Fréttablaðið - 27.01.2009, Síða 8
8 27. janúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Ný ríkisstjórn í mótun
!"
#
# !
$ # % &'((#)*
*((+
,, !
!" ) -
... /
+((0)*1
*((+
2345 6768789:;8<=
$<4;> < "5
Deila um ástæður slitanna
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar byrjaði með kossi og endaði með kossi. Um það eru formenn
flokkanna sammála. Um ástæður þess að upp úr slitnaði eru hins vegar deildar meiningar. Sjálfstæðismenn
segja Samfylkinguna margklofna og óstjórntæka. Samfylkingin sakar Geir H. Haarde um ákvarðanafælni.
TILBOÐ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fráfarandi utanríkisráðherra, sagði á fundi með
fjölmiðlum eftir stjórnarslitin afstöðu forystu Sjálfstæðisflokksins til tilboðs Samfylk-
ingarinnar hrokafulla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNARSLIT Geir H. Haarde, fráfarandi forsætisráðherra, tilkynnti fjölmiðlafólki
að ríkisstjórnarsamstarfi hefði verið slitið eftir fund formanna stjórnarflokkanna á
Alþingi í hádeginu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég tel að Samfylkingin hafi ekki
haft þrek til að ljúka þessu sam-
starfi með eðlilegum hætti og
ganga til kosninga í vor,“ sagði
Geir H. Haarde, fráfarandi forsæt-
isráðherra, þegar hann tilkynnti
að stjórnarsamstarfinu væri lokið
á fundi með fjölmiðlafólki í gær.
Hann og aðrir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins sem rætt var við í
gær segja ábyrgðina á því hvernig
fór algerlega á herðum Samfylk-
ingarinnar.
„Ég ber ekki ábyrgð á því að
Samfylkingin er í tætlum sem
stjórnmálaflokkur,“ sagði Geir.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
segja að Samfylkingin hafi sífellt
bætt við kröfum sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi orðið að verða við
til þess að stjórnarsamstarfið héldi
áfram. Gengið hafi verið að öllum
kröfum þar til Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, formaður Samfylking-
arinnar, hafi krafist þess að feng-
inn yrði einhver utanaðkomandi
aðili til að leiða ríkisstjórnina.
„Ég tel að Samfylkingin hljóti
að hafa gert sér það ljóst að þessi
krafa var með öllu óaðgengileg.
Ég held að allir sem komu að því
að móta þessa kröfu hafi vitað að
henni yrði hafnað,“ segir Geir.
Undir það tekur Árni M. Mathie-
sen, fráfarandi fjármálaráðherra.
Hann segir stjórnina hafa fallið
vegna innri átaka í Samfylking-
unni sem hafi endurspeglast í óað-
gengilegri kröfu til að knýja fram
stjórnarslit. Flokkurinn hafi í raun
verið óstjórntækur.
„Það hefur verið erfitt að starfa
með þessum sundurleita hóp sem
Samfylkingin er, og engu líkara
en það séu margir flokkar innan
eins flokks,“ segir Ármann Kr.
Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins.
Sjálfstæðismenn segja að krafa
Samfylkingarinnar hafi fram á
síðustu stundu á sunnudag verið sú
að utanaðkomandi aðili yrði feng-
inn til að taka við embætti forsæt-
isráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir, varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins, segir að nöfn Þórólfs
Árnasonar, Helgu Jónsdóttur og
Dags B. Eggertssonar hafi öll verið
nefnd. Nafn Jóhönnu Sigurðardótt-
ur hafi ekki komið til tals fyrr en
eftir þingflokksfund Samfylking-
arinnar í gær.
„Það var enginn efnislegur
ágreiningur milli flokkanna, en
einhvern veginn hefur maður það
á tilfinningunni að þessi lokakrafa
hafi verið sett fram í þeim tilgangi
að sprengja ríkisstjórnina,“ segir
Þorgerður Katrín.
Birgir Ármannsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokks, tekur undir
þetta, og segir að Samfylkingin
hafi verið að leita að tylliástæðu
til að slíta stjórnarsamstarfinu
vikum saman.
brjann@frettabladid.is
svanborg@frettabladid.is
Það er hrokafull afstaða af hálfu
Sjálfstæðisflokksins að hafna
tilboði Samfylkingarinnar um
stjórn undir forystu Jóhönnu Sig-
urðardóttur, sagði Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, formaður Sam-
fylkingarinnar, í gær, eftir að
forsætisráðherra hafði tilkynnt
um stjórnarslit.
„Það þarf að vera mjög öflug og
skýr forysta fyrir ríkisstjórninni
við þær erfiðu aðstæður sem nú
eru,“ sagði Ingibjörg. Hún segir
afstöðu sjálfstæðismanna lýsa
því best að flokkurinn sé valda-
kerfi sem hugsi fyrst og fremst
um sjálft sig.
„Við höfum átt við það að etja
á undanförnum mánuðum að
Sjálfstæðisflokkurinn er eins
og bandalag margra skæruliða-
hreyfinga, algerlega óstjórn-
tækur flokkur,“ segir Árni Páll
Árnason, þingmaður Samfylk-
ingarinnar.
Besta dæmið sé óeiningin
innan Sjálfstæðisflokksins um
aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Þar hafi einn armur Sjálfstæðis-
flokksins notað Seðlabankann til
að berjast gegn ríkjandi öflum í
flokknum til að koma í veg fyrir
þessa björgunaraðgerð.
Þingmenn Samfylkingarinn-
ar segja breytingar hafa náð
illa fram að ganga undir forystu
Geirs H. Haarde, fráfarandi for-
sætisráðherra. „Þjóðin hefur séð
þetta dugleysi og þennan doða og
það er einfaldlega komið nóg,“
segir Árni Páll.
Undir það tekur Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, þingmaður Samfylk-
ingarinnar. Hún segir að vantað
hafi að taka af skarið, og ákvarð-
anir hafi velst um lengi hjá sjálf-
stæðismönnum.
„Ég held að þessi ákvarðana-
fælni hafi verið svo áberandi und-
anfarnar vikur og mánuði að það
hafi ekki verið búandi við þetta
lengur,“ segir Steinunn Valdís.
Helgi Hjörvar, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, segir sjálfstæðis-
menn hafa sýnt af sér algert for-
ystuleysi allt frá fjármálahruninu
í október. Samfylkingin hafi þrýst
á breytingar, en ekki sé hægt að
bíða lengur eftir því að forsætis-
ráðherra taki af skarið.
„Við höfum lagt á það ríka
áherslu að það verði breyting á
stjórn Seðlabankans. Það gekk
ekki eftir og við höfum sýnt mikið
langlundargeð í því efni,“ segir
Katrín Júlíusdóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar.
Þá hafi Samfylkingin lagt fram
ýmsar hugmyndir um hvað megi
gera til að aðstoða heimili og fyr-
irtæki, sem hafi þynnst veru-
lega út á borði sjálfstæðismanna.
Katrín segir að útséð hafi verið
að Samfylkingin hafi getað náð
meiru út úr samstarfi við Sjálf-
stæðisflokkinn.
brjann@frettabladid.is
svanborg@frettabladid.is
Samfylkingin er í tætlum Óeining í Sjálfstæðisflokki
„Stjórnarsamstarfið
strandar á þeirri kröfu
Samfylkingarinnar um að
fá forsætisráðherrastól-
inn í sínar hendur,“ segir
Baldur Þórhallsson, próf-
essor í stjórnmálafræði
við Háskóla Íslands.
„Það var mjög djarft
spil hjá Samfylkingunni
að setja þessa kröfu fram,
því hún var í raun óað-
gengileg fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn. Ef Sjálfstæðisflokkur-
inn hefði gengið að þessari kröfu
og ríkistjórnin hafi verið leidd af
Samfylkingunni, þá hefði Sjálf-
stæðisflokkurinn verið að viður-
kenna það að hann hafi ekki stað-
ið sig í stykkinu á síðastliðnum
rúmlega hundrað dögum og að
forystumenn Samfylking-
arinnar væru í raun betur
til þess fallnir að leiða
stjórnarsamstarfið.“
Baldur segir að því
hafi verið nær ómögulegt
fyrir Sjálfstæðisflokkinn
að ganga að kröfu Sam-
fylkingarinnar um breyt-
ingar í forsætisráðuneyt-
inu.
Hann telur ólíklegt að
samstaða náist um þjóð-
stjórn, þar sem Sjálfstæðisflokk-
urinn hafi þegar hafnað boði
Samfylkingar um að Jóhanna
Sigurðardóttir leiði ríkisstjórnar-
samstarfið. Þá hafi Samfylking-
in hafnað því að vera í ríkisstjórn
undir forystu Sjálfstæðisflokks-
ins. - ss
Stjórnmálafræðingur um stjórnarslitin:
Óaðgengileg krafa
Samfylkingarinnar
BALDUR
ÞÓRHALLSSON
„Það fer eftir
málefnunum,
en við munum
leggja áherslu á
það að afnema
kvótakerfið
og við munum
leggja áherslu á
að afnema verð-
trygginguna,“
segir Jón Magnússon, þingflokks-
formaður Frjálslynda flokksins.
Aðspurður hvort slík markmið
séu raunhæf ef boðað verður til
kosninga í vor, segir Jón að þá sé
bara verið að ræða um starfs-
stjórn. „Ef við viljum alvöru rík-
isstjórn verður hún að vera til
lengri tíma,“ segir Jón. - ss
Jón Magnússon:
Kvóta og verð-
tryggingu burt
Geir Hilmar Haarde forsætisráð-
herra er einn af 25 leiðtogum sem
leiddu heiminn inn í kreppuna,
samkvæmt úttekt breska blaðsins
Guardian.
Alan Greenspan, fyrrverandi
seðlabankastjóri Bandaríkjanna,
er efstur á listanum, en hann hélt
stýrivöxtum of lágum og dró um of
úr regluverki, að mati blaðsins. Í
öðru sæti er Bill Clinton, fyrrver-
andi forseti BNA. Honum er meðal
annars gefið að sök að hafa leyft
sameiningu viðskipta- og fjár-
festingarbanka. Gordon Brown,
forsætisráðherra Bretlands, er í
þriðja sæti, fyrir að hafa einblínt á
fjármálageirann á kostnað annarra
atvinnugreina. - kóþ
Úttekt í breska Guardian:
Geir ber ábyrgð
á heimskreppu
Í það minnsta þrjár skoðanir
eru uppi innan Samfylkingar-
innar um hvernig ráðstafa skuli
embætti formanns bankastjórn-
ar Seðlabankans eftir að krafa
flokksins um brotthvarf Davíðs
Oddssonar hefur verið uppfyllt.
Nokkur eftirspurn er eftir
Má Guðmundssyni, starfsmanni
Alþjóðagreiðslubankans, en
hann var áður aðalhagfræðing-
ur Seðlabankans og þar áður
efnahagsráðgjafi Ólafs Ragnars
Grímssonar í fjármálaráðherra-
tíð hans.
Talsverður vilji er til að aug-
lýsa embættið laust til umsóknar
með stífum hæfiskröfum og loks
er sú skoðun uppi að leita beri til
erlends sérfræðings um að taka
embættið að sér. - bþs
Embætti seðlabankastjóra:
Samfylkingin
nefnir þrjá kosti