Tíminn - 07.12.1982, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1982
21
Sagan um ísfólkið
- þriðja bók: Hyldýpið
■ „Hyldýpið er þriðja bókin í bókaflokkn-
um Sagan um ísfólkið eftir Margit Sandemo,
sem Prenthúsið hefur útgáfurétt á hér á landi.
Sunna Angelíka er aðalpersónan í þessari
bók, sem gerist á Akershúsi, í Kaupmanna-
höfn og á Skáni og atburðarásin nær allt til
ársins 1600.
Eins og áður segir er „Hyldýpið“ þriðja
bókin í bókaflokknum um ísfólkið, þessi
bókaröð sem hóf göngu sína samtímis á
öllum Norðurlöndum, virðist eiga sívaxandi
vinsældum að fagna hér á landi ekki síður en
erlendis þar sem þegar eru hafnar endur-
prentanir á fyrstu bókunum.
GLUGGAR
OG HURÐIR
Vönduð vinna á hagstæðu verði.
Leitið tilboða.
ÚTIHURÐIR
Dalshrauni 9. Hf.
S. 54595.
Lífsmörk í spori
■ Bókaútgáfan Skjaldborg hefur sent frá
sér bókina Lífsmörk í spori, minningar og
fróðleiksþættir, eftir Torfa Þorsteinsson,
Haga.
í formála að bókinni segir höfundur m.a.
svo: „Þættir þeir, sem hér koma út á prenti,
eiga að varðveita endurminningu manna og
kvenna, sem ýmist voru samferðafólk mitt
eða ég hafði um greinilegar heimildir. Allt
var þetta fólk elju og starfs í sól og regni,
gætt raunsæjum lífsviðhorfum."
Lífsmörk í spori er 157 bls., prentuð og
unnin í Prentsmiðju Bjöms Jónssonar. 1
bókinni er finna margar myndir og nafnaskrá.
svipur tands og þjóðar í máti og
myndum eftir Hjálmar R Bárðarson.
Bókin er 428 blaðsíður í vönduðu bandi.
í henni eru 20 kaflar, teikningar og kort.
Fæst hjá bóksölum um land allt
Dreifing í sima 85088
IITargil
Sandemo
Ijyldýpid
eftir Jón Óttar Ragnarsson.
gerist^ á örlagastundu
bandarískrar óperusöngkonu
og vísindamanns sem hún er gift.
Hvað gerist í heimi þessa
metnaðarfulla fólks þegar öllu skal
fórnað fyrir eigin frama.... ?
Hans Hansen:
Einkamál
■ Nýjasta skáldsaga Hans Hansen fyrir
unglinga og annað ungt fólk er nú komin út
á íslensku og heitir hún Einkamál. Áður hafa
þrjár af bókum Hans Hansens verið gefnar
út hér á landi: Sjáðu sæta naflann minn,
Vertu góður við mig og Klás, Lena, Nína
og... Auk Einkamála er ný útgáfa komin út
af Sjáðu sæta naflann minn. Það er Lystræn -
inginn sem gefur bækumar út, Vemharður
Linnet, þýðir.
Hans Hansen er afkastamikill rithöfundur
og hefur sent frá sér 25 bækur fyrir fuliorðna,
unglinga og börn, auk þess sem hann hefur
skrifað mikið fyrir útvarp, sjónvarp og
leiksvið auk handrita að átta kvikmyndum,
nú síðast Gúmmí Tarsan, sem farið hefur
sigurför um Evrópu.
Hans Hansen dvaldi hér á landi í október
og flutti fyrirlestra um bama- og unglinga-
bækur og kvikmyndir fyrir unglinga og
böm. Hann er einn af höfundum sjónvarps-
þáttanna um Hildi, sem sýndir verða í
íslenska sjónvarpinu eftir áramót. Þetta era
þættir sem sameina dönskukennslu og góða
skemmtun.
Louts Masterson
Bókaraðir Prenthússins sem út hafa komið
síðan 1976 hafa sannað það að bækur í
vasabrotsformi falla í góðan jarðveg hér á
landi sem og í öðmm löndum.
35. bókin um Morgan Kaue:
Hefndarenglarnir
■ Út er komin 35. bókin í bókaflokknum
um Morgan Kane og heitir hún „Hefndar-
englamir“
A bókakápu segir: í eyðimerkurhémðun-
um í austurhluta Utah fór það eins og
skógareldur um allt: Hefndarenglarnir ríða í
nótt.
Fólk á afskekktum býlum skimaði hræðslu-
lega út á næstunni til að vita, hvort það sæi
reykský, þegar Hefndarenglamir vom á
ferðinni. Þeir vom böðlar mormónanna, sem
allir óttuðust og þeir hefndu alls þess óréttar
sem framinn var gegn trúbræðrum þeirra.
Það varð að binda endi á starfsemi þeirra,
ef Utah átti að komast í sambandsríkin. Það
varð að láta hart mæta hörðu og þar var
komið verkefni handa Morgan Kane.
Pétur - Páll
■ Bókaútgáfan Salt hefur sent frá ser tvær
bamabækur, Pétur og Pál. Fjalla þær um ævi
og störf postulanna Péturs og Páls, lýsa í máli
og myndum starfi þeirra að útbreiðslu
kristninnar. Em þær 24 bls. ríkulega mynd-
skreyttar af Lennart Frantzén. Textann
hefur skrifað Andres Kúng, sænskur rithöf-
undur og blaðamaður. Em bækumar ritaðar
sem ævisögur og em allspennandi á köflum.
Þýðandi er JóhannesTómasson, en bækurnar
em gefnar út í samvinnu margra þjóða,
setning og filmuvinna texta unnin af tækni-
deild Morgunblaðsins, en bækumar prentað-
ar í Englandi.
(|elgafclX
Veghúsastíg 5, Reykjavík.
Sími: 16837.
Hefurþað "/Jj
bjargað þér r
------ymjjFHRtwt 0---