Tíminn - 07.12.1982, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1982
lááLSiiÍ'fí'i'!
'7f
1
erlent yfirlit
■ í VESTUR-ÞÝZKALANDI búa
stjómmálaflokkamir sig af fullu kappi
undir þingkosningamar, sem Kohl
kanslari hefur boðað að muni fara fram
6. marz næstkomandi.
Það hefur ékki haft nein áhrif á þetta,
þótt Walter Scheel, fyrrverandi forseti,
hafi lýst yfir því, að hann álíti þessa
fyrirætlun Kohls brjóta gegn anda stjórn-
arskrárinnar. Hann myndi því ekki hafa
fallist á kosningamar, ef hann sæti enn
í forsetastólnum.
Þessi afstaða Scheel virðist á rökum
reist. Ákvæði stjómarskrárinnar setja
strangar skorður gegn þingrofi, nema
það ástand sé fyrir hendi, að traustsyfir-
lýsing til stjórnarinnar hafi verið felld
eða vantraust samþykkt og ekki liggi
fyrir, að hægt sé að mynda nýja stjórn.
Þessa ástæðu notaði Willy Brandt sér
1972, en þá stóð líka þannig á, að
stjórnarflokkarnir höfðu veikzt vegna
úrsagnar nokkurra þingmanna úr þeim.
Flest benti til, að stjórnin væri búin að
missa starfshæfan þingmeirihluta.
Nú er ekki um slíkt að ræða. Stjórn
Kohls, sem er studd af kristilegu
flokkunum og meirihluta Frjálslynda
flokksins, styðst við öruggan þing-
meirihluta.
■ Franz Josef Strauss,
Walter Scheel telur það því brjóta.gegn
anda og tilgangi stjórnarskrárinnar, ef
Kohl kemur því þannig fyrir, að trausts-
yfirlýsing til ríkisstjórnarinnar verði
felld undir þessum kringumstæðum, en
slíkt virðist ekki geta gerzt nema með
hjásetu stjórnarþingmanna.
ÞÓTT Scheel færi glögg rök fyrir máli
sínu, þykir ekki líklegt, að Carsten
forseti fallist á þau. Hann mun vart grípa
fram fyrir hendumar á Kohl flokks-
bróður sínum, ef hann leggur áherzlu á
að knýja kosningar fram.
Sumir fréttaskýrendur telja, að Kohl
myndi geta sætt sig við þetta af persónu-
legum ástæðum, því að hann sé ekkert
spenntur fyrir kosningum nú. Hins vegar
geti hann það ekki af flokkslegum
ástæðum. Það myndi geta valdið klofn-
ingi kristilegu flokkanna, ef kosningarn-
ar yrðu ekki látnar fara fram á þeim
tíma, sem boðað hefur verið.
Ástæðan er sú, að Franz Josef Strauss
leggur megináherzlu á kosningar sem
fyrst. Hann vill fyrir alla muni losna við
Frjálslynda flokkinn, en Frjálslyndi
flokkurinn þykir líklegur til að þurrkast
út úr þinginu, ef kosið væri nú. Sá
möguleiki er þá fyrir hendi, að kristilegu
flokkarnir fái hreinan meirihluta. Þá
ætlar Strauss sér að verða utanríkisráð-
herra og varakanslari, en þeim embætt-
um gegnir nú Genscher, formaður
Frjálslynda flokksins.
Sósíaldemókratar eiga hér samleið
með Strauss og munu því ekki gagnrýna,
þótt kosningar verði 6. marz. Þeim er
mikið í mun að losna við Frjálslynda
flokkinn. Þeir kjósa heldur að kristilegu
flokkarnir fái meirihluta. Það verði að
ýmsu leyti auðveldara að glíma við
stjórnina á þeim grundvelli.
Sósíaldemókratar virðast vera búnir
að sætta sig við þá tilhugsun, að þeir
verði utan stjómar næsta kjörtímabil.
Þeir eru búnir að vera í stjórn samfleytt
hálfan annan áratug og telja heppilegt
af ýmsum ástæðum að fá tækifæri til að
endurskipuleggja flokkinn í stjórnar-
andstöðu. Kristilegu flokkarnir megi
líka gjarnan fá tækifæri til að glíma við
efnahagserfiðleikana.
Það gæti gert strik í reikninginn hjá
Straussogsósíaldemókrötum, ef Græn-
ingjaflokkurinn kæmist inn í þingið í
stað Frjálslynda flokksins. Heldur virðist
nú draga úr líkum á því og ber tvennt til.
Annað er það, að hinn nýi leiðtogi
sósíaldemókrata, Hans-Jochen Vogel.
er lengra til vinstri en Helmut Schmidt
og þykir því vænlegur til að vinna hylli
ýrnissa þeirra, sem hafa hallazt að
Græningjum. Hitt er það, að á nýloknu
þingi Græningja var hver höndin upp á
móti annarri, og hefur það ekki aukið
tiltrú til þeirra.
ÞAÐ VEIKIR nokkuð andstöðu Walt-
ers Scheel gegn þingkosningunum nú,
að hann er fyrrverandi formaður Frjáls-
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
Þá hafa æskulýðssamtök flokksins
sagt skilið við hann.
Líklegt þykir, að Frjálslyndi flokkur-
inn muni leggja mikið kapp á þann
áróður, að falli hann út úr þinginu, muni
Franz Josef Strauss verða utanríkisráð-
herra og varakanslari í stað Genschers.
Vilja kjósendur skipta á þeim? Því mun
jafnframt komið á framfæri, að Kohl
kanslari vilji heldur Genscher en
Strauss.
Samkvæmt nýlegustu skoðanakönnun
myndu kristilegu flokkarnir fá 49%
atkvæða, ef kosið væri nú, sósíaldemó-
kratar 42%, Frjálslyndi flokkurinn 3%
og Græningjar 5%.
lynda flokksins. Honum er talið ganga
það til, að hann vilji komast hjá
kosningum nú í þeirri von, að aðstaða
flokksins geti batnað, ef kosningar
dragast á langinn.
Frjálslyndi flokkurinn héfur orðið
fyrir hverju skakkafallinu á fætur öðru að
undanförnu. Genscher náði nauntlega
endurkjöri sem formaður á þingi
flokksins, sem haldið var í fyrrihluta
nóvember. Síðan hafa nokkrir þingmenn
sagt sig úr flokknum, og hafa sumir
þeirra þegar gengið yfir til sósíaldemó-
krata og verða í framboði fyrir þá.
Meðal þeirra er Guntber Verheugen,
sem var framkvæmdastjóri flokksins.
Baráttan verður milli
Strauss og Genschers
Brýtur þingrofid gegn stjórnarskránni?
tJvOWSVS*-'
MONSTER CABLE, sérsmíöuöu hátalaravírarnir,
eru viöurkenndir af gagnrýnendum um allan heim
sem bestu hátalaravírar sem völ er á.
Fáðu „soundið“ sem þú borgaðir fyrir!
1
UST
c.
LAST er eini vökvinn sem sérfræðingarnir mæla með á
hljómplötuna!
LAST kemur algjörlega í veg fyrir slit!
LAST minnkar afspilunarbjögun (á nýrri plötu) um allt að 80%!
LAST eykur endingu nálarinnar.
LAST dregur úr rykmyndun.
LAST er sett aðeins einu sinni á plötuna.
LAST myndar ekki húð, heldur gengur í beint efnasamband
við vínilinn.
LAST gerir plötuna betri en nýja!
AUÐVELDUM / tía£BWAR ~tl,—t r—>
SINDY
Póstsendum.
w w
LEIKFANGAVERZLUNIN JOJO
AUSTURSTRÆTI 8 - SÍM113707