Tíminn - 06.03.1983, Síða 19
Wímitm
19
líktu kvæðura hans við málverk Bretans
Hogarth. Þeim hefur einnig verið líkt
við myndir Briighels yngra, sem fleiri
kannast ef til vill við. Bellman lýsir lífi
alþýðu, lífsgleði, fátækt. f drykkjuvísum
hans er bölvun áfengisnautnarinnar iðu-
lega skýr undirtónn. Þannig er oft stutt
frá drykkjugleðinni yfir í kirkjugarðinn
og þunglyndið hjá Bellman, enda er það
partur af hinu alþýðlega skopskyni hans
að snúa hlutunum á hvolf (en slíkt kenn-
ir bókmenntafræðingurinn Bachtin við
karnevalsanda). Bellman er einnig mikill
unnandi náttúrunnar og Stokkhólms, en
þar eru útgangspunktarnir kannski líka
á sína vísu alþýðlegir. Vissulega gerir
skáldið grín að hinum föllnu söguhetj-
um sínum, en þar gætir hvergi illgirni;
enda er haft fyrir satt að ekki hafi getið
góðgjarnari mann en Bellman. Mottó
hans í mótgangi og erfiðleikum var:
Tröllum meðan við tórum!, - „Bara
vállust finnes hár; / Glöm alt lifs besvár!“
Sýni
Postulabréf Fredmans hefjast á þess-
ari postullegu kveðju: „Rétt er það, það
drekkur enginn; drekkið kæru bræður!"
Síðar í bréfinu koma tvær vísur og má
snara þeim svona:
Skál vinir skálið þið!
Skál, gerum glasaklið!
Brennivín soldið
bleyti nú holdið;
játum Bakkí sið;
já skálið vinir skálið þið!
Sjá; vor systir Kajsa Stína.
Hvelfdar hennar flöskur skína.
Góða færðu kollu ://: mína
mér og súptu eins og við.
Skál, hér er vinaþröng!
Vor sorgarganga er löng
rétt eins og sukkið;
rammt skal nú drukkið
vín- ei vantar -föng!
Kajsa Stína staupum raðar
streymir í mér blóðið hraðar.
Ef að einhver staup mitt;//: skaðar
skræki ég minn svanasöng.
Postulabréf Fredmans eru ekki bein-
línis kvæði heldur frekar söngvar. Þetta
segi ég af því að þau tengja lag og ljóð
saman á svo snilldarlegan hátt að heyri
maður annað, finnst manni hitt alltaf
vanta. Fáir lesa Bellman en margir
syngja hann. Lögin tók skáldið yfirleitt
úr óperum og slögurum samtímans, en
breytti þeim oft, stundum kannski bara
einni nótu á þýðingarmiklum stað; en í
nokkrum tilfellum samdi hann einnig
lagið sjálfur (t.d. Ulla min Ulla, að talið
er). Vísnahefðin var rík í Evrópu á
þessum tíma (t.d. vaudevillelögin í
Frakklandi) og byggði Bellman á henni
auk óperunnar. Bellman var ekki mikill
nótnaskrifari og fékk aðstoð við að festa
lög sín á blað. En hann var mikill
spunamaður (impróvisator). Samtíma-
lýsingar segja okkur reyndar að hann
hvorku las ljóð sín né kvað þau, heldur
hélt hann heilar leiksýningar með þeim:
Hann hermdi eftir rödd þess sem talaði
í ljóðinu hverju sinni, hann lék skarkala
og veislur, hann hermdi snilldarvel eftir
ótal hljóðfærum, og látbragð hans setti
smiðshöggið á flutninginn. Heilagur
Fredman er raunverulega líkastur út-
varpskynni eða stjórnanda skemmtiþátt-
ar í sumum kvæðunum. Þau bestu eru
oft eins konar leikrit eða samtöl. Ágætt
dæmi um hvernig samtölum er tvinnað
saman við postullegar kveður hins ró-
lynda úrmakara er í lokavísu níunda
Postulabréfs, sem fylgir hér að lokum í
þýðingu minni:
Hæ! kjólum lyfta dömunar margar
dansa og hlæja, heyr: bassinn sargar;
fiðlarans myrru passið
og fyllið hans glas að brún.
Skál, faðir Berg, hvað skyldi hún heita
Skjálgeyga konan, já, þessi feita?
Permópólíumskassið,
já skrattinn! Það er víst hún.
(selló)----Reiðigjörn þjórar
(selló)----rasskinnar stórar
(selló)----------
ræsktu þig kellíng; blástu básún.
Bræður við göngum gyðjunnar veg
glymur nú tónlist ánægjuleg,
hér er Bakkus boðinn
hér er ástargoðinn
hér er allt og hér er eg.
HLJOMBÆR
HLJOM-HEIMIUS-SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGOTU 103 SIMI 25999
ÚTSÖLUSTAÐIR: Portið, Akranesi — KF Borgf. Borgarnesi —
Verls. Inga, Hellissandi — Patróna, Patreksfirði — Sería, Isafirði —
Sig. Pálmason, Hvammstanga — Álfhóll. Siglufirði — Cesar, Akureyri -
Radíóver, Húsavik — Paloma, Vopnafirði — Ennco, Neskaupsstað —
Stálbúðin, Seyðisfirði — Skógar, Egilsstöðum — Djúpið. Djúpavogi —
Hornbær, Hornafirði — KF. Rang. Hvolsvelli — MM, Selfossi —
Eyjabær, Vestmannaeyjum — Rafeindavirkinn, Grindavík — Fataval, Keflavík.
Aðeins
og eftirstöðvar
á 9-12 mán.
0 Þú eignast SHARP VHS
VIDEOTÆKI
• Þú verður þinn eigin myndastjóri
0 Velur hvaða mynd þú horfir á
— og hvenær
0 Þarft ekki að láta þér leiðast
einhæft sjónvarpsefni
0 Hoppaðu á þetta tilboð —
það gefst ekki betra.
SHARRVHS
VIDEOTÆKI
Verð fra kr. 31.160.-
STÆRSTA BIFREIÐASTÖÐ BORGA*V