Tíminn - 21.11.1982, Blaðsíða 31

Tíminn - 21.11.1982, Blaðsíða 31
SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982 31 m .V'jiii'i.1 ■ Útlendíngahatrið leynir sér ekki. Algengt er að krotaðar séu áletranir á bekki á borð við þessa: „Aðeins fyrir Þjóðverja.“ kominn inn fyrir. „Hann er klúbbgest- ur,“ lýgur dyravörðurinn. Gestur nokk- ur í ljósum fötum og í skyrtu með flakandi hálsmáli, þar sem skín á svera gullkeðju, sýnilega ítali, reynir að upplýsa málið fyrir mig: „Ekki fyrir útlendinga eins og þig.“ Dyraverðinum fer nú að Ieiðast þófið. Nýja gesti ber að. Hann leggur handlegg- inn utan um mig og ýtir mér fram til dyranna. Ég festi jakkavasann minn á hurðahúninum og hann rifnar: Vertu ekki að gera neinn uppsteýt,“ segir dyravörðurinn ógnandi í kveðjuskyni. Kvöldið eftir reyni ég að nýju. f þetta skipti er ekki verið að vanda mér kveðjurnar. Vart er ég kominn inn fyrir dyrnar þegar dyravörðurinn stekkur á móti mér, þrífur í jakkaboðungana mína, snýr mér við og gefur mér spark í afturendann. Ég tapa jafnvæginu og lendi flatur á gangstéttinni. Enginn kemur til hjálpar Enginn lætur sig þetta neinu skipta og enginn tekur upp hanskann fyrir mig. Hvorki þarna við veitingahúsið né á strætisvagnabiðstöðinni við „Mustersc- hule“ í norðurhluta Frankfurt. Þar ræðst að mér vegfarandi nokkur, maður á miðjum aldri, án neinnar sýnilegrar ástæðu. Hann grípur í jakkakragann minn, þrýstir mér upp að vegg og urrar: „Skítugir Tyrkir! Þig skal ég drepa!" Enginn nærstaddra hefst að. Hann lætur mig ekki lausan fyrr en strætisvagn- inn kemur. Ég geng inn í „Breite Gasse“ þar sem ■ „Burt með Tyrkina“ stendur á húsveggnum, sem hér sést. Stafagerðin í lok seinna orðsins er gamalkunnug. skækjulifnaður í Frankfurt stendur með mestum blóma. Ef til vill væri ég talinn góður og gildur hér vegna peninganna. Sagt er að hér kosti þjónustan yfirleitt 30 mörk. Fjórum sinnum er mér vísað frá. f glugganum á „Little Eros“ situr ung og lagleg stúlka. „Hve mikið?“ segi ég. Orðalaust snýr hún sér undan. Ég býð 50 mörk og þá hundrað mörk. Engin svör. Þá dreg ég upp allt það reiðufé sem ég hef, - 230 mörk. Þá snýr hun sér að mér: „Ég skít á þessa villimannapeninga þína, veistu það? Komdu þér svo burtu, því annars læt ég vini mína slá þig í köku!“ Ég blanda mér í hóp rónanna við Friedberger Anlage. „Gefðu okkur einn,“ segir einn þeirra. Undirdánugur fer ég og kaupi átta bjóra í sölutuminum og deili þeim á meðal þeirra. Þegar ég ætla að tylla mér við hlið eins þeirra á handriðið sem þeir sitja á, rekur róninn mig burtu: „Farðu, heldri menn sitja ekki hjá Tyrkjum - það er pest af Tyrkjum." Harðánægður...? Ekki er mikill vandi að verða maður með mönnum að nýju. Ég þarf ekki annað en hætta að vera Tyrki. Ég reyni sama leikinn í „Óperukaffihúsinu.“ í staðinn fyrir tyrkneska blaðið „Hurriet" hef ég nú „Frankfurter Allgemeine“ undir handleggnum. Skegg og augabrún- ir eru nú ljósar að nýju. Húfunni hef ég stungið í vasann. Ég sest við laust borð við dyrnar. Udo kemur brosandi til mín. „Hvað má bjóða herranum? -já, kemur rétt strax,“ segir hann og flýtir sér burtu, til þess að þóknast mér sem best. Ég halla mér aftur á bak í stólnum. Ég er Þjóðverji að nýju. Það mun ekki verða gotið til mín hornauga, ég verð ekki hæddur og mér verður ekki hrint. Eiginlega ætti ég að vera harðánægð- ur. Þýft AM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.