Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.01.2009, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 27.01.2009, Qupperneq 24
20 27. janúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR Undirbúningur fyrir Eurovision- keppnina í Moskvu í maí er nú á fullu. Evrópulöndin eru misfljót að gera upp hug sinn. Nú þegar hafa sjö lög verið valin og fjórir kepp- endur til viðbótar, þótt enn sé á huldu hvaða lög þeir flytja. Í ár keppa jafnmörg lönd og í fyrra, fjörutíu og þrjú. Slóvak- ía snýr aftur, landið keppti síðast árið 1998, en smáríkið San Maríno sem keppti í fyrsta skipti í fyrra, dregur sig úr keppni og kennir blankheitum um. Kreppan hefur skollið all harkalega á Lettlandi og líkt og við fengu Lettar lán hjá AGS. Ríkissjónvarpið þar þurfti að skera verulega niður og á tímabili stóð til að landið hætti þátttöku í Eurovision. Frá því var þó horfið á síðustu stundu. Eflaust á framlag Ísraela eftir að vekja mikla athygli. Lagið hefur ekki verið valið enn þá en flytjend- urnir verða tvær söngkonur: Ach- inoam Nini, sem er virt ísraelsk söngkona, og palestínska söngkon- an Mira Awad, sem verður fyrsti arabinn í sögunni sem syngur lag Ísraels. Lagið verður að sjálfsögðu um frið og sungið á ensku, hebr- esku og arabísku til að skilaboð- in skiljist örugglega. Öfgahópar á báða bóga eru mjög óánægðir með þetta val og þeir palestínsku kalla Miru svikara fyrir að ganga óvin- inum á hönd. Enn á ný reyna Bretar að bæta sig í keppninni og hafa ekki úr háum söðli að detta því þeir urðu í síðasta sæti síðast. Nú stendur yfir mikil söngvarakeppni á BBC, Your Country Needs You, og mun sigurvegarinn syngja lag Andrews Lloyd Webber, „My Time“. Lögin fara að detta inn næstu vikurnar og að vanda verða það Svíar sem velja síðastir. Þeirra Eurovisionlag verður valið 14. mars. Líkt og í fyrra mun Páll Óskar kynna lögin fyrir Íslending- um í þáttaröðinni Alla leið. - drg Arabi syngur lag Ísraels SYNGUR ÍSRAELSKA EUROVISIONLAGIÐ Mira Awad á búlgarska móður og pal- estínskan föður og býr í Tel Avív. Ómar Ómar og félagar ætla sér stóra hluti með TFA á næstunni. Félagið hyggst standa fyrir ýmsum við- burðum og berjast fyrir málefnum ungs fólks. „Enn og aftur er kominn tími fyrir aðgerðir! Hipphoppið varð til í kreppu í New York og nú eru aðstæður á Íslandi sem hipphoppið vex best í. Það gæti orðið spreng- ing!“ segir Ómar Ómar hjá TFA (Tími fyrir aðgerðir). Upphaflega var þetta áhugamannafélag sem tengdist hipphoppi og graffítí- menningunni, en nú segist Ómar hafa tekið TFA á „næsta plan“ og hefur gert TFA að einkahlutafé- lagi. „Ég nennti ekki lengur að gera þetta með hálfum huga og stofnaði nýtt fyrirtæki á sama tíma og öll hin eru að fara á hausinn,“ segir Ómar og hlær. Hann hefur feng- ið þá Heimi Berg og Stefán Örn í lið með sér, en þeir hafa haft putt- ana í dans- og rokkgeiranum. TFA er með öðrum orðum að víkka út starfssvið sitt. „Það hefur allt- af verið planið að starfa í fleiri greinum tónlistar enda hlusta ég á margt annað en hipphopp. Tónlist- in í dag er orðinn algjör grautur og það er óþarfi að takmarka sig.“ Málum verður fylgt eftir af krafti. TFA ætlar að opna skrif- stofu miðsvæðis í Reykjavík og gera þaðan út. Fyrirtækið ætlar að standa fyrir viðburðum og tónleik- um á næstu vikum, meðal annars tónleikum teknókappans Stephans Bodzin í samvinnu við Party Zone, Hipphopp-kvikmyndamaraþon og „Rapptilraunir“ í mars. Þá er TFA með hipphoppbandið 32C og hljómsveitina The Pet Cemetary á sínum snærum og hyggst bæta við á skjólstæðingaskrána. „32C eru gríðarlegar stjörnur í yngri flokkunum þótt fátt fólk eldra en tvítugt þekki bandið. The Pet Cemetary eru svo rokkarar sem hafa verið að taka upp plötu núna og hefur verið líkt við Kings of Leon.“ Menningin sem TFA stendur fyrir er mestmegnis fyrir ungt fólk. „Það hefur tekið fjögur ár en núna loksins er löglegt svæði fyrir graffítí-listamenn að verða að veruleika á Loftkastalasvæð- inu. Við getum vonandi opnað það á sumardaginn fyrsta,“ segir Ómar. „Svo er ég mikill baráttu- maður fyrir Rás 3, stöð sem myndi fjalla um menningu yngri kynslóð- arinnar. Fyrst krakkar niður í 16 ára eru farnir að borga nefskatt til RÚV finnst mér eðlilegt að þeir fái eitthvað fyrir sinn snúð. Rás 2 höfðar til 30 ára og eldri og stend- ur sig frábærlega í því. En það er mikill grundvöllur fyrir nýrri útvarpsstöð.“ drgunni@frettabladid.is Nú er tími fyrir aðgerðir Nýja platan með Eberg kemur út í Japan 11. febrúar hjá Rallye- merkinu. „Þeir gáfu Voff voff plöt- una mína út í fyrra og vildu endi- lega vera fyrstir með þessa. Þeim finnst það svo flott. Sjálfum finnst mér upplagt að láta plötuna koma fyrst út í Japan enda er ástand- ið einna eðlilegast þar í þessum útgáfubransa,“ segir Einar Töns- berg, Eberg. Nýja platan, Antidote, verður þriðja sólóplatan hans, og sú fyrsta síðan Voff voff kom 2006. Sú plata vakti mikla athygli á Eberg, enda mjög spræk plata þar sem poppaðar melódíur komu innpakkaðar í tilraunahljóð. Eberg er við sama heygarðshornið. „Á nýju plötunni er ég þó poppaðri en nokkru sinni fyrr. Þetta eru ellefu popplög á ensku, maður er að eld- ast og svona. Ég reyni þó enn að blanda tilraunastarfseminni hóf- lega við.“ Barði Jóhannsson og söngkon- urnar Diva de la Rose og Bird leggja Eberg lið og fyrsta lagið sem byrjar að heyrast er „One Step at the Time“. Fólk ætti að kann- ast við bassastefið í laginu. „Já, það var í DV-auglýsingu. Maður þarf alltaf að hórast aðeins líka,“ segir Eberg. Hann á von á því að fylgja plötunni eftir með tónleika- haldi og er þessa dagana að æfa með ryþmapari. Ekki hefur verið gengið frá útgáfu á Íslandi en Einar segir að platan komi hér út í febrúar. „Annaðhvort þarf ég að taka upp budduna sjálfur eða ein- hver annar verður svo vinsamleg- ur. Það skýrist í vikunni.“ - drg Poppaðri en nokkru sinni ÞRIÐJA PLATAN Einar Tönsberg er Eberg. AÐSTANDENDUR TFA Stefán Örn, Ómar Ómar og Heimir Berg ætla sér stóra hluti á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ÁLFABAKKA SELFOSS AKUREYRI KEFLAVÍK KRINGLUNNI ROLE MODELS kl. 5:50 - 8 - 10:10 12 ROLE MODELS kl. 8 - 10:10 VIP BEDTIME STORIES kl. 5:50 - 8 L BEDTIME STORIES kl. 5:50 VIP ROCKNROLLA kl. 10:20 16 CHANGELING kl. 5:30 - 8:30 16 YES MAN kl. 5:50 - 8 - 10:20 7 THE SPIRIT kl. 10:20 12 BOLTI 3-D m/ísl. tali kl. 5:50(3D) L TWILIGHT kl. 8 12 ROLE MODELS kl. 6 - 8:10 - 10:20 12 BEDTIME STORIES kl. 6D L ROCKNROLLA kl. 8:10D - 10:30D 16 YES MAN kl. 8:10 - 10:20 7 BOLT 3-D m/ísl. tali kl. 6(3D) L BEDTIME STORIES kl. 8 L TRANSPORTER 3 kl. 10:10 16 INKHEART kl. 8 10 THE SPIRIT kl. 10:10 7 ROLE MODELS kl. 8 - 10 12 BEDTIME STORIES kl. 8 L ROCKNROLLA kl. 10 16 DIGTAL-3D ADAM SANDLER „FARÐU Á ROLE MODELS EF ÞÚ VILT HLÆJA“ -USA TODAY- ROLE MODELS kl. 8 - 10:10 12 BEDTIME STORIES kl. 8 L CHANGELING kl. 10 16 ÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í DAG - KR. 500 GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR OG VIP NÝTT Í BÍÓ! SÍMI 462 3500 SÍMI 564 0000 16 12 12 L L 12 L UNDERWORLD 3 kl. 8 - 10 VILTU VINNA MILLJARÐ kl. 8 - 10.10 SÓLSKINSDRENGURINN kl. 6 SKOPPA OG SKRÍTLA Í BÍÓ kl. 6 16 12 L L UNDERWORLD 3 kl. 5.50 - 8 - 10.10 VILTU VINNA MILLJARÐ kl. 5.30 - 8 - 10.30 VILTU VINNA MILLJARÐ LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30 SEVEN POUNDS kl. 10.30 SÓLSKINSDRENGURINN kl. 5.30 - 8 AUSTRALIA kl. 4.30 - 8 SKOPPA OG SKRÍTLA Í BÍÓ kl. 4 5% FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI 50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ KAUPIR BÍÓMIÐANN Á L L L 12 L L REFURINN & BARNIÐ / ÍSL. TEXTI kl. 6 SKÓLABEKKURINN / ENSKUR TEXTI kl. 8 - 10.15 KRUMMASKUÐ NO.1 / ENSKUR TEXTI kl. 6 REVOLUTIONARY ROAD kl. 5.30 - 8 - 10.30 SÓLSKINSDRENGURINN kl. 5.30 - 8 - 10.30 SEVEN POUNDS kl. 8 - 10.30 5% 5% SÍMI 530 1919 SÍMI 551 9000 16 16 12 10 16 12 UNDERWORLD 3 kl. 6 - 8 - 10 TAKEN kl. 8 - 10 AUSTRALIA kl. 6.30 - 10 INKHEART kl. 5.50 TRANSPORTER 3 kl. 8 - 10.15 QUANTUM OF SOLACE kl. 5.30 SKÓLABEKKURINN - S.V., MBL - L.I.L., TOPP5.-FBL.IS HEIMSFRUMSÝNING! Fyrsti kafli Underworld-myndanna. Hrikalegri og flottari enn nokkru sinni fyrr! REFURINN & BARNIÐ KRUMMASKUÐ 3 DAG AR EFT IR - S.V., MBL - bara lúxus Sími: 553 2075 REVOLUTIONARY ROAD kl. 5.45, 8 og 10.20 12 VILLTU VINNA MILLJARÐ kl. 5.45, 8 og 10.20 12 CHANGELING kl. 10 16 TAKEN kl. 6 og 8 16 ★★★★★ - S.V., MBL ★★★★★ - L.I.L., Topp5.is/FBL Stórbrotin og áhrifarík mynd frá verðlaunaleikstjóranum Sam Mendes ★★★★ V.J.V – Topp5.is/FBL ★★★1/2 - S.V. MBL ★★★1/2 - S.V. MBL

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.