Tíminn - 23.12.1982, Page 20
Opið virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
H
hedd
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgð á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
Gagnkvæmt
tryggingafé/ag
HÖGGDEYFAR
QJvarahlutir áíTSsw
FIMMTUDAGUR 23. DES.19S2
■ - Þessi árlega flugelda-
sala hefur verið okkar eina
tekjulind og það má því
segja að við stöndum og
föllum með því hvernig
salan gengur. Við verðum
bara að vona að þetta
dæmi gangi upp því annars
lendum við í verulegum
rekstrarerfiðleikum, sagði
Benedikt Þ. Gröndal,
sveitarforingi Hjálpar-
sveitar skáta í Reykjavík
er hann var inntur eftir
undirbúningi fyrir hina ár-
legu flugeldasölu hjálpar-
sveitarinnar.
Að sögn Benedikts þá liggur gífurleg
Gífurlegt undirbúningsstarf hefur verið unuið vegna flugeldasölunnar. Hér er verið að flokka flugelda, en um 30 manns
a ir.mu: nn nm tioinnv ■> muAan ó hoccarí vínnu ctóð Xímamyndi Róbert
undirbúningsvinna í flugeldasölunni. mættu á hverju kvöldi og um helgar á meöan á þessari vinnu stóð
ytÐ STONDUM 0G F0LLUM
MEÐ FLUGELDASÖLUNNI”
segir Benedikt Þ. Gröndal, sveitarforingi
Hjálparsveitar skáta í Reykjavík
Sjálfboöaliðar hafa nú um tveggja vikna
skeið unnið öll kvöld og helgar við að
pakka og flokka flugelda og bara í
Reykjavíkurdeildinni hafa um 30 manns
mætt í þessa sjálfboðavinnu á hverju
kvöldi. Þaö er Landssamband Hjálpar-
sveita skáta sem flytur flugeldana inn,
en hinar ýmsu deildir sjá svo um söluna.
- Ég býst við því að það verði a.m.k.
40 manns í vinnu við að selja flugeldana,
en við verðum með fimm útsölustaði,
segir Benedikt, en þessir staðir eru
Skátaheimilið við Snorrabraut, Volvo-
salurinn, Ford-húsið í Skeifunni, Alaska
í Breiðholti og Seglagerðin Ægir á
Grandagarði.
Fjölskyldupakkar
á 350-1300 krónur
Sem fyrr verða hinir vinsælu
fjölskyldupakkar á hoðstólum hjá Hjálp-
arsveitinni, en pakkar þessir hafa að
geyma fjölskrúðugt úrval hinna fjöl-
mörgu flugelda- og blystegunda. Að
sögn Benedikts verður Hjálparsveitin
með fjórar stærðir af fjölskyldupökkum
nú í ár sem endranær og kosta þessir
pakkar 390 krónur þeir minnstu, 490
krónur og 690 krónur og þeir stærstu
kosta svo 1300 krónur. Sagði Benedikt
að þessir pakkar gæfu góða mynd af því
úrvali sem væri til af þessum vörum, en
því væri ekki að neita að þeir stærstu
hefðu jafnframt upp á mesta fjölbreytn-
ina að bjóða.
„Lífsnauðsyn að vel gangi,,
Á síðasta ári mun andvirði flugelda- •
sölu Hjálparsveitarinnar hafa numið um
einni og hálfri milljón króna. Við
■ Benedikt Þ. Gröndal, sveitarforingi
Hjálparsveitar skáta í Reykjavík.
Timamynd Ella
spuröum Benedikt hvaða vonir væru
bundnar við flugeldasöluna í ár.
- Því fer fjarri að það hafi verið um
nokkra magnaukningu að ræða hjá
okkur í sölu undanfarin ár. Við höfum
komist upp að ákveðnu marki og þar
höfum við haldið okkur. Það má vel vera
að við þurfum að leggja harðar að okkur
að þessu sinni en oft áður til að halda
okkar markaðshlut, þar sem við höfum
frétt að við megum eiga von á aukinni
samkeppni í ár. En eins og ég gat um
þá er það okkur lífsnauðsyn að vel
gangi. Við höfum náð endum saman
með þessari flugeldasölu, þannig að
dugað hefur fyrir endumýjun tækja og
daglegum rekstri. Við eigum von á mjög
fullkomnum björgunarbíl til landsins
næsta ár, en það verður svo bara að
koma í ljós hvað við getum gert á öðrum
sviðum, sagði Benedikt Þ. Gröndal.
- ESE
fréttir
Friðarblysför
■ Samtök herstöðva-
andstæðinga gangast fyrir
friðarblysför í dag
kl. 17.30. Göngufólk kem-
ur saman á Hlemmi, þar
sem Atli Gíslason flytur
stutta hvatningu. Að því
búnu verður blysum brugð-
ið á loft og gengið niður
Laugaveg í Lækjargötu þar
sem staldrað verður við og
hlýtt á ávarp Guðrúnar
Ólafsdóttur Iektors í landa-
fræði. Með í för verður
Pershing 2 eldflaug, ein
þeirra 572 sem íslendingar
ásamt öðrum NATO þjóð-
um hyggjast koma upp í
V-Evrópu eins og segir í
frétt frá Samtökum her-
stöðvaandstæðinga. Verð-
ur eldflaugin reist í skot-
stöðu við Lækjargötu",
„sem tákn þess friðar sem
íslendingar boða öðrum
þjóðum heims um þessi jó!“
segir ennfremur í fréttinni.
Fundarstjóri á fundinum í
miðbænum verður Pétur
Reimarsson.
Þór Vilhjálmsson
forseti
Hæstaréttar
■ Umnæstuáramótlætur
Logi 'Einarsson af störfum
sem forseti Hæstaréttar.
Hefur Þór Vilhjálmsson
hæstaréttardómari verið
kosinn forseti í hans stað
frá 1 .janúar 1983 til ársloka
1984. Þá hefur Magnús Þ.
Torfason hæstaréttadóm-
ari verið kjörinn varafor-
seti Hæstaréttar til sama
tíma.
dagur til jóla
dropar
Er ég að koma
eða fara?
■ Þessum er stolið úr Sjó-
mannablaðinu Víkingur:
Daníval bóndi á Litla-Vatns-
skarði var drykkfelldur og oft
skrítinn í tilsvörum. Einu sinni
kom hann drukkinn að Stóra-
Vatnsskarði. Hann þáði þar
góðgerðir, og er hann hafði
dvalið alllengi fvlgdi Guðrún
hnsfreyja homim Fl dyra.
Danival fer nú á bak hcsti
sínum, situr nokkra stund
þegjandi á hestbaki, snýr sér
síðan að húsfrcyju og segir:
„Segðu mér nú eins og er,
Guðrún mín, Er ég að koma
eða fara?
Bara eftir að
undirrita
samninginn
■ Ekki er úr vegi að drjúpa
örlítið í tilefni eins af maraþon-
fundum Hjörleifs Guttorms-
sonar iðnaðarráðherra um ál-
málin, sem eru farin að heyra
undir klassísk mál í íslenskri
stjórnmálaumræðu. Ráðherra
hélt sem sé einn slíkan fund í
gær með fréttamönnum fjöl-
miðlanna þar sem hann kynnti
það sem hann sjáifur kallar
,,Samkomulagsgrundvöll“ sem
hann héfur lagt fyrir erlenda
anðhringinn Alusuisse, en eins
og kunnugt er hafa viðræður
verið í strandi um nokkurt
skeið. Þegar menn fóru svo að
glugga í samkomulagsgrund-
völlinn svonefnda, hvað sáu
þeir þá? Jú, þarna var komið
samningsuppkast, að vísu
óundirritað. Varð mönnum að
orði að hjálpsemi og Ijúf-
mennska ráðherrans væri ein-
stök, því hann tæki í rauninni
allt ómakið af Svisslendingum
og væri búinn að semja næsta
álsamning, og nú þurfa Alu-
suissemenn aðeins að koma
einu sinni enn til landsins, en
það verður að sjálfsögðu til
þess eins að undirrita samning-
inn hans Hjörleifs.
Krummi ...
...er hissa á Hjörleifi að hann
skuli ekki óska eftir umboði
frá Svisslendingum og heimiid
tií að ganga trá deiiuatriðunum
i eiu skipti týnr öll.