Fréttablaðið - 27.01.2009, Page 10
10 27. janúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Ný ríkisstjórn í mótun
Átt þú möguleika á ÓKEYPIS starfsnámi?
NTV veitir nú 25% afslátt til allra skjólstæðinga vinnumálastofnunnar
NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN - VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI - HLÍÐASMÁRA 9 : KÓPAVOGI : SÍMI 544 4500 : WWW.NTV.IS
25% afsláttur NTV
49.750
Námsstyrkur
Vinnumálastofnunnar
70.000
Styrkur frá stéttarfélagi
89.250
Hver og einn þarf að kanna
rétt sinn til styrks.
Allt að 50% þó að hámarki 70.000
Dæmi: Nám sem kostar 199.000 - Fjöldi námsleiða í boði
UPPLÝSINGAR Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS
KOSSINN Á ÞINGVÖLLUM Formenn stjórnarflokkanna innsigluðu stjórnarsamstarfið með kossi á Þingvöllum í maí 2007. Tæpum
tveimur árum síðar kysstust þau aftur, en í þetta sinn í kveðjuskyni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
■ 22. maí: Ríkisstjórn Sjálfstæð-
isflokks og Samfylkingar mynduð
á Þingvöllum eftir nokkurra daga
umræður. Þingmeirihlutinn er ógnar-
sterkur. Ríkisstjórnin gerir veigamiklar
breytingar á skipun og verkefnum
ráðuneyta.
■ 6. júlí: Einar K. Guðfinnsson,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, tilkynnir að þorskkvóti verði
skorinn niður um 63 þúsund tonn í
samræmi við tillögur Hafró. Ríkis-
stjórnin boðar mótvægisaðgerðir,
sem mörgum finnst duga skammt.
■ 11. sept: Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir utanríkisráðherra lýsir yfir að
Ísland sé ekki lengur á lista „hinna
staðföstu þjóða“ sem studdu innrás-
ina í Írak.
■ 14. des: Málþófsréttur afnuminn
og ræðutími þingmanna styttur með
frumvarpi um þingsköp Alþingis, sem
samþykkt er af öllum þingmönnum
nema vinstri grænum.
■ 21. des: Árni Mathiesen, settur
dómsmálaráðherra, skipar Þorstein
Davíðsson í embætti dómara. Skip-
anin er harðlega gagnrýnd. Umboðs-
maður Alþingis kemst síðar að þeirri
niðurstöðu að skipanin hafi verið á
svig við góða stjórnsýsluhætti.
■ 13. mars: Kjör aldraðra og
öryrkja eru bætt þegar frumvarp um
almannatryggingar og málefni aldr-
aðra verður að lögum.
■ 17. mars: Krónan fellur um sjö
prósent. Upphaf fjármálakreppunnar
sem ríður bönkunum að lokum að
fullu.
■ 19. mars: Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra boðar skipu-
lagsbreytingar á löggæslustörfum á
Suðurnesjum. Jóhann Benediktsson
lögreglustjóri ásamt þremur öðrum
lykilstarfsmönnum hjá embættinu
óska eftir lausn frá störfum í fram-
haldinu.
■ 2. apríl: Evrópunefnd forsætisráð-
herra tekur til starfa.
■ 2. apríl: Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir utanríkisráðherra fara á leið-
togafund NATO í Búkarest. Gagnrýnt
er að þau fljúga utan með leiguþotu
en ekki með áætlunarflugi.
■ 16. apríl: Frumvarp utanríkisráð-
herra um varnarmál er samþykkt
á Alþingi. Ný stofnun, Varnarmála-
stofnun, er sett á laggirnar til að reka
mannvirki NATO og sjá um varnar-
æfingar.
■ 19. maí: Einar K. Guðfinnsson,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, úthlutar fjörutíu dýra hrefnu-
veiðikvóta í óþökk Samfylkingar.
■ 25. maí: Þingvallastjórnin eins árs.
Stjórnarandstaðan gagnrýnir ríkis-
stjórnina fyrir að koma litlu í verk og
vera ósamstiga. Geir H. Haarde segir
að um áttatíu prósent mála stjórnar-
sáttmálans séu annaðhvort frá eða í
vinnslu.
■ 4. sept: Ríkissjóður tekur 30 millj-
arða króna lán til að efla gjaldeyris-
forðann.
■ 5. sept: Árni Mathiesen fjármála-
ráðherra stefnir Ljósmæðrafélagi
Íslands vegna fjöldauppsagna. Sátt
náðist í deilunni og var fallið frá
stefnunni.
■ 10. sept: Frumvarp um sjúkra-
tryggingar verður að lögum. Með
þeim verða öll verk innan heilbrigðis-
þjónustunnar kostnaðargreind og
fjármagn mun fylgja sjúklingum milli
stofnana. Frumvarpið var gagnrýnt
fyrir að vera dulbúin einkavæðing.
■ 24. sept: Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir greinist með góðkynja mein í
höfði.
■ 29. sept: Glitnir þjóðnýttur.
Íslenska ríkið eignast 75 prósenta hlut
í Glitni.
■ 6. okt: Neyðarlög sett á Alþingi um
víðtækar heimildir Fjármálaeftirlitsins
til inngripa í íslenskt fjármálakerfi.
■ 8. okt: Bretar beita hryðjuverkalög-
um gegn Íslendingum vegna Icesave-
reikninga Landsbankans í Bretlandi.
■ 17. okt: Ísland tapar kosningu
um setu í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna.
■ 24. okt: Ríkisstjórnin óskar form-
lega eftir samstarfi við Alþjóðagjald-
eyrissjóðinn (AGS) um að koma á
efnahagslegum stöðugleika á Íslandi.
■ 1. nóv: Undirbúningi nýs álvers
á Bakka frestað í ljósi efnahagsað-
stæðna.
■ 14. nóv: Ríkisstjórnin tilkynnir um
aðgerðir fyrir heimili í vanda í tíu
liðum.
■ 19. nóv: Stjórn AGS samþykkir
tveggja milljarða króna lán að upp-
fylltum ströngum skilyrðum.
■ 24. nóv: Vantrauststillaga borin
fram á hendur ríkisstjórninni á
Alþingi. Hún er felld.
■ 22. des: Ný eftirlaunalög samþykkt.
Ekki nóg að gert, segja sumir.
■ 7. jan: Guðlaugur Þór Þórðarson
heilbrigðisráðherra tilkynnir um 1.300
milljarða niðurskurð í heilbrigðiskerf-
inu og uppstokkun.
■ 21. jan: Samfylkingarfélagið í
Reykjavík ályktar að slíta skuli stjórnar-
samstarfinu og boða til kosninga.
■ 23. jan: Geir H. Haarde upplýsir að
hann hafi greinst með illkynja krabba-
mein í vélinda. Hann hafi lagt til að
boðað verði til kosninga í maí.
■ 25. janúar: Björgvin G. Sigurðsson
viðskiptaráðherra tilkynnir afsögn
sína.
■ 26. jan: Sjálfstæðisflokkur og
Samfylking ákveða að slíta ríkisstjórn-
arsamstarfi.
Þingvallastjórnin liðin undir lok
Tuttugu mánaða ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar lauk í gær. Stjórnin hafði óvenjumikinn þingmeirihluta en
eftir að fjármálakreppan skall á og forsendur breyttust fjaraði undan samstarfinu. Fréttablaðið stiklar á stóru í sögu stjórnarinnar.
2007
2008
2009