Tíminn - 07.12.1982, Qupperneq 1
Allt um íþróttavidburði helgarinnar - bls. 13-16
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAD
Þriðjudagur 7. desember 1982
279. tölublað - 66. árgangur
pVlarm
over
læge-
middel
Risiko for fosterskader
Aflnge Methling £^"Ei,uí2i
friw. f.r .. ay llutM.-
tímans:
Tony
bls. 2
verkur
- bls. 10
Skjótid
píanó-
leikarann
- bls. 27
stjórn-
mál
— bls. 7
Vísitölunefnd rlkisstjórnarinnar skilar tillögum sínum:
LEGGIIR TIL LENGINGU
VÍSITðLUTÍMABILANNA
— úr þremur mánuðum í f jóra, nýjan grundvöll,
aukinn frádrátt og lífskjaraviðmiðun
■ „Þetta eru tillögur frá okkur, að
því markinu til, að ef ekki koma fram
einhverjar nýjar forsendur af hálfu
nkisstjómarinnar, þá eru þetta okkar
lokatiIlögur,“ sagði Þórður Friðjóns-
son, hagfræöingur forsætisráðherra, í
viðtali við Tímann, um tiliögur vísi-
tölunefndarinnar sem nefndin skilaði
ríkisstjórninni í gær, en Þórður á sæti
vísitölunefndinni ásamt þeim Hall-
dóri Ásgrímssyni og Þresti Ólafssyni.
Vísitölunefndin hefur starfað síðan sl.
vor.
Aðspurður um það hvort einhugur
væri í nefndinni um þessar tillögur,
sagði Þórður. „Það kemur í ljós, þegar
þetta kemur til umfjöllunar," en
samkvæmt heimildum Tímans þá
klofnaði nefndin í tillögum sínum.
Þetta álit byggist samkvæmt heimild-
um Tímans á tillögum nefndarinnar
frá því sl. sumar, en þá lagði nefndin fram
tillögur til aðilja vinnumarkaðarins,
sem voru í grófum dráttum á þessa
leið: Nýr vísitölugrundvöllur skyldi
notaður, en ekki sá rangi sem verið
hefur í gildi, vísitölutímabilið skyldi
lengt úr 3 mánuðum í 4, frádráttarlið-
um yrði bætt við, ss. vegna hækkunar
orkuverðs áður en kauplagsvísitala
skyldi útreiknuð og dregin yrði frá
aukning opinberra útgjalda og tekin
upp svokölluð lífskjaraviðmiðun.
Þórður var að því spurður hvort þetta
væru efnislega tillögur þær sem ríkis-
stjórnin myndi fjalla um á fundi sínum
í dag: „Ég vil ekki fjalla efnislega um
þetta, fyrr en þetta hefur fengið
umfjöllun í ríkisstjórninni," sagði
Þórður. - AB
■ Jólasveinamir em þegar komnir á kreik þó enn sé nokkur tími til jóla. Þessir vora á ferðinni nú um helgina og stöldmðu við á bflasýningu sem haldin var við
Rauðagerði í Revkjavík. Dreif þar strax að margmenni til að hlýða á boðskap þeirra Ijallabúanna.
GETUR FLOGAVEIKISLYF
VALMÐ FÖSIIIRSKADA?
— ,,Er á markaði hérlendis’% segir landlæknir
■ Þetta lyf er hér á markaðnum og við
höfum fengið allar upplýsingar um að
grunur leiki á að það geti valdið skaða.
Þessum upplýsingum hefur verið komið
áfram til lækna,“ sagði Ólafur Ólafsson,
landlæknir í samtali við Tímann er hann
var spurður að því hvort lyfið Valproat,
sem gefið er gegn flogaveiki væri á
lyfjaskrá hérlcndis.
Ástæðan fyrir því að Ólafur Ólafsson var
spurður um þetta tiltekna lyf er sú að
samkvæmt heimildum dánska blaðsins
Politiken þá leikur grunur á að lyf þetta
geti valdið fósturskaða hjá flogaveikum
konum sem taka lyfið á meðan þær eru
vanfærar. Vitnar Politiken til franskra
rannsókna í þessu sambandi og þess að
sérstök nefnd sem kannar aukaverkanir
lyfja á vegum danska Heilbrigðisráðu-
neytisins, hefur lagt til að einungis verði
heimilað að gefa konum á barneignaraldri
þetta lyf þegar önnur lyf duga ekki til.
Lyfið Valproat er í Danmörku í notkun
undir nokkrum mismunandi vörumerkjum,
s.s. Dprakine, Leptilan og Orofiril.
í samtali Tímans við landlækni kom fram
að þetta lyf hefur reynst mjög vel gegn
flogaveiki, en sökum þess gruns sem fyrir
hendi er þá verður lyfið sett á sérlyfjaskrá.
Ólafur Ólafsson sagði að þannig háttaði
orðið til í dag að læknar gæfu yfirleitt ekki
þunguðum konum lyf nema í bráðnauð-
synlegustu tilfellum, þannig að hættan væri
e.t.v. ekki eins mikil og hér áður fyrr.
- ESE
■ Fréttín í Politiken
sem birtist 1. desembcr sl.