Tíminn - 06.03.1983, Qupperneq 22
Fyrsta
plata
Q4U
Um miðja næstu viku kemur út
hjá Gramm fyrsta plata hljómsveitar-
innar Q4U og hefur hún hlotið
nafnið Q1. Þetta er 6 laga 12 tommu
plata cn á henni cr blanda af gömlum
þekktum lögum sveitarinnar eins og
t.d. Böring auk nýrra laga eins og
t.d. Tíksufrik.
Það cr óhætt að segja að aðdáend-
ur þessarar svcitar séu orðnir nokkuð
langeygir eftir þessari skífu en tónlist
Q4U hcfur þróast á undanförnum
árum úr því að vera pönkaðasta
pönk og í tölvupopp á diabolísku
línunni.
ítarlegt viðtal við Q4U mun birtast
hér í Nútímanum um næstu helgi.
MEZZO
í 61.
sæti
Hljómsveitin Mezzoforte heldur
áfram að gera það gott í Bretlandi og
er plata þeirra Garden Party nú
komin í 61. sæti National-listans
breska. Lp plata þeirra Surprise
stökk upp um rúm 70 sæti í síðustu
viku og er nú komin í 78. sæti
breiðskífulistans og ekki er útlit fyrir
að dragi úr hraða þeirra upp þessa
lista í bráðina.
Garden Party var valin hljómplata
vikunnar hjá einurn 5 útvarpsstöðv-
um í Brctlandi og sala á plötum
þeirra þar samanlagt er nú komin yfir
30 þús. eintaka markið.
Um miðjan maf fara meðlimir
MEZZOFORTE til Bretlands til að
hljóðrita nýja tveggja laga plötu, en
síðan halda þeir í hljómleikaferð um
Bretland og Evrópu.Áætlað er að
hljómsveitin dvelji erlendis allt næsta
sumar og endi hljómleikareisu sína á
því að fara í hljóðrásver í London til
að hljóðrita næstu breiðskífu í
sumarlok. Nú eru samningar ýmist
frágengnir eða á lokastigi um útgáfu
í eftirtöldum löndum: Hollandi,
Belgíu, Frakklandi, Þýskalandi,
Sviss, Austurríki, Ítalíu, Portúgal,
Skandinavíu og Suður-Afríku.
ÞAÐ ER SAMSPILIÐ
SEM SKIPTIR MÁU
— Haugur í kaffisamsæti
■ Haugur er sérkennileg hljómsveit.
Þess vegna gaf ég þeim, eins og siður er
í viðtölum, fullt af kaffi sem þeir ýmist
drukku, helltu niður, átu og skiluðu
aftur í klósettskálina. Þeir sem mér tókst
að safna saman af þessu fyrirbæri voru
Heimir bassaleikari, Bergsteinn
trommuleikari (áður meðlimir Jonee
Jonee) og Helgi sem leikur á hljómborð.
Hans fortíð er talsvert ólík hinna þar
sem hann hefur lært sleitulaust á hljóð-
færi í níu ár og býr þar að auki á
Húsavík. Gítarleikari og aðalsöngvari
Haugsins, Einar, vildi ekki koma í þetta
viðtal né bendla sig við það.
Eins og áður hefur verið auglýst spilar
Haugur á Borginni næsta fimmtudag
ásamt iss! og Hazk, og verður þar, að
sögn Haugsins, mikið um nýjungar, t.d.
verða nokkrir video-skermar hér og þar
um staðinn þannig að hægt verður að
fylgjast með á fleiri stöðum en fyrir
framan sviðið.
Þar sem hljómsveitin virkar mjög
sterklega sem ein heild og meðlimir
hennar samrýmdir, ætla ég ekki að taka
fram í viðtalinu hver sagði hvað og hver
þagði þegar hann átti að segja eitthvað
gáfulegt. Það er bara Haugur sem svarar.
Tónlistarþörf
Einhver ástæða? Bara þörfin að spila,
tónlistarþörf. Það er það eina sem við
eigum sameiginlegt. Mér finnst ég ekki
vera að segja neitt með þessari hljóm-
sveit annað en það að ég vil bara spila.
Það eru ennþá hræringar í hljómsveit-
inni, músíklegar, og það bendir til þess
að tónlistin túlkar meira en textarnir. Ég
er t.d. miklu hrifnari af því að hafa bara
mjög stutta texta, jafnvel bara eina
setningu sem er nóg, sem segir allt sem
langur texti segir. Við vorum einmitt að
hugsa um að nota myndvarpa á tón-
leikum og varpa textanum á hvítt tjald
meðan við spilum. Þannig kemst hann
líka betur til skila.
Einhver tengsl við
Jonee Jonee?
Neee... það var svona.. hvað á ég að
segja.. miklu meiri leikaraskapur, hroð-
virknislegra. Annars er það tvennt sem
tengir þessar hljómsveitir saman, við
undirstrikum tónlistina ennþá með sviðs-
framkomu og búningum. Við vorum
cinmitt að tala um það áðan að fyrst við
værum þarna á sviðinu á annað borð að
við notuðum okkur veruna á sviðinu og
áhorfendur fengju eitthvað meira.
Annars gæti þess vegna bara verið teip á
sviðinu og við setið á stólúm og horft á.
Samspil tónanna
Samspil tónanna skiptir mestu máli,
lokasamspilið, ekki hvað þú gerir mikið
á hljóðfærið. Það er samspilið sem
skiptir máli. Enda hef ég verið að hugsa
um það að einföldustu frasar hjá ...
kannski einhverri „flókinni" hljóm-
sveit... finnst mér oftast langflottastir.
Einfaldleiki í tónlist er oft afskaplega
sjarmerandi.
í þau skipti sem ég hef séð ykkur spila
hefur tónlistin virkað mjög einbeitt og
ákveðin.
Já, hluti af því er hvernig við notum
sviðið og búningana. En ennþá höfum
við ekki ákveðið neina stefnu, það
þróast bara af sjálfu sér. Nafnið Haugur
stendur t.d. ekki fyrir neitt sérstakt, þú
getur bara lagt þinn skilning í hvað þessi
Áhrif
Auðvitað höfum við áhrifavalda. Allt
sem þér þykir gott, hvaðan sem það
kemur, geymirðu í hausnum og notar
það ósjálfrátt. Það er bara staðreynd.
En við vonumst til að geta kallað okkar
músík íslenska þótt hún sé það ekki að
fullu ennþá.
Haldiði að þið hafið einhverja sér-
stöðu í íslenska bransanum?
til við teljum okkur vera reiðubúna. En
þótt við teljum okkur kröfuharða þá má
neistinn ekki hverfa, t.d. hljómar ný-
samið lag alltaf best í upptöku, ferskt og
fullt af krafti.
Það var komið að mér að tappa af. Á
meðan rúliaði kassettutækið og til að
nota tímann töluðu Haugsmenn titrandi
af kaffineyslu:
Svo eru líka svo margir sem halda það
að því flippaðri sem tónlistin er, brjá-
haugur inniheldur, hvort sem það er gott
eða vont. Það er eins og Haugur öskri á
þig og segi þér að ákveða hvers lags
músík þetta er. Alveg hlutlaust nafn...
Yinnubrögð
Við erum orðnir það kröfuharðir
núna, að ná saman einu lagi er meirihátt-
ar verk, t.d. frá því í Jonee Jonee þegar
það var bara: ah, þetta er fallegur
bassafrasi og trommurnar svona og lagið
komið. Nú er þetta vinna. Músíkin þarf
mjög gott sánd og við leggjum mikið upp
úr heildarútkomunni.
Takið þið ykkur mjög alvarlega?
Já, tónlistina. Ekki okkur. Við leggj-
um okkur alla fram á tónleikum og
viijum gera eins vel og mögulegt er.
Helst viljum við ekki fara upp á svið
nema allt sé alveg pottþétt. Þetta er ekki
hugarfarið sem var í Jonee þótt við séum
ekki að halda því fram að við séum
orðnir mjög alvarlegir spekúlantar.
En Helgi, þar sem þú ert hálærður
tónlistarmaður, finnst þér námið hafa
skemmt fyrir eða heft þig í þessari
tónlist?
Nei. Þrátt fyrir að ég hafi haft vissa
fordóma gagnvart einfaldleika og svo-
leiðis, er það alveg horfið. Annars var
það Joy Division sem kom mér á sporið
þótt ég hlusti á allar tegundir tónlistar.
Mér finnst svo vont að svara þessu því
það gæti komið svo væmið út.
Segðu þá bara þvert nei...
Það er heldur ekki satt. Ég vona bara
að einhvern daginn hættum við að verða
fyrir áhrifum frá Englandi, sérstaklega,
og getum skapað eitthvað sem kemur
algjörlega frá okkur sjálfum. Og er
hreinræktað íslenskt.
Hafa áhorfendur einhver áhrif?
Áhorfendur skipta auðvitað miklu
máli. Það er alveg stórfurðulegt t.d. í
NEFS (FS) að þeir skuli alltaf þurfa að
' troða stólum og borðum í salinn, það
myndast ekki nokkur sterrmningþegar
meiriparturinn af liðinu situr. Burtséð
frá því erum við mjög ánægðir með
áhorfendur yfirleitt og alveg hreint gátt-
aðir á hvernig okkur hefur verið tekið..
Jafnvel áður en við höfum byrjað að
spila hafa áhorfendur virkað hvetjandi,
kannski fíla þeir bara svona vel sviðsupp-
stillinguna eða búningana eða eitthvað.
Plata?
Það er ekkert farið að pæla í plötu,
það er of hættulegt strax. Ef við hefðum
áhuga á að gefa út plötu held ég að það
yrði lítið mál, við jturfum bara að bíða ’
eftir góðum grundvelli fyrir það, þangað
læðislegri, því meira fái tónlistar-
mennirnir út úr því að spila hana. Ég
skemmti mér oft mjög vel bara með því
að spila eina nótu...
Mér finnst mötunin vera orðin svo
mikil í heiminum, auglýsingaflóðið og
allt það, þess vegna vil ég hvetja fólk til
þess að hlusta til þess að vera meira fært
um að dæma sjálft, og til þess að alls
konar karlar með eingöngu gróðasjónar-
mið í huga geti ekki matað það á alls
konar rusli bara með því að leggja það
á borðið og telja því trú um að það hafi
ekkert vit á tónlist og segja að eitthvað
ákveðið sé gott.
Ég held að grunnurinn að Haugnum
sé bara tónlistin, ekki nein hugmynda-
fræði. Hugmyndafræðin okkar er bara
tónlistin. Þú getur þess vegna haft viðtal-
ið: við erum tónlist. Það mundi segja
allt...
Áður en ég kastaði Haugnum út
urðum við sammála um að þetta viðtal
væri bara út í hött, eini tilgangurinn með
því væri að auglýsa og hvetja fólk til að
sjá þá áður en frekari breytingar eiga sér
stað á tónlistinni. Enda sungu þeir
hástöfum It’s now or never þegar ég
skellti á þá hurðinni.
Bra
ER SETIB Á
HUGARHÆGÐUM?
■ í tengslum við viðtalið við Hauginn
birtum við hér þrjá texta. Oftast er það
þannig í hljómsveitum að einn af með-
limunum semji textana, en Haugurtelur
fjóra textasmiði og hér er brot af af-
rakstri þriggja þeirra.
Dónasálir
Lýsnar gera víðreist
um iður krossfara
skríðandi, skítugar
skjallandi vanvita.