Tíminn - 09.01.1983, Qupperneq 15
SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1983
15
krossgáta'
855 Auglýsing
um fargjöld Strætisvagna
Reykjavíkur.
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti á fundi sírium 7. janúar 1983 að
fargjöld S.V.R. skuli vera sem hér segir: I Fargjöld fullorðinna: 1. Einstök fargjöld ... .• kr. , 12.00
2. Stór frarmiðaspjöld með 22 miðum kr. 200.00
3. Litil framiðagjöld með 5 miðum kr. 50.00
4. Farmiðaspjöld aldraðra með 22 miðum . . kr. , 100.00
II
Fargjöld barna: 1. Einstök fargjöld kr. 3.00
2. Farmiðaspjöld með 30 miðum kr. 50.00
Framangreind gjaldskrá öðlast þegar gildi.
Reykjavík, 7. janúar 1983.
Davíð Oddsson,
borgarstjóri.
MYNDUSTA-
OG HANDÍDA SKÓL !
ÍSLANDS
Ný námskeið hefjast
20. janúar til 1. maí 1983
1. Teiknun og málun fyrir börn og unglinga.
2. Teiknun og málun fyrir fullorðna.
3. Bókband.
Námskeið hefjast fimmtudaginn 20. janúar.
Innritun fer fram daglega á skrifstofu skólans,
Skipholti 1.
Námskeiðsgjöld greiðist við innritun áður en
kennsla hefst.
Reykjavík, Skipholt 1, sími 19821
erlend hringekja
Reyndi Claus von Bulow að myrða Sunny?
DÆLDI
INSIJLIN
í KONU SÍNA
Gefur út bok til að skýra sína hlið á málinu
■ Claus von Bulow,
málflutningsmaðurinn sem kvæntist
bandarískri milljónakonu og reyndi
síðar að myrða hana, mun innan
skamms greina frá því sem
samstarfsmenn hans kalla „gífurlega
markverðan útgáfusamning", þ.e. sölu
á réttinum til að segja frá hans hlið í
sakamálinu. Meðan réttarhöld yfir
honum voru haldin synjaði hann
beiðni margra útgefenda um slíka
frásögn, en síðan í mars á þessu ári
eftir að undirréttur sakfelldi hann fyrir
morðtilræði hefur hann verið önnum
kafinn við skriftir; það er meira segja
haft á orði að kvikmynd sé í
burðarliðnum.
. Kona hans, Sunny, er ekki jafn
heppin. S.l. þriðjudag verða liðin tvö
ár frá því hún féll í kóma - djúpan
svefn. Líkami hennar starfar eðlilega
en í heila hennar á engin hugsun sér
stað. Hún hefur aldrei komist til
meðvitundar eftir að eiginmaður
hennar gaf henni insúlín sprautu í
annað sinn í íbúð þeirra í Newport á
Rhode Island.
Von Bulow gengur laus þrátt fyrir
dóminn þar eð hann hefur lagt fram
eina milljón dollara í tryggingargjald
á meðan málið er rekið fyrir
áfrýjunarrétti. Málavafstur fyrir hann
annast kunnur lagaprófessor við
Harvardháskóla, Alan Dershowitz.
Annað stríð geisar á sama tíma milli
von Bulows og stjúpbarna hans
Alexanders og Ölu og verður æ
bitrara. Það var rannsókn á þeirra
eigin vegum á örlögum móðurinnar
sem leiddi til ákærunnar á hendur von
Bulow. Án íhlutunar þeirra væri hann
kannski áhyggjulaus maður enn í dag.
Sunny og von Bulow áttu eina
dóttur saman, hina 15 ára gömlu
Cosimu. Hún hefur nú ráðið sér sinn
eigin lögfræðing vegna þess hve mikil
óvissa ríkir um framtíðina. Hún var
góð vinkona stjúpsistkyna sinna,
Alexanders og Ölu, en viku áður en
faðir hennar var dæmdur i 30 ára
fangelsi batt hún enda á öll samskipti
við þau. Nú býr hún með föður sínuni
i íbúð Sunny á Fifth Avenue í New
York.
Ala á íbúð í sama fjölbýlishúsinu,
en þar sem í það eru tveir aðskildir
inngangar þurfa þau von Bulow og
stjúpdóttir hans ekki að hitta hvort
annað. Einn vina hennar segir að það
sé líka eins gott því Ala geti ekki
hugsað sér að líta hann augum, „og
það er auðvelt að ímynda sér hvers
vegna.“
Dómarinn á Rhode Island sem
dæmdi von Bulow í þrjátíu ára fangelsi
hefur sagt að hann sé maður sem hann
beri enga virðingu fyrir.
Eftir að hann var látinn laus hefur
von Bulow orðið vinsæl í
samkvæmislífinu á Manhattan. Hann
;a ni||
j „ rj
^ y
í- ■ A,(■ I
■ Claus von Biilow kemur út úr réttarsalnum í Newport þar sem dómsmálið gegn
lionum var tekið fyrir s.l. sumar.
sækir partí vina og viðhlæjenda og er
ekkert feinunn við að lala um
málareksturinn og þær sakir sem hann
er borinn. Sumum virðist hann fremur
hreykinn en hitt.
Lögfræðingar von Bulows hafa
ráðlagt honum að heimsækja ekki
konu sína á sjúkrahúsið. Hafa verður
í huga, segja þeir, að hann er sakaður
og sakfelldur fyrir að reyna að stytta
henni aldur og ef eitthvað mundi koma
fyrir þá á sjúkrahúsinu meðan hann væri
þar nærri yrði hann væntanlega
skotspónn.
Sunny, sem er fimmtug að aldri,
gæti legið í dásvefninum í áratugi í
viðbót, en það er líka hugsanlegt að
minniháttar baktería sem gestkomandi
bæri með sér mundi binda cnda á líf
hennar.
Vörður vaktar herbergi hennar allan
sólarhringinn. Fyrir innan situr
hjúkrunarkona yfir henni. Á síðasta
ári kostaði öll þessi umönnun hvorki
meira né minna en 375.465 dollara.
Læknir lítur til hennar næstum á
hverjum degi, en fær ekki að gert.
Heilastarfsemi er engin. Hún liggur í
rúminu í sams konar stellingu og
fóstur í móðurkviði, en hjúkrunarkona
snýr henni á hlið á tveggja tíma fresti.
í viðtali sem von Bulow átti við
fréttakonuna hálaunuðu Barböru
Walters nýlega kvað hann það sína
einu von að Sunny mundi einn daginn
vakna úr dáinu og „skýra málin.“ En
á því cru aftur á móti litlar líkur, og
framtíð von Bulows veltur á
viðbrögðum áfrýjunarréttarins.
Skyldi það breyta einhverju um
bókina sem hann hefur í smíðum ef
hann verður sekfelldur á ný og þarf
að fara í fangelsi? „Nei,“ segir vinur
hans kvikmynaframleiðandinn Sheldon
Reynolds. „Þetta tvennt er algerlega
aðskilið. En auðvitað verður endirinn
á bókinni þá öðruvísi."