rammvilltir að mínu viti og ég á þá ósk heitasta þeim til handa (ef þeir eru ekki hættir) að þeir rambi afturábak til fyrri dýrðardaga. Þá voru það lög eins og „Long train running“ sem gcrðu allt vitlaust og ég man það eins og gerst hefði í gær er Rúnar Júl. braut bassann á rjáfrinu á hljómsveitarpallinum í Húsa- felli er Trúbrot tóku þetta lag árið 1970. í dag sofnar Rúnar Júl. vafalaust ef hann hlustar á Doobie Brothers og Michael McDonald. -EÍE Plötur það gott. Ein aðalástæðan fyrir því hvað sólóplöturnar verða svipaðar því sem hljómsveit- imar hafa verið að jjera er auk ófrumleikans sú að viðkom- andi söngvarar hafa átt erfitt með að breyta rödd sinni. Það hefur 'Don Henley getað gert og þó að plata hans sé_ e.t.v. ekkcrt meistarastykki, þá eru á he.nni ákaflega ánægjulegir kaflar s.s. titillagið og hið þrælgóða „Johnny can‘t read“. Sem fyrr er tónlistin í rólegri kantinum, en allir þeir sem kunnu að meta Eagles og ekki eru á móti örlítilli framþróun ættu aðgeta metið þessa plötu. -ESE ■ Michael McDonald - If that what it takes / Steinar Aumingja Michael McDonald. Hann er einn af þessum köllum sem er með ágæta og sérkennilega söngrödd, en hans mestu vand- ræði em að hann hljomar alltaf nákvæmlega eins og þá skiptir ekki máli hvort hann raular fyrir Doobie Brothers, í baði eða á eigin sólóplötu. McDon- ald hefur um langan aldur verið númer eitt maðurinn í Doobie Brothers, eða eftir að hann skiidi við Steely Dan- Hann átti einnig sætrsta þátt- inn í að tosa Doobie Brothers upp vinsældalistana hér fyrir nokkurm árum með hinu frá- bæra lagi „What a fools-bel- ive“. NQ finnst mér sern sagt að hæfiieikar Michael McDonalds séu að veröa honum fjötur um fót og líklega heitir þetta stöðvun eða andleg gelding á ■ , Don Henley -1 can‘t stand still / Seinar. Það er kunnara en frá þurfi að segja að undanfarin ár hafa einstaklingar úr hinum og þess- um heimsffægum hljóm- sveitum, fetað sólóstigu og árangurinn hefur yfirleitt ekki verið neitt til að hrópa húrra fyrir. Þessir piltar hafa nefni- lega langflcstir fallið í þá gryfju að „kóp(era“ það sem þcir hafa verið að gera með hljómsveitum sínum og sjaldan Það er því ánægjuefni að heyra a.m.k. eina plötu við og við sem hijómar ekki eins og „móðurskipið". Don Henley ein aðalsprautan í Eagles.er einn af þeim sem þorað hafa að farÁ eigin leiðir og plata hans „1 can’t stand still“ minnir varla hætishót á Eagles og er hefur örlað á frumleika. Þetta er auðvitað langt frá því að vera algiit, en hin sorglegu dæmi þcssa blasa við hvert scm litið er.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.