Tíminn - 21.11.1982, Blaðsíða 27
r > » jjj'fi f V i j l,li' »V '• ■■’ -*•
SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982 fím 27
Grammið gefur
út átta plötur
■ Útgáfufyrirtækið Gramm flutti ný-
lega í nýtt húsnæði á Hverfisgötu 50,
færði út kvíamar um ieið en á þessum
nýja stað verður á boðstólum fjölbreytt
úrval af íslenskum og erlendum hljóm-
1 plötum. Grammið flytur inn hljómplötur
frá ýmsum hljómplötufyrirtækjum sem
sérhæfa sig í útgáfu nýbylgjurokki og
nútimadjazzi. Auk þess mun Grammið
í ár gefa út 8 plötur, þar af em fimm
nýjar væntanlegar á næstunni.
Útgáfuplötur Grammsins í ár em
Klarinettkonsert/Bláa ljósið/Sýn sem
era verk eftir Áskel Másson á nýrri
breiðskífu. Lítil plata kemur á næstunni
með hljómsveitinni Vonbrigði, ný breið-
skífa með allsherjargoðanum Sveinbirni
Beinteinssyni mun llta dagsins Ijós, ný
sólóplata Þorsteins Magnússonar Líf en
Þorsteinn er gitarleikari ÞEYR, en fyrir
utan þetta em komnar út hjá Gramminu
Svonatorrek hljómsveitarinnar Jonee
Jonee, No Time to Think með Purrk
Pillnikk og Googooplex með sömu sveit.
Auk þess mun Grammið gefa út eina
kassettu, Modern, með þeim Peter
Hamill og Graham Smith.
Þá mun Grammið annast dreifingu á
nýjustu plötu ÞEYR en sú heitir Fourth
Reieh auk þess sem aftur mun fást skífan
As Above með ÞEY sem ófáránleg
hefur verið um nokkurt skeið.
Myndina hér með tók bárujárnströllið
ESE á fundi sem Grammið efndi til í
tilefni af öllu húllumhæinu en þangað
mættu auk myndasmiðsins nokkrir vel-
unnarar útgáfunnar auk annarra al-
mennra „búsara“.
-ESE
SATT ætlar að
setja heimsmet
■ Þá á að reyna að setja nýtt heimsmet
á íslandi. Það em samtök alþýðutón-
skálda SATT sem standa að heimsmets-
tUrauninni, en hugmyndin er að halda
lengsta samfellda konsert sem um getur
í sögunni. Fyrra heimsmet var sett af
Black Brothers í Þýskalandí árið 1968,
en þá var leikið samfleytt í 321 klukku-
tima, eða 13 sólarhringa og 9 klukkust-
undir.
Samkvæmt upplýsingum Jóhanns G.
Jóhannssonar hjá SATT verður mara-
þonkonsertinn væntanlega í Tónabæ í
byrjun desember og verður leikið fram
yfir miðjan mánuð. Enn hefur ekki
endanlega verið ákveðið hvort af þessari
tilraun verður, en það ætti að skýrast
allra næstu daga og fái SATT grænt ljós
verður tilraunin gerð í samvinnu við
Heimsmetabókina. Jóhann sagði að ef
áhugi væri mikill þá væri í ráði að fá sem
flestar hljómsveitir af landinu til að taka
þátt í heimsmetstilrauninni, en ágóði ef
einhver yrði myndi renna til byggingar-
happdrættis SATT.
— Það hefur gengið ágætlega að selja
happdrættismiðana að undanförnu,
sagði Jóhann, — en betur má ef duga
skal. Við verðum að koma þessum
húsnæðismálum í lag, annars er illt í
efni, sagði Jóhann G. Jóhannsson.
Þess má geta að margir góðir vinningar
eru í happdrættinu en dregið ferður á
Þorláksmessu, þá er allir borða skötu.
-ESE
Birmingham, þar sem atvinnu-
leysið er einna mest á Bret-
landseyjum og nafn hljóm-
sveitarinnar má einmitt rekja
til umsóknareyðublaða um at-
vinnuleysistryggingar. Gengi
UB-40 var svona upp og ofan
fyrstu árin, en með annarri
plötunni „Present Arms“ slógu
UB-40 í gegn og lagið „One in
ten“ var á allra vörum.
Þó ævisögurituninni hafi
ekki verið hátt hampað hér,
þá er allt í lagi með frásögu-
þætti og get ekki látið undir
höfuð leggjast að segja frá því
þegar ég sá UB-40 á sviði í
Chateau Neuf í Osló. Hljóm-
sveitin kom fram, spilaði pott-
þétt prógram í 40 mínútur allt
af „Present Arms“, var klöpp-
uð upp og spilaði þá „One in
ten“ í annað sinn. Vissulega
mjög góðir hljómleikar, en
ósiðlega stuftir.
Svo vikið sé að nýju plöt-
unni, þá nefnist hún 44. Tónlist-
arlega stendur hún mjög nærri
„Present Arms“ og viðfangs-
sefnin eru þau sömu: Kjör
fólksins og ástandið í Bretlandi
(heiminum). UB-40 er ekkert
heilagt Jah-band eins og svo
margar reggae-hljómsveitir
undanfarinna ára, heldur er
hljómsveitin fulltrúi ákveðinn-
ar pólitíkur, auk þess sem hún
flytur afbragðs reggae-tónlist.
Lögin eru yfirleitt róleg, en
ryþma-sveitin pottþétt og það
sama cr hægt að segja um
sönginn.
Þá er aðeins ónefnt umslagið
sem er ákaflega frumlegt þó
ekki sé meira sagt. Það er svart
með ferhyrndum silfurfleti, en
sá er úr efninu Hologram. Það
sem í fyrstu virðist vera spegill,
er raunverulega þrívíddar-
mynd með nafni hijómsveitar-
innar og er titillinn svífandi
fyrir framan. Gott hjá UB-40.
-ESE
ÞEYR OG
VONBRIGÐI
■ UPP OG OFAN verður
með tónleika í Félagsstofnun
stúdenta um næstu helgi,
nánar tiltekið á föstudag og
hefjast þeir kl. 10. Sex atriði
verða á tónleikunum að
þessu sinni og þau helst að
hljómsveitirnar ÞEYR og
Vonbrigði munu troða upp.
Önnur atriði em Hjörtur Geirsson /Trú-
bador, Jói á Hakanum/Ananasmenning,
Trúðurinnnn/rétt stilltur og Hin Konung-
lega flugeldarokkhljómsveit.
Tónleikamir standa eitthvað fram yfir
miðnættið, lysthafar ættu að hafa ca. 100
spesíur í kmmlunum er þeir koma að
dymnum en ágóða verður varið líknar-
mála, að mér skilst. , -FRI
siA
OPNU
tlvbKJLI AKI,
EIN EKKISVOFW
TVI 0/VE\
IlLoUU
HIJOMPIÖHJR
, FyIGJA med,
IKAUPUNUNA
, AKAI
HIJOMTCKJúm