Tíminn - 06.03.1983, Qupperneq 23
SUNNUDAGUR 6. MARS 1983
Echo & the
Bunnymen med
tvenna tónleika
■ Echo & the Bunnymen við Gullfoss.
■ Breska hljómsveitin Echo & the
Bunnymen heldur að öllum líkindum
tvenna tónleika hérlendis þann 2. júlí
n.k., í Austurbæjarbíói sama daginn.
Þeir félagar í hljómsveitinni munu
hafa mikinn áhuga á að koma hingað og
eftir því sem Nútíminn kemst næst á
aðeins eftir að ganga frá einhverjum
smáatriðum til að af tónleikunum geti
orðið.
Hljómsveitin var stödd hérlendis í
fyrra og var þá tekin mynd af þeim við
Gullfoss og prýðir sú mynd nú nýjasta
albúm þeirra „Porcupine".
Raunar munu þeir félagar upphaflega
hafa ætlað að leika hér fyrir einum 2
árum, og þá með hljómsveitinni Tear-
drop Explodes og var ætlunin m.a. að
halda þá tónleika í Lystigarðinum á
Akureyri en ekkert varð úr þessum tón-
leikum.
Þeir sem standa fyrir komu Echo eru
með fleiri hljómsveitir í sigtinu, þeirra á
meðal Iron Maiden sem tekið hafa vel í
tónleikahald hér og þar að auki nýjasta
spútnikinn á Bretlandseyjum Boy Ge-
orge en Nútíminn mun fylgjast grannt
með þróun mála á þessum vettvangi á
næstunni.
-FRI
Lesendabréf á
bleiku línunni
■ Þetta virðist ætlað að verða ár
lesendabréfanna hjá Nútímanum, alla-
vega höfum við fengið fleiri bréf þessa
fyrstu tvo mánuði ársins en við fengum
allt árið í fyrra og erum að sjálfsögðu
hæstánægðir með það, vonum að fram-
hald verði á. Hér er eitt sem skrifað er
vegna lesendabréfsins „á þungu lín-
unni“ sem birt var um daginn en fyrir-
sögnin á þessu höfðar til litarins á
umslaginu.
„Heill og sæll Nútími góður.
Mig langar að mótmæla því sem
Lolla (Lovís Sigurjónsdóttir) sagði,
eða réttara sagt skrifaði, að Egó yrði
valin lélegasta hljómsveitin ef út í það
væri farið. Er það nú rugl. Getur hún
þá sagt mér af hverju Egó er
langvinsælasta íslenska hljómsveitin?
Ég er viss um að hún yrði í neðsta sæti
í keppninni um lélegustu hljómsveit-
irnar en ætli Centaur yrði þar ekki í
efsta sæti.
Lovísa dræpi mig ef hún fattaði að
hún veit alveg hver ég er en eitt skal ég
segja henni; Egó fer batnandi með
hverjum deginum og er nú með hundr-
að sinnum betri bassaleikara.cn áður.
Annað er að bróðir minn er pönkari,
á að vísu ekki heima hér, en þegar ég
er heima hjá honum hef ég ekki orðið
var við að hann sæti á klósettinu allan
tímann.
Virðingarfyllst Billa“
Fáir njóta Bónin
færri vita Hinu megin við hólinn
Haldið huldu er sólin. »
hræsnara brauð. Og þangað ætla ég,
Nýliðum nauðgað með bón, um eitthvað betra. (Heimir)
njálginum sleppt
Sjaldan svíður Tóm
samviskuleysi Autt blað
Versa vaktað Ekki neitt Hvergi neitt sérstakt
vanvitanna Skeindir skaufar Aldrei aftur
skattgreiðenda. Og aldrei áður
(Bergsteinn) Hvorki fyrr né síðar. (Helgi)
SKEMMTILEG
SUMARHÚS
Eltl mun örugglega henta yður
Nú bjóðum við landsmönnum öllum glæsileg sumarhús á ótrúlegu verði sem allir ráða
við, á ýmsum byggingarstigum. Komið og kynnið ykkur gæði húsanna og hagstæð kjör.
B.H. SUMARHÚS
Auöbrekku 44—46 Kópavogi
(Dalbrekkumegin)
Upplýsingar í síma 46994.
Útboð
Tilboð óskast í gólfefni á sal (27x44) ganga og áhaldageymslur fyrir
íþróttahús Digranesskóla við Skálaheiði í Kópavogi.
Verkið skal unnið í ágúst 1983. Tilboðsskrá verður afhent á
tæknideild Kópavogs Fannborg 2.
Tilboðum skal skila á sama stað mánudaginn 28. mars 1983 kl. 11
og verða þá opnuð að viðstöddum bjóðendum.
Bæjarverkfræðingur Kópavogs.
BÆNDUR,
l aörir eigendur Land-Rover
l Range-Rover bifreiöa athugið!
HÖFUM ÚRVAL VARAHLUTA OG BODDÝHLUTA í LAND-ROVER
OG RANGE-ROVER, EINNIG VARAHLUTI í MITSUBISHI
Þekking og reynsla
tryggir þjónustuna.
smi
sf.
Varahlutaverslun Fjölnisgötu 18, Akureyri
Simi 96-21366
VARAHLUTIR - AUKAHLUTIR - HEILDSALA - SMÁSALA