Tíminn - 21.11.1982, Side 7
SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982
7
Canon Ijósritunarvélin sem
Stækkar, minnkar
og lækkar verðið
um 50%
Canon
125
fUMMPfRCOPIIRi
NP
Sala, ábyrgð og þjónusta
Skrifvélin hf
Suöurlándsbraut 12 Símar 85277 & 85275
o O
FATASKAPAR
sem gætu komið í
Fataskápar frá Haga henta hvar sem er.
Gott verð — stuttur afgreiðslufrestur - góðir
greiðsluskilmálar. Nú er einmitt tíminn til að
skella sér á'skápa
HAGIr
Verslun/sýningarsalur
Háaleitisbraut 68 Reykjavík
Sími (91) 84585
Verslun/sýningarsalur
Glerárgötu 26 Akureyri
Sími (96) 21507
Verslun/sýningarsalur
Brimhólabraut 1 Vestmanna-
eyjum Sími (98) 1195
Umboðsmaður
áVopnafirði:
Steingrímur Sæmundsson
urinn sjálfur biöi við það tjón, einkum
ef þröngsýn þjóðemisstefna festi rætur
meðal okkar, en gegn slíkri stefnu
höfum við oft þurft að berjast hatramm-
lega, þótt ekkert gyðingarfki væri til.
Við lifum ekki á tímum Makkabeanna.
Ef við snerum til baka og mynduðum
þjóð í pólitískum skilningi væri það að
snúa baki við hinu andlega samfélagi
voru, sem grundvallað er á snilligáfu
spámannanna. Ef við vegna ytri að-
stæðna neyðumst þó til að axla þessa
byrði, skulum við bera haria með
tillitsemi og skilningi."
Þaö sem að helst
hann varast vann
Því miður varð þróun mála sú í
Palestínu sem Einstein óttaðist mest og
fram kemur í þessari grein hans.
Ísraelsríki með öllum sínum her, stutt
af erlendu fjármagni, er orðinn ógnvald-
ur sinna arabisku nágranna fyrir botni
Miðjarðarhafs. Lega landsins er sú, að
það er efnahagslega og hemaðarlega
mjög mikilvægt þeim ríkjum er að því
liggja. Þess vegna er það þeim mun
sorglegra að ekki skyldi reynast unnt að
stofna sambandsríki Palestínuaraba og
gyðinga, byggt á lýðræðislegum gmnni,
þar sem menntun, verkmenning og
efnahagslegir bakhjarlar gyðinga á Vest-
urlöndum hefðu stuðlað að og flýtt fyrir
menningarlegri endurreisn og þróun
landanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Þau
orð Theodors Herzls, er hann skrifar
löngu áður en Ísraelsríki varð að
veruleika og áttu að vekja hugmyndinni
velvilja og styrk á Vesturlöndum, að
slíkt ríki gæti orðið útvörður vestrænna
áhrifa á þessum slóðum í framtíðinni,
bæði í menningarlegu og pólitísku tilliti,
hafa því miður sannast á óheppilegan
hátt.
Stríðssigrar
hættulegir ísrael
Styrjöldin við Egypta 1956, þar sem
ísraelsmenn ganga erinda hinna gömlu
nýtenriuveWa árþessum slóðum, Frakka
og Engjwirtinaoi mkUmm ná-
ri’ grðimum, ferW'bfeftiEgyptumogödrum
heim sanninn unrþað ið hini
nýja ríkis styddust vift ðfl á Vestur-
löndum er fyrir hvem mw-áNMMK
arabaríkjunum í viðjum fátæktar og
hinnar gömlu niðurlægingar nýlendutím-
ans. önnur afleiðing þessarar styijaldar
varð sú, að hin nývaknaða þjóðemis-
stefna araba margefldist, «g Auft em-
hverjir hinna arabisku nágranna Israels-
rfkis litið slíka þróun mála hornauga
eftir þennan atburð, þá ba« 6 daga
stríðið 1967 enda á þær efasemdir.
Styrjaldir Ísraelsríkis hafa því fyrst og
fremst þrýst saman sundruðum öflum
hinna arabísku ríkja, þeim sýnist öllum
í dag sem öryggi þeirra sjálfra verði
aldrei tryggt fyrr en erkióvinurinn,
Ísraelsríki, sé úr sögunni, a.m.k. í þess
núverandi mynd. Sex daga stríðið getur
því reynst ísraelsmönnum í framtíðinni
þeirra stærsti ósigur, því að enginn má
ætla að hinar fjölmennu arabísku þjóðir
lúti um alla framtíð ofurvaldi ísraels-
manna á þessum slóðum. Pað er ekki
einungis gagnstætt allri þróun mála í
heiminum í dag heldur óraunsæir draum-
órar, þegar höfð er í huga sú glæsta
fortíð sem hin íslömsku ríki eiga sér og
stendur þeim svo lifandi fyrir sjónum nú
á okkar dögum, þegar þjóðernisleg
vakning fer eldi um þessar fomu
menningarþjóðir.
Það er ef til vill stærsta ógæfa hinnar
zionisku tilraunar að hún verður að
veruleika á þeim tíma er ríki þriðja
heimsins svonefnda em að hrista af sér
aldagamalt ok evrópskrar nýlendukúg-
unar, og því verður hið nýja ríki
ísraelsmanna fullkomið tímaskekkjufyr-
irbrigði á þessum slóðum, fulltrúi hins
liðna sem á að hverfa, fulltrúi þeirra afla
sem þyngsta sök eiga á aldalangri
niðurlægingu hins islamska heims síð-
ustu aldimar.
(Niðurlag um næstu helgi).
Canoii
Auglýsið í Tímanum síminn er 86300