Fréttablaðið - 27.01.2009, Page 20
16 27. janúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Kvenréttindafélag Íslands eru ein elstu félaga-
samtök á Íslandi sem hafa starfað óslit-
ið frá stofnun þess. Félagið var stofnað
árið1907 á heimili Bríetar Bjarnhéðins-
dóttur en hún hafði verið áberandi í
málefnum kvenna hér á landi.
Bríet var í samskiptum við kven-
réttindafélög í Bandaríkjunum,
Kaupmannahöfn og víðar og
hafði meðal annars fylgst með
stofnun alþjóðastofnunar kven-
réttindafélaga í Berlín árið1904.
Eitt af fyrstu verkefnum fé-
lagsins var að vinna að kosninga-
rétti og kjörgengi kvenna. Félagið
bauð meðal annars fram lista til bæj-
arstjórnarkosninga í Reykjavík og lagði
áherslu á stjórnmálalegt jafnrétti, að konur
hefðu jafnan kosningarétt á við karla og jafn-
an rétt til atvinnu og í skipan embætta. Í fyrstu
stjórn sátu Bríet Bjarnhéðinsdóttir, Sigríð-
ur Hjaltadóttir Jensson, Guðrún Péturs-
dóttir, Sigríður Björnsdóttir og Laufey
Vilhjálmsdóttir. Félagið beitti sér fyrir
málefnum kvenna og var Bríet tíður
gestur á pöllum Alþingis þegar mál
sem snertu stöðu kvenna voru til
umfjöllunar. Kvenréttindafélag-
ið hafði afskipti af líknarmálum
og var á meðal þeirra félaga sem
unnu að stofnun Landspítalans og
byggingu hans.
Félagið stofnaði jafnframt
Mæðrastyrksnefnd í samvinnu við
fleiri félög. Á hundrað ára afmæli fé-
lagsins var minnisvarði um Bríeti reist-
ur á fæðingarstað hennar í Vatnsdal í Austur-
Húnavatnssýslu.
ÞETTA GERÐIST: 27. JANÚAR ÁRIÐ 1907
Kvenréttindafélag Íslands stofnað
Tónleikar til heiðurs Mozart verða haldnir í kvöld á Kjar-
valsstöðum en tónskáldið fæddist þennan dag árið 1756.
Dagskrá tals og tóna hefst klukkan 20 en þau verk sem flutt
verða eru divertimento fyrir fiðlu, víólu og selló, kvart-
ett fyrir flautu og strengi í C-dúr og glæný útsetning eftir
Derek Smith á konsert fyrir flautu og hörpu. Laufey Sigurð-
ardóttir fiðluleikari hefur haldið utan um tónleikana undan-
farin ár og mun Einar Jóhannesson klarínettuleikari spjalla
um tónskáldið og verkin sem verða flutt.
„Af miklu er að taka eftir þessa stuttu starfsævi Mozarts,“
segir Laufey. „Það er því langt í að við förum að endurtaka
eitthvað. Þarna verður spilaður í fyrsta skipti hér á landi,
flautu og hörpukonsert í nýrri útsetningu fyrir flautu og
hörpu og þrjá strengi. Þetta verður eins og kammer músík
en það hefur verið eitt af markmiðunum á þessum degi að
koma með eitthvað skrítið ásamt því að spila sígild verk.
Einar mun tala fyrir og eftir hlé og ég á von á því að hann
komi með persónulegan fróðleik um tónskáldið,“ segir
Laufey.
„Jú, ég verð ekki mikið á fræðilegum nótum heldur miðla
meira af mínum reynsluheimi en sem klarínettuleikari hef
ég lifað með Mozart þar sem hann var aðdáandi hljóðfæris-
ins,“ útskýrir Einar. „Ég kom að tónleikunum fyrst í fyrra
og fékk þá að spila fallegt tríó fyrir víólu, klarínett og píanó.
Laufeyju hefur líkað það vel því hún hringdi í mig og sagði
að nú þyrfti ég ekkert að spila, bara tala,“ segir hann hlæj-
andi og viðurkennir að hafa ekkert litist á að taka að sér
hlutverk kynnis sem Þorsteinn Gylfason hafði sinnt undan-
farin ár. „Ég reyni ekki að fara í hans föt en það er heiður
að fá að reyna sig.“
Laufeyju og Einari ber saman um að tónleikarnir í kvöld
verði áhugaverðir og búast ekki við að tónskáldið snúi sér
við í gröfinni yfir nýrri útsetningu á verkum sínum. „Það er
áhugavert að heyra verk í nýjum útsetningum og ég held að
Mozart hefði ekkert haft á móti því, hann var til í allt nema
meðalmennsku,“ segir Einar.
Flytjendur á tónleikunum eru Laufey Sigurðardóttir, Þór-
unn Ósk Marinósdóttir , Sigurður Bjarki Gunnarsson, Marti-
al Nardeau, Elísabet Waage og Einar Jóhannesson kynnir.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20. heida@frettabladid.is
MOZART: AFMÆLISDAGSKRÁ MEÐ TÓNUM OG TALI Á KJARVALSSTÖÐUM
Til í allt nema meðalmennsku
Á PERSÓNULEGUM NÓTUM Einar Jóhannesson klarínettuleikari mun
spjalla um tónskáldið og verkin sem flutt verða á Kjarvalsstöðum í
kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FLYTJENDUR Elísabet Waage, Þórunn Ósk Marinósdóttir, Laufey Sigurðardóttir, Martial Nardeau og Sigurður Bjarki Gunnarsson FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
MERKISATBURÐIR:
1606 Réttarhöld vegna sam-
særis um að drepa Jakob
I. Englandskonung og
fleiri háttsetta með því að
sprengja upp þingið hefj-
ast.
1880 Thomas Alva Edison
sækir um einkaleyfi fyrir
raflampa.
1940 Þjóðargrafreiturinn á
Þingvöllum vígður við
útför Einars Benedikts-
sonar.
1957 Sýning á listaverkum og
bókum kvenna opnar í
Þjóðminjasafni Íslands
í tilefni af 50 ára af-
mæli Kvenréttindafélags
Íslands.
1993 Donald Feeney og James
Brian Grayson handteknir
eftir að hafa haft dótt-
ur Graysons og systur
hennar á brott af hóteli í
Reykjavík.
KELLY OSBOURNE ER 25 ÁRA Í DAG
„Ég held að mamma mín sé sú
orðljótasta manneskja sem ég
hef nokkurn tímann hitt.“
Kelly Osbourne er dóttir hjón-
anna Sharon og Ozzy Osbourne
en fjölskyldan gerði garðinn
frægan í raunveruleikaþátt-
um fyrir skemmstu þar sem
fjölskyldumeðlimir skiptust á
fúkyrðum.
Úrval gripa sem fund-
ust við fornleifarannsókn-
ir á ýmsum af helstu sögu-
stöðum þjóðarinnar á ár-
unum 2001 til 2005 verður
í brennidepli á sýningunni
Endurfundir, sem opnuð
verður í Myndasal Þjóð-
minjasafns Íslands 31.
janúar.
Auk gripanna verður hægt
að skoða myndasýningar frá
uppgreftinum, boðið verður
upp á fræðsluspor fjölskyld-
unnar um sýninguna, hljóð-
leiðsögn og ýmislegt fleira
fyrir yngstu gestina.
Hugmyndin að sýningu
og sýningarrými bygg-
ir á endurfundum við sam-
evrópska menningu á Íslandi,
með klaustrið sem miðstöð
kristinnar íhugunar og menn-
ingarstarf í brennipunkti.
Rýmismyndunin á að minna
á klausturgarð og krossgang
í klaustrum þar sem fernings-
laga garðrými er í miðju, um-
lukið bogagöngum.
Þess skal getið að fornleifa-
rannsóknirnar voru styrktar
af Kristnihátíðarsjóði, sem
var meðal annars stofnað-
ur til að kosta fornleifarann-
sóknir á helstu sögustöðum
þjóðarinnar.
Sögulegir gripir
í sviðsljósinu
UPPGRÖFTUR Úrval gripa frá fornleifauppgröftri áranna 2001 til 2005
verður til sýnis á sýningunni Endurfundir í Þjóðminjasafni Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Elskulegur faðir okkar,
Andrés Kolbeinsson,
hljóðfæraleikari og ljósmyndari,
verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn
27. janúar og hefst athöfnin kl. 13.00.
Kolbeinn Andrésson
Helga Andrésdóttir
Hildur Kolbrún Andrésdóttir
Þökkum innilega öllum þeim er sýndu
okkur hlýhug, kærleik og vináttu við
andlát og útför sonar míns, bróður
okkar, mágs og frænda,
Indriða Inga Styrkárssonar.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 11E og heima-
hjúkrun Landspítalans fyrir frábæra umönnun,
stuðning og aðlúð á meðan á veikindum hans stóð.
Laila Andrésson
Alfred Júlíus Styrkársson
Sigurður Eiríkur Styrkársson Ingibjörg Hanna
Sigurðardóttir
Elísabet Þórisdóttir Alexandra Inga
Alfredsdóttir