Fréttablaðið - 27.01.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 27.01.2009, Blaðsíða 2
2 27. janúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR Margir finna til óöryggis. Til dæmis hefur verið sagt að ástandið eigi ekki að hafa áhrif á grunnþjónustuna en það fylgir ekki sögunni hvernig menn skilgreina hana nákvæmlega. LÍNEY ÚLFARSDÓTTIR SÁLFRÆÐINGUR Nám í verðbréfaviðskiptum Nám til undirbúnings prófs í verðbréfaviðskiptum Framúrskarandi kennarar Staðnám og fjarnám Fyrirlestrar á netinu Dæmatímar lll. hluti hefst 4. febrúar Skráning stendur yfir á endurmenntun.is SAMFÉLAGSMÁL Frestur til að skila inn tilnefningum vegna Samfé- lagsverðlauna Fréttablaðsins hefur verið framlengdur til mið- nættis á miðvikudag. Vegna tæknilegra örðugleika á vefsíðunni visir.is gekk erfið- lega að skila inn tilnefningum um helgina. Því var ákvörðun tekin um að framlengja frestinn, sem átti að renna út í gær. Tilnefna má alla þá sem þykja hafa lagt sitt af mörkum til að bæta íslenskt samfélag. Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti Íslands, afhendir Samfélags- verðlaunin 5. mars. - hhs Samfélagsverðlaun veitt: Tilnefnt fram á miðvikudag Þórir, hvar leitið þið fanga næst? „Þeir hljóta að vera í fanganýlend- unni Ástralíu, er það ekki?“ Kvikmynd um breska fangann Michael Gordon Peterson, sem kallar sig Charles Bronson, hefur vakið athygli á Sundance- kvikmyndahátíðinni í Bandaríkjunum. Þórir Snær Sigurjónsson hjá ZikZak er einn framleiðenda myndarinnar. VIÐSKIPTI „Nú er mikilvægt að byggja trúverðugleika hér á nýjan leik,“ segir Carsten Val- green ráðgjafi. Hann segir stjórnarskipti geta verið jákvæð enda rétt að skipta út í valdastöðum. Halda verði áfram að byggja upp trúverðug- an grunn eigi að koma Íslandi á réttan kjöl. Carsten varð heimsfrægur á Íslandi á vordögum 2006 þegar hann, þá aðalhagfræðingur Danske Bank, gaf út skýrslu um íslensku uppsveifluna. Í skýrsl- unni var dregin upp dökk mynd af stöðu mála. Carsten, sem var harðlega gagnrýndur fyrir vikið, fjallaði um stöðu Íslands og leiðir til að endurbyggja landið ásamt Robert Parker, frá Credit Suisse, á ráð- stefnu Alfa fjárfestingaráðgjafar í gær. - jab Trúverðugleikinn mikilvægur: Valdaskipti af hinu góða SPURNING DAGSINS SAMFÉLAGSMÁL „Við rífum okkur upp úr þessu, það eru alveg hrein- ar línur,“ sagði Gísli Ragnar Pét- ursson, 71 árs borgarstarfsmaður, sem sat málþing um tengsl fjár- hags og heilsu í Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis. Gísli Ragnar segist hafa mikla trú á land og þjóð. Þau orð hans endur- spegla ágætlega hugarfar þeirra eldri borgara sem Fréttablaðið ræddi við á málþinginu. „Ég hef engar áhyggjur, hvorki fyrir mína hönd né þjóðarinn- ar. Ég er gam- a l l k aupfé - lagsstjór i á harðindasvæð- u m svo ég þekki mætavel hvað það er að standa í erfið- leikum. Ég var kaupfélags- stjóri á Þórs- höfn á Langa- nesi í níu ár, þar á meðal hafísárið 1965 og þá við vorum eina svæð- ið á Norðausturlandi sem ekki bað um aðstoð. Þannig að ég veit vel hvaða kraftur býr í fólki og brýst fram þegar á þarf að halda.“ „Þessar þrengingar hafa engin áhrif á mig, bara alls engar,“ segir Guðmundur Sigfússon sem fylgdi þeim Steinunni Jónsdótt- ur og Sesselju Laxdal á málþing- ið. „Ég var búinn að koma mér fyrir í íbúð fyrir eldri borgara á Kleppsvegi svo þetta getur ekki verið betra.“ Förunautar hans voru heldur ekki áhyggjufull- ir. Verst þótti þeim, eins og Guð- mundi, að fólk færi fram með of miklu offorsi í mótmælunum. „Og það er algjör óhæfa að fólk sé að fara með börnin sín þangað,“ segir Guðmundur. Hulda Kristjánsdóttir er á nír- æðisaldri þótt hún beri það ekki með sér. Hún kippir sér heldur ekki upp við ástandið. „Ég segi bara eins og kerlingin, ég átti ekk- ert fyrir þannig að ég hafði engu að tapa,“ segir Hulda og hlær við. Líney Úlfarsdóttir, sálfræð- ingur á Þjónustumiðstöð Laugar- dals og Háaleitis, sem stóð fyrir málþinginu, segir að vissulega hafi ástandið í þjóðfélaginu áhrif á margt eldra fólk rétt eins og aðra. „Mörg þeirra fylgjast gríð- arlega vel með fréttum og annarri umfjöllun um ástandið en frétta- flutningurinn er sjaldnast miðað- ur við aðstæður þeirra,“ segir hún. „Þannig að margir finna til óör- yggis. Til dæmis hefur það verið sagt að ástandið eigi ekki að hafa áhrif á grunnþjónustuna en það fylgir ekki sögunni hvernig menn skilgreina hana nákvæmlega.“ jse@frettabladid.is Átti ekkert og hafði því engu að tapa Kona á níræðisaldri segist ekki kippa sér upp við ástandð í samfélaginu. Hún hafi ekki átt neitt og því ekki haft neinu að tapa. Gamall kaupfélagsstjóri segist hafa mikla trú á landi og þjóð í þeim hremmingum sem nú ganga yfir. Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Guðmundur Sigfússon kom á málþingið í fylgd þeirra Stein- unnar Jónsdóttur og Sesselju Laxdal. GÍSLI RAGNAR PÉTURSSON LÖGREGLAN Bílstjórinn sem grunaður var um að hafa ekið á mann á Laugaveginum um helgina, hefur játað að hafa verið undir stýri og verður ákærður, segir Margeir Sveinsson, lögreglufull- trúi yfir rannsóknardeild umferðarmála hjá lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem ekið var á, var á gjörgæslu Land- spítala í gær og er haldið sofandi í öndunarvél. Hann er mjög alvarlega slasaður, að sögn læknis. Bílstjórinn er grunaður um að hafa ekið of hratt og ölvaður niður Laugaveginn. Þar er 30 kílómetra hámarkshraði. Hann er Íslendingur á þrítugsaldri og ók Hummer-jeppa, sem eru tiltölulega stór og þung ökutæki. Eftir því sem næst verður komist játaði maður- inn ekki að hafa verið ölvaður og verður blóðsýni úr honum sent til Noregs til frekari rannsóknar, og má búast við því að það taki um mánuð að fá niðurstöður úr henni. Meintur of hraður akstur bíður einnig frekari rannsóknar. Ökumaðurinn stakk af frá vettvangi, án þess að hjálpa hinum slasaða. Lögreglan hafði hendur í hári ökumannsins skömmu síðar. Vitni voru að ákeyrslunni. - kóþ Manni haldið sofandi í öndunarvél eftir að ekið var á hann á Laugavegi: Bílstjórinn verður ákærður BELGÍA, AP Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins lýstu því yfir í gær að aðildarríki sambandsins ættu að taka við föngum sem sleppt verður úr Guantána- mobúðunum á Kúbu, en þó því aðeins að Banda- ríkjastjórn fari þess á leit. Allt að sextíu þeirra 250 fanga, sem enn sitja í þessum umdeildu fangabúðum Bandaríkjahers, eiga á hættu ofsóknir, fangelsi eða dauða ef þeir verða sendir aftur til heimalands síns. Þetta eru þeir fang- anna sem eru frá Afganistan, Alsír, Aserbaídsjan, Jemen, Kína, Sádi-Arabíu og Tsjad. Javier Solana, utanríkismálafulltrúi Evrópusam- bandsins, segir Evrópuþjóðir vilja gera sitt til að auðvelda Bandaríkjamönnum að loka fangabúðun- um. Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur lýst því yfir að þeim verði lokað innan árs, en enn er þó óljóst hvað verður um fangana. „Við höfum ekki enn fengið beiðni frá vinum okkar í Bandaríkjunum,“ sagði Solana. „Þetta er vandi Bandaríkjamanna sem þeir þurfa að leysa, en við verðum reiðubúin að leggja þeim lið ef nauðsyn- legt þykir.“ Á fundi utanríkisráðherra Evrópusambandsríkj- anna 27 í Brussel í gær var þó ljóst að áhugi þeirra á málinu var mismikill. Ráðherrar sumra ríkjanna, þar á meðal Bretlands, Þýskalands og Finnlands, lögðu áherslu á að föngum yrði ekki hleypt inn í Evrópuríki nema öryggisatriði yrðu könnuð í þaula fyrir hvern einstakling. - gb Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins vilja hjálpa Obama að loka Guantánamo: Segjast geta tekið við föngum MARIS RIEKSTINS OG FRANCO FRATTINI Fulltrúar Lettlands og Ítalíu á fundi utanríkisráðherra Evrópusambandsríkjanna í Brussel í gær. NORDICPHOTOS/AFP FANGELSISMÁL Margrét Frímanns- dóttir mun áfram gegna emb- ætti forstöðumanns fangelsisins á Litla-Hrauni, samkvæmt ákvörðun Björns Bjarna- sonar dóms- og kirkjumála- ráðherra, sem hefur skipað hana í emb- ættið. Margrét hefur gegnt embætti for- stöðumanns fangelsisins undan- farið ár í forföllum fyrrverandi forstöðumanns. Níu umsóknir bárust um emb- ættið. Auk Margrétar sóttu um Drífa Kristjánsdóttir, Einar Ein- arsson, Guðrún Þórðardóttir, Halldór E. S. Jónhildarson, Hall- dór Valur Pálsson, Jón Ragnar Jónsson, Ronald B. Guðnason og Sigríður Ingifríð Michelsen. - jss Dómsmálaráðherra: Margrét áfram forstöðumaður MARGRÉT FRÍMANSDÓTTIR HUMMER Ökumaður Hummer jeppa verð- ur ákærður. Myndin tengist frétt- inni ekki að beinu leyti. FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELM LÖGREGLUMÁL Það sem af er árinu hefur verið brotist inn í á annan tug hesthúsa á höfuðborgar- svæðinu, að sögn lögreglunn- ar. Hnökkum hefur verið stolið úr þeim flestum. Lætur nærri að fimmtíu hnakkar hafi horf- ið með þessum hætti undanfar- ið. Ýmsum öðrum munum hefur jafnframt verið stolið í þessum innbrotum. Lögreglan hvetur fólk til að vera á varðbergi og hafa samband ef grunsemdir um sölu á þýfi vakna. Hver sem tekur við eða aflar sér eða öðrum ávinnings af brot- um sem þessu skal sæta sekt- um eða fangelsi allt að tveimur árum. - jss Innbrotafaraldur í hesthús: Nær fimmtíu hnökkum stolið VIÐSKIPTI Full- trúar Teym- is í stjórn Tals verða að víkja og mun Sam- keppniseftirlit- ið skipa stjórn- armenn í þeirra stað. Þetta segir í bráðabirgða- ákvörðun Sam- keppniseftirlitsins vegna rann- sóknar á hugsanlegu samráði Tals og Vodafone um aðgang Tals að farsímaneti Vodafone. Árni Pétur Jónsson, forstjóri Teymis, vísaði í gær á bug getgát- um um samráð og lýsti því yfir að ekki verði við niðurstöðuna unað. Ljóst sé að Teymi missi stjórn á rekstri Tals þrátt fyrir að eiga meirihluta í fyrirtækinu. - jab Óháðir í settir í stjórn Tals: Teymi áfrýjar ákvörðuninni ÁRNI PÉTUR JÓNSSON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.