Tíminn - 23.01.1983, Blaðsíða 16
SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 1983
■ Laugardaginn 22. janúar nk. kl.
15.00 frumsýnir Þjóðleikhúsiö barna-
leikritið LÍNU LANGSOKK, eftir Astr-
id Lindgren. Hér er um að ræða nýja
söngleiksgerð eftir bókunu'm um þá
margfrægu Línu. Tónlistin í sýningunni
eftir Svíann Georg Riedel, en hann
samdi einmitt tónlistina við vinsæla
sjónvarpsþætti um Línu Langsokk, sem
íslenska sjónvarpið sýndi fyrir nokkrum
árum. Þórarinn Eldjárn hefur íslenskað
leikritið og söngtextana, lýsingu annast
Páll Ragnarsson, dansahöfundur er
Ólafía Bjarnleifsdóttir, Magnús Kjart-
ansson stjórnar sjö manna hljómsveit,
leikmynd og búninga gerir Guðrún
Svava Svavarsdóttir og leikstjóri er
Sigmundur Örn Arngrímsson.
Sigrún Edda Björnsdóttir leikur Línu
Langsokk, en meðal fjölmargra annarra
leikenda eru Júlíus Brjánsson og Edda
Björgvinsdóttir, sem leika Tomma og
Önnu, Sigurveig Jónsdóttir sem leikur
kennslukonuna, Guðmundur Ólafsson
og Sigurður Sigurjónsson sem leika
lögregluþjónana Klængog Hæng, Rand-
ver Þorláksson og Örn Árnason leika
innbrotsþjófana Glúm og Glám, Þór-
hallur Sigurðsson er umboðsmaður
sterkasta manns í heimi, Bessi Bjarna-
son leikur Langsokk, pabba Línu, Edda
Þórarinsdóttir leikur Frú Prússólín sem
■ Frú Prússólín frá barnaverndarnefndinni (Edda Þórarinsdóttir) með Línu langsokk í fanginu.
Nýtt barnaleikrit frumsýnt í Þjóðleikhúsinu:
Prakkarinn
Lína langsokkur
■ Dyttað að Sjónarhóli, húsinu sem Lína Langsokkur býr í.
er fyrir barnaverndarnefndinni, Guðrún
Þ. Stephensen leikur mömmu Tomma
og Önnu og Bryndís Pétursdóttir leikur
Frú Grenjastað, fína frú sem heyrir
orðið illa.
Það þarf væntanlega ekkert að kynna
Línu Langsokk fyrir íslendingum, því
bækurnar um hana hafa verið lesnar hér
í yfir 30 ár og komið út í mörgum
útgáfum. f leikritinu býr Lína að
sjálfsögðu að Sjónarhóli og lendir í
mörgum og margvíslegum ævintýrum.
Hún lendir í útistöðum við barnavernd-
arnefndina, lögregluna og innbrots-
þjófa, sem hún kennir í brjósti um. Hún
fer í fínt kökuboð og hneykslar betri
frúrnar og hún fer í skólann, en þar lærir
hún það eitt að sennilega kunni hún ekki
að haga sér í skóla. En eins og vera ber
í góðu ævintýri þá fer allt saman vel að
lokum og bæjarbúar vilja alls ekki missa
Línu af Sjónarhóli þegar hún ætlar á
sjóinn á ný með pabba sínum á
sjóræningjaskipinu.
Frumsýningin á Línu Langsokk er
sem fyrr sagði á laugardag kl. 15.00, en
önnur sýning verður á sunnudag kl.
15.00.
■ Lína (Sigrún Edda Björnsdóttir) sýnir Önnu (Eddu Björgvinsdóttur) og Glúmi
(Randver Þorlákssyni) tunguna sína.
■ Allt á fullu: Lína fæst við innbrotsþjófinn Glám (Öm Árnason). Hængur lögregluþjónn (Sigurður
Sigurjónsson) er á leiðinni og frú Grenjastað (Bryndís Pétursdóttir) horfir á.
■ Umboðsmaður sterkasta manns í heimi (Þórhallur Sigurðsson) ásamt Línu og Glámi. - Tímamyndir:
Róbert.