Fréttablaðið - 27.01.2009, Qupperneq 15
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég er búinn að vera að þessu síðan
í september á síðasta ári og hef á
þeim tíma eignast fullt af góðum
vinum, enda félagsskapurinn alveg
frábær,“ segir háskólaneminn Jón
Örvar Gestsson, sem er í sundliði
Styrmis, fyrsta íslenska sundfélag-
inu sem eingöngu er skipað sam-
kynhneigðum.
Jón Örvar, sem er 24 ára, segist
hafa æft sund og frjálsar íþrótt-
ir lengi framan af en svo hafi
hann líkt og margir flosnað upp
úr þeim á unglingsárunum. Hann
hafi svo tekið upp þráðinn eftir að
hafa komist í kynni við strákaliðið
Styrmi, fótboltalið sem var stofn-
að árið 2006 til að hvetja samkyn-
hneigða karlmenn til íþróttaþátt-
töku, og síðan gerst meðlimur í
sundfélagi þess sem var stofnað í
september árið 2008.
En af hverju er þörf á sund-
félagi sem er sérstaklega ætlað
samkynhneigðum? „Það er gott
að finna fyrir stuðningi, hann
eflir sjálfstraustið,“ útskýrir Jón
Örvar og bætir við: „Síðan var
þetta leið fyrir mig til að kynn-
ast samkynhneigðu fólki á öðrum
grundvelli en í námi eða á djamm-
inu. Þar fyrir utan er sund bara
mjög skemmtileg íþrótt sem tekur
á öllum vöðvum og heldur manni
í góðu andlegu og líkamlegu
formi.“
Hópurinn, sem í er allt að átján
manns frá tvítugu upp í 35 ára,
æfir tvisvar sinnum í viku í Laug-
ardalslauginni undir stjórn þaul-
vanrar sundkonu sem er jafnframt
enn sem komið er eina stúlkan
í liðinu. Að sögn Jóns Örvars er
fullt tillit tekið til getu hvers og
eins, þar sem allir fá ráðlegging-
ar um hvernig þeir geti bætt sig
og er fjölbreytnin höfð í fyrirrúmi.
Þótt aðalmálið sé að hafa gaman af
ætlar liðið engu að síður að taka
þátt í World Outgames, alþjóð-
legum íþróttaleikum samkyn-
hneigðra, sem fara fram í Kaup-
mannahöfn dagana 25. júlí til 2.
ágúst á þessu ári. Jón Örvar ætlar
ekki að láta sitt eftir liggja.
„Ég ætla að skella mér út, en við
ætlum að fjölga æfingum fram að
leikunum til að vera vel undirbú-
in. Það er gott að fá tækifæri til
að keppa og svo er fínt að sjá og
upplifa hversu áberandi samkyn-
hneigðir eru í íþróttum um allan
heim. Við eigum líka ágætismögu-
leika á að ná langt þar sem gott
fólk skipar liðið, þótt aðalmálið sé
að taka þátt.“ roald@frettabladid.is
Gott fyrir sjálfstraustið
Jón Örvar Gestsson er meðlimur í sundliði Styrmis, fyrsta íslenska sundliðinu sem eingöngu er skipað
samkynhneigðum. Hann stefnir á þátttöku í World Outgames, alþjóðaleikum samkynhneigðra, á árinu.
Jón Örvar, efst til vinstri, ásamt hluta sundliðs Styrmis sem æfir öll mánudags- og fimmtudagskvöld í Laugardalslaug.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FORELDRANÁMSKEIÐ verða haldin reglulega
næstu mánuði á vegum Miðstöðvar heilsuverndar
barna undir yfirskriftinni Uppeldi sem virkar – færni til
framtíðar. Fyrsta námskeiðið verður 3. til 24. febrúar.
– Lifið heil
Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
20% verðlækkun
KARBOBLOKKER Kolvetnabani, 120 töflur.
Minnkar hungurtilfinningu og hindrar upptöku
kolvetna í líkamanum.
2.518 kr. 1.998 kr. Gildir til 8. 2. 2009
20% verðlækkun
VOLTAREN EMULGEL
2.280 kr. 1.824 kr.
15% verðlækkun
MICROLIFE BLÓÐÞRÝSTINGSMÆLIR
Sjálfvirkur blóðþrýstingsmælir, einfaldur í notkun
og nákvæmur. Minni: 30 niðurstöður.
11.678 kr. 9.926 kr.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
4
48
30
0
1/
09
Af hverjum seldum mæli renna
500 kr. til Hjartaheilla.
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Patti húsgögn
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
80%afslætti
valdar vörur með allt að
sófasett 3+1+1