Tíminn - 09.01.1983, Qupperneq 17
SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1983
17
nútíminn
Umsjón: Friðrik Indriðason
■ PASS á léttu brokki í Síðumúlanum - f.v. Karl, Þórhallur, Hákon, Heimir og Birgir. Nú-Tímamynd Róbert.
„ÞESSI BRANSI ER ORÐINN
SJIJKUR AF KLÍKUSKAP”
segja meðlimir Mosfellssveitar-bandsins, PASS
■ Nú árið er liðið í
aldanna skaut og aldrei
það kemur til baka... sem
betur fer segja sumir en
varla unnendur tónlistar
þeirra sem skrifað er um á
þessum síðum, fyrir þá
hefur árið 1982 verið vel í
meðallagi að mínum dómi.
Hér er ætlunin að stikla aðeins á stóru
og smáu í tónlistarviðburðum ársins, á
mátulega ábyrgðarlausan hátt og er alls
ekki um tæmandi úttekt að ræða.
í byrjun ársins kvaddi ný hljómsveit
sér hljóðs, Mogo Homo. Tveir nýróm-
antískir strákar úr Taugadeildinni sál-
ugu. Byrjunin ekki beint glæsileg voru
með tónleika í Hollywood og léku fyrir
„blindfullt vísitölupakk og bláedrú diskó-
unglinga“ eins og einhver lýsti senunni
enda var þessi sveit dottin uppfyrir er ég
fór að skipuleggja sumarfríið mitt sem
ég komst svo aldrei í. Aðrar fréttir úr
fyrsta mánuði síðasta árs sem ollu
nokkru umtali voru að von var á bresku
súpergrúppunni The Human League til
landsins..
Fræbbblarnir héldu utan í feb. á
hálfgerðan bömmer í hinum rómaða
Club 7 í Osló. Fyrripart tónleikanna var
„sándið allt í graut" eins og einn
meðlimur þeirra sagði, lagaðist seinni-
hlutann og þá fengu gestir óvænta
uppákomu, einn norsarinn varð svo
heillaður af þeim Fræbbblum að hann
svipti sig klæðum og dansaði allsnakinn
undir tónlistinni. Að loknum tónleikum
var svo gítörum sveitarinnar stolið.
Aðrar fréttir í feb. voru að Q4U
sveitin hlaut ljós vikunnar hjá þeim
Luigi og Benna Pís og feiknamikil
tónlistarhátíð FÍH var haldin í Broad-
way, nær eingöngu fyrir afdankaða
skallapoppara, Glaumbæjarstemmning
hjá liðinu Gunna Þórðar et al.
Úrslit í vinsældakosningum Nútímans
voru kunngerð í mars-mánuði og þar
kom, sá og sigraði Bubbi Morthens með
bæði besta lagið og bcstu plötuna.
Egó-sveitin hélt svo tónleika skömmu
síðar og sagði Luigi að þeir hefðu aldrei
verið betri, þá nýbúnir að fá Magnús
sem trommara, í stað Jóa Motorhead
sem alltaf átti taugar hjá Nútímanum en
hann stofnaði hljómsveit í byrjun vorsins
sem ekkert hefur heyrst um síðan.
Er kom fram á sumarið fór að heyrast
orðrómur um að í bígerð væri risarokk-
hátíð, undir beru lofti með tilheyrandi
húllumhæi og fjölda hljómsveita en
þetta reyndist aðeins vera loftbóla.
Raunar greip einn aðili hugmyndina á
lofti og stóð fyrir Melarokkinu en meir
um það síðar.
í júní-mánuði koma svo goðin The
Human League til landsins eftir nokkuð
langa veru á toppnum í Bretlandi í
byrjun ársins. Bubbi og Egó hituðu upp
og voru þeir að margra mati mun betri
en aðalnúmerið sem brást vonum
margra. í þessum mánuði brá ég mér í
Óðal og hlustaði á nýja sveit, Sonus
Futurae sem nú hafa slett skyrinu í allar
áttir. Eitt enn úr þessum mánuði,
Stuðmenn brugðu sér til Noregs í
myndatökur og léku á Club 7 í leiðinni.
Stuð-búðin opnar í byrjun júlí mörg-
um til mikillar ánægju og Comsat
Angels eiga að koma og haida hér
tvenna tónleika. Ekkert verður þó af
þeim að sinni vegna kergju í Félagsstofn-
un stúdenta en sú stofnun mun þá hafa
verið orðin nokkuð langþreytt á tónleika-
haldi innan sinna veggja. Tappi tíkarrass
byrjar að meika það hér á nýbylgjusvið-
inu og Rokkhátíð er haldin á Borginni
og í Austurbæjarbíói. Fréttir berast afþví
að von sé á Eyeless in Gaza til landsins.
Ein efnilegasta nýbylgjusveit landsins
Purrkur Pillnikk safnast til feðra sinna í
byrjun ágústmánaðar og var það „harm-
dauði“ mörgum. Svanasöngur þeirra var
á Melarokkinu sem tvímælalaust verður
að telja einn merkasta tónlistarviðburð
fyrra árs en þar mættu einar 14 sveitir
til leiks, sumar frábærar, aðrar hálfgerðir
bömmerar. Comsat Angels geta svo
loksins haldið hér tvenna tónleika í
Tjarnarbíói, hreint frábæra.
Björgvin Halldórsson og félagar eyða
sept. í Rússlandi við frábærar viðtökur,
á einum mánuði ferðast þeir allt austur
til Síberíu og mega heimamenn vart vatni
halda at hrifningu. Tvær af nýju sveitun-
um Tappi tíkarrass og Jonee Jonee gefa
út sínar fyrstu plötur, ESE mætir til liðs
við Nútímann en það bárujárnsrokk- og
bjórtröll er nú horfið norður fyrir heiðar
og væntanlega mun maður skrifa tárum
prýdd eftirmæli um þann mæta mann.
Þeyr fengu heldur betur á baukinn á
þessari síðu í sept. fyrir meintar nasista-
pælingar sínar en þeir komu málunum á
hreint, sögðu að þetta væru andnasískar
og fasískar pælingar hjá þeim. Sennilega
of djúpar fyrir þorra fólks.
Rokksveitin Start klofnaði í byrjun
okt. en Pétur og félagar héldu ótrauðir
áfram enda hefur það sýnt sig í gegnum
árin að hann er hreint ódrepandi í
þessum bransa. í ljós kemur að þunga-
rokkströllið lan Gillan, sem hingað átti
að koma, kemst ekki en fáir virðast
harma það að ráði., E.K. Bjarnason
Band stingur inn höfðinu á skrifstofur
Nútímans í þessum mánuði og tilkynnir
að Emil bögglaberi sé andlegur leiðtogi
bandsins. Tveir jazz-viðburðir eru í
þessum mánuði Charlie Haden og
félagar og AIR eru með tónleika hér.
Fangar á Hrauninu gefa út plötuna
Rimlarokk og geta húsmæður í vestur-
bænum vart náð andanum af hneykslun
yfir því athæfi, raunar er varla enn séð
fyrir endann á fangaumræðunni sem
spratt upp skömmu síðar...
Hljómsveitin ÞEYR kemur heim úr
tónleikaför um Norðurlönd í nóv. Raun-
ar ætluðu þeir sér einnig til Bretlands en
sá túr fór í vaskinn. Hins vegar vöktu
þeir mikla hrifningu hjá frændum
vorum. Einar Örn úr Purrknum stofnar
nýja hljómsveit Jisz en Joncc Jonee
lendir handan grafar.
Músíktilraunir SATT eru settar í gang
á fullu og jafnhliða ákveður SATl' að
setja heimsmet, halda lengstu samfelldu
tónleika í mannkynssögunni. Q4U halda
í stúdíóið að taka upp sína fyrstu plötu.
í jólamánuðinum kemur út ný plata
með ÞEY The Fourth Reich, raunar
gefin út fyrst í Bretlandi en albúm
hennar fer eitthvað fyrir brjóstið á
breskum og setja þeir lögbann á það.
Fræbbblarnir sýna á sér nýjar hliðar með
nýrri plötu sem bæði hefur að geyma
kántrýlag og rólegt blúeslegt lag. DRON
sigrar í músíktilraunum SATT. Jólin
voru að sjálfsögðu Stuðmanna-jól, þeir
héldu nokkra tónleika í kjölfar frumsýn-
ingar á myndinni „Með allt á hreinu" og
ekki er annað hægt að segja en að þeir
hafi séð og sigrað fleiri en Sigurjón
digra. Ég og ESE dettum svo í það á
heimsmetsfagnaði SATT á Broadway og
þar með er pistillinn ekki lengri.
-FRI
■ - Ég býst við því að við værum enn
inni í bílskúrnum cf Jóhanns G. Jó-
hannssunar hjá SATT hefði ekki notið
við. Hann heyrði í okkur á maraþon-
hljómleikunum og dreif okkur í Músiktil-
raunirnar þar sem við komumst í úrslita-
kcppnina. Þó að úrslitin hafi ekki orðið
okkur eins hagstæð og við hefðuin
kosið, þá var þetta mikilvæg reynsla sem
við erum þakklátir fyrir að hafa orðið
aðnjótandi.
Það er Karl Tómasson, trommuleikari
rokkhljómsveitarinnar PASS, sem mælir
þessi orð, en hann og félagar hans í
hljómsveitinni komu við á Nútímanum
fyrir skömmu og sögðu okkur utan og
ofan af sínum högum.
- Við byrjuðum að spila opinberlega
á þjóðhátíðardaginn í ár, segir Birgir
Haraldsson, söngvari og Þórhallur
„Bassi“ Árnason' bætir því við að
vitaskuld hafi þeir komið fram í
Hlégarði í fæðingarsveitinni á sínu fyrsta
balli.
- Við áttum ekkert frumsamið efni
Hótel Borg 6. janúar 1983 -Box/Sonus
Futurae
■ Þegar undirritaður mætti á Hótel
Borg þetta kvöld vorum við tveir
gestirnir. Hinn kom til þess að fá sér
neðan í því að ég held. Einn meðlima
Sonus Futurae hélt ég væri jólaskraut
sem hefði villst inn eða dottið af
jólatrénu í salnum. Er áhorfendum
hafði fjölgað um rúmlega helming
byrjaði Box sitt prógramm með því að
setja í gang trommuheila á segulbandi.
Fyrsta lagið, sem sungið var á ensku, var
rólegt og hæfði vel þeim róleghcitum
sem voru í gangi. En eftir það var bara
einsog hljómsveitin væri að vinna þarna.
Söngvari Box, sem syngur undir
greinilegum áhrifum frá hljóðgerfla-
poppsöngvurum eins ogt.d. Phil Oakey,
var klæddur líkt og synir enskra óðals-
bónda í sjónvarpsleikritum. Hann söng
svolítið drungalega en hafði gott vald á
röddinni. En sviðsframkoman ogtónlist-
þá, segir Karl, - en það varð svo úr sl.
haust cftir að við vorum búnir að spila
á ýmsum stöðum að við skriðum inn í
bílskúrinn og tókum að æfa frumsamið
efni.
Allir meðlimir PASS hafa einhvcrn
tímann búið í Mosfellssveit utan einn og
það var í Mosfellssveitinni sem leiðir
þeirra PASS-manna lágu fyrst saman.
Hákon Möller, gítarleikari, hinn eini
sem aldrei hefur verið kcnndur við
Mosfell hneigir nú til orð og segir að það
sé óþolandi að vera í óþekktri hljómsveit
á íslandi og hinir taka heilshugar undir
það.
- Ég er viss um að við hringdum í
hvert eitt einasta félagsheimili á landinu
í sumar og spurðum hvort við gætum
fengið að spila, en svörin voru öll á cinn
veg, segir Heimir Sigurðsson, hljóm-
borðsleikari.
- Já, cftir að búið var að hnoðast með
nafn hljómsveitarinnar, „Hass“, „Tass“!
„Rass“l, nú „Pass“l, þá var okkur sagt
að við gætum enga vinnu fengið, segir
Karl.
Þeir félagar eru sammála um að
in varð ansi flatneskjuleg þegar á leið,
hvert lag hófst á tic tic tictictictic frá
segulbandinu og endaði með því að
slökkt var á því. Auk þess var harla lítið
líl í lögunum og hljóðfæraleikararnir, scm
allir voru öruggir á sín tól, voru
augljóslega bældir á þann hátt að þeir
gátu ekkert leyft sér að gera sem
fyrirfram var ekki fast ákveðið. Svoleiðis
gerir það oftast að verkum að tónlistin
verður óspennandi og áhorfendur vita
allan tímann hvað gerist næst.
Annar stór galli er á tónlist Box. Fyrir
utan lagið Box, sem er af fyrri plötu
þeirra, finnast fáar sterkar melódíur.
Svona músík sem byggist upp af vélræn-
um tromuleik er nánast dæmd til að vera
melódísk því annars verður hún bara
meðalmennskuleg og rennur út í það að
verða samfellt suð.
En ekki áfellist ég þá að hafa ekki
verið fjörugari en þeir voru því fjöldinn
í salnum nægði varla í eitt danspar. Það
var ekki fyrr en um kl. hálf tólf að
„Bransinn" í dag sé orðinn alveg sjúkur
af klíkuskap. Þessi sami „bransi" sé
jafnframt búinn að fara eins illa og
hugast getur með margar góðar hljóm-
svcitir.
- Það eru margar góðar hljómsveitir
scm bara híma inni í bílskúrunum og
þora ekki út, segja PASS og eru nú
farnir að roðna af innibyrgðri reiði. Og
lái þeim það hver sem vill. PASS-arar
hafa verið mikið frá vinnu vegna æfinga
og sama og ekkert fengið fyrir sinn snúð,
en nú scgjast þeir þó eygja Ijósglætu við
sjóndcildarhringinn - þakkað veri Jó-
hanni G. og Múskitilraunum.
Þeir sveinar hafa lokið við gerð
„prufuupptöku", en á dagskránni er
plötuútgáfa með vorinu. Að lokum
bjóðum við PASS að segja nokkur orð
að lokum og var það vel þegið. Það sem
PASS vildi segja var þetta:
- Við vonum bara að fólk fari að gefa
lifandi tónlist meiri gaum og óþekktum
hljómsveitum fleiri tækifæri. Þaðerfullt
af bílskúraböndum þarna úti og ef þau
fá að blómstra þá er framtíðin björt.
eitthvað fór að fjölga en þá höfðu Sonus
Futurae horfið af sviðinu og Box byrjað
aftur. Upp úr tólf voru þeir síðan
byrjaðir að endurtaka prógrammið.
Hæfileikar meðlima Box myndu áreið-
anlega njóta sín betur ef þeir væru
óheftir og ef hljómsveitin legði meira í
tónsmíðarnar.
Þrátt fyrir að grunnur Sonus Futurae
kæmi af segulbandi voru þeir sprell-
fjörugir, bæði í tónsmíðum og fram-
komu. Aðeins textar þeirra, sem heyrð-
ust orð fyrir orð, samræmdust ekki
kraftinum þar sem þeir fjalla að mestu
um hluti sem tæpast þarfnast útskýringa,
t.d. að skyr sé hollt, að sólbrúnar stelpur
séu freistandi og myndbandið hafi náð
vinsældum. En lögin sem flest ef ekki öll
voru af plötu þeirra eru grípandi,
skemmtileg og einföld í útsetningu.
Hvort sem þeir eru hljómur framtíðar-
innar veit ég ekki en allavega voru þeir
góður hljómur þeirrar stundar sem þeir
komu fram á. Það var bara synd hvað
fáir voru mættir þetta kvöld því hljóm-
sveitin fékk enga uppörvun nema
kannski nokkur deigkennd lófaklöpp
sem frekar verka óuppörvandi.
Bra
Tic, tíc...