Tíminn - 08.12.1982, Page 4
* ' -
Þingmenn ræða um það hvað gerist ef bráðabirgðalögin verða felld:
GREIÐA VERÐUR FULLAR VERÐ-
BÆÍUR EF LÖGIN VERÐA FELLD
— að mati Sigurdar Líndais, prófessors vid Lagadeild — Ólafur Jóhannesson
utanríkisráðherra á öndverðri skoðun
■ Túlkun á 1. grein bráðabirgðalag-
anna var til umræðu á Alþingi í gær utan
dagskrár og sýndist sitt hverjum. Mathí-
as Á. Mathiesen hóf umræður og vildi
fá að vita hvað lánsfjáráætlun liði og
skýrði síðan frá áliti Sigurðar Líndal
lagaprófessors á túlkun 1. gr. bráða-
birgðalaganna, sem prófessorinn skýrði
frá á fundi fjárhags-og viðskiptanefndar
efri deildar í gærmorgun, en hann var
beðinn að veita umsögn um frumvarpið.
Samkvæmt sögn Matthíasár lýsti Sig-
urður þeirri skoðun sinni að yrði bráða-
birgðalögin felld mundi koma til greiðslu
fullra vísitölubóta á laun frá þeim
degi er frumvarpið félli. Þannig mun
ekki virka til frambúðar sú ráðstöfun að
aðeins helmingur verðbóta verði
greiddur á laun. Ef bráðabirgðalögin
aftur á móti verða samþykkt er það álit
lagaprófessorsins, að ákvæði um helm-
ingslaunaskerðinguna gildi ekki aðeins
1. des héldur einnig framvegis þegar
verðbætur verða reiknaðar út. Krafði
Matthías fjármálaráðherra um hver væri
hans túlkun á þessum ákvæðum.
Ragnar Arnalds sagði óvíst hvort
lánsfjáráætlun yrði lögð fram fyrir jól og
áreiðanlega ekki afgreidd fyrir þann
tíma. Ljóst er að skera verður fram-
kvæmdaáform mikið niður og væri
hyggilegt að undirbúa lánsfjárlög sem
. best.
Um túlkun á bráðabirgðalögunum
svaraði fjármálaráðherra því, að það
gengju tröllasögur úr þingnefnd að
ummæli einhverra prófessora um að lög
sem ríkisstjómin setti merki eitthvað allt
annað en stjórnin og stjórnarandstæð-
ingar teldu að þau merki.
Ólafur Jóhannesson utanríkisráð-
herra sagðist vera á gagnstæðri skoðun
um túlkun 1. gr. bráðabirgðalaganna en
Sigurður Líndal var sagður vera. Hann
benti á fræðiskrif sín um þetta efni og
ummæli íMorgunblaðinunýlega. Ólafur
sagði lögfræðinga ekki alltaf á sama máli
um túlkun laga og þá væri leitað til
dómstóla. Ef svo undarlega færi að
bráðabirgðalögin yrðu felld og deilur
hæfust um gildistíma einhvers ákvæðis
yrðu dómstólar að skera úr.
Af því myndi leiða glundroða og
réttaróvissu og vænti hann þess að hver
og einn þingmanna hugsaði sig um
tvisvar áður en hann tæki þá áhættu að
fella bráðabirgðalögin.
Ólafur Ragnar, sem er formaður
fjárhags- og viðskiptanefndar efri deild-
ar, kvað óheppilegt að hlaupa í þingsali
með þetta mál. Sigurður Líndal hefði
skýrt nefndinni munnlega frá skoðun
sinni, en hafi óskað eftir að skoða
málið betur og gera endanlega skriflega
grein fyrir skoðun sinni á morgun (í dag,
miðvikudag). Bað hann menn að bíða
með ályktanir og niðurstöður þar til það
álit lægi fyrir. Nefndarformaðurinn sagði
þetta vera lagatæknilegt atriði sem hægt
væri að lagfæra í þinginu ef orðalag
orkaði tvímælis.
Karvel Pálmason sagði nauðsynlegt
að fá svör við því hvað væri hér eiginlega
á ferðinni.
Geir Hallgrímsson kvað nauðsyn á að
greiða úr flækjunni áður en málið kemur
til kasta þingfunda svo að menn viti hvað
þeir væru að fella eða samþykkja.
Eyjólfur Konráð sagði ekki vansalaust
af Alþingi að afgreiða frumvarp án þess
að þingmenn væru vissir um túlkun þess.
En virtir lögfræðingar væru á gagnstæðri
skoðun um túlkun á 1. greininni.
■ Hjörleifur Gultormsson, iðnaðarráðherra og aðstoðarmenn hans í álviðræðunum,
að loknum fundi í gærkveldi: Halldór Kristjánsson, Ingi R. Helgason og Vilhjálmur
Lúðvíksson. Tímamynd G.E
Enginn árangur
af álviðræöum!
■ „Því miður varð enginn árangur af
þessum fundum,“ sagði Hjörleifur Gutt-
ormsson, iðnaðarráðherra að loknum
fundum hans með dr. Múller, forstjóra
Alusuisse í gærkveldi. „Ég hef orðið
fyrir vonbrigðum eftir fundahöldin þessa
daga, en hinsvegar er staðan sú, að
viðræðunum hefur ekki verið slitið,“
sagði Hjörleifur, og bætti við er hann
var að því spurður hvort næsti fundur
hefði verið ákveðinn: „Annar fundur
hefur ekki verið ákveðinn, en það
verður metið í Ijósi skoðanaskipta milli
aðila á næstunni hvort að líkur eru á að
frekari fundahöld gefi árangur.“
„Ég get ekkert sagt um gang viðræðn-
anna, því við komumst ekki að neinni
niðurstöðu á þessum fundum okkar,“
saðgi dr. Múller forstjóri Alusuisse við
blaðamann Tímans að loknum fundar-
höldum síðdegis í gær. „Það er í höndum
iðnaðarráðhera að ákveða hvort og
hvenær næsti fundur aðila verður,“
sagði dr. Múller jafnframt, en sam-
kvæmt heimildum Tímans þá komu
Svisslendingamir til fundarins í fyrradag
með neikvæðar undirtektir við öllum
óskum íslensku aðilanna, en að loknum
fundi aðila fyrir hálfum mánuði lýstu
báðir aðilar því yfir að viðræðurnar
hefðu verið opnar og skoðanaskipti
jákvæð, þannig að þeir væru bjartsýnir
á framhaldið.
Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráð-
herra sagði þegar blaðamaður Tímans
spurði um hvaða atriði hefðu helst verið
til umræðu í þessum viðræðum: „Það er
vitað um það hverjar hafa verið óskir og
kröfur íslenskra stjórnvalda, og þegar
ég segi að þessi fundur hafi valdið
okkur miklum vonbrigðum, hvað snertir
viðbrögð gagnaðila, þá býst ég við að
það segi sína sögu.“
Hjörleifur sagði jafnframt að hann
ætti von á því að frekari tíðindi yrðu af
þessum vettvangi fyrir áramót.
-AB
Samtök herstöðvaandstæöinga:
fsland í hópi fárra
herskárra
■ „Með fráhvarfi frá hlutleysstefnunni
við inngöngu í NATO og með her-
verndarsamningunum við Bandaríkin
var snúið bakið við hinum gömlu
friðarviðhorfum hlutleysisins og því
fullveldi sem það tryggði,“ scgir meðal
annars í 1. desember ávarpi Samtaka
herstöðvarandstæðinga. Her-
stöðvaandstæðingar vitna til nýafstað-
inna atkvæðagreiðslana um vígbúnað-
ríkja
ar- og afvopnunarmál á Allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna og segja að ísland
hafi þar skipað sér í hóp örfárra
herskárra ríkja, sem neiti að fordæma
framleiðslu nifteindasprengjunnar og
styðji ekki tillögur um frystingu kjarn-
orkuvopna. Þannig hafi íslensk stjórn-
völd skipað landinu þétt í hóp þeirra
ríkja sem friðarvonunt og lífslíkum
mannkvnsins stafi mest hætta af.
Flest bendir til þess aöhugmyndum stjórnarskrár-
nefndar í kjördæmamálinu veröi ýtt til hliðar:
Hætt við uppbótar-
þingsæti og þingmönn-
um fjölgað um þrjá
■ Allt stefnir í það að meirihluti
Alþingis verði fyrir frumvarpi um stjóm-
arskrárbreytingu, þar sem ákveðið verð-
ur að þingmenn verði 63 talsins, þeir
verði allir kjördæmakosnir, og lands-
kjör þar með afnumið, og fjöldi þing-
manna í hvcrju kjördæmi verði fyrirfram
ákveðinn.
Formenn stjórnmálaflokkanna hafa
undanfarið rætt mismunandi leiðir í
kjördæmamálinu, og nú upp á síðkastið
hafa þingflokksformennirnir Ólafur
Ragnar Grímsson og Ólafur G. Einars-
son, ásamt formanni Alþýðuflokksins,
Kjartani Jóhannssyni rætt ofangreindan
valkost, en framsóknarmenn hafa ekki
tekið þátt í umræðunni um þennan
valkost, en hann er ekki einn af þeim
valkostum sem stjórnarskrárnefnd bend-
ir á í tillögum sínum.
Tíminn ræddi við Óiaf G. Einarsson,
formann þingflokks Sjálfstæðisflokksins
í gær um kjördæmamálið: „Málið er
það, að við þingflokksformenn höfum
um nokkurt skeið rætt saman til þess að
undirbúa fundi okkar formanna, sem
hafa umboð frá þingflokkunum til þess
að ræða sérstaklega um kjördæmamálið.
Ástæða þess að ekki hefur verið fulltrúi
Framsóknarflokksins í þessum við-
ræðum okkar,“ sagði Ólafur, „er að þær
tillögur til lausnar á þessu máli, sem hafa
vcrið í umræðunni allt framundir þetta,
þeim hefur í rauninni verið hafnað fyrir
löngu af Framsóknarflokknum. Þar á
ég við að Framsóknarflokkurinn hefur
ekki léð máls á fjölgun þingmanna,
nema hugsanlega um þrjá, og eina
tillaga þeirra til þessa hefur verið sú að
uppbótarmenn, 11 eða hugsanlega fleiri
færu allir á Suð-vestur-hornið, en þá
lausn teljum við alls ckki fullnægjandi.
Á meðan þetta var það eina sem
framsóknarmenn höfðu fram að færa í
umræðuna, þá töldum við tilgangslaust
að vera að ræða við Framsóknarflokk-
inn. Við höfum því verið að leita
annarra leiða, og Þorkell Helgason
hefur verið okkur innan handar með
útreikninga ýmis konar.“
Ólafur G. Einarsson var að því
spurður hvort skýrsla stjórnarskrár-
nefndar og tillögur allar hefðu þar með
verið lagðar til hliðar: „Ég veit ekki
hvort það á að orða það svo. Nefndin
hefur jú skilað sinni skýrslu og þar er
komið inn á svipaðar leiðir og við höfum
verið að ræða nú seinast. Ég mætti
kannski orða það svo, án þess að það sé
ákveðinn broddur í því, að stjórnar-
skrárnefndin sé svona einni til tveimur
vikum á eftir okkur í umræðunni um
þetta. Við erum búnir að sjá það, að
ýmsar leiðir sem nefndin hefur verið að
ræða, eru útilokaðar, vegna þess að það
fæst ekki meirihluti fyrir þeim í þinginu."
Ólafur var ekki reiðubúinn til þess að
skýra út í smáatriðum, hvaða leið hefði
helst verið til umræðu hjá þremenning-
unum síðustu daga, en sagði: „Þessi icið,
er að mínu mati, sú leið, sem mestir
möguleikar eru á að samstaða allra
flokka náist um. Þingmennirnir yrðu 63,
en við útreikning á skiptingu milli
kjördæma yrði svokallaðri Lague-aðferð
eða oddatöluaðferðinni beitt. Ég tek
það mjög skýrt fram, að sú aðferð hefur
ekki enn verið samþykkt hjá neinum
flokkanna, en ég tel hana vænlegasta.
Þessi reikningsregla við skiptingu á milli
kjördæma hefði það í för með sér að við
losnuðum við uppbótakerfið. í raun
yrðu allir þingmennirnir kjördæma-
kjörnir, og tala þingmanna í hverju
kjördæmi yrði fyrirfram ákveðin, en
svo er ekki í dag, eins og kunnugt er.
Það væri eftir sem áður hægt að nota
hina reikningsaðferðina, d’Hondts-að-
ferðina við úthlutun heildarsæta til
þingflokkanna. Með þessu móti væri
minni flokkum auðveldað að komast að,
og stórum flokkum væri gert ókleift að
halda meirihluta sæta, út á minnihluta
atkvæða."
Ólafur sagði jafnframt: „Á milli
flokka kæmi þetta þannig út, að nær
fullur jöfnuður næðist, en það er jú eitt
meginmarkmiðið sem Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur sett sér í kjördæmamálinu.
Þessi jöfnuður næðist vegna þess að
sætum yrði úthlutað eftir landsfylgi á
milli flokka. Það eina ruglar þvt' er það
að það stendur ekki ailtaf á heiíum
mönnum. Mismunurinn gæti þvt orðið á
bilinu 2 til 5%, en er 20% í dag.
Varðandi jöfnuðinn á milli kjördæma,
þá viljum við steína að því, að vægi á
milli Reykjavíkur og fjögurra minnstu
kjördæmanna fari ekki upp fyrir einn á
móti tveimur, en þetta er annað höfuð-
markmið okkar í kjördæmamálinu.
Með þessu kerfi scm við erum að ræða,
þá náum við jöfnuði á milli flokka og
meiri jöfnuði á milli kjördæma, með 63
þingmönnum. Ef við hins vegar höfum
áfram með núverandi kerfi, þá náum við
þessu ekki nema með mun meiri fjölgun
þingsæta, allt upp í það að þingmenn yrðu
67 eða 68, en ég Iteld að það sé ekki
meirihluti fyrir því í þinginu að fjölgunin
verði svo mikil."
Ólafur sagði að mikilvægt væri að
ganga frá frumvarpi um kjördæmabreyt-
inguna, núna fyrir jól. Þannig að á það
myndi reyna í þessari viku og þeirri
næstu hvort samkomulag allra flokka
næðist þar um, eða hvort frumvarpið
yrði lagt fram með öðrum hætti.
Ólafur sagði jafnframt að þótt þarna
væri um breytingu á kosningalögunum
að ræða, að hluta, þá yrði ekki kosið
samkvæmt breyttum kosningalögum í
næstu kosningum, því allir aðilar væru
sammála um að breytingar á kosninga-
lögunum og stjórnarskránni væru óað-
skiljanlegir hlutir. Sagðist Ólafur telja
vilja meirihluta vera fyrir því að sem
mest af þessum breytingum yrðu settar
inn í kosningalögin, og nánast ekkert
annað en tala þingmanna yrði í stjórn-
arskránni, þannig að ef menn vildu
breyta síðan, svo sem að færa sæti milli
kjördæma, þá yrði aðeins um einfalda
lagabreytingu að ræða.
-AB