Tíminn - 21.11.1982, Síða 14
SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982
kvikmyndasjá
Sr^
■ Geimvera Spielbergs gxðir sér í kræsingum á heimili Elliotts litla.
handrit annarrar myndar, sem kom á
markað í sumar - draugamyndarinnar
„Poltergeist".
Spielberg hefur stundum verið legið
á hálsi fyrir að hugsa ekki nógu mikið
um fólk, einstaklinga, og tilfinningar
þess. Hann sagði í nýlegu viðtali, að hin
allra síðustu ár hafi hann fundið með
sjálfum sér mun meiri áhuga á fólki.
„Mér þykir vænna um fólk en áður, um
fólkið í kringum, þá sem ég elska,
fjölskyldu mína. Myndir mínar eru að
verða mun persónulegri, mun tilfinn
ingaríkari."
Og um nýjustu myndina, „E.T.“ eða
„Geimveruna", segir Spielberg: „Þetta
er sú mynda minna, sem er næst mínum
eigin tilfinningum, eigin draumórum;
næst hjarta mínu. E.T. er persónuleg-
asta kvikmynd mín.“
Heimur barnsins
Kvikmyndin fjallar ekki aðeins um
geimveru, eins og nafnið bendir til,
heldur ekki síður um ungan dreng; barn
og heim þess. Það er í rauninni
drengurinn, Elliott, sem myndin snýst
öðrum fremur um, en hann finnur
geimveruna, sem nafn myndarinnar
vísar til, og leynir henni fyrir útsendur-
um ríkisstjórnarinnar, sem vilja taka
hana traustataki.
Geimveran sjálf er hins vegar að sögn
þeirra, sem séð hafa myndina, ótrúlega
fullkomið líkan, en það var smíðað af
Carlo nokkrum Rambaldi. Geimveran
sýnir á sér margvíslegar hliðar í mynd-
inni; hún leikur við böm og dýr, lærir
að tala tungumál Elliotts, prufar mat og
drykk á heimilinu og vcrður þá augafull,
og sýnir yfirburðagáfur sínar og hæfi-
leika m.a. með því að svífa í loftinu.
Elliott felur geimveruna um tíma í
fataskáp í herbergi sínu, enda má segja
að þessi vera sé í augum Spielbergs sú
draumavera, sem hugmyndarík böm
væm vís til að ímynda sér á einmana
stundum. Og að sögn gagnrýnenda er
það einmitt með lýsingum sínum á heimi
barnsins og draumum, sem Spielberg
nær mestum áhrifum í mynd sinni, og
finnur jafnframt leiðina til bamsins í
okkur öllum. -ESJ.
■ Kvikmynd sumarsins í Bandaríkj unum að þessu sinni
er að sjálfsögðu nýjasta mynd Steven Spielbergs
„Geimveran“, en hún hefur slegið mörg aðsóknarmet
þar í landi. Hér á síðunni eru birtar nokkrar myndir úr
þessari kvikmynd, sem hefur ekki aðeins hlotið vinsældir
heldur einnig viðurkenningu gagnrýnenda, sem sumir
hverjir hafa stundum áður haft nokkurt horn í síðu
Spielbergs.
ákvað síðar að reyna fyrir sér á þeim
vettvangi. Hann gerði stutta mynd, sem
heitir „Amblin“, til þess að sýna
stjórnendum kvikmyndafyrirtækjanna í
Hollywood hvað hann gæti á því sviði.
Hann fékk samning við sjónvarpsdeild
Universal vegna þeirrar myndar og
Heimsfrægð fyrir „Ókind-
ina“
Þessu næst fékk Spielberg tækifæri til
að stjórna fyrstu kvikmyndinni. sem
ætluð var beint til sýningar í kvikmynda-
húsum. Það var Sugarland Express (sú
var einnig sýnd nýlega í sjónvarpinu).
Og í framhaldi af því var honum falin
leikstjórn myndarinnar „Jaws“, en hún.
gerði hann bæði heimsfrægan og ríkan.
Síðan hefur hann sinnt þeim kvik-
myndum, sem hann hefur sjálfur haft
áhuga fyrir, stundum í samvinnu við vin
sinn George Lucas. Þetta eru myndir
eins og „Close Encounter", sem fyrr á
þessu ári var endursýnd í Stjörnubíói,
„1941 “, sem reyndist misheppnuð gam-
anmynd, „Ránið á týndu örkinni“ og nú
síðast „E.T. - The Extra-Terrestrial“
eða „Geimveran“. Þá samdi hann
Flestar kvikmynda Steven Spiel -
bergs, sem enn er ungur að árum, hafa
slegið í gegn sem kallað er, það er hlotið
mikla aðsókn almennings. Eitt glæsileg-
asta dæmið þar um er „Okindin“ (Jaws),
en fyrstu sex vikurnar, sem sú mynd var
sýnd í Bandaríkjunum, sá áttundi hver
maður í landinu myndina.
Spielberg lagði reyndar stund á ensku
en ekki kvikmyndagerð í háskóla, en
stjórnaði þar nokkrum sjónvarpsþáttum
(m.a. einn af fyrstu Columbo-þáttun-
um), og síðan tveimur sjónvarpskvik-
myndum. Önnur þeirra, „Duel“ vakti
verulega athygli, ekki síst í Evrópu
Þessi mynd sem hefur verið sýnd hér í
sjónvarpinu, segir frá ferðalangi sem er
að aka heim til sín eftir þjóðvegi í
Bandaríkjunum en lendir í eingvígi við
hatrantann vörubílstjóra. ® Geimveran og Elliott.
■ Steven Spielberg við upptökur á „E.T.“
■ Elliott (Henry Thomas), bróðir hans (Robert MacNaughton) og systir (Drew
Barrymore).
„Þetta er persónulegasta
kvikmynd sem ég hef gert”
— sagt frá Steven Spielberg og nýjustu kvikmynd hans „E.T.” eða „Geimveran”
■ Elliott fylgist með hermönnunum sem eru að leita að geimverunni, sem drengurinn hefur falið í
klxðaskápnum í herbergi sínu.
■ Á flótta með geimveruna „innpakkaða“ á reiðhjólinu.