Tíminn - 27.03.1983, Side 10

Tíminn - 27.03.1983, Side 10
SUNNUDAGUR 27. MARS 1983 10 fólk í listum „Folk sem lærir að njóta lista verðurbetra ogvíðsýnna” Baldur Hafstað ræðir við Elías B. Halldórsson listmálara ■ Elías B. Halldórsson hefur búið á Sauðárkróki í mörg ár. Hann hætti í ágætri vinnu sem verkstjóri hjá Sauðár- króksbæ árið 1974 og hefur helgað sig listinni síðan. Fram að þeim tíma hafði hann málað á sunnudögum og síðkvöld- um, „hcnti 15 árum í ekki neitt“, eins og hann orðaði það. Hélt þó einar þrjár sýningar á þeim tíma, m.a. í Bogasal Þjóðminjasafnsins 1967. Elías hefur haldið nokkrar sýningar á síðari árum og hlotið lof gagnrýnenda. Elías er ættaður úr Borgarfirði eystra, fæddur í Snotrunesi, þar sem foreldrar hans báðir voru einnig fæddir, þau Halldór Ármannsson og Gróa Björns- dóttir. Um Snotruncs er getið í álfa- sögum. Þarna bjuggu lengi Elín og Björn, móðuramma Elíasar og afi, og var hann skírður í höfuðið á þeim hjónum. Björn bóndi í Snotrunesi þótti maður höfðingdjarfur og var í konungs- móttöku þar eystra árið 1907. „Fyrst heilsaþi ráðherrann, svo biskupinn og svo ég“, sagði Björn og bætti við. „Síðan komu Sunnlendingar, sjómenn og alls konar drasl". Björn þessi var berserkur, maður ekki einhamur, og neitaði að gefast upp, einnig eftir að hann var orðinn blindur. Þegar hann var í þann veginn að missa sjónina tók hann sér ferð á hendur til að sjá fyrstu sláttuvélina í byggðarlaginu. Hann gleymdi sér við að fylgjast með henni og það varð að gæta hans svo hann stigi ekki á Ijáinn. Þegar blindan var orðin alger villtist hann eitt sinn á leið til kirkju, gekk upp á fjall og ætlaði að neita að snúa við svo viss var hann um að hann væri á réttri leið. Hann söng söguljóð á nóttum í æsku Elíasar. En í hinum enda hússins söng Halldór faðir Elíasar sálma upp úr svefni. Þegar Elías fór fyrst að heiman fannst honum eitthvað vanta, hann saknaði söngsins og átti erfitt með svefn. Þegar blaðamann bar að garði hjá Elíasi einn illviðrisdag milli jóla og nýárs voru þeir að störfum hann og sonur hans Sigurlaugur, sem nú stundar nám í Handíða- og myndlistaskólanum. Vinnustofan er í afhýsi við bústað Elías- ar, ekki mikið stærri cn bílskúr, en með stórum glugga á móti suðri. Þarna sátum við innan um ófullgerðar og fullgerðar myndir við kaffibolla og súkkulaðimola. Fyrst var aðeins vikið að skólagöngu Elíasar. „Ekki verður þú nú listamaður“ Hann var í Eiðaskóla hjá Þórarni Þórarinssyni og fleiri góðum kennurum. Hann teiknaði ekki í barnaskóla, og ekki heldur á Eiðum fyrst í stað. En það kom að því að hann teiknaði uppstopp- aðan fálka. Þórarinn skólastjóri sem var liðtækur málari sjálfur leit á myndina og mælti þessi hughreystandi orð sem Elías er honum þakklátur fyrir: „Jæja Elías minn, ekki verður þú nú listamaður". Elías.hugsaði honunt þegjandi þörfina og varð næsthæstur í teikningu um vorið. Leiðin lá í Kennaraskólann, og voru það mikil viðbrigði. „Mér fannst þar allt svo vitlaust að ég lagðist í fyllerí. Flestir kennararnir voru ógurlegir þursar. Tveir stóðu þó upp úr, þeir Ásmundur Guð- mundsson biskup og dr. Broddi Jóhann- esson. í stærðfræðinni hjá Brodda gengu öll dæmin upp í rollum, svörtum og hvítum. - Það var ekki fyrr en löngu seinna að Elíasi datt í hug að fara í Myndlistarskólann. Þá var hann orðinn 25 ára og búinn að ala með sér skáldskap- ardrauma. Hann hafði kynnst nokkrum málverka Kjarvals í æsku heima í Borg- arfirði, skoðaði þau að vísu meira sem landslag en listaverk. Haft er eftir Kjarv- al að Borgarfjörður eystri væri staður til að ala af sér listafólk, slík væri náttúru- fegurð þar. Kjarval gaf Elíasi fyrsta túkallinn. Þeir voru nokkrir strákar sem áttu að lyfta blóðugri hnísu upp á klakk. Þeim óaði eitthvað við þessu félögum hans og lenti það því á Elíasi. Kjarval þótti þetta vasklegt og gaf drengnum túkall. Elías fer ennþá austur í Borgarfjörð á hverju sumri, gengur þá um fjörðinn og „Víkurnar", jafnvel alla leið í Loðmund- arfjörð, og „sækir þangað stemmningar sem aldrei gleymast" og koma fram í myndum hans. Hann málar fremur lítið úti. Það er búið að mála svo mikið landslag. „Víkurnar" eru sambland af fslandi og Færeyjum í gróðurfari og landslagi. Þar er Glettinganes og vitinn sem Elías dreymdi um að gæta eftir að hann var byrjaður í Myndlistarskólan- um. Hann langaði stundum til að hætta við alla myndlist og komast eins langt frá skólanum og mögulegt væri, nefni- lega í Glettinganesvita, og í þá kyrrð, sem þar hlaut að vera. En hann hélt áfram námi og var hjá góðum kennara, Sigurði Sigurðssyni (frá Sauðárkróki). „Sigurður var góður við þá sem vildu læra, hann kenndi okkur að bera virð- ingu fyrir starfinu og berjast, en reyna ékki að komast létt út úr vistinni". Leiðin lá svo til áframhaldandi náms í Stuttgart, og árið eftir til Kaupmanna- hafnar. „Myndlistin lét mig aldrei í friði“ Svo hefjast brauðstritsárin. Blaða- maður spyr hvort ekki hafi verið bölvað að sleppa góðri vinnu og hætta á ótrygga afkomu. „Sjálfsagt þætti mörgum af- raksturinn ekki beysinn. Peningar streyma ekki stöðugt inn. Ég hef t.d. ekki selt nema eina smámynd síðan í vor. En það er fleira verðmætt en peningar. Maður verður leiður, um- hverfist, verður smám saman að um- skiptingi, ef maður fær ekki að sinna áhugamálum sínum. Myndlistin lét mig aldrei í friði. - Hitt er reyndar líka rétt að það klýfur mann ef maður þarf að taka mikið á og „krítisera" sjálfan sig stöðugt. í listinni þarf alltaf að berjast við hlutina. Annars hættir maður að þroskast. Menn eiga að geta þroskast fram á elliár ef þeir eru á verði. Það sakar ekki að lesa góðar bækur og skoða verk annarra“. ~ Má maður vera of gagnrýninn á sjálfan sig? ■ Elías B.. Halldórsson listmálari að starfí í vinnustofu sinni á Sauðárkróki „Maður verður auðvitað að finna jákvætt í því sem maður er að gera. Margir hafa strandað á of mikilli sjálfs- gagnrýni. Lífsviðhorfið mótast af innri birtu - eða myrkri. Stundum gengur vel, stundum illa. Ég geri mér ekkert of háar hugmyndir um mig. Ég veit hinsvegar að ég má vel við una. Þetta gengur mest út á vinnu. Ef maður hefur neistann og lærdóminn, þá er það sem eftir er vinna og jákvætt lífsviðhorf. Edvard Munch, sá frægi norski málari, sagði að árangur í málaralist byggðist 99% á vinnu, en í þessu eina prósenti þyrftu að vísu að vera hæfileikar". „Heimurinn yrði fátækur án lista“ - Gera menn sér almennt grein fyrir mikilvægi listarinnar? „Ætli það, enda kannski erfitt að mæla slíkt. En það mætti hugsa sér hvað heimurinn yrði fátækur án lista. Húsin t.d. breytast fyrir tilverknað listanna. Arktitektar læra af myndlistarmönnum og þannig fær myndlistin hagrænt gildi. Þannig mætti lengi telja.“ - Ofbýður þér smckkleysi manna? „Mér ofbýður fátt. En ég vorkenni fólki oft, t.d. fólki sem á nóga peninga og vill gera heimili sín falleg. Það leitar að einhverju sem það hefur séð annars staðar. Stundum eru keyptir góðir hlutir, t.d. falleg húsgögn. Svo eru hengdir upp lélegir hlutir og drasl innan um góðu hlutina og útkoman er hallærislegur samtíningur. Fólkinu hefur ekki verið sagt til. Það hefur ekki hlotið þá menntun sem þroskar það, það finnur oft ekki þessa kennd sem felst í góðu listaverki. Einhvern tíma heyrði ég haft eftir Laxness að sveitastúlka kom í vist á menningarheimili og sá þar sérkenni- legt abstraktmálverk. Stúlkunni fannst það Ijótt og sagði að þessu mætti nú henda. Seinna fannst henni að það mætti kannski henda öllu á því heimili nema þessari mynd. - Ég hef oft vitað svipaða sögu endurtaka sig. Menn þurfa ekki nauðsynlega að hafa neitt sérstakt vit á myndlist til að geta notið hennar. En fordómarnir og bjána- legt viðhorf tii listafólks eru til baga. Menn eru svo gjarnir að dæma það sem þeir þekkja ekki. Ég held að það fólk sem lærir að njóta lista verði á eftir betra fólk og víðsýnna. Listamaðurinn sjálfur er auðvitað ekkert betri en aðrir, hann nýtur verksins öðruvísi." „Menn rugla saman mynd og mótífí“ - Eru sýningar þínar hér á Sauðár- króki vel súttar? „Það koma færri á sýningar mínar nú en áður. En viss hópur kemur alltaf og sýnir myndlist mikinn áhuga. Það er algengt að menn rugli saman mynd og mótífi. Margir halda að mynd sé best ef hún er sem nákvæmust eftir- mynd af landslagi, en slíkt segir auðvitað ekkert um myndina. Hér um árið vildi bæjarstjórn Sauðárkróks fá myndastyttu í bæinn og hún varð endilega að vera af hrossi. Það var þó nóg af hrossum í Skagafirði. Það hefði óneitanlega verið skemmtilegra að koma fyrir glæsilegu listaverki uppi á Nöfunum sem bæri við himin og vekti eftirtekt, sett svip á bæinn. Það er forsmán hvernig skólarnir hafa brugðist listunum. Hvenær hefur listdans verið kenndur í skólum, leiklist eða framsögn? Ég trúi því að þetta séu nauðsynlegir hlutir. Sá sent ekki getur borið fram getur ekki borið virðingu fyrir móðurmálinu. Ég fyllist vorkunn og leiðindum þegar ég heyri einhvern fara með texta sem kann ekki að bera fram. Það ætti ekki að vera neitt ógurlegt stór átak að fá leikara á staðinn. Skólarn- ir og leikfélagið ættu að geta notfært sér hann í sameiningu. Það þarf eitthvað að fara að gerast í meningarmálum hér. Nútíminn kallar á þetta. Það þurfa að koma upp fleiri klúbbar en matar- og drykkjuklúbbar. Það er komið hingað fólk sem getur kennt allt mögulegt og stuðlað á ýmsan hátt að menningarlífi. „Listamannahús á vegum bæjarfélagsins“ Þeirri hugmynd hefur verið slegið frarn hér að bæjarfélagið festi kaup á litlu húsi þar sem listamönnum vcrður -boðið að dvelja nokkra mánuði hverjum. Þessir listamenn gætu svo kynnt sína list fyrir skólafólki og almenn- ingi. Það er margt listafólk sem þráir að komast út úr skarkala borgarinnar um tíma, skipta um umhverfi. Staðurinn hér er að mörgu leyti upplagður til að hýsa slíkt fólk. En það þarf að standa vel að þessu. Það þarf að sýna fólki fram á að þetta borgar sig. Menn ættu nú að skilja gildi auglýsingarinnar. Svona framtak vekti athygli víða. Og kynni okkar af listafólkinu mundu vekja áhuga okkar á hugðarefnum þess. Annars konar húsnæði í þágu listanna væri mjög æskilegt. Það er vinnustofa þar sem fólk gæti komið þegar það vildi og málað eða stundað aðra list. Leið- beinandi gæti svo komið einu sinni í viku eða svo og sagt mönnum til, laumað inn þekkingu sinni. Slíkt mundi smita út frá sér. Áhugamenn hafa rætt þetta sín á milli þótt ekki hafi orðið af framkvæmd- um, því miður. Talið barst að ýmsum efnum, og aðeins fátt eitt var fest á blað. Það var gaman að koma í vinnustofuna til Elíasar þennan illviðrisdag. Það var dimmt yfir þótt um miðjan dag væri. „'Ef ég ætla að Ijúka við myndir er ég háður dagsbirtu. Ég legg mikið upp úr að fá hreinan tón, og hann sést ekki nema við dagsljós.“ Þegar blaðamaður kveður hugsar hann um tónana og birtuna í myndum Elíasar B. Halldórssonar, og dansinn sem þar er stundum stiginn. Það er líka eins og gamalli þjóðsögu hafi brugðið fyrir, jafnvel broti úr löngu gleymdu Ijóði. Ljóðið hefur löngum verið Elíasi hug- leikið. Fyrir mörgum árum teiknaði hann myndir undir áhrifum ljóðabálks- ins Tíminn og vatnið eftir Stein Steinarr. Maður sér þau kvæði í nýju ljósi eftir að hafa skoðað þessar myndir. Álfgrímur í Brekkukoti fékk tfeyring að gjöf frá séra Jóhanni þegar hann steig sín fyrstu skref í leitinni að hinum hreina tóni. Elías í Snotrunesi fékk túkall hjá Kjarval þegar hann lyfti hnísunni upp á klakkinn. Það er eins.og Kjarval hafi séð eitthvað í þeim atgangi sem listamaður- inn þarf að vera búinn: „karakter'* lausan við yfirborðsmennsku, og góðan skammt af þrjósku, stífni og þolgæði. Við kveðjum Elías með þökkum og óskum honum alls hins besta.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.