Fréttablaðið - 27.01.2009, Síða 15

Fréttablaðið - 27.01.2009, Síða 15
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Ég er búinn að vera að þessu síðan í september á síðasta ári og hef á þeim tíma eignast fullt af góðum vinum, enda félagsskapurinn alveg frábær,“ segir háskólaneminn Jón Örvar Gestsson, sem er í sundliði Styrmis, fyrsta íslenska sundfélag- inu sem eingöngu er skipað sam- kynhneigðum. Jón Örvar, sem er 24 ára, segist hafa æft sund og frjálsar íþrótt- ir lengi framan af en svo hafi hann líkt og margir flosnað upp úr þeim á unglingsárunum. Hann hafi svo tekið upp þráðinn eftir að hafa komist í kynni við strákaliðið Styrmi, fótboltalið sem var stofn- að árið 2006 til að hvetja samkyn- hneigða karlmenn til íþróttaþátt- töku, og síðan gerst meðlimur í sundfélagi þess sem var stofnað í september árið 2008. En af hverju er þörf á sund- félagi sem er sérstaklega ætlað samkynhneigðum? „Það er gott að finna fyrir stuðningi, hann eflir sjálfstraustið,“ útskýrir Jón Örvar og bætir við: „Síðan var þetta leið fyrir mig til að kynn- ast samkynhneigðu fólki á öðrum grundvelli en í námi eða á djamm- inu. Þar fyrir utan er sund bara mjög skemmtileg íþrótt sem tekur á öllum vöðvum og heldur manni í góðu andlegu og líkamlegu formi.“ Hópurinn, sem í er allt að átján manns frá tvítugu upp í 35 ára, æfir tvisvar sinnum í viku í Laug- ardalslauginni undir stjórn þaul- vanrar sundkonu sem er jafnframt enn sem komið er eina stúlkan í liðinu. Að sögn Jóns Örvars er fullt tillit tekið til getu hvers og eins, þar sem allir fá ráðlegging- ar um hvernig þeir geti bætt sig og er fjölbreytnin höfð í fyrirrúmi. Þótt aðalmálið sé að hafa gaman af ætlar liðið engu að síður að taka þátt í World Outgames, alþjóð- legum íþróttaleikum samkyn- hneigðra, sem fara fram í Kaup- mannahöfn dagana 25. júlí til 2. ágúst á þessu ári. Jón Örvar ætlar ekki að láta sitt eftir liggja. „Ég ætla að skella mér út, en við ætlum að fjölga æfingum fram að leikunum til að vera vel undirbú- in. Það er gott að fá tækifæri til að keppa og svo er fínt að sjá og upplifa hversu áberandi samkyn- hneigðir eru í íþróttum um allan heim. Við eigum líka ágætismögu- leika á að ná langt þar sem gott fólk skipar liðið, þótt aðalmálið sé að taka þátt.“ roald@frettabladid.is Gott fyrir sjálfstraustið Jón Örvar Gestsson er meðlimur í sundliði Styrmis, fyrsta íslenska sundliðinu sem eingöngu er skipað samkynhneigðum. Hann stefnir á þátttöku í World Outgames, alþjóðaleikum samkynhneigðra, á árinu. Jón Örvar, efst til vinstri, ásamt hluta sundliðs Styrmis sem æfir öll mánudags- og fimmtudagskvöld í Laugardalslaug. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FORELDRANÁMSKEIÐ verða haldin reglulega næstu mánuði á vegum Miðstöðvar heilsuverndar barna undir yfirskriftinni Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar. Fyrsta námskeiðið verður 3. til 24. febrúar. – Lifið heil Lægra verð í Lyfju www.lyfja.is 20% verðlækkun KARBOBLOKKER Kolvetnabani, 120 töflur. Minnkar hungurtilfinningu og hindrar upptöku kolvetna í líkamanum. 2.518 kr. 1.998 kr. Gildir til 8. 2. 2009 20% verðlækkun VOLTAREN EMULGEL 2.280 kr. 1.824 kr. 15% verðlækkun MICROLIFE BLÓÐÞRÝSTINGSMÆLIR Sjálfvirkur blóðþrýstingsmælir, einfaldur í notkun og nákvæmur. Minni: 30 niðurstöður. 11.678 kr. 9.926 kr. ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 4 48 30 0 1/ 09 Af hverjum seldum mæli renna 500 kr. til Hjartaheilla. Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Patti húsgögn Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 80%afslætti valdar vörur með allt að sófasett 3+1+1

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.