Tíminn - 06.03.1983, Blaðsíða 8

Tíminn - 06.03.1983, Blaðsíða 8
SUNNUDAGUR 6. MARS 1983 8 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurisson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreióslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elias Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjórar: Kristinn Hallgrimsson óg Atli Magnússon. Umsjónarmaður Helgar-Timans: Guðmundur Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Friðrik Indriðason, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson, Sonja Jónsdóttir. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristín Þorbjarnardóttir, María Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Síðumúla 15, Reykjavík. Sími: 86300. Auglýsingasími 18300. Kvöldsímar: 86387 og 86392. Verð í lausasölu 15.00, en 18.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 180.00. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf. Samningavið- ræðurnar um af- vopnunarmálin ■ Ólafur Jóhannesson, utanríkisráðherra, hefur lagt fram á Alþingi ítarlega, árlega skýrslu sína um utanríkismál. Þar er fjallað um ýmsa þætti alþjáðamála auk íslenskra utanríkismála sérstaklega. í skýrslu sinni fjallar Ólafur Jóhannesson um þær viðræður, sem nú standa yfir um afvopnunarmál í Genf, og segir þar m.a.: Eins og kunnugt er vildi Bandaríkjaþing ekki staðfesta SALT II samkomulagið milli Bandatíkjanna og Sovétríkjanna, sem undirritað var árið 1979. Það samkomulag fól í sér vissar hömlur á kjarnavopna- forða risaveldanna, sem þau geta skotið hvert á annað heimsálfa á milli, en hins vegar lítinn sem engan raunverulegan niðurskurð. Eftir því sem best er vitað hafa þó báðir aðilar virt í verki þær hömlur sem samkomulagið gerði ráð fyrir. Núverandi Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að hann teldi SALT II samkomulagið alls ófullnægjandi og því yrði að hefja samninga að nýju, seni fælu í sér raunverulegan niðurskurð kjarnavopna, en risaveldin gætu skotið heimsálfa á milli. Þessar viðræður voru samkvæmt þessu nefndar START (Strategic Arms Reduction Talks) og hófust þær sl. sumar. Það verður að teljast kostur að viðræður eru nú samtímis í gangi um bæði þessa tegund kjarnavopnaflauga og Evrópukjarnavopnin (INF) því að það gerir mögulegt að vísa umræðum um vopnategundir, sem aðilar eru sammála um að falli ekki inn í annan viðræðurammann, til meðhöndl- unar í hinum. Tillögur Bandaríkjamanna í þessum START-viðræðum voru þær, að báðir aðilar skyldu fækka sprengihleðslum sínum á eldflaugum, sem þeir geta sent hvor á annan, úr u.þ.b. 7.500 niður í 5.000 fyrir hvorn. Af þessum 5.000 skyldu 2.500 hið mesta vera á eldflaugum, sem staðsettar eru á landi. Jafnframt var lagt til að Bandaríkin og Sovétríkin skyldu hvort ríki um sig ekki hafa fleiri en 850 eldflaugar er senda má milli heimsálfa. Til þess að uppfyila þessi skilyrði þyrftu Bandaríkin að fækka í núverandi forða um helming en Sovétríkin um tvo þriðju hluta. Gagnrýni Sovétríkjanna á þessar tilllögur Bandaríkja- manna snúi fyrst og fremst að eldflaugum á landi, sem séu höfuðþátturinn í langdrægum kjarnavopnum Sovétmanna. Þeir hafa því lagt áherslu á að ekki verði um frekari fjölgun að ræða en auk þess verði samið um vissan samdrátt og takmarkanir. Það er ekki útilokað að afleiðingar START-viðræðnanna gætu orðið þær, að báðir aðilar legðu aukna áherslu á að koma kjarnaflaugum fyrir í kafbátum til þess að treysta jafnvægið sín á milli. Þar með myndi hernaðarlegt mikilvægi hafsvæðanna í nágrenni við ísland aukast og jafnframt umferð kafbáta búnum kjarnavopnum. Það gefur auga leið að slík þróun væri óæskileg og hættuleg fyrir ísland og því hljótum við að vonast til að niðurstöður START-viðræðnanna leiði til svo mikillar fækkunar í vopnabúrum risaveldanna að ekki aðeins kjarnavopnum á landi heldur einnig í kafbátum verði verulega fækkað frá því sem nú er. Fyrir þjóðir Vestur-Evrópu eru niðurstöður INF-viðræðnanna jafnvel enn mikilvægari en niðurstöður START-viðræðnanna. Eins og ég hef getið um hér áður hófust INF-viðræðurnar loks í Genf hinn 30. nóvember 1981. Bandaríkjamenn hafa lagt þarna fram æði róttækar tillögur, sem sagt að bæði Sovétríkin og Bandaríkin sættust á að hafa alls engar meðaldrægar eldflaugar á landi. Það myndi þýða fyrir Sovétríkin, að þau yrðu að taka niður og eyðileggja allar SS-20 eldflaugar sem þau hafa komið sér upp, svo og eldri SS-4 og SS-5 flaugar. Sovétríkin hafa vísað þessum hugmyndum á bug sem hreinni fjarstæðu og ýmsar raddir hafa einnig heyrst á vesturlöndum sem að nokkru taka undir viðbrögð Sovétmanna, en þá er það oftast undanskilið að Sovétmenn fái að halda einhverjum af sínum meðaldrægu kjarnaflaugum gegn því að einhverjum hluta hina 572 flauga NATO verði komið upp til mótvægis og/eða eitthvað tilllit verði tekið til kjarnaflauga Breta og Frakka. Ég hlýt fyrir mitt leyti að taka undir það að æskilegasta niðurstaða INF-viðræðnanna væri sú, sem Bandaríkjamenn hafa gert tilllögu urn og öll bandalagsríki þeirra hafa margoft lýst stuðningi við. Náist hún ekki fram hlýtur næsti kostur að vera að semja um svo mikla fækkun á uppsettum og áætluðum eldflaugum á báða bóga sem frekast er unnt. Grundvallarhugmynd Sovétmanna sýnist vera sú, að þeir eigi að fá samningsbundinn rétt til a.m.k. jafn mikils vígbúnaðar og ekki aðeins hitt risaveldið, Bandaríkin, helduröll hin stórveldin, sem neitunarvald hafa í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna samanlagt, þ.e. Bandaríkin, Bretland, Frakkland og Kína.“ -ESJ. skuggsjá ■ Simone de Beauvoir: verðlaunuð ■ Tennessee Williams: iátinn Af Tennessee Williams og Simone de Beauvoir B 1 ANDARISKA LEIKRITASKALDIÐ TENNESSEE WILLIAMS FANNST LÁTINN Á HÓTELHELBERGI SÍNU í NEW YORK Á FÖSTUDAGINN í SÍÐUSTU VIKU. Það telst sennilega til gráglettni örlaganna, að Williams, sem var þekktur fyrir ímyndunarveiki sína, skyldi kafna eftir að hafa, vafalaust óvart, gleypt lok af töfluglasi. Hann trúði því árum saman að hann hefði „alla þá sjúkdóma, sem mannkynið hefur kynnst", eins og hann orðaði það einu sinni, og bjóst alltaf við því að hjartað myndi gefa sig á hverri stundu. En dauðinn birtist oft með þeim hætti sem síst er von á. Bandaríkjamenn hafa minnst Williams sem eins af tveimur mikilhæfustu leikritaskáldum þjóðar sinnar fyrr og síðar, og að Williams látnum hafa sumir reyndar dregið í efa, hvort rétt sé að skipa honum aðeins í annað sætið á eftir Eugene O’Neill. Slík röðun skiptir þó auðvitað litlu máli og er reyndar að verulegu leyti marklaus; það, sem lifir áfram, eru verkin, og vafalaust er það rétt, að mörg þeirra hljóta að teljast í fremstu röð bandarískra leikbókmennta - leikrit eins og „The Glass Menagerie" (Glerdýrin), „A Streetcar Named Desire“ (Spor- vagninn girnd), „Cat on a Hot Tin Roof“ (Köttur á heitu blikkþaki), svo nokkur dæmi séu nefnd af tugum verka hans. Williams hét reyndar alls ekki Tennessee/'heldur Thomas Lanier Williams. Hann fæddist 26. mars árið 1914 í borginni Columbus í Missisippi. Hann var veiklulegt barn og varð af þeim sökum að þola háðsglósur frá föður sínum, sem var farandsali, pókerspilari og fyllibytta og kallaði drenginn „ungfrú Nancy“ í háðungarskyni. Þegar drengurinn var sjö ára flutti fjölskyldan úr Suðurríkjunum norður til St. Louis. Bæði honum og móður hans varð mikið um að breyta þannig um umhverfi, og Suðurríkin urðu þeim báðum uppspretta endur- minninga, sem síðar birtust ljóslifandi í leikritum Williams. Heimililslífið í St. Louis var óskemmtilegt. Stríð ágerðist á milli foreldranna. Tennessee fékk alls konar grillur; varð m.a. óstjórnlega hræddur við að sofna. Og eldri systir hans, sem var honum ástkær, varð geðbiluð svo að setja varð hana á hæli. Svo fór að lokum, að Tennessee, sem komist hafði í Missouri-háskóla, varð að hætta námi til þess að vinna fyrir sér. Hann fékk starf hjá skóframleiðanda sem verkamaður. En jafnframt var hann að reyna að skrifa, þótt hann hefði aðeins næturnar til þess. Hann líkti þessu tímabili í ævi sinni við „dvöl í helvíti", sem stóð í tvö ár - en þá fékk hann taugaáfall. Upp úr þessum jarðvegi sterkra tilfinninga, tragískra atburða og erfiðleika urðu leikrit hans til. Þannig mun Amanda í „The Glass Menagerie" að verulegu leyti vera byggð á móður hans, en systirin er talin fyrirmynd dótturinnar Lauru í sama leikriti og Catherine í „Suddenly Last Summer“ (Skyndilega síðasta sumar). Og stirð sambúð þeirra feðga endurspeglast í átökum feðganna í „Cat on a Hot Tin Roof“. TennesseeWilliams tók fyrir viðfangsefni, sem fáir höfðu áður talið viðurkvæmilegt að setja á leiksvið vestra, og gerði það af slíkri hreinskilni og tilfinningu, að hreif marga en hneykslaði aðra. Hann fjallaði um kynvillu, mannát, eiturlyfj- notkun, vergirni, kynkulda og drykkjusýki, svo fáein dæmi séu tekin. Söguhetjur hans eru tilfinningaríkar manneskjur, sem búa við einmanakennd, örvæntingu, sárs- auka og jafnvel geðveiki. Hann hefur verið kallaður lárviðar- skáld hinna úthröktu, glötuðu, sem oft á tíðum áttu ekkert eftir nema sterkar ástríður. í verkum hans tókust á um sterkustu tilfinningar manneskjunnar andinn og efnið, ást og dauði, sakleysið og spiilingin. Eftir erfiða byrjun sem rithöfundur hlaut Tennessee Williams frægð og frama; tvenn Pulitzer verðlaun í Bandaríkj- unum og sýningar á leikritum sínum víða um heim. Fjölda- mörg leikrita hans voru síðan kvikmynduð og sýnd við mikla aðsókn. Williams gerði oft greinarmun á því sem hann kallaði „hugsandi leikritaskáld" og hinum, sem eins og honum sjálfum „væri aðeins leyft að finna til“. Þær tilfinningar voru sterkar, og þær endurspeglast í verkum hans, sem munu lifa þótt hann hafi nú sjálfur kvatt þennan heim. E, /ITT SINN URÐU SONNING-VERÐLAUNIN DÖNSKU VELÞEKKT HÉR Á LANDI. Það var þegar Nóbelsskáldið okkar, Halldór Laxness, hlaut þau og íslensk- um námsmönnum í Kaupmannahöfn þótti við hæfi að mótmæla opinberlega af því tilefni, svo sem alræmt varð. En gildi frétta vill gjarnan fara eftir nálægð þeirra, og veiting Sonning-verðlaunanna til annarra en íslendinga hefur því ekki þótt sérlega fréttnæm hérlendis. Verðlaununum hefur þó að sjálfsögðu verið úthlutað árlega og oft til hinna merkustu manna. Að þessu sinni er verðlaunahafinn franski rithöfundurinn Simone de Beauvoir, sem bæði er þekkt fyrir eigin ritverk og fyrir langvarandi samneyti sitt og bandalag með heimspek- ingnum Jean-Paul Sartre, sem nú er látinn. Simone de Beauvoii; sem er orðin 78 ára að aldri, lifði óneitanlega lengi í skugga Sartre. Það kann að hafa haft nokkur áhrif á að hún hlaut nú þessi dönsku verðlaun, að þýðandi hennar í Danmörku er engin önnur en Margrét Danadrottning, sem naut við það verk aðstoðar eiginmanns síns, Henriks, sem er af frönskum ættum. Simone de Beauvoir er vissulega vel þekkt hér á landi, þótt hins vegar hafi fæstir lesið bækur hennar nema þá kannski eina og eina bók á erlendum málum. Það ritverk hennar, sem hlotið hefur einna mesta útbreiðslu, er „Le deuxieme Sexe“, sem kom út árið 1949, en þar fjallar de Beauvoir um málefni kvenna og kvenfrelsisbaráttu með eftirtektarverðum hætti. Áður en hún hóf ritstörf starfaði de Beauvoir sem kennari í heimspeki í ýmsum borgum Frakklands; Marseille, Rouen og svo í París. Á millistríðsárunum (1929) bar fundum hennar og Sartre saman, og þau voru óaðskiljanleg upp frá því. Hún hefur lýst lífi sínu með Sartre á umrótatímum í frönsku þjóðlífi og menningu bæði í skáldsögum sínum og í ítarlegri ævisögu, sem hún hóf að gefa út árið 1958 me,ð „Memoires d’une Jeune Fille Rangée" og hefur haldið áfram allar götur síðan. Endurminningar hennar hafa birst í mörgum bindum og kom það síðasta út í fyrra. Þar lýsir hún m.a. síðustu æviárum og svo dauða Sartre með svo nákvæmum hætti, að mörgum þótti nóg um, eins og reyndar hefur áður verið rakið í Skuggsjánni. Fyrsta skáldverk hennar var „LTnvitee" (1943), og er það að verulegu leyti byggt á hennar eigin reynslu og á þeirri heimspekistefnu, sem þau Sarte voru ákafir talsmenn fyrir og túlkendur - eksistensialismanum eða tilvistarstefnunni. Enda er það svo, að þekktustu skáldsögíir hennar byggja á sama hátt á hcnnar eigin reynslu í samfélaginu með Sarte - bæði „Le Sang des Autres“, sem kom út árið 1944 og fjallar um menntamenn í andspyrnuhreyfingunni, og svo „Les Mandar- ins“ (1954), þar sem segir frá fyrstu eftirstríðsárunum og vonbrigðum þeirra, sem gert höfðu sér miklar vonir um bjartari tíma í frönsku þjóðlífi og menningu þegar þeir tóku þátt í andspyrnunni við nasista og fasista. Það fór ekki framhjá neinum, sem til þek-kti á þeim tíma sem Mandarínarn- ir kom út, að þar voru aðalpersónurnar að mestu leyti byggðar á Sartre og sálufélaga hans - um stundarsakir að minnsta kosti - Albert Camus. Skáldsagan fékk mjög góðar viðtökur í Frakklandi og hlaut höfundurinn m.a. hin eftirsóttu Concourt- verðlaun að launum. -ESJ Elías Snæland Jónsson, skrifar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.