Tíminn - 07.11.1982, Síða 27
SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982.
27
tiútíminii
■ Einar Öm Benediktsson
söngvari í Purrks Pillnikk sáluga
hefur nú stofnað nýja fimm
manna hljómsveit og er þessa
dagana að standsetja æfinga-
húsnæði á Ægisgötunni en því
mun nýja sveitin deila með
Fræbbblunum og á að verða til
staðar aðstaða til upptöku
(Qögurra rása tæki).
Einar öm kom fram á síðustu Upp
og ofan tónleikum í Félagsstofnun undir
nafninu Seinar Express en hann sagði í
samtali við Nútímann að nýja sveitin
væri ekkert tengd því verkefni, það
hefði veirð prógramm sem hann og Torfi
Rafn orgelleikari hefðu komið saman
fyrir þessa einu tónleika og síðan ekki
söguna meir... að vísu mun Torfi vera
meðlimur í nýju sveitinni en um aðra
meðlimi hennar vildi Einar ekki tjá sig,
þetta væri svo skammt á veg komið.
Hann gat þess að hljóðfæraskipun yrði
■ Einar Öm í „faðmlögum" sinna fyrri félaga í Purrk Pillnikk.
EINAR ÖRW MEÐ
NÝJA HLJÓMSVEIT
sennilega, orgel, klarinett, trompet, síðamefnda. opinberlega fyrir áramót en Einar sagði
gítar, bassi, trommur og söngur og yrði Ekki er ljóst hvort þessi nýja sveit það ömggt að þeir héldu tónleika í
jafnvel kvenmaður sem sæi um hlið (hefur enn ekki hlotið nafn) kemur fram byrjun næsta árs. _frj
Fjör í plötuutgafu Steina hf.:
íslenskt
■ Jakob Magnússon.
góðgæti
■ Mikið fjör er nú að færast í
hljómplötuútgáfu Steina hf. Fyrir utan
þær fjölmörgu erlendu hljómplötur sem
fyrirtækið lætur pressa hérlendis, þá er
von á allmörgum nýjum íslenskum
plötum og líta nokkrar þeirra dagsins
ljós þegar í þessari viku.
Fyrsta ber að telja nýja sólóplötu
Jakobs Magnússonar, en hún heitir
„Tvær systur“. Platan er i mjög svipuð-
um stíl og „Special Treatment" og sem
fyrr em aðeins úrvalsmenn með Jakobi
við plötugerðina. Nægir þar t.a.m. að
nefna Steven Anderson, bassaleikara og
Jeff Berlin sem einnig leikur á bassa.
Þá senda Þú og ég, þ.e.a.s. Helga
Möller, Jóhann Helgason og Gunnar
Þórðarson frá sér nýja plötu í vikunni
og nefnist hún „Aðeins eitt líf“. Er þar
á ferðinni væntanlega mjög vönduð
plata, ef miða má við reynslu fyrri ára.
Loks er að nefna Egó - platan „I
mynd“ kemur út í þar næstu viku, en
Egóistar eru nú í þann veginn að ljúka
landsreisu sinni. -ESE
Þægileg upphitun
■ Þá veit maður það, eða hvers vegna
Ian Gillan kom ekki til íslands. Eins og
sjá má á meðfylgjandi mynd hefur hann
verið önnum kafinn við að hita upp og
æfa upphitunarhljómsveitina sem leika
mun með GILLAN á komandi hljóml-
eikaferðalagi. Þessi upphitunar
hljómsveit nefnist Cucumbers og er hún
eingöngu skipuð kvenmönnum. Miðað
við klæðaburð ættu þær ekki að hætta
sér hingað á Klakann, en þær geta þó
alltaf reitt sig á Gillan. Hann er sagður
svo flinkur með t.
Bitvargur og bárujárnströli
■ Þeir sem eru fyrir fútt og fjör, ættu
að bregða sér á hljómleika með gamla
Black Sabbath-brýninu Ozzy Osbourne.
Hann þykir í dag einn sá alsvakalegasti
sem þenur raddböndin á rokkfjölum og
kappar eins og Alice Cooper sem
hálshöggvið hafa hænur og gælt við kyrk-
islöngur, bókstaflega fölna við hliðina á
Ozzy. Bárujárnsrokkari þessi er einnig
ágætlega tenntur eins og sjá má á
meðfylgjandi mynd enda hefur hann
haft það fyrir sið að bíta hausinn af
skömminni eða af hænunni og þykir víst
mörgum alveg nóg um þær sýningar.
Þetta er sem sagt rétti maðurinn fyrir
Bruna B.B.
■ Ian Gillan og upphitunarliðið.
■ Paul Weller.
„Jólagjöf”
■ Sorgleg tíðindi berast yfir sæinn.
Hin ága:ta breska hljómsveit The Jam,
eða Sulturnar eins og nafnið hefur
gjarnan verið útlagt á íslensku er að
syngja sitt síðasta.
Það var Paul Weller, forsprakki The
Jam sem greindi frá því í opnu bréfi í
New Musical Express á dögunum að
fyrir dyrum stæði að leysa hljomsveitina
upp. Sagði Weller hljómsveitina hafa
náð eins langt og bestu vonir hefðu verið
bundnar við og með það í huga væri
ekkert vit að halda áfram bara nafnsins
vegna.
- Við viljum ekki enda í þeirri
neyðarlegu aðstöðu að verða útbrunnin
hljómsveit, sagði Weller m.a. í bréfi
sínu til heimsins.
Góðu fréttirnar við þetta allt saman
eru þær að The Jam ætla að halda
hljómleika um jólin og verður það
væntanlega síðasta jólagjöf þessarar
ágætu hljómsveitar.
Leitað að
Crass plötum
■ Nýjasta verk Crass, Christ the
Album, hefur farið mjög í taugarnar á
breskum stjórnvöldum enda fá þau
vægast sagt herfilega útreið í textum
laganna á albúminu. Málið hefur komið
alla leið inn á breska þingið þar sem
fjallað hefur verið um það og í framahldi
hafa spunnist nokur blaðaskrif um málið
í Bretlandi.
Stjórnvöld hafa reynt að finna dreif-
ingaraðila plötunnar, væntanlega til að
stöðva hana, en það hefur gengið
djöfullega hjá þeim að hafa uppi á
þessum aðila, hann er raunar John
nokkur Loder hjá Southern Studios,
mikill vinur Tony Cook og velkunnur
• meðal nokkurra tónlistamanna hérlendis
en Purrkur tók upp lötur hjá honum
í Southern. _FR1
J|§ RÍKISSPÍTALARNIR
SJ3É5 lausar stöður
LANDSPÍTALINN
SJÚKRALIÐAR óskast til starfa á Kvennadelld.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri Landspítalans í síma 29000.
RÍKISSPÍTALARNIR
Reykjavík, 7. nóvember 1982.
Iðngarðar
á Selfossi
Stjórn Iðnþróunarsjóðs Selfoss auglýsir hér með
aðstöðu í nýbyggðum Iðngörðum á Selfossi. Skv.
samþykktum um Iðngarða á Selfossi sem liggja
frammi á tæknideild Selfossbæjar, Eyrarvegi 8.
Teikningar af Iðngörðum liggja frammi á sama
stað.
Umsóknir þurfa að hafa borist formanni stjórnar
Iðnþróunarsjóðs Selfoss Guðfinnu Ólafsdóttur,
Engjavegi 83, 800 Selfossi fyrir 20. nóv. n.k.
Stjórnin.
LOFTPRESSA
3300 mín. lítra
fyrirliggjandi
Smiðjuvegi 30 — Simi 76444.
Rúm með útvarpi og vekjaraklukku.
Stærð: 90x200 cm.
Verð kr. 6.750,-
Húsgögn og Su4urlandsbraut 18
mnrettmgar simi 86-900